Vísir - 06.06.1958, Blaðsíða 10

Vísir - 06.06.1958, Blaðsíða 10
IfiL VÍSIR Föstudaginn 6. júní I95E 39 — Segiö bara Conelly, að veröið sé of hátt, — Það væri ekki sanngjarnt að selja hana ódýrara. — Hann verður að fórna einhverju, ef hann vill selja hana, sagði Tom stuttaralega. Vinnumaðurinn horfði dapurlega á þau um leið og hann fór. En þegar hann var komin spölkorn burtu heyrðu þau hann blístra. Það taknaði, að dagsverkinu væri lokið og að hávaðinn í eldhúsinu færi að byrja. Nú heyrðist ekki lengur neitt manna- mál í garðinum bak við eldhúsið. Skugga sló á fjöllin og kvöld- himininn var orðinn rokkinn. — Conolly er frændi móður hans, sagði Tom, þegar þau heyrðu ekki hvíslið lengur. Hann fær ekki það, sem hann heimt- ar fyrir hryssuna, en sennilega fær hann ofurlítið meira en hann gerir ráð fyrir. Jafnvel þótt þú hafir ekki séð hana? — Eg sá hana í vetur. Þetta er ekki gott ganghross, en hún er falleg. Mér datt í hug, að þér mundi geðjast að henni. — Eg veit ekki, Tom.... — Við sjáum nú til. Það liggur ekkert á. Við getum ekið þangað og litið á hana. Maura svaraði ekki. Þau beygðu inn á gangstiginn og gengu upp að húsinu. Það gekk á með smávindkviðum. Það var ekki ennþá farið að kveikja í húsinu. Allt í einu greip Tom undir hönd henni. — Komdu, við skulum lykta af rósunum. Það er orðið langt síðan eg hef þefað af rósunum að kvöldlagi. Það var sterkur ilmur af rósunum. — Eg hef saknað þín, sagði Tom. — Hvenær þá? — Eftir að teið var drukkið, þegar þú fórst niður til strand- arinnar. — Eg var ekki lengi burtu. — Nei. Það var heimskulegt af mér. En eg var glaður, þegar eg sá þig aftur. — Þú heíðir getað farið og leitað að mér. — Eg vissi, að þú mundir koma aftur. — Já. Það hvessti af fjallinu og nú var vindurinn svalur. Hár Mauru ýfðist. — En hvað hér er fallegt, Tom. Fjallið er dásamlegt. — Já. Á vissan hátt er það fallegra en ítölsku fjöllin. Það er vinarlegra. Ef til vill finnst mér það vinalegt af því að eg hef horft á það alla ævi og eg er vanur því. — Að lokum veit maður ekki, hvar maður á heima— né heldur hvað heyrir manni til. Hún greip í hönd hans. — Komdu nú inn. Það er orðið kalt. Þau þögðu á leiðinni. Annar k'afli. Gerald vildi láta fresta því lengur að kveikja á lömpunum í matsalnum. Nú var kvöldið orðið svalt og eldur var á arninum. Hann var ekki vanur að tala meðan á máltíðinni stóð. Hann hafði vanist þögninni eítir aö Tóm og Harry fóru í skólann og á stríðsárunum. Hann hafði. alltaf vitað, að þögnin hæfði hon- um bezt. Hann var mjög feiminn og hlédrægur maður. Samræður þeirra voru einkennandi fyrir tvær manneskjur, sem lengi hafa þekkt hvor aðra og verið vinir. Hann hafði aldrei spurt Tom, hversu lengi hann hefði haft í huga að kvænast Mauru. Og hann kærði sig ekki um að vita það. — Tom hafði af frjálsum vilja, verið fjarverandi frá Rathbeg í fjögur ár og þetta var ekki nein skyndileg ást. En hann gat ekki botnað í, að hér lægi neitt sérstakt á bak við. Allt í einu varð Gerald sorgbitinn út af því að honum þótti svo vænt um þau, en gat ekki skilið þau. — Eg gekk út fyrir ytri oddann, sagði Maura. — Þar við vík- ina er oddi, en enginn bátur. Gerald laut fram yfir borðið. — Mary Stanley á þar heima. Manstu eftir henni, Tom? — Já. Eg hef ekki séð hana síðan stríðið hófst. — Hún kemur stundum til borgarinnar, þegar torgsala er. Þá selur hún grísi. En annars sést hún aldrei. Og láttu þér ekki detta í hug, að hún verði sérlega hrifin af að sjá þig. Hún er hrædd við allar heimsóknir. Hann leit á Mauru. — Faðir hennar átti vefnaöarverksmiðju í Belfast, en missti alla peninga sína. Þá fluttu þau í þetta hús. Og þegar hann dó var hún ein eftir í kofanum. Mér hefur oft fundizt eg verða að gera eitthvað fyrir hana, en það er sýnilegt, að hún vill fá að vera í friði. Þegar Maura leit á Gerald braut hann heilann um, hvort hún j gerði sér ljóst, hversu töfrandi andlit hennar væri. Það var að vísu ekki fagurt — en það hélt athygli manna. Á þessum gráu kvöldum var það þreytulegt og dálítið dapurlegt. Hún bar það greinilegal með sér, að hún var dóttir hins fræga frænda hans, Desmonds.j Hún hafði sama rannsakandi svipinn, en ekki harðneskju hans og hlífðarleysi. Eftir kvöldverðinn mundi hún ef til vill spila fyrir þá — ef til vill gæti hann fengið hana til að spila eitthvað eftir Chopin. Tónlist hans féll honum betur í geð en tónlist Brahms og Beethovens, sem henni geðjaðist betur að. Síðan Maura og Tom kornu hafði hann hlakkað til þess, að hún settist að á Rathbeg. Hann mundi eiga mörg kvöld sem þetta og það gladdi hánn, aðj Tom skyldi heldur vilja kvænast Maurú en einhverri annarri. Það var engu stefnt í óvissu, þar sem hún var annars vegar. Þau þekktu hvort annað og voru þolinmóö hvort gagnvart öðru. Hún var ekki of ung heldur. Og hún hafði það öryggi, sem uppeldi hennar hjá Desmond hafði veitt henni. Eitt sinn hafði Gerald hugsað til þess með kvíða, að börn hennar yrðu kaþólsk, en með tímanum hafði sú tilfinning dofnað og nú orðið hafði liann lítið sem ekkert við það að athuga. Tom hafði þegar tekið ákvörðun sína. Gerald vonaði, að hún eignaðist bráðum bam, því að það hafði svo lengi verið hljótt og gleðisnaut á heimilinu. Hann hélt, að engan grunaði, hversu mjög hann saknaði Harry’s. Enn í dag var það svo, að er hann minntist þess dags, er hann fékk tilkynninguna um lát hans, varð hann mjög harmþrunginn. Harry hafði verið iðinn og ástundunarsamur. Hann hafði ekki borið jafnmikinn persónuleika og Tom og ekki verið eins glæsi- legur, en hann hafði verið félagslyndari, óbrotnari og hann hafði haft meiri áhuga á landbúnaöi. Harry hefði aldrei gert það sama og Tom; að vera fjarverandi frá Rathbeg í fjögur ár, til þess aö læra, hvernig ríkið hagaði landbúnaði í Englandi. Harry hefði verið kyrr heima og hugsað um búið og ráðsmennsk- ast eftir eigin höfði. Hann hefði kvænzt Sheelagh Dermott og þá hefðu verið barnabörn á heimilinu í stað þess, að einungis var von um, að þau myndu einhverntíma koma. Gerald varð skyndilega leiður yfir því, að Tom hafði beðið svo lengi með að kvænast. Hann horfði út um gluggann á fjallið. Hann hlustaði á sam- ræðurnar, sem snerust um leikrit sem þau höfðu séð um vetur- inn. Hann var gramur yfir því, að nú hafði Maura komizt að því, hversu lítinn áhuga hann hafði nú orðið á því, sem gerðist utan heimilisins. Hann var aö gleyma þeirri veröld, sem lá meira en mílu frá dyrum hans. Hann mundi aldrei framar fara frá Rathbeg, nema til þess að dveljr.st dag og dag í Dublin. Það var ! óviðkunnanlegt að verða að viðurkmna þetta fyrir sjálfum sér. Nú, þegar Tom var kominn heim, gac hann falið honum á hendur umsjá búsins og átt næðissama daga. liann vissi, að hann hafði Á KVÖLDVÖKUNNI Úr „Plain Dealer“ í Cleve- land: — Um það bil þriðjungui* allra farþega, sem fljúga milli London og París, ferðast loft- leiðis. kr . — Ódauðleiki er sú snilld, að5 hræra aðra löngu eftir að þú ert sjálfur hættur að hreyfast. (Frank Rooney). ★ — Ef Karl Marx væri á lífi í dag' ,mundi vandamál hans vera það, að finna bílastæði fyrir bandaríska öreiga, miklu fremur en að brjóta hlekki efnahagslegrar þrælkunar þeirra. (G.K. Reddy £ „Times of India“). ★ — Ef þið lofið mér að reykja ekki, fyrr en þið eruð orðin 21 árs, sagði eg við krakkana mína, — skal eg gefa ykkur hundrað dali á tuttugu og eins árs af- mælinu. . Sautján ára gömul dóttir mín sagði strax: — Enn sætur! Hundrað dali! Dásamlegt! Eg lofa því. Fimmtán ára sonur mimi hikaði dálítið. -— Eg verð að velta þessu fyrir mér, sagði hann, — það er langt þangað til að eg verð tuttugu og eins og eg er alls ekki viss um að eg vilji vera bundinn við svona loforð. Þegar hér var komið sneri eg mér að 10 ára gömlum syni mínum, sem hafði hlustað á það, sem fram fór, dálítið vand- ræðalegur á svip. — Hvað um þig, vinur? spurði eg. — Ja, pabbi, svaraði hann, —hvers vegna sagðirðu mér þetta ekki fyrr? Dýrunum hætt viS taugaáfaHi. Stjórnendur dýragarðsins í smáborginni Midland í Texas liafa ákveðið, að framvegis skuli garðurinn vera lokaður á. hverjum mánudegi. Astæðan er sú, að dýrin eru að því kom- inn að fá taugaáfall. „Þau þola svo illa, hvað fólk starir mikið á þau,“ segir dýrgarðsstjórinn, l Dvergarnir voru lostnir þeirra brotnaði og réðust á reiði þegar hinn helgi steinn Kulp. Hann var viðbúinn árás þeiira og greip tii inu í dvergana, sem sóttu byssu sinnar og hellti blý- ótrauðir fram. Sveinn Björnsson - Framh. af 3. síðu. líka gott að breyta til og mála landslag og figúrur. — Af hvaða íslenzkum málara ortu hrifnastur? — Scheving og Kjarval og þó fyrst og fremst af þeim síðar- nefnda. Kjarval hefur þrætt sína oir.stigu, öllum ólíkur. Hug- :arflug hans óendanlegt og með- ferðin hrein og tær list. — Hvar eru svo þín helztu framtíðarpkn? — Að mála, mála og mála. Þ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.