Vísir - 16.08.1958, Blaðsíða 9

Vísir - 16.08.1958, Blaðsíða 9
I^ugardaginn 16. Sgúst 1658 YtSTR - Landhelgismálið. Framhald af bls. 4. Að blöðum Sjálfstæðisílokks- ins hefur verið' fundið að þau liafi helzt til mikið haldið að sér höndum i þessu mikla velferðar- máli þjóðarinnar og ég er ekki frá því að svo sé, en þeim er vorkunn, þvi enginn gaumur hefur verið gefinn tillögum þeirra hjá stjómarliðinu, og þá er naumast um annað að gera, en biða átekta og sjá hvað set- ur. íslenzka þjóðin er svo greind og svo menntuð, að hún lilýtur að líta með óhug — svo ekki verði fastara að kveðið — á öll þessi leiðu og ljótu blaðaskrif í mesta velferðarmáli okkar og fær skömm á slíku. Auk þess sem svona deilur eru aðeins til þess eins að spilla fyrir málstaðn- um og sundra þjóöinni, þá veit hún t. d. um Sjálfstæðisflokk- inn, að það var alþingismaður- inn Jóhann Þ. Jósefsson, sem undirritaði lög nr. 44, 5. april 1948, serrt friðunarreglugerðirn- ar 1950 og 1952 byggjast á, og að það var formaður Sjálfstæðis- flokksins, Ólafur Thors, sem undirritaði þær, en báðir þessir þjóðkunnu alþingismenn voru þá í ráðherrasætum, atvinnumála og sjávarút\regsmála. Hitt veit þjóðin kannske ekki eins vel, með hvilíkri rökfestu og lög- speki Bjarni Benediktsson al- þingismaður hélt á málum okk- ar gagnvart Bretum, meðan hann var dóms- og utanrikismálaráð- herra, en hjá honum var engin undanlátssemi þegar löndunar- bannið var á döfinni. BeglugerSin frá 30. júní s.l. Hún er sett samkvæmt lögum 44/1948 um visindalega friðun fiskimiða landgrunnsins, en í mínum augum er hún beinlínis brot á þessiun lögum, þar sem di'agnótaskipum íslenzkum og alveg sérstaklega innlendum tog- urum er leyft að toga innan landhelgi. Friðun fiskistofnsins heftxr verið kjörorð okkar í landhelgLSinálinu. Þegar til kasta kom á fundi Alþjóðahafrannsóknarráðsins í Stokkhólmi 1946 að loka Faxa- flóa, þá skauzt brezka rikisstjórn in úr leik, en hugmyndin kom fi'á okkur sjálfum. Þ.jóð, sem átti og á allt sitt undirsjávai'afla, bauðst til þess að loka beztu fiskimiðum sinum af frjálsiun vilja. Þegar reglugerðin um vernd- un fiskimiða fyrir Norðurlandi öðlaðist gildi 1. júni 1950, var henni eftir beiðni Breta frestað gagnvart útlendingum, unz geng inn var dómurinn í Haag 18. des. 1951, eða um liáift annað ár, og útlendingum var með þvi móti leyft að fiska nær landi .en okkar eigin mönnum. I þessi skipti bæði færði ís- lenzka þjóðin fórnir vegna fiski- stofnsúis —- og þá óx hún í aug- um sjálfrar sín og útlendinga, en nú er öldin önnur, nú vill hún reiða bæði í klóm og kjafti, leyfa stærstu útgerðarfélögum sínum að ura upp fiskistofninn með togveiðinni innan ákveðinnar landhelgi, með þeim hræðileg- ustu veiðitækjum, sem notuð eru til fiskveiða, sem engu eira, hvorki ungviði fiskjarins né botngróðri hafsins. Jafnframt er svo útlendu fiskvsiðiþjóðun- um óviturlega storkað með svona ákvæðum — og hvernig fer um landhelgisgæzluna? Linumar eru allt í einu orðnar tvær, önn- ur innlend, hin útlend. Hvemig á varðsidpafloti okkar að verja þessi annarlegu ósköp? 1 þessu sambandi skal ég játa, að mikinn mun ber að gera á dragnótaveiðinni og á togurum og togbátum. Það má til sanns vegar færa að leyfa dragnóta- j veiði á tilteknum svæðum, til- tekinn tima ársins við ákveðnar veiðar, en að hleypa togurum á friðuð svaíði er með engu móti ^ verjandi. Grimnlmustæðunum átti strax að breyta. j Þá tel ég það hina mestu yfir- sjón , að grunnlínustæðunum var ekki strax breytt, áður en j reglugerðin var gefin út. Eg tel ^ I það jafnvel nauðsynlegra og vit- urlegra að færa út grunnlínurn- ar og lengja bilin milli grunn- línustæðanna frá þvi, sem nú er, en að færa út friðunarlínuna sjálfa eða fiskveiðilandhelgislin- una með óbreyttum grunnlínu- stæðum frá 1950 og 1952. Þetta kom greinilega fram á fundi þeim 12. og 13. febrúar 1957, sem sjávarútvegsmálaráðherra hélt með fulltrúum úr fjórðungum landsins og vísa ég um þetta at- í'iði til greinar minnar „Friðun fiskistofnsins", sem birtist í sjó- mannablaðinu „Víking" í júlí 1957 (6.-7. tbl.) og í blaðinu j „Islendingur" um sama leyti. j Það er ekki hægt að segja í! reglugerð, að grunnlínur og grunnlínustæði skuli vera svona' í dag en á morgun allt önnur — j slikt mundi aldrei nokkurri þjóð líðast. Það er því skylda nefndar þeirrar, sem tillögur á að gera um veiðiheimildir nýju reglu- gerðarinnar, að láta það verða sitt fyrsta verk, að koma með tillögur um breyttar grunnlín- ur og grunnlínustæði. Nefndarskipunin. Mér er ókunnugt um skipun nefndarinnar — hún hefur ekki mér vitanlega verið birt, en mér er tjáð, að Farmanna- og fiski- mannasamband íslands sé alger- lega sniðgengið. Áður hef ég í greinum um landhelgismálið tek- ið fram, hversu nauðsynlegt er, að sjómennirnir og fiskimenn- i irnir sjálfir eigi fulltrúa í nefnd sem þessari — engu síður en ^ lögmenn, fiskifræðingar og stór- útgerðarmenn, því einmitt fiski- j mennirnir og fiskideildirnar cru kunnugastar fiskimiðunum okk- ar bæoi að fornu. og nýju. Tillögur mínar. Það kaiyn að þykja býsna djarft, vonandi ekki ókurteisl, að ég leyfi mér að setja íram til- lögur, eftir að reglugerðin er kornin út, en það er hvortveggja, að ekki gat ég gagnrýnt hana áður en hún birtist og ekki er jiað sæmandi, að ég einungis í'ífi niður, en leggi ekkert til um að byggja upp. Þetta legg ég til að athuguðu máli: 1. Fiskvæiðilandhelgi íslands skal afmörkuð 9 sjómilur utan við grunnlínu, sem dregin er milli eftirtaldra staða: a. Grunnlínan fjmir Norður- landi verði: Aðaltillaga: Horn —- Grímsey —- Hraunhafnartangi —-. Langar nestá. Vai'atillaga: Horn — Siglunes — Rauðanúpur — Rifstangi — Hrauntangi — Langanestá. b. Grunnlínan fyrir Austur- landi verði: Aðaltillaga: Langanes — Glett- inganes — H\ralbakur — Ingólfs- höfði. Varatillaga: Langanes — Glett inganes — Gerpir — Hólmur eða Setusker — Ystiboði — Hvít- ingur — Stokknes — Ingólfs- höfði. c. Grunnlinan fyrir Suðurlandi verði: Ingólfshöfði — Mýrna eða Kötlutangi — Geirfugladrangur. d. Grunnlinan fyrir Vestur- landi verði: Geirfugladrangur — Hraun- vör eða Skálasnagi — Bjarg- tangar —- Barði — Straumnes — Kögur — Horn. Auk þess skulu dregnar markalínur kringum Kolbeinsey — 9 sjómílur — svo og kringum Grímsey og Hvalbak ef aðaltil- lögur að framan þykja ekki til- tækilegar, en sjálfur tel ég þær heimilar eftir Genfarráðstefn- una og Haagdóminn. Sérstak- lega ber að gæta þess, að Sel- vogsbankinn sé allur eða sem mest varinn eða friðaður sem viðurkennd klakstöð. 2. Eg er því með öllu mótfall- inn og tel það brot — eða a. m. k. siðferðilegt brot — á lögum nr. 44, 1948 að innlendum togur- um sé leyft að toga innan þeirr- ar friðunarlinu, sem ég hef leyft mér að stinga upp á, en ég get til samkomulags fallizt á, að dragnótabátaveiðar séu inn- lendum skipum leyfðar til stein- bitsveiða á Vestfjörðum og til kolaveiða eða flatfiskveiða á þeim tímum og stöðum, sem fiskirannsóknir okkar og land- helgisgæzlan tiltekur og sam- þykkir. Að öðru leyti hef ég ekki við nefnda reglugerð að at- huga. íyrir- ágangi; togaranna en, hlnn áldni þingmaðúr Borgfirðinga Pétur Ottesen. Hann er þegar búinn að lýsa sig mótfallinn „tvöfaldri" landhelgi vegna ís- lenzku togaranna, og mér þykir sómi að þvi og vænt um að vera honum samferða um þetta at- riði, sem er svo þýðingarmikið fyrir friðun fiskistofnsins og svo þungt á metunum í baráttu okk- ar fyrir lokatakmarkinu, að eign -ast landgrunnið fyrir okkur eina einnig til fiskveiða, þvi sá sem engu vill fórna, getur ekki búizt við að eignast neitt til lang- frama. Kynni einhver að segja, að ég með þessari tillögu minni um 9 milna landhelgi væri að reka erindi útlendinga, þá hefur hann ;ekki kynnt sér eldri skrif míir 'um landhelgismálið. Ef nú samt sem áður útlendu óvinimir okk- ar í landhelgismálinu gætu fellt sig við tillögur mínar sem miðl- un, þá er vissulega engu spilt, þvi nú erum við ekki lengur af- skekt þjóð „yzt á Ránar slóð- um.“ Okkur er nauðsynlegt að taka tillit til annarra þjóða eins og við krefjumst þess, að við séum virtir og okkar hagsmunir. Hættum skítkastinu hver á annan heima fyrir en stöndum um fram allt saman sem ósvikisi íslenzk þjóð í okkar mesta vel- ferðarmáli, landhelgismálinu. Reykjavík, 31. júlí 1958. ! Július Havsteen. t Verölag heiztu nauðsynja. Til þess að almenningur eigi auðveldara með að fylgjasfl með vöruverði, birtir skrifstofan eftirfarandi skrá yfir útsölu- verð rrokkurra vörutegunda í Rejrkjavík, eins og það var hinií 1. þ. m. n Verðmunurinn, sem fram kemur á nokkrum tegundanna, stafar af mismunandi tegundum og /eða mismunandi inn- kaupsverði. Nánari upplýsingar um vöruverð eru gefnar á skrifstofunní eftir því sem tök eru á, og er fólk hvatt til þess að spyrjasfl fyrir, ef því þykir ástaeða til. Upplýsingasími skrifstofunnar er 18336. Friðun Halamiða. Þá vil ég aftur skora á rikis- stjórn okkar að hún beiti sér fyrir því, að þjóðir þær, sem fiskveiðar stunda í Norður-At- lantshafi komi sér saman um að friða Halamiðin fyrir togm'um á timaöiiinu frá 1. deseniber til aprílloka ár hvert. Ættu Eng- lendingar að vera fúsir til þessa, þvi að frekar ber jieim að að- stoða okkur við að afstýra hætt- um og hörmungum á þessum stórhættulegu veðramiðum, hcld ut' en að ósekju að kenna okkur um ófarirnar, eins og enskir út-; gerðarmenn létu sér sæma þeg-1 ar togararnir „Lorella" og „Rod- erigo“ fórust af ísingu, sem var algert sjálfskaparvíti mannanna sjálfra, er skipunum stjórnuðu, en öðrum til varnaðar. Enginn afsiáttui’. Ekki cr ólíklegt, að ég fái orð í eyra fyrlr afslátt og undanhald í landhelgismálinu, en ég bið þá, som Jcunna að vilja veitast þann- ig að mér, að gera. samanburð á 12 mílna landhelginni með ó- breyttum grunnlínum og grunn- linustæðum frá 1950 og 1952 og 9 mílna landhelgi með þeim grunnlínum, sem ég legg til að verði, og mun ég vel þola hann — ekki sízt, ef svo vel tækist til, að Halamiðin yrðu friðuð 5 mán- uði ársins. Skoðun Péturs Ottesen. Enginn alþingismaður hefur látið meira til sín taka um frið- un Faxaflóa, Selvogsbankans og yfirleitt friðun fiskimiða okkar Lægst. Hæst Blatvörur og nýlenduvörur. Kr. Kr. < Rúgmjöl pr. kg. 2.75 2.90 Hveiti pr. kg 3.20 3.60 Haframjöl pr. kg 3.10 Hrísgrjón pr. kg 5,10 Sagógrjón pr. kg. 4,95 5,30 Kartöflumjöl pr. kg 5,85 Te 100 gr. pk 8.75 10.45 Kakaó, Wessanen 250 gr. pk... 11.35 14.05 Suðusúkkulaði (Síríus) pr. kg. 76.80 83.40 Molasykur pr. kg 5,85 6,45 Strásykur pr. kg 4,45 4,95 Púðursykur pr. kg 5,35 6,05 Rúsínur (steinlausar pr. kg.) 22,00 31,65 Sveskjur 70/80 pr. kg 19,00 32,15 Kaffi, br. og malað pr. kg - • j 43.60 Kaffibætir pr. kg 21.00 Smjörlíki, niðurgr a 8.90 — óniðurgr 13.80 Fislýbollur 1/1 ds 12.75 Kjötfars 19,00 Þvottaefni (Rinso) 350 gr. .. 7,90 10,05 Þvottaefni (Sparr) 250 gr. .. 4,30 Þvottaefni (Perla) 250 gr 3,65 4,30 Þvotíaefni (Geysir) 250 gr. .. 3,65 4,05 LandbúnaBarvörur o. fl. Súpukjöt 1. fl. pr. kg ■ 25.25 Saltkjöt pr. kg .14 " f t 25.90 Rjómabússmj., niðurgr. pr. kg. 41.80 Rjómabússmj., óniðurgr. pr. kg. 62.50 Samlagssmj., niðurgr. pr. kg... 38.50 Samlagssmj., óniðurgr. pr. kg. ? 59.18 Heimasmj., niðurgr. pr. kg. .. 30.00 Heimasmj., óniðurgr. pr. kg. .. i 50.60 Egg. stimpluð pr. kg 31.80 Egg. östimpluð pr. kg. 29.40 Fiskur. Þorskur, nyr nausaður pr. kg. 2.90 : Ýsa. ný. hausuð pr. kg 4.00 Smálúða pr. kg 8.00 i Stórlúða pr. kg 12.00 Saltfiskur pr. kg 7,00 Fiskíars pr. kg 9.50 ; Grænnieti: Tómatar (II. fl.) pr. kg 26,80 1 Gúrkur (I. fl.) pr. stk , r ' '• 8.85 j Ýmsar vörur. Olía til húsakyndinga pr. Itr. !| . 1,01 1 Kol pr. tonn 710.00 i Kol, ef selt er minna en 250 kg. pr. 100 kg 72.00 Sement 50 kg. pk 37,00 . j Reykjavík, 7. júlí 1958. | Verðlagsstjórinn. J

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.