Vísir - 06.09.1958, Page 12
Ekkert blað er ódýrara I áskrift en Vísir.
Lótið bann fœra yður fréttir annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfn.
Sími 1-16-60.
'WHiSXIlR
Laugardaginn 6. september 1958
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
nkeypis til mánaðamóta
Sími 1-16-60.
arvegstæði um Sprengisand og
jallabaksleið könnuð nýverið.
á Sprengisandsleíð eru Tungná og Kalda-
hvísí kelzíu farartálmar.
Ms'sé ijpfis' 'É'ststfjntt cinn tnyntii
fa&siesr ts.SBB.ii~ '2*5—3 sseiiljjf. ka*.
tlð sjúkra-
Nýlega voru gerðir út tveir
leioangrar af háífu Vegamála-
stjórnarinnar til þess að kanna
«g rannsaka vegastæði yfir tvo
fjallvegi, Sprengisand og Fjalla
haksleið, en hvorug sú leið er
fær nema sterkum og traustum
bílum með drifi á öllum hjólum.
Leiðangrar þessir voru gerðir
út að tilhlutan síðasta Alþingis,
en þar var samþykkt þings-
ályktunartillaga um að rann-
saka skyldi leiðir um Sprengi-
sand og Fjallabaksleið með
sumarvegi fyrir augum og enn-
fremur skyldi athugun gerð á
brúarstæðum yfir Tungná og
Köldukvísl.
Vísir átti nýlega tal við
Sigurð Jóhannsson vegamála-
stjóra, en hann hafði sjálfur
forystu þess leiðangursins sem
fór yfir Sprengisand. Voru í
þeim leiðangri sex manns og
xneðal þeirra Jón Víðis, sem á-
Eamt þeim Jóni frá Laug, Ein-
íari Magnússyni og Valdimar
Sveinbjörnssyni, fóru fyrstir í
bifreið yfir Sprengisand fyrir
réttum aldarfjórðungi síðan.
Var leiðangur Vegamála-
Stjornarinnar að þessu sinni um
,viku í þessari ferð og fór víða
um öræfin í leit að heppilegri
leið. Vegamálastj. sagði aðþarna
þyrfti víðast hvar mjög lítið að
gera fyrir sumarveg, því að
mest er um melá og sanda að
fara. Hann sagði að sumstaðar
hefðu myndast slóðir eftir ör-
sefaleiðangra, sem lagt hafa
leiðir sínar um Sprengisand á
sumrin. En hinsvegar væri víðá
unnt að finna heppilegri leiðir
því þeir menn sem stjórnað
hafa þessum ferðaleiðöngrum
hafa ekki gefið sér tíma til þess
Frh. á bls. 10.
Akureyringar
mófmæb ofbeldi.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í gær.
Bæjarráð Akureyrar sam-
þykkti eftirfarandi ályktun í
Iandhelgismálinu á fundi sínum
í gær:
„Bæjarráð Akureyrar lýsir
yfir stuðningi sínum við út-
færslu íslenzkrar fiskveiðiland-
helgi í 12 mílur og þakkar öll-
um, sem að þeirri ráðstöfun
hefur unnið.
Jafnframt fordæmir bæjar-
ráðið framkomu Breta og of-
beldisaðgerðir þeirra í íslenzkri
^landhelgi.
; Skorar bæjarráð á alla lands-
menn að sýna einhug og festu í
. málinu og hvika hvergi frá
i rétti íslendinga til 12 mílna
landhelgi“.
Stjórn IJ.IVI.F.Í.
fagnar.
Eftirfarandi barst Vísi í gær:
Stjórn Ungmennafélags ís-
lands fagnar ákvörðun ríkis-
' stjórnarinnar um útfærslu fisk-
' veiðilandhelginnar og treystir
því, að engir samningar verði
1 gerðir við önnur ríki, sem skert
gætu umráðarétt íslendinga
yfir 12 mílna landhelginni.
Jafnframt lýsir stjórnin
megnri andúð á ofbeldi og yfir-
gangi brezkra herskipa en
þakkar starfsmönnum land-
helgisgæzlunnar einbeitta og
drengilega framgöngu.
lHP i
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í gær.
Eyfirðingar hafa nýlega sótt
um leyfi fyrir snjóbíl fyrst og
fremst til þess að annast sjúkra
flutninga að vetri þegar vegir
eru tepptir vegna snjóalaga.
Að þessari umsókn standa
Ungmennasamband Eyjafjarð-
ar, Slysavarnadeild kvenna og
Rauða kross deildin og Akur-
eyri.
Ýmsir aðilar leggja fram fé
til kaupa á bílnum, m. a. hefur
K.E.A. boðið fram 100 þúsund
krónur. Þá er og gert ráð fyrir
framlögum úr sveitasjóðum
einstakra hreppa.
Mikil eiturlyf
upptæk ger.
Lögreglan á Kúbu kveðst
hafa gert upptæk 268 þús.
stcrlingspunda virði af eitur-
lyfjum hjá Bolivíumanni ein-
um, Luis Gonzales Aguilera að
nafni.
f leðurtösku, sem hann hafði
meðferðis, voru 11 pund af
kokaíni í duftformi og yfir 20
pund af öðrum lyfjum í flösk-
um, allt tilbúið til sölu.
Vitað er, sagði lögreglan, að
Aguilera kom með kokaínið til
Kúbu frá Peru, Bolivíu og'
Spáni. Hann hafði fullkomna
lyfjastofu heima hjá sér í Vela-
do, sem er útborg frá Hvana,
og þar voru lyfin löguð.
Sprengisandur er mesta sandflæmi á íslandi og þotti jatnan
erfið leið á hestum sökum vrasleysis, stórfljóta og — útilegu.
manna. Aldarfjórðungur er liðin frá því er fyrsti bíllinn fór,
yfir sprengisand, en nú er í ráði að gera öllum bílum fært að
komast yfir hann að sumri til.
OvenjuEegt annríki ritsíma og
taisambands vð útiönd.
Eiit kviilti t'ttvib ttð ..íetktnetrEng
rtcðu tíntti * * i sttntíöiunt út.
Það munu vera mörg ár, síð-
an síminn hcfur haft annað eins
að gera og nú í þessari viku.
Það, sem þessu veldur, er sú
,,innrás“, sem blaðamenn frá
mörgum löndum gerðu í lok
siðasta mánaðar, þegar allar
líkur voru til þess, að engir
samningar næðust við íslend-
inga í landhelgismálinu og að
til tíðinda drægi. Dreif þá að
mikinn fjölda blaðamanna frá
ýmsum löndum, Danmörku,
Svíþjóð, Bretlandi (að sjálf-
sögðu), Bandaríkjunum, Frakk-
landi og jafnvel víðar, og hafa
þeir verið mjög ötulir við að
afla frétta og koma þeim á
framfæri við lesendur sína.
Svartur sjór af síld fyrir
Austurlandi.
Tunnuskortur hamlar móttöku síldar þar eystra
Á Fjallabaksleið. Hér sést Jökulgilið flæmast yfir sanda skammt
fyrir neðan Landmannalaugar, en það er einn helzti farartálmi
á leiðinni sökum vatnsmagns og sandbleytu.
Eskifirði í gærmorgun.
Skipverjar á síldvciðiskipum
sem voru að veiðum fyrir
Austfjörðum á laugardaginn
sögðu sjóinn svartan af síld og
að þeir hefðu aldrei lóðað á
eins mikla síld í sumar sem þá.
Á laugardaginn komu Snæ-
fell og Súlan með 600—700
mál síldar hvort til Norðfjarð-
ar. í gær kom Snæfugl frá
Reyðarfirði með slatta inn til
Eskifjarðar, en þar er ekki unnt
að taka á móti neinni síld sem
stendur sökum skorts á tunn-
um undir lýsið. Lýsisgeymar
eru þar ekki til og nú hafa Esk-
firðingar verið tunnulausir um
hríð og orðið að neita móttöku
síldar dag eftir dag. í Eski-
firði hafa verið saltað í 15
þúsund tunnur síldar l sumar
og myndi hafa verið unnt að
salta mun meir ef tunnuskort-
ur hefði ekki hamlað. Von er á
einhverju af tunnum með næstu
ferð m.s. Esju. Tunnulaust mun
einnig vera orðið bæði á Norð-
firði og Fáskrúðsfirði og mikl-
um erfiðleikum bundið að taka
á móti síld þar.
Síldin heldur sig bæði inni í
Reyðarfirði og alla leið inni í
Eskifjörð og eins út af fjörðun-
um, sérstaklega í námunda við
Skrúð. Þarna er um að ræða
millisíld, ekki söltunarhæfa, en
samt feita.
Berjaferi.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
efnir til berjaferðar á morgu.n,
sunnudag.
Þær konur, sem hafa í
hyggju að taka þátt í förinni
eru vinsamlega beðnar að til-
kynna þátttöku sína í síma
14442 eða 15236 strax í dag.
Þetta hefur leitt til gífurlegs
annríkis hjá símanum, bæði rit
símanum og talsambandinu við
útlönd. Munu fréttamenn hafa
lagt inn svo mikinn fjölda
skeyta suma daga, að annað
eins hefur vart þekkzt hér á
landi, en auk þess hefur tal-
sambandinu verið haldið opnu
allan daginn látlaust og fram á
eða fram yfir miðnætti suma
daga, svo að hægt væri að sinna
öllum samtalabeiðnum. Kom
það meira að segja fyrir á
þriðjudaginn, að nauðsynlegt
reyndist að „takmarka ræðu-
tíma“ eins og á málfundi, og
fékk þá enginn að tala lengur
en í 15 mínútur, en annars mun
það hafa komið fyrir, að menn
töluðu í klukkustund samfleytt.
En nú er farið að dofna yfir
þessum fréttum, áhuginn er-
lendis heldur að minnka, svo
að þetta er að færast í eðlilegt
horf aftur.
Ftaug með „Rán"
umhverfis land
Lúðvík Jósepsson, sjávarút-
vegsmálaráðherra, tók sér í
gær far með flugvél landhelg-
isgæzlunnar, „Rán“.
Var flogið umhverfis land,
og reynt að fylgja allan tímann
hinni tólf mílna landhelgi. —
Sjö erlend fiskiskip sáust fyrir
vestan land, en aðeins einn
maður sást vera að gera að á
þeim skipum. Engir togarar
voru fyrir Norðurlandi, og lítið
fyrir austan land, en nokkrir
togarar höfðu hópað sig nærri
nýju línunni fyrir SA-landi.
Viðhafði ráðherrann þau orð
að ferðinni lokinni að auðséð
væri að um litla sem enga veiði
væri að ræða hjá hinum er-
lendu fiskiskipum.