Vísir - 01.10.1958, Blaðsíða 3

Vísir - 01.10.1958, Blaðsíða 3
Miðvikudaginn 1. október 1958 V f S I R 5 Óli B. Jónsson, J»|álfari Mft: Oott samstárf skapaöi árangurinn Sigurganga meistaraflokks KR í sumar er sennilega eins- dæmi í knattspyrnusögu höfuð- borgarinnar. Liðið hefur ekki tapað neinum leik i móti, sett 32 mörk og aðeins fengið á sig 5. Auk þess hefur félagið leik- ið nokkra auka- og gestaleiki og aðeins tapað einum þeirra við írska landsliðið. Við tókum Óla B. Jónsson þjálfara liðsins tali s.l. sunnu- dag, þar sem hann sat í stúk- unni á Melavellinum og fylgd- ist af áhuga með hverri smá- hreyfingu hvers einasta leik- manns liðsins. Við spurðum hann hvaða vítaminsprautu hann hefði gef- ið liðinu frá því að tfann tók við því fyrir ári síðan, þá svip- lausu og kraftlitlu. Sennilega varla hægt að kalla það vítamínsprautu, sagði Óli. Við höfum aðeins iagt okkur eftir því að hafa gott sam- starf innan liðsins á æfingu og í keppni og utan vallarins, og það hefur skapað leikgleði sem örfað hefur menn til æfinga. A æfingar er alltaf veF mætt, þær eru tvær í viku og allt upp í fimm ef mikið stendur til. Það er ekki þar með sagt að slíkt samstarf sé ekki fyrir hendi í öðrum liðum, en við höf um hinsvegar gert okkur grein fyrir, að án þess þýðir ekki að reyna.við neitt annað. Við höf- um reynt við stutt spil og tekist vsl og reynt að hafa það eins nákvæmt og hægt er, enda strákarnir allir léttir og liprir knattspyrnumenn. Othald hef- ur eiginlega aldrei skort hversu hraður, sem leikurinn hefur. orðið og þakka ég það því, að strákarnir fóru að hlaupa úti strax i janúar. Markahæstu menn liðsins eru Sveinn Jónsson með 12 mörk, Ellert Schram með 12 og Þór- ólfur Beck með 10. Ormslev: Tilboð á tilboð ofan Þeir vildu ekki trúa því að við værum frá íslandi sagði Gunnar Ormslev, er blaðið átti stutt viðtal við hann, héldu að við værum amerisk hljómsveit. En þessir „þeir“ eru hinir mörg þúsund Svíar er heyrðu hljóm- sveit Gunnars Ormslev leika í Svíþjóð undanfarna mánuði. Hljómsveitin fór utan í byrj- un júní og var söngvarinn Haukur Morthens með i för- inni, enda má segja að hánn hafi verið hluti af hljómsveit- inni þar sem hann söng ekki aðeins með undirleik þeirra, heldur söng hann jafnframt í kvartett innan hljómsveitarinn. ar og vakti kvartettsöngurinn ekki minni athygli en hinn góði söngur Hauks. Hljómsveitinn lék m.a. á kunnum næturklúbb í Helsing- borg og þá auðvitað í hinum frægu sænsku skemmtigörðum, sem einna helzt mætti likja við Tívolíið okkar, nema hvað þar er aldrei „lokað vegna rigning- ar“, enda sumarið í Svíþjóð sól- ríkt rnjög, og skemmtigai’ðar ^þessir sóttir af mörg þúsund- um gesta. Hljómsveitin og Haukur komu heim fyrir nokkrum dögum, þeim barst m.a. tilboð um að leika í Tívolí í Kaup- mannahöfn um svipað leiti og Kristinn Hallsson söng þar, úr því gat þó ekki orðið, þvi þeir voru að sigla heim. Jafnframt barst þeim tilboð um að leika á kunnum dansstað í Stokk- hólmi í allan vetur og þá nátt- úrlega að snúa aftur til skemmtigarðanna næsta sum- ar. Allt er óráðið sagði Gunnar, en heima verðum við í vetur, og varla að efa, að þessi á- gæta hljómsveit fær nóg að starfa. Eg vænti mikils af liðinu næsta sumar, sagði Óli um leið og við kvöddum hann, en hann mátti ekki vera að því að taka undir kveðjuna,' því hann var með allan hugan við leikinn og um leið og við gengum burt skoraði Ellert fimmta mark KR í leiknum við Þrótt. Helena: Úr sálmunum í rokkið Ný plata? Jd, hún kemur út eftir nokkra daga. Fjögur er- lend lög með íslenzkum text- um: Melodie d'amour, sem heitir ÁstarljóðiS mitt. Around the world, sem heitir nú I leit a5 þér; In the middle of an island, eða Paradísareyj- an. Fjórða lagið er svo Sail along silvery moon, og ég man svei mér ekki hvað það Það er elcki öll vitleysan eins hjá peim í kvikmyndunum, hérna er leikstjórimi Jules Dessin að sýna jranska kvenna- gullinu og kvikmyndaleikaranum Yves Montand hvernig hann á að kyssa hana Ginu LolloPrigidu. Eins og það œtti nú ekki bara að koma svona aj sjáljum sér. En þessi rembingskoss, sem reýndar lenti á miðjum hálsinum hennar Ginu, spilar stóra rullu í kvikmyndinni „The Lau>“, sem verið er að taka og verður að sjálfsögðu sýnd hér þegar þar að kemur. á að heita, Máninn sindraði eða eitthvað svoleiðis. Sálmar? Jú, ég söng Heims um ból og í Beílehem inn á plötu þegar ég var ellefu ára. Nú eru það dœgurlögin. Gaman? Bókstaflega lifi og Nei, þú jœrð ekki myndina aj mér elleju ára. hrœrist í músík. Ætla í Tón- listarskólann í vetur og syngja svo með hljómsveitum eins og býðst. Akureyri? Já, þar var gam- an, ég var þar alltof stutt. Söng með Atlantc kvartett- inum í Alþýðuhúsinu á Ak- ureyri í sex vikur. Nei, þú fœrð ekki mvndina af mér þegar ég var ellefu ára, þá var ég með gleraugu. Núna nota ég þau sem minnst. Finnst þér það ekki skrýtið að ef maður þarf ekki að nota gleraugu þá finnst manni allt í lagi að vera með þau, en þegar maður verður að vera með þau þá vill maður aldrei setja þau udd. í kvöld? Eg veit ekki, dálít- ið skelkuð. Annars hef ég sungið á miðnœturskemmtun i Frh. á bls. 10. Ég get ekki Ekki get ég Get ég ekki - Klauíi Kunningi okkar kíkti inn og hanipaði bæklingi er hann hafði komizt yfir. Heitir sá Danslagatextar SKT 1958. Þar sem við höfum ein- staklega mikinn áhuga fyrir danslagatextum tókum við að fletta ritinu og rákumst þar á allmörg kvæði feikna falleg og erum við ekki í nokki’um vafa um, að þarna er einmitt að finna þau ljóðin, er æska landsins á eftir að hlusta á þau Erlu og Hauk syngja í sjúklingaþátt- um framtíðai’innar. Höfundurinn skýrir náttúr- lega ljóðin samkvæmt kröf- um nútímans. Eftirfarandi texti ber nafnið Atómdansinn og hljóðar hann svona: Eg get ekkert fundið, - sem bi’úar bilið, eg get ekki trúað, eg get ekki skilið. Eg get ekki munað, eg get ekki svarið, eg get ekki unað, eg get ekki farið. Eg get ekki kallað, eg get ekki anzað, eg get ekki svallað, eg get ekki dansað. Eg get ekki kunnað, eg get ekki glatað, eg get ekki unnað, eg get ekki hatað. Eg get ekki þegið, eg get ekki látið, eg get ekki hlegið, eg get ekki grátið. Eg get ekki skrifað svo skýringu fáið, því eg get ekki lifað og eg get ekki dáið. Höfundur Ijóðsins nefnir sig dulnefninu ,;Klaufi“ og eig- urn við erfitt með að skilja val hans á slíku dulnefni. Kvæðið er allt annað en klaufalega ort, og það ber vott um einstaklega ríkt hug- myndaflug og áberandi mik- inn orðafoi’ða. Sérstaklega ketnur það skýrt í ljós í fyrstu þi’em orðum hverrar línu. Það er alveg auðséð að þessi mað- ur getur ort, sennilega er bara alls ekki til sá hlutur, sem hann getur ekki! ' ■ 11 1. Nel blu dipinto di blu, 2. Little star, 3. Bird dog, 4. Just a dream, 5. It's all in the game, G. Poor little fool, 7. Devoted to you, 8. Everybody loves a lover, 9. Rockin robin, 10. My baby loves western mov- iees. France Nuy- en heitir hún þessi fállega ameríska 19 ára gamla stúlka. Hún á að leika Suzie Wong í sam- nefndu leik- riti, sem frum sýnt verður eftir nokkra daga í leik- húsi við Broadway í New York. Sagan um Susie Wong birtist nýlega sem fram- haldssaga í einu dagblaðanna hér. France Nuyen, hefur nýlokið að leika í kvikmynd, sem gerð var eftir söngleiknum heirns- íræga „South Pacific". Húix legg- ur stund á dáleiöslu i tómstund- urn og ekki erum við frá því, að eitthvað sé seiðandi við andlit hennar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.