Vísir - 02.10.1958, Side 4
V í S I B
Fimmtudaginn 2. október 195S
— ■ — ■ ■—1 - .... ,”"-1 1 V. f ■
D A G B L A Ð
Vislr kemur út 300 daga á árl, ýmist 8 e8a 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn PálssoD.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
látatjómarskriístofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: (11660 (fimm línur)
Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði,
kr. 2.00 -íintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan hJ.
Kýpurmáiið.
Um þessar mundir koma til
framkvæmda áform brezku
stjórnarinnar um stjórnar-
form á Kýpur, og miðast þau
' við næstu sjö ár. Hefir verið
skýrt frá þessu í fréttum og
ekki ástæða til að endurtaka
í einstökum atriðum bráða-
birgðalausn þá, sem brezka
stjórnin hyggst hafa á máli
þessu. Svo er að sjá, sem
tyrkneski minnihlutinn á
eynni taki brezku tillögun-
um, eða öllu heldur fram-
kvæmd á þeim vel, en hins
vegar láta grískir menn á
eynni sér fátt um finnast,
efna til allsherjarverkfalls,
loka skólum, skrifstofum og
sölubúðum, til þess að sýna
í verki, að þeir muni alls
ekki sætta sig við hin brezku
áform. Þá halda EOKA-
menn áfram hermdarverk-
um sínum, og má jafnvel
búast við, að til enn válegri
tíðinda kunni að draga þar á
eynni á næstunni.
Það er eins um Kýpurmálið og
önnur þau mál úti í heimi,
! sem efst eru á baugi þessa
dagana, að það kemur oss
Islendingum ekki beinlínis
við. Þó er það svo, eins og
áður hefir verið að vikið hér
í þessum dálkum, að mál eins
og Kýpurmálið, Formósu-
málið og Alsírmálið, koma
ölium íbúum heims við, bæði
vegna þess, að heimurinn er
orðinn svo lítill, ef svo mætti
að orði kveða, að atburðir
langt úti í heimi geta haft
bein áhrif og afleiðingar
einnig fyrir oss íslendinga,
og svo er hitt, að frelsisbar-
átta smáþjóða yfirleitt kem-
ur oss fslendingum sannar-
lega við, eins og öllum sæmi-
legum mönnum, hvar sem er
í heiminum.
Afstaða vor íslendinga til Kýp-
urmálsins er, eða hlýtur að
vera, ákaflega einföld og
sjálfsögð. Vér höfum fyrir
rúmum áratug endurheimt
sjálfstæði vort eftir að hafa
verið undir aðra gefnir í
nær sjö aldir. Öll vitum vér,
að framfarir hafa orðið gíf-
urlegar á íslandi einmitt
fyrir þá sök, að vér erum
frjáls og fullvalda þjóð. Vér
tökum naumast að rumska
af Þyrnirósarsvefninum í
atvinnumálum fyrr en árið
1918 með viðurkenningu
fullveldisins, og með endur-
reisn lýðveldisins 1944 má
segja, að vér séum orðin
glaðvakandi, framsækin
þjóð, sem lyft hefir Grettis-
tökum á- örfáum árum. Vel
má vera, að Kýpurbúar séu
á ýmsan hátt skammt á veg
komnir, en ef að líkum læt
ur, myndi einnig þeim vegna
betuh, ef væru þeir alfrjáls-
ir.
Hins vegar má vera, að málið
sé ekki svo einfalt að því
er snertir Kýpur. Þar er
mikill meirihluti af grískum
stofni, að sögn um 80 af
hverju hundraði, hinir af
tyrknesku bergi brotnir og
er samkomulag þeirra hið
versta. Greinir þá á um, með
hverjum hætti framtíðar-
stjórnarform eyjarinnar
skuli vera, og meira að segja
sitja þeir um líf hver ann-
arra. En báðir aðilar virðast
þó sammála um, að Bretar
eigi að láta af yfirráðum þar
á eynni.
Brezka stjórnin hefir lýst yfir
því, að eftir sjö ár séu Bret-
ar fúsir til að láta af yfir-
ráðum á Kýpur, en ein-
hverra hluta vegna sé slíkt
ekki tímabært nú.
Framkvæmd landheigisgæslunnar
„Ófulfveðja þjóiir".
Á stundum virðist manni sem
Bretar séu haldnir þeirri
meinloku, að hinar og þessar
þjóðir séu þess ekki um
komnar að ráða sér sjálfar,
þeir verði þar að gegna hlut-
verki eins konar fjárráða-
manns, rétt eins og um ó-
fullveðja unglinga sé að
ræða, sem ekki kunni fótum
sínum forráðw Brezkir á-
hrifamenn hafa löngum lát-
ið í það skína, að þeir séu
þess albúnir að styðja hinar
og þessar þjóðir til sjálfs-
bjargar, þegar þær séu fær-
ar um að ráða sér sjálfar.
Hins vegar séu Bretar einir
1 dómbærir á, hvenær fólk
; skuli fá að ráða sér sjálft, j
Þessi meinloka er sannast sagna
að verða fjarska hvimleið.
Bretar hljóta að verða að
sætta sig við, að þeir eru ekki
lengur neinir sjálfskipaðir
lögreglumerin heimsins, og
tími er kominn til þess, að
þeir varpi af sér því, sem
Kipling nefndi „byrði hvíta
mannsins“. Og oss íslend-
ingum gengur illa að skilja,
hvers vegna Bretar séu allt-
af að hafa áhyggjur af sjálf-
stæði annarra . og minni
þjóða. Hið eina sjónarmið,
sem íslendingar geta haft í
slíkum málum hlýtur ævin-
lega að vera það, að hver
þjóð, hversu lítil sem hún er,
fái að ráða sér sjálf. Þetta
Það hefur nokkuð verið deilt
á landhelgisgæzluna og þá sér-
staklega yfirstjórn hennar fyr-
ir ýms framkvæmdaatriði nú
undanfarið og þó varla meira
en efni standa til.
Það er af skiljanlegum ástæð-
um að ekki hefur verið haft hátt
um ýms mistök, sem átt hafa
sér stað og skal það ekki rakið
hér.
Engum dylst, að lítillar fyrir-
hyggju eða fyrirfram skipulagn
ingar hefur gætt og lítið bólað
á því, að stjórn landhelgisgæzl-
unnar hafi fyrirfram gert sér
grein fyrir þeim atvikum, sem
vænta mátti að fyrir kæmu og
hvernig þá skyldi brugðið við.
Því hefur svo farið, að þá loks,
er vandann bar að dyrum, varð
að taka ákvarðanir í skyndi og
hefur heppni ráðið ,að ekki
hefur tekizt verr til en raun ber
vitni.
Það er deilt um hvort sleppa
átti togaranum nú síðast, sem
varðskipsmenn voru búnir að
taka. En þetta atvik er eitt
dæmi þess, að aðgerðir allar eru
handahófskenndar og ekkert
hugsað fyrir og ekkert sam-
ræmi í athöfnum hinna þriggja
aðila í stjórn gæzlunnar. Ekki
skal hér deilt um þá ákvörðun,
sem loks var tekin á síðustu
stundu af yfirstjórninni — það
er of seint að byrgja brunninn
þegar barnið er dottið í hann.
En þetta atvik minnir á það, er
Þór setti mennina í boi’ð um
Northern Foam og þeir voru
teknir þar til fanga. Einnig þá
kom í ljós, að ekki hafði verið
hugsað fyrir hvernig bregðst
skyldi við slíkum atbui’ðum,
sem hver maður gat þó séð fyr-
irfram að hlutu að geta borið
að höndum. Leikmenn veltu
Ályktun útvegsmanna á ísa
firði um landhelgismáiið.
íitvegsniaiinafélag fsíirðinga
samþykkti á fundi sínum nýlega,
svófellda ályktun í einu liljóði:
Otvegsmannafélag Isfirðinga
fagnar útfærslu fiskveiðiland-
helginnar í 12 sjómilur og mót-
mælir harðlega ofbeldi Breta
með veiðum innan landhelgis-
línunnar undir herskipavenjd.
Lýsir félagið sérstaklega undr-
un sinni yfir því siðleysi Breta,
að hafa gert ítrekaðar tilraunii’
til ásiglingar á íslenzku varðskip-
in.
Félagið telur útfærslu land-
helginnar lífsnauðsyn, sem í
engu megi hvika frá, og mikil-
vægt spor 1 þá átt, að viður-
ke’nndur verði réttur íslendinga
til alls landgrunnsins.
Otvegsmannafélagið treystir
þvi, að stjórn og þing og þjóðin
öll standi einhuga saman í land-
helgismálinu.
hlýtur að vera alfa og
omega í utanríkismálastefnu
íslendinga. Ef vér hvikum
frá þeirri skoðun, ættum
vér heldur ekki rétt á að
vera sjálfstæðir sjálfir. Fyr—
ir því hljótum vér að telja,
að Kýpurbúar eigi að ráða
sér sjálfir, og vér fáum
raunar ekki séð, hvers vegna
Bretar eru svo uggandi út
af framtíð eyjarinnar. Þeir
eiga að hverfa þaðan á brott,
og það hið fyrsta, *
því oft fyrir sér fyrir 1. sept.
hvernig landhelgisgæzlan
mundi bera sig' að þegar gæzlu-
menn ættu að mæta vopnuðum
sjóliðum um borð í landhelgis-
brjóti, en stjórn landhelgis-
gæzlunnar virðist ekki hafa
brotið heilann of mikið um
það mál, né gefið skipshöfnum
varðskipanna reg'lur að fara
eftir í einu og' ölJu þegar þar að
kæmi. Einnig þetta skal látið
liggja í kyrrþey úr því sem
komið er.
En nú síðast, er herskip kem-
ur að landi á Patreksfirði með
sjúkan mann af togara og fleyg-
ir honum í hendur leikmönn-
um og neitar að bíða þess að
læknir geti veitt honum mót-
töku, þá er það of alvarlegt mál
til þess að ekki sé bent á van
ræksluna. Auðvitað átti að
krefjast þess að læknirinn á
herskipinu afhenti manninn í
hendur hins íslenzka læknis
sjálfs, með sjúkdómslýsingu o.
s. frv., og hyrfi ekki af sjónar
sviðinu fyrr en ísl. læknirinn
hefði formlega tekið vi'ð sjúkl-
ingnum. Setjum svo, að slíktj
atvik endurtaki sig — fárveik-
um togaramanni verði varpað
á lnd í hendur leikmanna í ísl,
fjöru eða höfn og þeir sem hann
fluttu, hlaupi svo sem óðast í
burt, en maðurinn látist áður en
lækni ber að — hverjum verð-
ur þá um kennt? Getur ekki
verið hætta á því, að óvinveitt-
ir menn komi á loft liættuleg-
um söguburði, beinlínis sagt að
maðurinn hafi vei’ið drepinn og
hver á að svara til saka? Hver,
á að dæma um slík mál?
Auðvitað átti að krefjast þess,
að herlæknirinn yfirgæfi ekki
sjúklinginn fyrr en íslenzkur.
læknir tæki við honum form-
lega, að öðrum kosti átti ekki
að veita manninum móttöku.
Það er bráðnauðsynlegt, að
stjórn landhelgisgæzlunnap
leggi á ráðin fyrirfram, geri sép
grein fyrir flestu eða öllu, sem
búast má við að borið geti að
höndum og hvernig skuli við
brugðist og gefi öllum starfs-
mönnum gæzlunnar fyrirfram
fyrirskipanir um hvernig þeir.
skuli haga sér 1 einstökum til-
fellum.
Vestri.
Híbýlaprýii og tömstundaiðja -
Framh. af 8. síðu.
af þátttöku í einhverjum þátt-
um tómstundaiðju Æskulýðs-
ráðsins.
Sýning sú, sem opnuð verður
n.k. föstudag' á að kynna tóm-
stundaiðju æskulólks. Undir-
búningur að henni hófst s.l. vor.
í framkvæmdanefnd hennar
eiga sæti séra Bragi Friðriks-
son, Bent Bentsen, frú Elsa
Guðjónsson, Jón Pálsson og
Sveinn Kjarval. Og með þeim
hafa starfað og eiga sína deild
og þætti í sýningunni þessi fé-
lög: Félag húsgagnaarkitekta,
Skátafélögin í Reykjavík, Far-
fugladeild Reykjavíkur, íslenzk-
ir ungtemplarar, Taflfélag
Reykjavíkur, Félag frímerkja-
safnara, Félag áhugaljósmynd-
ara og íþróttabandalag Reykja-
víkur.
Sýning þessi má segja að sé
þríþætt. í fyrsta lagi verður þar
híbýlasýning. Sýndar verða 8
mismunandi tegundirherbérgja,
en hvert herbergi hafa ung-
ling'ar með leiðbeiningu hús-
gagnaarkitekts smíðað eða valið
í. í öðru lagi verður kynnt tóm-
stundaiðja, þ. e. efni og með-
ferð efnis. Aðallega verður það
miðað við efni það, sem fáan-
legt er hér, en einnig notað er-
lent efni, sem gæti orðið fyrir-
mynd.
I þriðja lagi verður kynning
áhug'aefna ungs fólks og dag-
skráratriði til fróðsleiks og
skemmtunar, sérstök fyrir dag
hvern. Fara dagskráratriðin hér
á eftir:
Föstudaginn 3. okt. kl. 16.30
opnar Gunnar Thoroddsen borg-
arstjóri sýninguna, en Sveinn
Kjarval húsgagnaarkitekt flyt-
ur ávarp.
Sunnudaginn 5. okt. kl. 16
mun íslenzka brúðuleikhúsið
flytja brúðuleikrit. Kl. 21 verð-
ur kynning á fatnaði, snyrting
og umgengni, bæði fyrir stúlk-
ur og pilta. Kynninguna annast
Elsa Guðjónsson, Jónína Guð-
mundsdóttir, Sigríður Ingimars
dóttir, Vigdís Aðalsteinsdóttir,
Björn Guðmundsson og Einar
Eggertsson.
Þriðjudaginn 7. okt. 'kl. 16.30
verður kvikmyndasýning. Kl.
20.30 fer fram kynning' á ljós-
myndaiðju, og sýnir Félag á«
hugaljósmyndara hvernig ljós-
mynd er tekin og síðan alla
meðferð, unz myndin er tilbúin.
Þá um kvöldið flytur Félag frí-
merkjasafnara þátt um frí*
merki.
Miðvikudaginn 8. okt. kl. 21
verður kynning á heilsurækt og
íþróttum, og hafa umsjón með
henni Þorsteinn Einarsson, Stef*
án Kristjánsson, Sigríður Val*
geirsdótti , Benedikt Jakobs*
son og Iþróttabandalag Reykja-
víkur.
Fimmtudaginn 9. okt. kl.
16.30 verður sýnd kvikmynd, og
kl. 21 tónlistarkynning undir
stjórn Guðmundar Jónssonar
söngvara.
Föstudaginn 10. okt. kl. 16.30
verður þátturinn Bækur barn-
anna. Hann annast Stefán Jóns-
son ^ithöfundur. Kl. 21 verður
bókakynning fyrir eldri lesend-
ur, sem Sigurður A. Magnússon
hefur umsjón með.
Laugardaginn 11. okt. verður
taflkynning, sem Taflfélag
Reykjavíkur stendur að, en
kynningin annars í höndum
Friðriks Ólafssonar stórmeist-
ara. Kl. 20.30 verður kvöldvaka:
Skemmtikvöld Æskulýðsráðs
Reykjavíkukr, þættir úr félags-
lífi nokkurra æskulýðsfélaga.
söngur og tónlist. Stjórnandi
verðui’ Einar Pálsson leikari.
Sunnudaginn 12. okt. kl. 16
flytur Félag' húsgagnaarkitekta
dagskrá um híbýlaprýði, og' kl.
21 verður listkynning í umsjá
Björns Th. Björnssonar.
Mánudaginn 13. okt. kl. 16.30
verður sýnd kvikmynd, og um
kvöldið kl. 21 flytur Ferðafélag'
íslands dagskrá um ferðalög og
útilíf.
Síðasta dag sýningarinnar,
þriðjudaginn 14. okt. kl. 20.30
verður svo kynning á skógrækt
og gróðri, en að þeirri kynn-
ingu stendur Skógrækt ríkisins.
Sýningin verður annars opin
dag hvern kl. 14—18.30 og 20—•
22.30, í tíu daga. ,