Alþýðublaðið - 24.10.1957, Blaðsíða 8
s Verkakvennaí'clagið Framsókn:
hhkim !il samninqiuppsagnar
næsta sðgerðum í efnahagsmálunum.
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMSÓKN hélt aðalfund í
l'yirakvökl. Samþykkt var m. a. ályktun um kaupgjaldsmáiin.
• Segir í lionni, að það. hvort sagt verði upp gildandi kaup- og
kjarasamningum nú. fari eftir því, hvað ríkisstjórnin muni
gera í efnahagsmálum almennt nú á næstunni.
Ályktun félagsins um þessi
mál fer hér á eftir:
Fundur í V. K. F. Framsókn
haldinn 21. október 1957, tcl-
ur, að hvort sagt vórði nú upp
gildandi kaups- og kjarasamn-
ingum verkalýðsfélaganna sé
ínjög undir j)ví komið hvað
gert verður af hálfu ríkis-
stjórnar og löggjafavalds, varð
andi efnahagsmálin almennt.
Þar með talið verðlag, kaup-
máttur launa, atvinnufram-
kvæmdir o. fl.
Þar sem ekki liggur skýrt
. f.yrir nú hvað gert verður í
þessum málum og Efnahagr,-
málanefnd Alþýðuasmbands-
ins hefu ekki enn lokið störf-
um, felur fundurinn stjórn og
trúnaðarráði félagsins að fylgj
ast vel með hvað gert verður
og gefur þeim aðilum fullf um
hoð tii þess, að segja upp samn
ingum félagsins af nauðsyn-
legt getur talist að þcirra áliti,
eða kalla saman félagsfund að
nýju.
FISKUR VÉRDI EKKI
FLUTTUR ÚT
ÓVERKAÐUIt.
Eftirfarandi ályktun var einn
ig gerð:
Fundur haldinn í V. K. F.
VerkfalHnu í Árgenfínu
Ijúka
BUENOS AIRF.S. miðviku-
dag. Hfn mikla herför verka-
lýðssambandsins gegn stjórn-
inni tók að fjara út í dag, er
h.ið mikla verkLýl nálgaðjist
endalok sín og lífið tók aítur
á sig eðlilegan svip í höfuðborg
inni. Hið eina, sem benti á hið
alvarlega ástand, var, að her-
menn óku strætisvögnum og
lögreglan var óvenju fjölmenn.
Verzlunarfólk hóf vinnu aftur
í dag og veitingahús og kvik.„
myndahús vo:u opin, eins og
venjulega. En í iðnaðar-út-
hverfunum var vmnustöðvunin
hins vegar aleiör. Úti á landinu
tóku margar verksmiðjur til
starfa á ný í dag. Stjórnin jók
löggæzlu í Buenos Aires eftir
að hermaður, sem látinn var
aka strætisvagni, var drepinn
í sprengjutilræði.
Framsókn, mánudaginn 21/10
1957 vill endurtaka áskorun
sína til ríkisstjórnarinnar og
bæjarstjórn Reykjavíkur, að
hlutast til um að fiskurinn sé
ekki fluttur óverkaður úr
landi, þar sem komið hefur í
ljós að það er mjög stopul
vinna hjá þeim konum cr þá
vinnu stunda.
Fimmtudagur 24. okt. 1957
Sýrlendingar mi FsjSltrúar Sovétríkjí anna hjá S. Þ. ren Sands vegna málami New York, miðvikudag. (NTB). SÝrRLAND var í dag milli lli tveggja elda anna og Vesturveld- j í sendinefnd Sýr- ð'lunartillögu Arabíu vinnu Sauds konungs við Bancla ríkin. Stjórnrr.álamenn telja ekki óhugsandi, að komið verði
nazar nvemeiags
flokksins í Reykjavik
verður 18. névember
Á FUNÐI Kvenfélags Alþýðu
flokksins í Reykjavík 14. okt.
sl. var samþvkkt að halda hinn
árlega bazar mánudaginn 18.
nóv. n.k.
í bazarnefnd voru kosnar
þessar konur: Kristbjörg Egg-
ertsdóttir, Grenimel 2. Berg-
þóra Guðmundsd., Brávallagötu
50, Fannev Long Nönnugötu
9, liálmfríður Björnsdóttir
Njarðargötu 61 og Rannveig
Eyjólfsd. Ásvallagötu 53.
Um. leið og félagið þakkar
hjartanlega hina góðu muni og
margvislegan stuðning við alla
fyrri bazara kvenfélagsins,
treystir það félagskonum til að
sýna sama velvilja og áhuga
á þessum væntanlega bazar.
Kappkostum allar að láta
bazarinn 18. nóv. verða félag-
inu til sóma.
tveggja elda, þegar sendincfnd
ir Sovétríkjanna og Vesturvehl
anna hjá Sameinuðu þjóðunum
reyndu að fá sýrlcnzku sendi-
nefndina annað hvort til að vísa
á bug eða samþykkja málamiðl-
unartilboð Sauds Arabíukon-
ungs í deilu Sýrlands og Tyrk-
lands. Tyrkland hefur þegai'
samþykkt tilboðið.
Allsherjarþingið samþykkti í
gærkvöldi sýrlenzka tillögu
þess efnis, að fresta umræðum
um kæru Sýrlendinga yfir liðs-
safnaði Tyrkja á föstudaginn og
veita með því málimiðlunartil-
lögu Sauds tækifæri. Gromiko,
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, og formaður sýrlenzku
sendinefndarinnar, Salah Bitar,
áttu með sér marga fundi í dag.
Einnig ræddu þeir við egypzka
utanríkisráðherrann, Mahoud
Frauzi.
RÚSSAR ANDVÍGIR.
Sagt er, að Arabaríkin séu
þess fýsandi, að Sýrland taki
tilboðinu, sem myndi efla sam-
heldni Aarbaríkjanna. Rússar
munu reyna að hindra slíka
þróun vegna hinnar nánu sam-
Tanner falin
stjórnarmynd
un i
á fundi ráðamanna í Tyrklandi,
Sýrlandi og- Saudi-Arabíu,
að því er AFP-fréttastofan til-
kynnti í dag'.
Helsingfors, miðvikudag. 1
(NTB-FNB). 1
KEKKCNEN forseti fól í
kvöld Várinö Tanner, formanni
Alþýðuflokksins, að reyna að
mynda nýja ríkisstjórn. Meðal
stjórnmálamanna hér. er þéss
vænzt, að Tanner muni reyna
að mynda stjórn á eins bréið-
um grundvelli og unnt verður,
Áður höfðu allir stjórnmála-
flokkarnir látið í ljós álit sitþ
| á stjórnarkreppunni og voru
| flestir á því, að stjórn skvldi
mynduð á breiðum grundvelii,
en þó án þátttoku kommúnista.
Stúdeníafélag Ileykjavíkur
endurskoðun kosningalöggjafarinnar.
Telur kosningalöggjöfina og framkvæmcl hennar svc»
stórgallaða, að ekki megi lcngur við una.
arKi
ar«
m slyö
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖG
IN í Hafnarfirði halda kynn-^
ingarkvöld fyrir almenningi
i kvöld í Alþýðuhúsinu við S
Strandgötu, kl. 9 síðdegis.S
Spiluð verður félagsvist,)
Emil Jónsson alþingismaðr.r;
flytur ávarp og Hjálmarl
Gíslason annast gamanþátt. •
- Aðgangur að kynningar-
kvöldinu verður ókeypis. Er
hér
um nýbreytni að ræða^
í starfsemi Aiþýðuflokksfé-^
laganna í Hal'narfirði. — All \
ir velkomnir í Alþýðuhúsið s
í kvöld. S
C
iiiiiiiiif a vegiegan mn a
Kirkjunni bárust margar góðar gjafir.
Frétt til Alþýðublaðsins AKUREYRI í gær.
MÖÐRUVALLARKIRKJA í Hörgárdal átti níutíu ára af
mæli á sunnudaginn var eins og Alþýðublaðið skýrði frá í
fyrir viku, og var afmælisins minnzt á veglegan hátt í hát,ða
guðsþjónustu. M;Ú'8'ir prestar voru viðstaddir athöínina og
guðfræðiprófessor frá Kaupmannaliöfn.
Prófasturinn, séra Sigurður
Stefánsson flutti minningar-
ræffu, sagði frá kirkjum á
Möðruvöllum frá fyrstu tíð og
rninntist fyrrrennara sinna,
sem þjónað hafa við kirkjuna.
Það eru þeir Þórður Þórðarson,
Davíð Guðmundsson, Jón Þor-
steinsson og Geir Sæmundsson,
síðar vígslubiskup á Akureyri.
Þá gat hann einnig um kirkju-
smiðinn, Þorstein Daníelsson
á Skipalóni og Pétur Hafstein
amtmann á Möðruvöllum, sem
átti mikinn þátt í að, reisa kirkj
una.
Séra Benjamín Kristjánsson,
prédikaði en fyrir altari þjón-
uðu þeir Stefán V. Snævarr á
Völlum og Fjalar Sigurjónsson,
í Hrísey fyrir prédikun en Pét-
ur Sigurgeirs^on og Kristján
Róbetsson, sóknarprestar á Ak-
ureyri eftir prédikun.
Valdimar V. Snævarr flutti
kvæði og kirkjukór Möðruvalla
söng undir stjórn Jóhanns Har-
aldssonari
Viðstaddir hátíðarmessuna
voru próf.essorarnir Hal Koch
frá Kaupmannahöfn og Magnús
Már Lárusson prófesosr við Há-
skólann.
Möðruvallakirkju bárust
margar góðar gjaíir í tilefni af-
mælisins meðal annars ljós-
Á MÁNUDAGINN efndi*
Stúdentafélag Reykjavíkur til
fé’agsfundar um kjördæmamál
ið. Framsögumaður var Jón P. j
Emils, héraðsdómslögmaður, og |
flutti hann ýtarlega ræðu u»n
gang þessara mála hérlendis síð
ustu áratugi, og rakti í stórnm
dráttum þær breytingar, sem
gerðar hafa vcrið á kjördæma-
málinu í réttlætisátt, fyrir at-
heina Alþýðuflokksins.
Auk Jóns P. Emils tóku til
máls Barði Friðriksson, hdl.,
Benedikt Gíslason frá Hofteigi
og Pétur Benediktsson, banka-
stjóri. Að lokum tók frummæl-
andi aftur til máls. — Eftir-
farandi tillaga var samþykkt á
fu'ndinum.
,,Fundur haldinn í Stúdenta-
22 land hafa þsgarisl-
r
i
'amdifnu i
írjáSsisin íþróiSym
Stokkhólmi, miðvikudag,
('NTB-TT).
22ÞJÓÐIR hafa til þessa til-
kynnt þátttöku sína í Evrópu-
meitsaramótinu í frjálsum í-
þróttum, sem haldið verður í
Stokkhólmi 19.—24. ágúst í sum
ar. Eina landið af þeim 29, sem
aðilar eru að sambandinu, er
asgt hefur nei, er Liechtenstein.
Búizt er við, að 27 lönd muni
hafa tilkynnt þátttöku, áður en
fresturinn rennur út. Þau lönd,.
. , sem enn hafa ekki svarað, eru
lelagi Reykjavikur manudag- : Frakkland> Grikklandj Pó,landj
inn 21. oktober 1957 telur nu-
verandi kosningalöggjöf og
framkvæmd hennar svo stór-
| gallaða, að ekki megi lengur við
i una, og skorar því á aiþingi, að
prentað eintak af Guðbrands- vinda bráðan bug að endurskoð
biblíu, gefin af börnum Hann- un hennar, þar sem haft verði
esar Hafstein, en hann fædd- í huga, að réttur kjósenda á
ist að. MöðruvöÍlum. skipan alþingis sé sem jafnast
Margar kveðjur bárust í til- | ur, hvar sem þeir eru búsettir í
efni afmælisins, þar á meðai írá | landinu og- hvar í flokki sem
biskupi íslands. ^ þeir standa“.
Júgóslavía, Malta og Tyrkland.
flö!
Tekur þátt í svæðakeppninni, scm hcfst á laugardag.
FRIÐRIK ÓLAFSSON, skák-»
meistari, fór utan í gærmorgun.
Var för hans heitið til Hollands,
þar sem hann tckur þátt í svo-
nefndri svæðakeppni, sem er
undankeppni 'fy-rir heimsmeist-
arakeppnina í skák.
Skákmenn frá 16 löndum
taka þátt í svæðakeppninni, þar
á meðal ýmsir mjög kunnir. T.
d. mætti nefna ,auk Friðriks,
Bent Larsen, G. Stáhlberg, Iv-
kov, Uhlman, Clark og Kolarov.
— Þrír þeirra, sem eftir verða
á móti þessu, öðlast þar með
réttindi til að taka þátt í keppni
þriggja efstu manna af hverju
i svæði.
Veðrsð í
S.-A. kaldi; snjókoma; léttir til.
Sjö menn biðu bana.
Belfast, miðvikudag. (NTB).
FJÖGURRA hreyfla Viscount
flugvél frá British European
Airways fórst í lendingu í Rel-
fast í dag eftir hádegi, og var
vont veður. Allir í vélinni biðu
bana, tveir farþegar og fimm
manna áhöfn, og vélin gereyði-
lagðist.
Flugvélin var ekki í áætlun-
arflugi, en ætlaði að sækja
brezka birgðamáfaráðherrann,
Audrey Jones, og nokkra blaða
menn og ljósmyndara, sem
komu frá London fyrr um dag-
inn og ætluöu nú hcim.
inpin iii jygossa
WASKINGTON, miðviku-
dag, (NTB-AFP). Dulles, utan-
ríkisráðherra USA, hefur ákveð
ið að stöðva mest af þeim senct.
ingum hjálpargag'na, sem fara
áttu til Júgóslavíu, þ. e. m. send’
ingu af þotum. Areiðanleg heimi
ild í utanríkisráðuneytinu seg-
ir, að skoða verði ákvörðun:
þessa undir siónarhorni viður-
kenningar Júgóslavíu á Aust-
ur-Þýzkalan'dí: Þessi ákvörðun.
hefur ekki verið g'erð formlega
errnþá, en hún hefur verið rædcf.
við Breta og önnur vestræn
ríki. > .
Talið er, að USA muni stöðva
svo til ailar vopnasendingar til
Júgóslavíu og aflýsa viðræð,..
um, sem fara áttu fram í Bret-
grad um efnahagsáðstoð Banda
ríkjanna á þessu i'járhagsári.
Sendingum varahluta í vopn.
sem áður hafa verið send, verð-
ur samt haldið áfram. Ákvörð
un þessi er ekki afturkallanleg
og ber að skoðast þannig, agí
Bandaríkjamenn vilji sjá hvort
Tito hyggist snúa sér að vestur
löndum eða Rússlandi.