Alþýðublaðið - 17.01.1958, Blaðsíða 9
Föstudagur 17. janúar 1958
AlþýCnblaSiS
Leiðir alira, sem ætla að
kaupa eða selja
e g l
liggja til okkar
Bílasaian
Klapparstíg 37. Sími 19032
Ákí Jakobsson
°g
hæsfarétlar- og héraðs
dáhislögmenn.
Málflutningur, innheimta,
samningagerðir, fasreigna
og skipasala.
Laugaveg 27. Sími 1-14-53.
Húseigendur
önnumst allskonar vatns-
og hitalagnir.
Hifalagnir s.f.
Símar: 33712 og 12839.
Húsnæðis-
miðlunin,
Vitasiíg 8 A.
Sírni 18205.
Sparið auglýsingar og
hlaup. Leitið til okkar, eí
þér hafið húsnæði til
leigu eða ef yður vantar
húsnæði.
Samúiarkorf
Slysavarnafélag íslands
kaupa flestir. Fást hjá slysa
varnadeildum um land allt.
í Reykjavík í Hanny ‘ðaverzl
uninni í Bankastr. 6, Verzl.
Gunnþórunnar Halldórsdótt
ur og í skrifstofu félagsins,
Grófin 1. Afgreidd í síma
14397. Heitið á Slysavarnafé
lagið. — Það bregst ekki. —
KAUPUM
prjóratuskur og vað-
malstuskur
hæsta verði.
Álafoss,
Mngholtstræti 2.
LEIGUBÍLÁR
Bifreiðastöðin Bæjarleiðii
Sími 33-500
—o—•
Sigurður Qlason
Hæsíaréttai'lÖgmaður
Austurstræti 14.
Sími 15535.
Viðtalst, 3—6 e. h.
Síminn er 2-24-40
Borgarbílastöðin
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 1-15-80
Minningarsplö!d
D. A. S.
fást hjá Happdrætti DAS,
Vesturveri, sími 17757 —
Veiðarfæraverzl. Verðanda,
sími 13786 — Sjómannafé
lagi Beykjavíkur, sími 11915
— Jónasi Bergmann, Háteigs
vegi 52, sími 14784 — Bóka
verzl. Fróða, Leifsgötu 4,
sími 12037 — Ólafi Jóhanns
syni, Rauðagerði 15, sími
33Ó9f — Nesbúð, Nesvegi 29
---Guðm. Andréssyni gull
smið, Laugavegi 50, sími
13769 — í Hafnarfirði í Póst
húsinu, sími 50267.
Bifreiðastöð Reykjavíkur
Sími 1-17-20
SENDIBÍLAR
Nýja sendibílastöðin
Sími 2-40-90
Sendibflastöðm Þröstur
Sími 2-21-75
»♦»>>
( ÍÞróttlr
Islenzku skíðamennirnir, sem keppa í heims-
meislarakeppninni, sðunda æfingar í Sviss
Eyjleinn, Úlfar og Krlslinn keppa í
Sviss um helflina.
EINS OG áður hefur yerið
greint frá hér á síðunni, ern
þrír íslenzkir skiðaineun fam-
ir ntan til æfinga undir heims-
meistarakeppnina í Alpagrein-
uip. Þessir skíðapienn eru Ey-
steinn Þórðarson, ÍR, Úlfar
Skæringsson, ÍR, og Kristinn
Benediktsson, ísafirði. Allir
cru þremenningarnir kunnir
skíðagarpar.
íléðan fóru þeir utan hinn
28. desember s.l. til Austurrík-
is, þar sem þeir ætluðu að
leggja stund á æfingu undir
heimsmeistarakeppnina, sem
hefst í Bad-Gastein 2. marz n.k.
cg stendur til 9. marz. Fréttir
af þeim félögum, sem borizt
hafa ti.1 síðunnar, herraa, að
þeir segi ekki farir sínar slétt-
ar frá Austurríki, þ.e.a.s. þar
var svo lítill snjór, þegar þeir
ætluðu að hefja æfingar. Þar
hafa undanfarið gengið miklar
rigningar og veldur það bæði
keppendum og forráðamönnum
rnótsins allþungum áhvggjum.
Þess vegna bmgðu íslending-
arnir sér til Sviss. Eru þeir
staddir í Wengen um þessar
mundir og leggja stund á æfing
ar af miklum krafti. Þar er næg
ur snjór og ágætar aðstæður að
öllu leyti. Um næstu helgi
munu þeir að öllu iorfallalausu
keppa á skíðamóti í Wangan,
en þar ipunu leiða saman hesta
sína skíðamemi frá 16 þjóðum.
Annars er ekki nema allt gott
að frétta frá skíðamönnum okk
ar í Syiss, Þeim líður öllum
vel, en kvarta helzt undan því,
að hafa farið illa með skíðin
sín, er þeir byrjuðu æfingarn-
ar í Austurríki á dögunum. —
Þetta er í annað sinn, að ís-
lenzkir skíóamenn taka bátt í
heimsmeistarakeppni í Alpa-
greinum. Síðast var það í Are
í Svíþjóð og voru þá m.a. ksepp
enda héðan ísfirðingarnir Hauk
ur og Jón Karl Sigurðssynir.
Íþróttasíða Alþýðublaðsins læt
ur í Ijós von sína um að þre-
menningunum, sem ætla að
keppa á mótinu í marz nJk..
gangi vel í keppninni, en þar
verða saman komnir margir
ágætir garpar, þannig að búast
raá við að keppni verði bæöi
hörð og skemmtileg.
Skjaidarglínian 2. fefer.
SKJALDARGLÍMA Ámranns
fer fram að Hálogalandi sunsni
daginn 2. febrúar n.k., kl. 16,30
síðdegis. Keppt verður «m
skjöld, sem Eggert Kristjáns-
swi, stórkaupmaður, hefur geí-
ið. Núverandi handhafi skjald-
arins er Trausti Ólafsson, Ár-
manni.
Þeir, sem ætla að taka þátt
í glímunni, þurfa að gefa Sig
fram við Hörð Gunnarsson, for
mann glímudeildar Ármanns.
1 eða Guðmund Ágústsspn,
glímukennara, sem fyrst.
Agúst Stei
Framhald af 7. síðu.
handa um byggingu. Gerf er
ráð fyrir, að á landi Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna
verði fjórar stórbyggingar og
síðar nokkur smáhýsi fyrir ein-
stakar fjölskylaur. Tvær af
stórbyggingunum eru nú full-
gerðar og hin mesta bæjarprýði.
í vesturarmi eru á neðri hæð
borðstofa, setustofa og lestrar-
salur sjómanna, en á efri hæð
sjúkradeild stofnunarinnar Og
hebbergi fyrir vistmenn og
starfsmenn. í austurálmu er
heimavist fyrir fjölmarga sjó-
menn, sumt íbúðir fyrir hjón,
en mörg herbergi fynr eins.tákl
inga. Stórhýsin eru tengd sam-
an með listrænni forstofu. —
Fagrir garðar og grasvellir
munu umlykja sjómannaheim-
ilið. Sjálf er bvggingin svip-
mikil, tíguleg og stórskorin, þó
hvergi um of. Ágúst Stein-
grímsson hefur bæði í Dvalar-
heimili sjómanna og endra nær
forðast í byggingu sinni forðast
allt útflúr og tildur, sem við-
vaningar í húsagerðariist nota
meira en góðu hófi gegnir. Að
ytri sýn hefur Dvalarheimilið
þá reisn, sem fer vel á sjó-
mannáheimili. Þegar komið er
inn fyrir dyrastafi þessa húss
kemur fram annarskonar feg-
urð. Þar er beitt hverskyns hug
viti, til að gera herbergin fyr-
ir sjómennina og konur beirra
að vistlegum heimilum.
Allir, sem staðið hafa fyrir
fjársöfnun og byggingu dval-
arheimilis aldraðra sjó-
manna getað hrósað happi yfir
því hversu yel hefur fekizt með
stórhýsið á Laugarneshæð, hið
fyrsta, sem reist er til vegs ís-
lenzku sjómannastéttmni.
Þegar hlé varð á önnum
Ágústs Steingrímssonar við
Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna fékk hann tvö önnur
mikil verkefni. Hann varð stall
bróðir Jónasar læknis ■Kristj-
ánssonar við að reisa hið glæsi-
lega sjúkrahús og hvíldarhemili
ngrímsson
í Hveragerði. Sú bygging er að
mörgu leyti merkileg nýjung.
Þai' hefur djarfur og stórhuga
hugsjónamaður, sem er kom-
inn langt yfir lögmæltan aldur
opinberra starfsmanna, staðið
fyrir að reisa heilsuhæli, sem
er ætlað það veglega verkefni
að fyrirhyggja sjúkdóma, frem-
ur en að að bjarga því barni,
sem dottið er niður í brunninn,
enda standa þar að verki önnur
sjúkrahús. Jónas Kvistjánsson
og Ágúst Steingrímsson unnu
prýðilega saman við hið nýja
hvíldarheimili. Það stendur á
bökkum Yarmár, á síéttriklöpp,
þar er ekki hægt að hafa kjall-
ara, enda vildu forgöngumenn
málsins komast hjá því hús-
rými. Hvíldarheimilið þeirra er
aðeins ein hæð. Hveragerði er
jarðhitasvæði, þar þurfa hús að
vera létt og sveigjanleg, ef jarð
skjálfta ber að höndum. Þetta
þótti þeim Jónasi og Ágústi eng
in lýti á staðnum. Þeir viidu
ekki þurfa að hafa í liúsinu
stiga eða lyftu, heldur ganga af
hraunsléttunni inn í húsið og
síðan stofu úr stofu eftir því,
sem bezt hentaði stofnuninni.
Þó að þetta hvíldarheimi.li sé
einnar hæðar bygging þá skort
ir þar ekki fyrirmannlegt yfir-
bragð. Ágúst Steingrímsson
stýrði gerð hússins um útlit,
þægindi og fegurð. Þar eru
gluggar miklir ,en ekki um of.
Mikil -salarkynni, sólrík og rúm
góð svefnherbergi og samkomu
salir. Baðdeild er í uppbygg-
ingu, þar sem gæði Hveragerð-
is verða að heilsulind.
En þegar Ágúst Steingríms-
son hafði að mestu leyti lokið
forstöðu náttúrulækningahiem
ilisins í Hveragerð; var húsa-
meistari ríkisins, Hörður
Bjarnason. að byrja viðveisn
Skálholtsstaðar, með endur-
reisn dómkirkjunnar. Húsa-
meistari leitaði til Ágústs, sem
verið hafði honum hollur sarn-
starfsmaður um skipulagsmál-
in. Nú varð Ágúst aðal aðstoð-
armaður húsaméistara og van.n
með honum að Skálholtskirkju
síðustu misserin, sem hann
lifði. Munu þær þrjár stórbygg-
ingar, sem hér hefur verið vik-
ið að lengi bera Ágústi Stein-
grímssyni lofsamiegan vitnis-
burð um atorku og þro.skaðan
smekk við stórbyggingar í al-
manna þágu.
Ágúst Steingrímsson var ekm
af þeim mönnum, sem gladdist
af starfinu og vann oft mejra.
heldur en heppilegt var fyrir
heilsu hans. Þannig hefur hann
síðustu misserin, sem hannlifði,
auk starfa sinna við Dvalar-
heimilið, hvíldarhei-milið í
Hveragerði og Skálholtskirkju
fengist við yfírstjórn nokkra af
hinum nýreistu 20—30 íbúða-
sambyggingum í Reykjavík.—
Hinir mörgu eigendur þessara
íbúða minnast með þakkláts-
semi sérstakrar hugkvæmni
hans í tilhög'un þessara mörgu
heimila. Nýlundu við að finna
ný úrræði til að gera húsin sem
bezt til íbúðar og auðveldpst
til notkunar.
Samhliða hinum mörgu störf
um Agústs Steingrímssonar fyr
ir aðra hefur hann í hjáverk-
um reist handa sér og fjöl-
skyldu sinni sólríkt hús
skammt frá Dvalar.heimili aldr-
aðra sjómanna. Þar býr nú
ekkja hans Friðrika Benónýs-
dóttir og börnin fjögur, öll á
bernzku aldri.
Móðir hans, ekkju og börn-
um er búinn mikill harmur
með fráfalli þessa ágæta manns,
sem var enn á miðjnm aldri.
Hann skilur þeim eftir lofeatrv-
lega minningu. Ágúst Stain-
grímsson var gæddur þeim eig-
inleikum, sem skapa U-aust og
vináttu, þess nutu ekki aðsins
vinir og vandamenn, heldur
allir, sem Ágúst átti skipti yið.
Na-fn hans mun Itin í sam-
bandi við þær merkilegu bygg-
ingar, sem hann stóð að og fyr-
ir þann drengskay og mann-
dóm, sem hvarvetna kom fram í
störfum hans og skiptum við
samferðamenn á líísbrautnini.
Jónas Jónsson,
frá Hriflu, |