Alþýðublaðið - 02.02.1958, Side 11

Alþýðublaðið - 02.02.1958, Side 11
11 SíiÁmidag-ur 2. febr. 1958 A 1 þ ý 5 u b 1 a 8 i ð VELRiTUNARSTULKUR. Vanar vélritunarstúlkur óskast nú þegar. IJppl. í síma 19946 (á venjulegum skrif- stofutima) í DAG er sunnudagurinn, 2. febrúar 1958. Ileifiklag'svörour L. R. í dag er Björn Guðbrandssou, Lækna- . varðstofunni, sími 1-50-30. Siysavarðsíoía ííeyKjavntur er opin allan sólarhringinn. Nætur- læluiir L.R. kl. 18--8. Slrni 15030. fiftirtaiin apótek eru opin fcl. 9—20 alla daga, nema laugar- daga kl. 9—18 og sunnudaga kl. 13—16: Apótek Austurbæjar (simi 19270), Gurðsapóíek (sími 34006), Hoiísapótek (sími 33233) og Vesturbæjar apótek (sími 22290). Bæjárbókasafn H„ykjavíkur, Þingholtsstræti 29 A, slmi 1 23 08. Útián opið virka daga kl. 2—10, laugardaga 1—4. Lfes- stofa opin kl. 10—12 og 1—10, laugardaga kl. 10—12 og 1—4. ■ Lokað á sunnudögum yfir sum- armánuðina. Úíibú: Hólmgarði . 34 opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 5—7: Hofsvaiia götu 16 opið hvern virkan dag nema iaugardaga kl. 6—7; Efsta sundi 36 opið mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 5.30— 7.30. FLIGFEUÐIR Flugféíag íslands h.f.: Millílandaflug: Gullfaxi er væntanlegur til Reykjavíkur kl. 16.10 í dag frá .Hamborg, Ivaup- mannahöHi og Oslo, Flugvélin fer til Lóndon kl. 08.30 í fyrra- málið. — Innanlandsflug: — í dag er áætlað að fljúga.til Ak- ureyrar og Vestmannaeyja. — Á morgun e.r áætlað aö fljúga iil Akureyrar, Fagurhólsmýrar, - — Hornaíjarðar, ísafjarðar, Siglu- f jarðar og Vestmannaeyja. SKIPAFRÉTTIR Eimskipaféíag ísiands h.f.: Dettifoss fór frá Riga 30.1. til Ventspils og Reylcjavíkur. — Fjallfoss kom til Rotterdam 28. 1. fer þaðan til Antwerpsn, Hull og Reykjavíkur. Goðaíoss fór frá Reykjavík 31.1. til New York. Gullfoss fór frá Leith 31.1. til Thorshavn og Reykjavikur, — væntanlegur til Reykjavíkur árd 3.2. Lagarfoss fór frá Vestm,- eyjum í nótt 1.2. til Fáskrúðs- íjarðar, og Norðfjarðar, Ham- borgar, Gautaborgar og Kaup- mannahafnar. Reykjafoss kom til Hamborgar 31.1. fer þaðan til Reyltjavíkur. Tröllafoss fór frá New York 29.1. lil Reykja- víkur. Tungufoss fór frá Norð- firði í morgun 1.2. til Eskifjarð- ar og þaean til Rotterdam og Hamborgar. Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá Akureyri í dag á vesturleið. Esja fór frá Reykja vík í gærkvoldi vestur um land í hringferð. Herðubreið er vænt anleg til Reykjavíkur árd. í dag frá Ausííjörðum. Skjaldbreið fer frá Reykjavík á miðvikudaginn vestur um land tíl Akureyrar. Þyrill er í olíuflutningum á Faxaflóa. Skaftfellingur fer frá Reykjavík á þriðjudag til Vest- mannaeyja. Skipadeild S.Í.S.: Hvassaíell er á Húsavík. — Arnarfell fór 3,1. f. m, frá Kaup mannahöfn áleiðis til Akraness. Jökulfell er í Ólafsvík. Ðísar- fell fór í gær frá Porsgrunn á- leiðis til Reykjavíkur. LitlafeJl kom í gær til Rendsburg. Helga- ' fell er í Reykjavík. Hamrafeil kom við í Gíbraltar í gær á leið til Batum. Alfa fór 28. f. m. frá Capo de Gata áleiðis til Þor- lákshafnar. FUNDIR Kvenfélag' Laugarnessóknar. Konur, munið aðalfundinn n. k. þriðjudagskvöld í fundarsal kirkjunnar. Slysavarnakonur í Reykjavík. Munið aðalfundinn annað kvöld kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. — Venjuleg aðalfundarstörf, — skemmtiatriði, — kvikmynd. Húsmæðrafélag Reykjavíkur. Konur,' munið. áður auglýstan afmælisfagnað félagsins á þriðju daginn, 4. febrúar. Vinsamlega tilkynnið þátttöku strax í síma 12585, 11810 og 15236. —o— Kvöldvökur IOGT. iSvo sem auglýst er á öðrum stað hér í blaðinu, gengst þing- stúka Reykjavíkur fyrir út- breiðslufundum með kvöldvcku- sniði dagána 3.—6. febr. n. k. í Góðtemplarahúsinu. Kvöldvök- urnar heíjast kl. 8,30 e.h, hverju sinni. Þarna verða flutt erindi og ávörp af þjóðkunnum mönn- um um áfengisvandamálið, auk þsss sem margt verður þar um skemirkiaíriði. Sýndir gaman- leikir, lesið upp, hljómlist og skemmtiþættir fluttir. Aðgangur er öllum heimill ókeypis meðan húsrúm leyfir. Tékknesk -íslenzka menningarsambandið. Mánudaginn 3. febr. 1958 kl. 8,30 e. h. verður tékkneska stór myndin Jean Zizka frá Troenov sýnd í MÍR-salnum að Þing- hoitsstræti 27. Jean Zizka er stór mynd í litum gerð af O. Vavra höfundi myndarinnar um Jean Huss. Jean Zizlca er ein af þjóð- hetjum Tékka og hafa þeir lagt mikla vinnu í gerð þessarar myndar. — Öllum er heimili að- gangur. Framhald af 12. síðu. ig ýmisar tegundir mýkri steina sem nota má til húsa- s'kreytinga, í t. d. mosaik og terrasó. Bergkristallar hafa töluvert- verið notaðir til húsaskreyt- inga, t. d. í Háskólanum og' Þjóðleikhúsinu, en lítið er orð ið eftir af honum í. landinu, svo Ktenn viti. ÓNOTUÐ VERÐMÆTL „Á íslandj liggja mikil ónot- uð auðæfi í jörðu, ætti að leggja mikla áherzlu á að not- •færa þáu til iðnaðar, en, selj- um ekkert af þeim óunnið úr landinu, því hér er hægt að byggja upp á þeim s(óriðnað,“ J.. Magnús B|arnasofi :■ J EIRIKUR HANSSON i S S Skaldsaga írá Nýja Skoílandi. S í höfðinu eins og hún vildi ldjúfa mig í herðar niður. ■—• Eg gekk upp í svefnher- bergið mitt, þegar ég var bú- imi að borða, og fór að hugsa um það, hvort mér mmidi nú ekki takast að komast burt á sama hátt og drengurinn, sem Maríanna sagði mér frá. Það var hreint ekki meira en tólf fet frá gluggasium mínum og ofan á gangstéttina fyrir neð- an, og ég sá, að ég múndi hæg- lega geta komizt þar, ófan, ef ég festi annan endann á reipi utan um einn rúmstöpuhnn og renndi mér svo niður. Eg var viss um, að ég mundi kom- ast til Skipafjarðar um sólar- uppkomu, ef ég gæti lagt af stað um það levtið, sem frú Patrik færi að sofa. Hið eina, sem ég óttaðist við þetta næt- urferðalag, var það, að ég mundi verða alveg yfirkominn af myrkfælni. En ég afréð þó, að hætta mér út í þetta ferða- lag, þrátt fyrir allt og allt. Eg var svo heppinn um dag- inn að finna digra þvottasnúru í ©ldiviðarskýlinu, og ég var líka svo heppinn að geta komið henni upp í herbergið rnitt, án þess að nokkur tæki eftir því. Eftir því sem á daginn leið, slóst hjartað í mér harðara, og eftir því varð burtfararþráin sterkari og óviðráðanlegri. Mér fannst dagurinn aldrei ætla að líð'a, en samt lei’ð hann og kvöldið kom. Eg fór snemma upp í herbergið mitt um kvöld- ið, en ég fór ekki úr fötunum. Eg slökkti ljósið eftir litla stund. Eg setti dollarann, sem frú Patrik hafði einu sinni gefiS mér, í vasa minn, og svo tók ég bækurnar mínar þrjár, (Nýja Testamentið, Ijóðmæli Jónasar Hallg'rímssonar og Ijóðmæli LongefelloWs) og batt stórum klút utan um þær, því að ég vildi ómögulega skilja þær eftir. Svo beið ég langan tíma við glug'gann og horfði út. Nóttin var heiðskír og kyrrð og ró hvíldi yfír öllu. Eg sá Ijósin í húsuUum út með firðinum fækka smátt og smátt, þangað til þau öll voru horfin. Þegar ég hélt, að frú Patrik væri sofnuð, tók ég snúruna batt öðrum endanum um rúm- stöpulfnn, sem var næstur glugganum, svo opnaði ég giuggann og' renndi snúrunni, með bögglinum í hinum end- anum, uið'ur. Þar næst skreið ég gætilega upp í gluggakist- I una. — Ó, ég fór hægt og | gætilega. Hj.artað í mér barð- ist ákaflega.. Eg hélt niðri í mér andanum. og köldum svita sló út á, er.ninu á mér. Eg húkti nokkra stund þárna í gluggakistuhhi og var í vafa um, hvort ég se-tti nú annars að voga að leggja í þessa glæfraferð. En þráin eftir að komast hei-m var)ð:, vfirsterk- ari öllum öðrum Öílum í mér. Eg herti því upp hugann. las mig niður snúruna, Moiust heill á húfi ofan á gangstéttina, tók bólcaböggulinn, læddist 'hljóð- lega út úr garðinum og í|am. á brautina, sem lá til Skipa- fjárðar. Það var dálítið frést, og snjór var enir á brautinni, syo að gangfæri var hið ákjós- anlegasta. Eg fór strax að hlaupa. Eg hljóp eins hart og mér var mögulegt, hljóp eins og líf mitt lægi við. Áiram þu'it ég eins og ég væri aiveg •: ður. fram hiá húsum og hiöð- um, og yfir hól og dai, og tók á öllu, því lífsmagni, sem til var I mér. Eg fór reyndar nokkuð hægara, þagar ég fór. fram hiá húsum. Víða urðu hundar varir við ferð mína og létu þá til sín heyra, og oft eltu þeir mig langar leiðir. Eg varð samt ekket hræddur við þá. Eg var ekki hræddur við neiít þá nótt. Allt, sem ég hugsaði um, var það, að kom- ast sem allra lengst að mér var unnt, áður en sá tími kæmi, að frú Patrik yrði þess vör, að ég væri strokinn. Nei, ég iiræddist ekkert þá nótt, — ekkert nema það, að mér yrði veitt eftirför. Og. óttinn fyrir því knúði mig áfram, stælti vöðva mína og taugar og hleypti æsingu í blóð mitt, svo að ég hentist áfram óðfluga alla liðlanga nóttina, án þess nokkru sinni að nema staðar. Dagur liómaði rétt í því, að ég kom að Skipafirði. Eg hélt áfram inn með firðinum og inn fyrir fjarðarbotninn og út með honum hinum megin, og var þá komið nokkuð fram á morgun- inn, þsgar ég beygði austur með firðinum. Áfram hélt ég austur með ströndinni. En smátt og smátt fór ég að fara hægara, fætur mínir vbru alltaf að verða, að mér fannst, þyngri og þyngri. Eg var allur í ernu svitalöðri, og ég var fyrir löngu farinn að finna til verkja undir síðunni cg til þyngsla fyrir brjóstinu. En áfram hélt ég. Klukkan var ellefu, þegar ég kom til þorps- ins Tangie, þar sem við Ingv- ar höfðum borðað dagverð haustið fyrir. Eg gekk þar inn í gestagjafahúsið, keypti mér miðdagsverð og varð um leið að svara mörgum spurningum viðvíkjandi ferðalagi mínu, — spurningum, sem mér var allt annað en ijúft að svara. Eg stóð víð á gestgjafahúsinu lengur en ég hafði ætlað í fyrstu. Og þegar ég loksins lagði af stað upp á Mooselands hálsana, fann ég að ég var orðinn svo stirður, að ég í fyrstu. komst aðeins með naum índum áfram fót fyrir fót. En nú voru ekki nema tólf mílur enskar til nýlendunnar. Áfram hélt ég' eins hratt og mínir veiku kraftar leyfðu. Sólin lækkaði smátt og smátt á loft inu, og leiðin til nýiendunnar styttist líka meir og meir. Á- fram hélt ég upp með Tangier fljótinu, eins og végurinn lá. Eg fór yfir fljótið á brúnni hjá sögunarmylnunni. Og nú voru sex mílur eftír til nýlendunn- ar. Eg fór fram hjá námaþorp- inu litla, sem kallað Var Mooselands námar. Og nú voru fjórar mílur eftir til 'nýlenl- unnar. Eg' fór nú að greikka sporið. Eg fór fram hjá Moose lands skólahúsinu, fram hjá pósthúsinu og fram hjá litlu þakspónamylnunni hans Jóns Prests. Og nú vou aðeins tvær mílur eftir til fyrsta býlisins í nýlendunni. Áfram hélt ég k viðstöðuiaust, ' og tilhlökkunin að mega bráðum sjá ömmu mína, færði í mig nýtt líf. Eg reyndi til að fara að hlaupa á ný, en þrátt fyrir það, fannst mér, að ég vera lengi að fara hvem faðminn. Loksins komst ég í krókinn á brautinni, rétta mílu fyrir austan fyrsta býlið í nýlendunni. En rétt í því, að ég komst í þennan krók á braútinni, heyrði ég hringl í iiestabjöllum á eftir mér. Eg get ekki lýst því ofboðá, sem yfir mig kom, því að ég þóttist viss um, að það væru hestar frú Patrik, sem hér væru á eftir mér. Eg vissi, að það eina sem nú gæti bjargað mé, var minn eigin fráleikur, þv£ að hlaupa út af brautinni og fela mig var alveg þýðingarlaust, vegna ófærðarinnar ískótginum. Það var aðeins tæp míia til býlisins fram undan. Kæmist ég þangað, var mér fyllilega borgið. Og þó að ég væri áðfram kominn af þreytu, tók ég nú til þess bragðs, að hlaupa, — hlaupa eins og líf mitt lægi við. Eg leit sem snöggvast til baka, Eg sá hesta og sleða koma í krókinn á brautinni —- hundr- að faðma eða svo fyrir aftán mig, — og mér til skelfingar sá ég, að hestarnir voru leir- ljósir. Það voru hestar frú Patrik. Eg heyrði hvellinn í hestasvipunni og heyrði og kannaðist við rödd Jóns Mill- ers, hins nefbrotna. — Guð, hjálpaðu nú litlum dreng, sem á bágt! hrópaði ég. Og ég hljóp eins hratt og mér var framast unnt og tók á öllu því lífsmagni og viljakrafti, sem til var í mér, því að mér fannst ég vera að hlaupa upp á líf og dauða. Eg sá griðastað :inn fram undan, ég sá hann í gegnum móðuna, sem var að færast fyrir augun á mér. Öðr- um megin við veginn stóð hús ið, en hinum megin hlaðan. Eg þekkti þetta hús og þessa hlöðu undur vel. Eg þekkti fólkið, sem átti þar heiina, og ég vissi, að það mundi slá yfir mig verndarhendi, ef ég kæmist til þess. Hestabjöllurnar færðust allt af nær og nær. Eg heyði betur og betur orgið í Jóni Miller. Hann kallaði til mín hvað eft ir annað og skipaði mér að nema staðar, eða ella skyldi hann keyra fram á mig. En mér kom ekki til hugar að nema staðar, meðan ég gæti hreyft fætuma. En ég var smátt og smátt að missa aflið úr fótunum. Eg fór að verða rnáttlaus um hnén, suða kom fyrir augu mín, og mér fannst hjartað í mér vera komið upp í háismn á mér, og mér fannst ég vera að gefa upp andami fyrir fullt og allt. •— Æ, g'óði guð, hjálpaðu nú litlum dreng, sagði ég. Og um leið var hönd Jóns Millers á öxiinni á mér. Eg hafði tapað í þessu kapphlaupi og hneig rrmagna niður. Jón Miller stóð yfir mér of urlitla stUnd, meðau ég var að kasta mestu mæðinni. Ó, hvað ég bað hann vel að leyfa fnér að fara heim til ömmu minnar, bara sem shöggvast. En han'n svaraði mér ekki einu einasta

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.