Alþýðublaðið - 04.03.1958, Side 6
AlþýSublaSiS
ÞTÍðjudagur 4. maarz. 1958.
Ræða Friðjóns Skarphéðinssonar á alþingi:
ÉG FLYT á þingskjali nr. 266
írumivarp til laga um breytingu
á lögum. nr. 81 irá 1936 um sveit
arstj órnarkiosnnigar.
Aðalbreytingin, sem í frum-
varpinu felst, er um kjördag
bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
inga. Gert er ráö fyrir að kosið
verði um land allt til bæjar- og
sveitarstjórna á einum og sama
degi, síðasta sunnudag í marz-
mánuði, í stað þess að nú fara
fram bæjarstjórnarkosningar
síðasta sunnudag í janúarmán-
uði og ennfremur sama dag
sveitarstjómarkosningar í kaup
. túnihreppum, en í sveitahrepp-
.irai fara kosningar þessar fram
síðasta sunnudag í janúarmán-
uði.
Einnig er í frv. lagt til, að sá
M'ttur verði upp tekinn, að kjör
skrár verði samdar í marzrnán-
uði í stað þess að þær eru nú
samdar í febrúar, eða a. m. k.
foer nú að semja þær í febrúar
samikvæmt gildandi lögum, þótt
misbrestur muni vera á, að svo
sé g-?rt. Þá er og lagt til að kjör
skrér verði aðeins samdar það
ár, sem sveitarstjórnarkosning-
ar fara fram.
Gert er ráð fyrir að lögin öðl-
ist ekki gildi fyrr en 1. júlí n.
k. og myndu þau því engu
foéyta um þær sveitarstjómar-
faosningar, sem fram munu
fara síðasta sunnudag júnímán-
aðar n. k.
II.
Það er margra skoðun, að fyr-
irkomulag það, sem nú gildir
km 'kjördag og samning kjör-
skrár, sé óheppilegt. Alveg sér
staklega tel ég þó að fyrirkomu
lag það um samningu kjrskráa,
sem nú er lögákveðið sé óheppi
legt og er langt síðan ég kom
auga á það. í grein, sem ég
skrifaði á Sínum tíma um kjör-
skrár og kjörskrármál og birt
var í Tímariti lögfræðinga 1954
og pentuð var síðan upp í Sveit-
arstjórnarmálum, benti ég á ó-
kosti þessa fryirkomulags, og
jafnframt að nauðsynlegt væri
að bæta úr því með þeim hætti
að kosið væri í bæjum og sveit-
um eftir kjörskrám, sem semd-
ar væru samtímis.
Eins og skýrt er frá í greinar-
gerð frumvarpsins eru ókostir
þessa fyrirkomulags um kjör-
skrárnar í því fólgnir, að við
kosningar í janúar er kosið efr
ir 11 mánaða gamalli kjörskrá
og ávaOt eru nokkrir kjósend-
ur, sem fullnægja kosningar-
réttarskilyrðin, sem þó eiga
hvergi rétt á að vera á kjör-
skrá, en hins vegar aðrir, sem
ber að taka á kjörskrá á tveim
stöðum. Þannig áttu þeir, sem
fluttust úr sveitahreppi í kaup-
stað eða kauptúnahrepp frá því
1. marz 1957 til loka þess árs,
ekki rétt á að vera á kjörsltrá
í janúarkosningu í þeim kaup-
stað eða kauptúnahreppi, sem
þeir fluttust til, því að þá eina
má á kjörskrá táka, sem bú-
settir eru í kjördeild, er kjör-
skrá er samin, en kjörskrá á
bessum stöðum var samin í
febrúar 1957. Enn. síður eiga
þeir rétt á að vera á kjörskrá
við kosningar í júní n. k. í þeim
sveitahreppi, sem þeir fluttust
frá, því að kjörskrá, sem kosið
verður eftir þar, er samin í
febrúar 1958.
Friðjóit Skarphéðinsson.
Hafi maður hinsvegar flutzt
úr kaupstað eða kauptúna-
hreppi í sveitahrepp á tíma-
bilinu marz 1957 til febrúar
1958 bar að taka hann á kjör-
skrá í kaupstaðnum eða kaup-
túnahreppnum, sem hann flutt-
ist frá, þannig að hann var þar
á kjörskrá við kosningarnar í
janúar s. 1. En samkvæmt nú-
gildandi lagaákvæðum á Mnn
einnig að vera á kjörskrá í
sveitahreppnurn ,sem hann flutt
íst til, því þar er hann búsett-
ur í febrúar 1958 og verður
því á kjörskrá þar, sem' kosið
verður eftir í júná n. k.
III.
Nú kann einíhver að segja, að
auðvelt sé að lagfæra j>etta með
þvi einu að lögákveða að kjör-
skrár séu. samdar samtímis, þó
að ékki sé breytt til um kosiv
ingatíma. í frum.varpi, sem
fram kom: i hátt.virtri Neðri
deild snemma í vetur og hátt-
virtur Þingmaður Austur-Hún.
(J. Pá.) flutti, er lagt til að kjör
skrár s'kuli samdar í desember
ár hvert og giMa frá 1. janúar
til ársloka. IVfáiiið er þó ekki
eins einfalt'eins og þessi Mt.t-
virti þingmaður hefur haldið.
Það liggur t. d. í augum uppi,
að kjörskrár, sem samdar eru
í desember, er ekki unnt að
leggja fram almenningi ’til sýn-
is tveim mánuðum fyrir kjör-
dag. Samkvæmt. kosningalögum
skal. svo gert..
Að hinu leytinu er sá háttur
hafður um samningu kjörskráa,
að Hagstofa íslands tekur kjör-
skrárnar saraan eft.ir manntali,
sem miðað er við 1. des. hinu
næsta áður en kjrskrá er samin,
en bæjar- og sveitarstjórnir leið
j étta þær síðan þannig að menn
| verði á kjörskrá þar sem þeir
i eru búsettir í febrúar.
| Hagstofan getu ekki lokið
sínum þætti verksins fyrr en í
lok febrúar eða byrjun marz.
Hefur hagstofustjóri tjáð mér
þetta. Hagstofan fær ekki allar
flutningsilkynningar og önnur
gögn um búsetu manna hinn 1.
dessmber fyrr en 1—2 mánuð-
um síðar.
Af báðum þessum. ástæðum,
I framlagningarskyldunni 2 mán.
fyrir kjördag og vegna fyrir-
komulags um manntal Hagstpf
unnar 1. des., tel ég sýnt að
ekki sé hægt að nýta tillögu þá,
sem felst í frumvarpi Mttvirts
jringmanns A.-Hún.
Hafi ég ékki komið auga á
aðra skynsainlega lausn á mál-
inu en að einn kjördagur verði
um alit land. Hægt. er aö leiða
rök að því, að óheppilegt er að
kosning fari fram í janúar af
ðrurn ástæðum en ég hefi . nú
rakið.
Veðráttu er þannig hát’tað
hér á landi í janúar, einkum
á Norðurlandi. að jafnan má
vænta þess að veður og færð
hamli kjör.sókn eða kosningar
farizt iyrir með öllu af þeim
sökúm. Væri því æskilegt af
þeim ástæðum að kjördagur
væri á öðrum árstima.
í mínum: augum er það ekkj.
aðalatriði að kjördagur verði í
maá eins og frumvarpið ráðger
ir, heldur að kjördagur verði
einn og sami um al!t land. Ef
bent verður á annan tíma heppi
legri mundi ég líkiegast fallazt
á það. Hins vegar hefi ég að
svo komnu ekki k-omið auga á
annan tíma betri. í júnímánuði
eru Alþingiskosningar og
mundi því tvennar kosniugar
geta fallið á einn ménuð. Tel
ég það of mikið álag á einn
rnánuð, eða e. t. v. einn dag,
að þá væri bæði kosningar til
Alþingis og sveitarstjórna. ’
Júlí-ágúst eru ekki h°ppilegir
vegna þess að þá er orlofstími
vinnandi manna og auk bess
sildarvertíð og heyötflunartími 'i
sveitum, í sepcember á að
nokkru leyti hið sama við,
en auk þess eru þá göngur
og réttir. í október er komin
hautsveðrátta. Þó sýnisí xnér sá
mlánuður e. t. v. geta 'komið til
greina. Nóv.—apríl eru vetrar-
miánuðir og óheppílegir af þeim
sökum.
Ef háttvirt alþingi telur á-
FramhaM á 8. sífíu.
( Lörtci og
INNDALSÁLVEN heitir
stórá ein í Norður-Svíþjóð, á
svipaðri breicldargráðu og
Reykjavík. Hún er nú af-
rennsli stöðuvatnsins Stor-
sjön, sem er eitt af stórvötnum
landsins. Fyrrum er þó álitið,
að aírennsli þess vatns hafi
verið áin Ljungan, sem fellur
nokkru sunnar austur yfir
landið til siávar, en á ísaldar
tírnanum hafi þetta breytzt.
Innda’sálven er ein af mestu
ám landsins, 420 km. löng og
rík að vatnsafli til virkjunar.
SKRÝMSLIÐ í
STÓRASJÓ.
Storsjön er frægt vatn
vegna Freyseyjar, sem í því
er, þar sem í heiðni var b!ót-
staður mikili. Þar hefur fund-
izt nyrzti rúnasteinn Svi-
þjóðar. Einnig hefur það
hlotið mikla frægð fvrir
furðusagnir þær, er einkum
voru á kreiki á síðustu öld,
um skrímsli mikið, sem þar
átti að hafast við. Sumir
hafa haldið því fram, að það
sé einhver furðuskepna af
settum hinna fomu risaeð’a,
en aðrir vilja telja þær skyn-
víllur eða smiði ímy'ndunar-
innar.
RAGUNDA.
Niður með Inndalsalven er
Ragunda, breiður og girösugur
dalur. Þar var eitt sinn stöðu-
vatn, en nú er það horfið. Og
það em ekki nema rúm 150
ár síðan það hvarf með
skyndilegum og eftirminni-
legum hætti. Breiður sandás
stífiaði fyrir vatnið að aust-
an, svo að mxkil uppistaða
myndaðist. En áin féll úr
vatni þessu úr norðaustur-
hominu á svig við ásinn. Þar
var foss. s°m hét Storforsen,
en nú faeitir Dödafallet, og
neðan við ásinn voru engja-
lendur góðar. Nú var það
nokkru fyrir a’damótin 1800,
að upp kom sú tillaga, að
veita vatni gegnum ásinn og
nota skurðinn fyrir timbur-
rennu, svo að unnt væri að
nytja skógana þar efra. Eig-
endur engjasvæðanna neðan
við ásinn vildu þetta ekki,
en eftir 1890 var þó byrjað á
skurðgerðinni. Vatnið gróf
sig níður í sandinn, og var
sett loka í skurðinn til þess
að hafa hemil á rennslinu.
Svo kom vorið 1796. Með
leysingum liækkaði í Reg-
undavatninu, og að kveldi 6.
júní, meðan Ragúndabúar
sváfu svefni hinna réttlátu,
gerðist atburðurinn. Morg-
uninn eftir, þegar þeir komu
á fætur, var ekkert vatn í
Ragunda, bara vatnsbotn..
ÞAD, SEM GERDIST
UM NÓTTINA.
TJm nóttina hafði vatns-
rennsli komizt fram hjá lok-
unni í skurðinn og sagað
íausan sandásinn sundur
með svo skjótuim hætti, að
vatnið tæmdist og ægilegur
vatnsflaumur flæddi niður
dalinn með svo gífuriegum
krafti, að sundur tættir laxar
héngu uppi í trjátoppunum.
Miklum verðmætum var
spillt, en mannskaðar urðu
ekki. Inndalsálven skar sig nú
lengra og léngra niður í
vatnsbotninn, Storforsen var
horfinn, skildi einungis eft-
ir sorfnarr klappir, og nýr
foss mvndaðist. þar sem áður
var vatiLsbotninn.
S. H.
FRIMERKJ
I SIÐASTA þætti var rætt um
væntanlegt Ballonflug yfir
Njörvasund og hverskonar uppi-
stand varð út af fregn Vísis í
sambanöi við þ'að hér í-bæ. Þessi
þáttur vakti inikla áíhygii og
gekk vart á öðru en símahring-
ingum og heimsóknum til rit-
stjórans eftir -hann.
Eitt atriði var beðið um leið-
réttingu á, en það var að Ball-
onstjórinn Boesman hefði ekki
selt þau ballónumslög er í um-
ferð eru í Hollandi óg alls ekki
fyrir 60 gyllini, eins og sagt. va’r.
í því sambandi skal aðeins bent
á að þær upplýsingar voru frá
land hans Bergsma og hafi
hann farið með rangt mál þá er
sjálfsagt að leiðrétta. það. Hitt
er óhrakið, að Boesman hefir
tekið sér þau forróttindi að
stimpla með aukastimplum ball-
onumslög, sem hann sjálfur
fékk og Flugmálasafnið hbll-
enska ásamt einu hundraði
slíkra umslaga í viðbót. Þetta
var á bent og verður hér með
ítrekað sem brot á þeim trúnaði
er honum var sýndur a£ íslenzk-
um póstyfirvöldum og þeim sem
i að fluginu stóðu. Annaðhvort
1 átti að stimpla öll umslögin á
þann hátt, eða ekkert þeirra. —-
Flugmálafólagið mun einnig
vera þarna um að saka, nema
því aðeins að því hafi verið ó-
kunnugt um að Boesman notaði
stimpil með nafni þess til að
stimpla með umslögin eftir á.
Annars er hér með látið út-
rætt um þetta mál að sinni, en
gaman verður að viía hvort
fregnir berast frá Tangier þess
efnis, að þar eigi að fara fraiii
bailonfiug.
Nú er það ákveðið að Frimex
sýningin verði haldín hinn 27.
septernber n. k. og þá verður
væntáníega gefiö út nýU frí-
merki eða írímerkjasett.
Ennfremur er merki sýningar-
innar væntanlegt á markaðinn
innan skamms og bregðast sain-
arar vonandi vel við og kaupa
það til að styðja sýninguna.
Þá er það upplýst að ranimar
þeir er -sýnt vérður í verða ;í
stærðunum '54x70 crn. óg 76x70
cm. Af þessu geta safnarar nokk
ursvegin áætlað hvé mikio pláss
þeir þurfa til sýningar á söfn-
um sínum- og ættu því að panta
þegar rammapláss eftir þ\ú.
Leiga fyrir rammana verður
kr. 25.00 fyrir stykkið af þeim
minni en kr. 40.00 fyrir þá
stærri
Þó að það sé nokkur galii,
verður að biðja þát.ttakendur áð
siá sj.álfa um uppsetningu á efr.i
því er þeir sýna, en þetta er
nauðsynlegt sökum þess að sýn-
ingarnefndin hefur eklci tök á
vinnukröftum til þéss. Má auk
þess segja mér, að margir verði
ánægðir með það að geta jafn-
vel sett. sin'n persónulega svip á
uppstillingu sýningarefnisins.
Allt það er á sýninguna verð-
ur sent ér vátryggt meðan á
henni stendur og er það vel.
Tilkynna vefður þátttöku til
| Jónasar Hallgrimssonar fyrir 1.
| apríl n. lc. í pósthólf 1116.
I Vonandi er að sem flesíir taki
þátt í sýningunni og það er víst
að margt skemmtilegt á eftir að
1 koma þar fram.