Alþýðublaðið - 26.03.1958, Qupperneq 4
Alþý5uMa5I»
Miövikudagur 26. marz 1958
VETTVAAf6t/R 9A6SMS
FAÐIR skrifar: „Mikið hefur
verið skrifað um Roðasteininn
eða „Rauöa rúbíninn“. Að lík-
indum hafa þau skrif reynzt
mesta og stórkostlegasta klám-
auglýsing, sem birzt hefur hér á
ilandi — og skiptir þá engu máli
Sivort um slíkt er að ræða í bók-
ánni eða ekki. Rér var útgáfa
bókarinnar bönnuð, eða svo gott
sem, en bóksalarnir hafa selt
mörg þúsund eintök af henni á
norsku, dönsku og sænsku.
OG FLEIRI HAFA LESIÐ bók
, xna en hafa keypt hana, því að
:íagt er að þeir sem eigi hana sjái
hana varla að lestri loknum, svo
xíkið er fólk í að lesa hana. En
þetta finnst mér ekki aðalatrið-
tð, heldur hitt, að þýðingar ó
verstu köflunum ganga nú um
meðal unglinga, jafnvel í barna
ískólum. Ein slík þýðing barst
á heimili, sem ég þekki og kom
l ljós að gagnfræðaskólakrakkar
iiöfðu verið að þýða.
ÞANNIG ER ÞETTA þegar
bannað er og forboðið, allt vex
í augum, allt verður freistanai
og áhrifin fara eftir því. Þetta
Iiöfum við upp úr banninu — og'
ekkert annað. Hefði bókin verið
vel þýdd og til þess var skáldið
Roðasteinninn enn um-
ræðaefni.
Þýðingar á einstökum
köflum í liöndum unglinga
Hjólbarðaviðgerðir hér á
landi og erlendis
Orðsending til Selfossbúa.
úr Kötlum vísastur manna, þá
var sízt skaði skeður þó að bók-
in kæmi út á íslenzku. Þá hefði
verið svipt af henni huliðs- og
ævintýrahjúpnum.“
ÞETTA SEGIR FAÐIR. Ég
hafði heyrt um þetta talað, en
ekki fest trúnað á, en ég þekki
bréfritarann og hef enga ástæðu
til að halda að hann fari ekki
með rétt mál.
SELFOSSBÚI skrifar: Gúmmí
viðgerðarmenn hér á landi eru
á eftir tímanum og verða þeir
að bæta úr ef þeir vilja ekki telj
ast eftirbátar starfsbræðra sinna
í öðrum löndum. Álls staðar
annars staðar getur maður feng-
ið sprunginn hjólbarða lagfærð
an með tveggja tíma bið, en hér
er það ekki hægt. Þó hlýtur öll-
um að vera Ijóst að svo getur
staðið á fyrir vegfaranada að
hann hafi ekki varahjólbarða
og verði því að bíða ef springur
hjá honum.
ÉG VEIT EKKI hvað veldur
því að hjólbarðaviðgerðarmenn
hér eru eins seinir í vöfum og
raun ber vitni, en ég vil hér með
skora á þá að gera allt, sem í
þeirra valdi stendur til þess að
kippa þessu í lag.“
SELFOSSBÚI. Ég hef þegar
komið orðsendingu þinni um
börnin áleiðis til réttra hlutað-
eigenda. Þeir segja, að þeir vilji
gjarnan breyta til, en þao sé
miklum erfiðleikum bundið
vegna tæknilegra ástæðna sern
stendur. Hins vegar er þeim
ljóst að þetta, sem þú minnist á
mundi fara miklu betur sam-
kvæmt tillögu þinni, og að því
verður stefnt.
Hannes á horninu.
( Lónd og leióir )
EITT ÞEIRRA landa, sem
rnest hcí'ur komið við’ hcims-
fréttir að undanförnu er Indó-
nesía, og þá sérstaklega eyjan
Súmatra, þar sem uppreisn
hefur verið hafin gegn stjórn-
inni í Ojakarta á Jövu.
Indónesía er víðáttumikið
og fólksmargt ríki á eyjunum
í Suðaustur-Asíu. Veigamesti
hluti þessa mikla evríkis er
Java. Sú eyja er lang þéttbýl-
ust og mest nytjuð og menn-
ingu allri bezt á veg komið
þar. Java er byggð 48—50
millj. manna, en Súmatra,
sem er þrisvar og hálfum sinn
um stærri, aðeins byggð um
10 millj. Súmatra liggur suð-
ur og vestur af Malaya og er
mjótt sund á milli. Miðjarð-
árlína liggur um hana þvera.
Gyjan er mjög aflöng, liggur
milli norðvesturs og suðaust-
urs. í beinu framhaldi aí
henni austur á bóginn liggur
Java og síðan Sundaeyjar hin
ar minni, svo sem Sumbawa,
Flores og Timor. Eru eyjar
þessar gríðarlegur samfelldur
fjalllendishryggur, „hálfur í
kafi hafs“. Er þetta eitt mesta
jarðeldasvæði heimsins. Fjall
garðar miklir liggja eftir suð-
vesturströnd Súmötru og þar
framundan er neðansjávar-
grunn allmikið með röð af litl
um eyjum. Tilheyra þær Sú-
mötru. Austur og norður af
fjöllunum tekur við breið lág'-
lendis ræma, sem liggur eftir
endilangri eynni. Þar eru
miklir fenjaskógar víða og
örðugt yfirferðar.
Auðugt Iand og frjósamt.
Frá náttúrunnar hendi er
Súmatra auðugt land og frjó-
samt, talin eitthvert frjósam-
asta land í hitabeltinu. þar eru
olía í jörðu, kol, silfur og gull.
Brunaliðið kval! úi 421 sinnum á sl, ári
Alls voru 280 eldsvoðar í Reykjavík á árinu
BLABÍNU hefur borizt
nkýrsja Slökkvistöðvarinnar í
lileykiavík yfir útköll og elds-
vmða í Reykjavík árið 1957. —
Alis voru 280 eldsvoðar á ár-
!nu. Ókunnugt er um upptök
70 þeirra, íkveikjur voru 63, af
völdum olíukyndingatækja 33,
eafmagnstæki 32, raflagnir 25,
eldfæri og ljósatæki 18, rcyk-
háfar og reykrör 10, ýmislegt
29.
Brunaliðið var kvatt út alls
428 sinnum, þar af 148 sinnum
án þess a’ð um ,éld væri að ræða,
■>g þar af 73 sinnum var það
beinlínis narrað.
Oftast var brunaliðið kvatt
að íbúðarhúsum eða 122 sinn-
uni. Að útihúsum 27 sinnum,
hraggar 12, skip 13, bifreiðar
17, verkstæði 14, ýmislegt 75.
Tjón var mikið 21 sinni, tals
vert 36 sinnum, lítið 94 sinn-
um og ekkert 129 sinnum.
Svefolausi brúðpm-
inn í Veslmannaeyjum.
AÐ UNDANFÖRNU hefur
Söskuldur Skagfjörð leikari
dvalizt í Vestmannaeyjum og
annast þar sviðsetningu og
leikstjórn fyrir Leikfélag
Vestmannaeyja. Síðasta við-
fangsefnið var „Svefnlausi
brúðguminn“ eftir Arnold og
Bach, sem nú hefur verið sýnd
ur þar um skeið við metað-
sókn.
En landkostir eru. fremur lít-
ið nýttir. Náttúrufegurð er
víða mjög mikil og vítt róm,-
uð, einkum í fjallahéruðun-
um Norðan til á eynni er
stöðuvatn mikið uppi í fjall-
lendinu, sem heitir Tobavatn.
Er eyja í vatninu hálend og
reisuleg fjöll í kring. Þetta
svæði er orðlagt fyrir fegurð.
Stærsta blóm sem fundizt hef
ur á jörðinni, er á Súmötru.
Nefnist það rafflesía. Allur
jurtagróður er þar stórvaxinn.
Þrjú héruð.
Súmötru er skipt í þrjú
svæði eða hluta, norður-, mið-
og su'ðurhlutann. Er Metan
höfuðbcrg norðurhlutans, Pa-
dang miðhlutans og Palem-
bang suðurhlutans.
Þjóðir Súmötru.
Ibúar eyjarinnar eru aí
kyni malaja. Atjinesar búa
norðan til í landinu, Battakar
um það mitt og Passumear og
Redjangar sunnan til. Allar
þessar malajísku þjóðir eru
Múhameðstrúar og má þó
naumast telja Battaka gengna
þeirri trú á hönd nema að
nafninu til. Undir niðri eru
þeir heiðnir, voru fyrrum
mannætur. Þjóðir Súmötru
eru engar villiþjóðir. Þeir, er
búa við sjávarsíðuna, eru dug
legir fiskimenn, en inni í land
inu hefur landbúnaður jafn-
an verið helzta atvinnugrein-
in.
Portúgalir komu fyrstir
Evrópuþjóða til Súmötru,
nokkrum árum eftir 1500. Á
sautjándu öld komu Hollend-
ingar þangað og síðar Englend
ingar, en þeir skiptu enn síð-
ar á sínum svæðum þar fyrir
hollenzkar lendur á Malakka
skaga. Hollendingar lögðu svo
undir sig alla eyna, kostaði
sigurinn yfir innsvæðum og
norðurhluta eyjarinnar mikla
bardaga á síðustu öld við At-
jínesa.
S. H.
Aðalfundur
Sambands íslenzkra samviimufélagá ||||.||
verður haldinn að Bifröst í Borgarfirðl l[í !|p
dagana 12. og 13. júní næstkomandi ífjij
og hefst fimmtudaginn 12. júní klukkái
9 árdegis.
’r'1 -' # i 'i
Dagskrá samkvæmt samþykktum
Sambandsins.
Stjórnin.
Dagsbrúnar 1958
verður í Iðnó næstk. laugardag kl. 8 e. h. og hefst
með sameiginlegri kaffidrykkju.
Skemmtiatriði:
1. STUTT ÁVARP.
2. UPPLE8TUR: Brynjólfur Jóhannesson leikari.
3. EINSÖNGUR : Árni Jónsson tenor.
4. ? ? ?
5. KARL GUÐMUNDSSON leikari skemmtir.
6. D A N S .
SALA aðgöngumiða hefst í skrifstofu félagsins fimmtu-
daginn 27. þ. m.
N E F N D I N .
Jarðarför konunnar minnar,
INGIBJARGAR TÓMASDÓTTUR, ^
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 27. þ. m,
ki. 2 e. h.
Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Krabbameinsfélagið.
Eviólfur Ániundason.