Alþýðublaðið - 26.03.1958, Qupperneq 11
Miðvikudagur 26. marz 1958
AlþýSnblaSIS
11
vantar unglinga til að bera folaðið
í þessi hverfi:
GRIMSSTAÐAHOLT
TaSil ¥iS afgrei^sluna. Sími 1-4900.
í DAG er miðvikutlagurinn,
26. marz 1958.
aíysavarðstoía RcyKjavtknr er
opin allan sólarhringinn. Nætur-
Iæknir L.R. kl. 18—8. Sími
15030.
Sftirtalin apótek eru opin kl.
6—20 alla daga, nema laugar-
daga kl. 9—16 og sunnudaga kl
13---16: Apótek Austurbæjar
(sími 19270), Garðsapótek (sími
34006), Hoitsapótek (sími
33233) og Vesturbæjar apóíek
(sími 22290).
Bæjarbókasaín ftvykjavíknr,
Þinghoitsstræti 29 A, sími
1 23 08. Útlán opið virka daga
kl. 2—10, laugardaga 1—4. Les-
stofa opin kl'. 10—12 og 1—10,
laugardaga kl. 10—12 og 1—4.
Lokað á sunnudögum yíir sum-
armánuðina. Útibú: Hólmgarði
34 opið mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga ki, 5—7; Hofsvaila
götu 16 opið hvern virkan dag
n$ma laugardaga kl. 6—7; Efsta
sundt 36 opið mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga kl. 5.30-—
7.30.
FLIIGFEKS I R
Flugfélag íslands h.f.:
Millilandaflug: Gullfaxi fer
til Glasgow, Kaupmannahafnar
og Hamborgar kl. 08.00 í dag.
Flugvélin er væntanleg aftur tit
Reykjavíkur kl. 16.30 á morgun.
— Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar,
ísafjarðar og Vestmannaeyja. —
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), Bíidu-
dals, Egilstaða, ísafjarðar, Kópa
skers og Vestmannaeyja.
Eoftleiðir h.f.:
Edda kom til Reykjavíkur kl.
07.00 í morgun frá New York.
Fór til Stafangurs, Kaupmanua-
hafnar og Hamborgar kl. 08.30.
Hekla er væntanleg til Reykja-
víkur kl. 18.30 í dag frá Loud-
on og Glasgow. Fer til New
York kl. 20.00.
SKIPAFRETTIH
Eimskipafélag íslands h.f.:
eDttifoss kom til Turku 24.3.
íer þaðan 28.3. til Kaupmanna-
IEIGUBÍLAR
BifridiðastÖð Steindórs
Síítii 1-15-80
Bifreiðastöð Eeykjayíkur
Sími 1-17-20
SENDIBÍLAR
Sendibííastöðin Þröstux
Sími 2-21-75
hafnar. Fjallfoss kom til Reykja
víkur 21.3. frá Gautaborg. Goða-
foss fór frá Vestmannaeyjum 23.
3. til New York. Gullfoss kom
til Hamborgar 25.3. fer þaðan
26.3. til Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar. Lagarfoss kom til
Vestmannaeyja 25.3. fer þaðan
á morgun 26.3. til London, Rott
erdam og Véntspils. Reykjafoss
fer væntanlega frá Hamborg 25.
3. til Reykjavíkur. Tröllafoss
kom til Reykjavíkur 22.3, frá
New York. Tungufoss fór frá
Vestmannaeyjum 24.3. til Lyse-
kil og Gautaborgar.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla er á Austfjörðum á suð-
urleið. Esja fer frá Reykjavík á
hádegi' í dag vestur um land til
Akureyrar. Herðubreið fer frá
Reykjavík í dag austur um land
til Bakkafjarðar. Skjaldbreið fór
frá Reykjavík í gær vestur um
land til Akureyrar. Þyrill er á
Austfjörðum. Skaftfellingur fór
frá Reykjavík í gær til Vest-
mannaeyja.
: í . i i
Skipadeild S.Í.S.:
Hvasafell fer í dag frá Akra-
nesi áleiðis til Rotterdam. Arnar
fell fór í gær frá Akureyri áleið-
is til Rotterdam. Jökulfell fór
frá Keflavík 24. þ. m. áleiðis til
New York. Dísarfell er í Reykja
vík. Litlafell er í Rendsburg. —
Helgafell fór frá Hamborg í gær
áleiðis til Reyðarfjarðar. Hamra-
fell fór frá Batum 18. þ. m. á-
leiðis til Reykjavikur. Alfa er á
fjarðar, Fáskrúðsfjarðar og
Reyðarfirði, fer þaðan til Eski-
Breiðdalsvíkur.
FÖSTUMESSUR
Fríkirkjan: Föstumessa í
kvöld kl. 8,30. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Dómkirkjan: Föstumessa í
kvöld kl. 8,30. Séra Óskar J.
Þorláksson.
Neskirkja: Föstumcss i í kvcld
kl. 8,30. Séi-a Jón Thorarensen.
Lsugarneskirkja: Föstumessa
i kvöld kl. 8,30. Séra Garðar
Svavarsson.
Félag Bjúpamanna. Spila-
kvöld verður haldio fimmtudag-
inn 27. marz n. k. í Breiöfirð-
ingabúð, niðri og hefst kl. 8,30.
J. ÍVSagnús Bjarnason:
Nr. 61.
EIRIKUR HANSSON
Skáldsaga frá Nýja Skotlandi.
unni sé lof og þökk, — fylgist
alla jafna að.
— Hann er ef til víll móð-
urlaus, sagði frú Clifford og
Ieit viðkvæmnislega til mín.
— Ef til vill móðurlaus,
sagði Clifford og bar klútinn
uipp að hinum votu augura
sínum, og sömuleiðiS föður-
láus, sem er engu síður átak-
anlegt.
— En skilur hann ensku?
spurði frú Clifford, og það var
eins og hún vaknaði af
draumi.
—- Þetta hefi ég því miður
ekki athugjað, sagði C.lifford
mjög alvörugefinn. Hann skil-
ur að líkindum eitthvað ofur
lítið. Ég skal grennslast eftir
því tafarlaust.
©vo sneri hann sér til mín.
— Skilurðu ofurlítið í
ensku, drengur minn? sagði
hann og tæpti á orðunum, euic
og barnfóstrur gera stundum,
þegar þær eru að tala við hvít-
voðunga.
— Eg skil ofurlítið, sagði ;
ég.
— Hann skilur ofuxlítið,
ástin mín, sagði Clifford og
leit til konu sinnar, — og bað
sem meira er, hann talar dá-
lítið líka, — miklu betur en
1 drengurinn, sem var hjá okk-
ur í Síam.
— Hefurðu borðað kvöld-
verð, ljúfur? sagði frú Clic-
ford blíðlega og leit móður-
lega til mín.
— Hefurðu fengið nokkuð
að eta og drekka, dx-engur
minn? sagði Clifford og benti
upp í sig og lézt drekka úr
hnefa sínum, svo að ég skildi
betur við hvað liann ætti.
— Eg sagðist ekki hafa
borðað kvöldverð. Og frú Clif-
ford lét í liós, að sér þætti
fyrir að hafa ekki strax spurt
mig um það, því að ég hlyti
að vera mjcg svangur. Hún
bar svo siálf mat á borðið, og
hjálpaði maður hennar til að
raða matnum þannig, að mér
gengi sem bezt að ná í hann.
Eg borðaði með góðri lyst, en
varð á meðan að svara mörgum
spurningum, því að Clifford
var óspar á að spyrja mig um
ýmislegt. 1
— Kanntu „Eaðir vor,“
drengur mrnn? var ein af
fyrstu spurningunum, senx
hann lag'ði fyrir mig, eftir að
ég var farinn að borða.
— Já, sagði ég.
— Vertu svo góður að láta
mig heyra það, sagði hann.
— Eg las „Faðir vor“ á
ensku. Þau hjónin virtust bæði
verða alveg hissa. Frú Clifford
klappaði á vangann á mér og
sagði, að ég væri góður dreng-
ur, og gat þess um leið við
mann sinn, að ég talaði hreina
ensku.
— Þetta er dásamlegt,
sagði Clifford og bar vasa-
klútinn úpp að augum sér.
Þetta er ljós vottur þess, að
boðskapur friðarins hefur
jafnvel verið fluttur til hms
kalda íslands og að frækorn
trúarinnar hefur náð að festa
rætur á meðal jöklanna þar.
Já, jafnvel þar á ísauðninri
má finna hina blessuðu bók.
Dásamlegt, — dásamlegt, og
næsta dýrðlegt.
— Geturðú líka lesið og
skrifað, ljúfur? sagði Clifford
mjög ástúðlega.
-— Ofurlítið, sagði ég.
— Hér er svo annað atriði, er
vert er að athuga, sagði Clif-
ford mjög hátíðlega. Því má
hér ekki ljóslega sjá árangur
kristniboðsins? Hverju hafa
ekki kristniboðarnir komið
hér til leiðar? Hversú trúlega
hefur hér ekki einhver af
bræðrunum starfað í víngarði
drottins? Ó, það er dásamlegt
og næsta lofsvert. Ég ætla að
rita um þetta, ástin mín, til
krist'niboðsnefndarinnar í
Lundúnaborg.
— Hefurðu nokkurn tíma
áður séð Islending? sagði frú
Cliífprd við rnann sinn, eftir
að hafa verið hugsi um litla
stund.
— Eg hefi aldrei séð íslend-
ing fyrr, ástin mín. sagði Clif-
ford, en — rödd hans lýsti of-
urlitlu stærilæti, — en ég
hlefi séð Norðmenn og Svía
og sömuleiðis Dani, Hollend-
inga, Belgíumenn cg Þjóð-
verja, ennfremur Frakka,
Ungverja, Austurríkismenn,
Svisslendinga, Rússa og Portú
galsmenn, einnig Spánverja,
Gjrjjkki, I^inna, , Pólverja,
Tyrki og Baska og menn frá
Rúmeníu, Búlgaríu og Serbíu
og Svartfjallalandi, og í
stuttu máli: menn af öllum
þjóðflokkum Norðurálfunnar,
en íslending aldrei. Og hann
bar síðasta orðið fram mjög
hátíðlega, líkt og ensk leik-
kona mundi bera það orð fram
í átakanlegum sorgarleik á
leiksviði í stórborg.
Clifford sagði mér svo, að
fæðið og húsnæðið fyrir mig
kostaði aðeins fjörutíu cents
um sólarhringinn, og að ég :
skyldi borga það við enda ::
hverrar viku — en ekki fyrir-
fram. Hann sagði mér að láta
sig vita, áður en ég yrði alveg
peningalaus, því að þá skyldi
hann leita 'hjálpar til vina
minna. Og ég hélt hann ætti j
við Sandfordsfólkið og spurði ■
hann, hvort hann vissi, hvar j
heimili þess væri. Nei. hann j
sagðist ekki vitg um það, en
hann sagðist vifa, hvar Ink-
ster, undirfcringi iögi’eglul
liðsins, ætti heima, og þóttist
ég þá vita, að Inkster ætlaði
að borga fyrir mig, ef ég yrði
peningalaus og mundi svo
senda' Sandford reikninginn,
þegar hann kæmi heim, og
fann ég, að mér mundi þykja,
mjög leiðinlegt, ef ég þyrfti að,
koma með skuldabyrði inn í|
hús Sandfords. En kæmi hanr.
og fólk hans ekki innan j
tveggja vikna, varð ég annað ,
hvort að gera, að þiggja lán,
eða einhvers konar hjálp,
þangað til Sandfordsf ólkið >
kæmi, eða þá að öðrum kosti'
að fara að vinna mér fyrir|
fæði, svo framt að ég fengij
eitthvað að gera. Eg átti í pen-|
ifígum nóg til að borga fæði
mitt í tvær vikur. En hver gat'
sagt, íiema Lalla og foreldrar'
hennar yrðu komin heim til.
s.ín, áður en sá tími liði? Og
þá var allt gott, hugsaði ég. j
Eftir að Clifford og hin
góða kona hans höfðu spurt
mig um nafn mitt og aldur og
kringumstæður mínar yfir
höfuð, og eftir að hafa látið í
Ijós undrun sína yfir því, að
útlendingur á mínum aldri
skyldi tala svo góða ensku, og
eftir að frúin hafði boðið mér
góða nótt og beðið guð að vera
hjá mér, þá fylgdi bóndi henn-
ar mér upp í lítið herbergi á
öðru lofti.
Þar var lítið uppbúið rúm
og einn stóll og borð. Eg fór
með farangur minn þangað
upp og þótti vænt um að mega
hafa þetta herbergi út af fyrir
mig eingöngu. Svo bauð Clif-
ford mér góða nótt, en kraup
áður niður við rúmstokkina
og las langa bæn.
Eg var þreyttur og var feg-
inn að vera kominn jj mjúkt
og gott rúm á óhultum stað.
Mér fannst dagurinn hafa ver-
ið all-viðburðaríkur, svo við-
burðaríkur, að ég mundi ekki
eftir öðrum eins. Eg hafði að
vísu ekki ferðast mjög langt
þann dag, en ég hafði séð
Leitfarnar saf :her Zorins
störðu á loftskipið, þar sem það
bar í burtu foringja þeirra.úr
allri hættu. Þeir urðu ofsahæcd
þeir s!áu frammistöðu án þess að lenda í vandræðum. og Zorin og doktorinn skulfu af
þeirra manna, sem þeir hættu
lífi sínu fyrir. En flóttamennirn
ir áttu samt ekki eftir að sleppá
T-vær af hinum skelfilegu orr- hræðslu er þeir horfðu á þær
ustuvélum birtust skyndilega j nálgast.