Tíminn - 01.04.1965, Qupperneq 5

Tíminn - 01.04.1965, Qupperneq 5
___5 FIMMTUDAGUE 1. apríl 1965 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastióri: Kristján Benedlktsson. rtitstiórar: Pórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriöi G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gislason Ritstj.skrifstofur • Eddu húsinu, slmar 18300—18305 Skrifstofur. Bankast.rætl • Af- greiöslusimi 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrtfstofur, simi 18300 Askriftargjald kr 90,00 á mán innanlands - í lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA ti.f Ætlar stjórnin eklri r.ð lækka skattana? Það er augljóst, að andstæðingarnir hafa veitt mið- stjórnarfundi Framsóknarflokksins mikla athygli. For- ustugremar stjórnarblaðanna hafa verið meira og minna helgaðar honum, síðan ályktun hans var birt. í skrifum blaðanna um fundinn gætir að vonum harla misjafnra og ólíkra grasa. Alþýðublaðinu finnst t. d. sérstök ástæða til að deila á fundinn fyrir það, að hann krefst þess, að álögur á al- menningi verði lækkaðar. Blaðið kallar þetta ábyrgðar- leysi, þar sem jafnframt sé óskað margra umbóta, er hafi útgjöld í för með sér. Þessi viðbrögð eins aðalmálgagns ríkisstjórnarinnar hljóta að vekja mikla athygli. Þegar andúð almennings var mest á síðastl. sumri vegna hinna háu skattaálaga, var því bæði lofað af ríkisstjórninni og málgögnum henn- ar, að skattar skyldu stórlækkaðir á næsta þingi. Nú líður óðum að lokum þess þings, og enn hafa ekki nein- ar tillögur verið lagðar fram af hálfu stjórnarinnar um skattalækkun, en hinn almenni söluskattur hefur hins vegar verið hækkaður um 2%. Þessi málsmeðferð bendir óneitanlega til þess, að ríkisstjórnin hafi eitthvað ann- að í huga en að standa við loforð sitt um skattalækkun. Það var því fullkomlega nauðsynlegt og tímabært af miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins að gera kröfu til, að skattarnir væru lækkaðir. Sú mótbára Alþýðublaðsins, að ekki sé hægt að lækka álögur á almenningi nema með niðurskurði opinberra framkvæmda, er fullkomlega út í hött. Það er deginum ljósara, að margvísleg óhófseyðsla viðgengst nú 1 land- inu. í ályktun miðstjórnarfundarins er bent á, að þessa eyðslu eigi að skattleggja jafnframt því, sem skattaeftir- lit verði hert, en eins og Alþbl. sjálft hefur réttilega bent á, hafa skattsvik aukizt mjög í seinni tíð, ekki sízt með tilkomu hins almenna söluskatts. Það er því vel hægt, ef vilji er fyrir hendi, að lækka álögur á almenningi, án þess að draga úr framlögum til nauðsynlegra fram- kvæmda. Almenningur þarf að taka kröftuglega undir þá kröfu miðstjórnar Framsóknarflokksins, að ríkisstjórnin standi við fyTÍrheit sitt um skattalækkun. Margt bendir til, að þetta fyrirheit verði svikið að öðrum kosti. Ótti íhaldsins. Mbl. hefur allt á hornum sér í sambandi við ályktun miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins. Það reynir að draga athygli frá ævintýramennsku og hringlandahætti Sjálfstæðisflokksins með því að reyna að setja sama mark á ályktunina! Það er ekki nýtt, að Mbl. reyni þannig að setja þann stimpil á aðra, sem á heima á Sjálfstæðis- flokknum fyrst og fremst . Bersýnilega er Mbl. þó verst við það atriði ályktun- arinnar. þar sem skorað er á umbótamenn að fylkja liði, þótt þeir séu ekki sammála um allt íhaldið ó.ttast ekkert meira en að eitthvað dragi úr sundrungu umbótamanna. Það hefur byggt völd sín á henni. íhaldið getur ekki með neinu móti hugsað til þeirra sögulegu þáttaskila, sem verða myndu í íslenzkum stjórnmálum. ef umbótamenn fylktu sér saman og tryggðu framgang raunhæfrar og djarfrar umbótastefnu. TÍMINN Walter Lippmann ritar um alþjóðamál: Bandaríkin verða að móta alveg nýja stefnu í Indó-Kína Engar líkur til, aö loftárásastefnan geti heppnazt. EKKI getur á löngu liðið áð- ur en Bandaríkin verða að marka alnýja stefnu í Indó- kína. Áður en lengra er haldið vil ég taka fram, að hér á ég ekki við, að við getum fjar- lægt eða eigum að fjarlægja hersveitir okkar, yfirgefa vini okkar og hætta tilraunum okk ar til að tryggja hlutleysi indo- kínversku ríkjanna. Eg tel breytingu á núverandi stefnu Bandaríkjamanna nauð synlega vegna þess, að hún er ívirk og hlýtur að verða óvirk ifram. Eigi að komast hjá óför ím verður að breyta henni, þeim óförum, að við hrekjumst á brott af svæðinu og verðum að eftirláta það Kínverjum eða þeim hörmungum, að til ófrið ar leiði milli Bandaríkjanna og Kina. YFIRLÝST áform gildandi 5tefnu Bandaríkjamanna er að fá valdhafana í Hanoi til að láta af afskiptum sínum 1 Suð ur-Vietnam og taka þátt í al- þjóðaráðstefnu. Vonin um já- kvæðan árangur þessarar stefnu byggist á þeim valta grunni, að okkur takist að finna nákvæmlega rétt meðal- hóf í loftárásunum. Þær mega ekki ganga svo langt ,að þær leiði til ,,útbreiðslu“ stríðsins, innrásar Norður-Vietnama í Suður-Vietnam eða innrásar Kínverja í Indókína. En þótt árásirnar megi ekki vera svo umfangsmiklar að þær leiði til aukinna hernaðarátaka, þá verða þær eigi að síður að vera það ítækar, að þær neyði valdhafana í Hanoi til að hætta baráttunni ,sem þeir eiga nú í. Þess sjást enn engin merki, að við séum neitt nærri því að finna það ímyndaða meðal hóf í loftárásunum, að þær verði ekki of miklar, en þó nægilegar. Illa horfði áður í borgarastyrjöldinni í Suður- Vietnam og enn verr horfir nú, þrátt fyrir loftárásirnar. Frá hernaðarlegu sjónarmiði séð hefir ástandið aldrei verið verra en það er nú. AÐ MÍNU áliti heppnast loft árásarstefnan ekki af þeim sök um, að hún er ekki nema hálf stefna. Hún er barnaleg. Hún felur ekkert í sér nema ógnun ina eina. Vlð gefum Norður- Vietnömum í skyn, að þeirra oíði enn ákafari árásir, ef þeir gefist ekki upp. Við gerum árás irnar til þess að sannfæra þá um, að við eigum sprengjur og kunnum að beita þeim. En við segjum Norður-Vietnömum ekki, hvers konar framtíð bíði þeirra og annarra íbúa Indó kína, ef endalok stríðsins verði þau, sem við ætlumst til. Stefnu okkar brestur þær sigindir, sem raunveruleg stefna verður að hafa, þar sem hervæddir aðilar eigast við. Það. sem í stefnuna vantar, sr uppástunga að öeirri iausn. 3em hernaðaraðgerðum okkar er ætlað að knýja fram. SAMKVÆMT afsleppum. al- nennum orðum forsetans og vísvitandi óljósum málflutn MC NAMARA hermálaráðherra Bandarfkjanna ingi Dean Rusks utanríkisráð- herra er tilgangur okkar að gefa valdhöfunum í Hanoi kost á að velja milli eyðileggingar og undanhalds. Skilyrðin, sem við krefjumst, eru ekki skýrð nánar, og af því leiðir, að í raun og veru er hér aðeins um að ræða nýja tegurid skil- vrðislausrar uppgjafar. Ekkert er um það sagt opinberlega,, — og heldur ekki á bak við tjöldin, svo að ég viti, — hvern ig eigi eða unnt væri að koma málum fyrir, ef valdhafarnir í Hanoi gæfust í raun og veru upp. Okkur ætti ekki að koma á óvart að stefna okkar getur ekki náð tilgangi sínum. Tak mörkuðu sprengjuárásirnar okkar, sem stillt er í hóf til þess að þær leiði ekki til yfir- gripsmeiri ófriðar, hræða hvorki pé þvinga valdhafana í Hanoi. Hegninguna sem þeir hljóta, er bæði unnt að líða og þola. Við kröfunni um, að valdhafamir í Hanoi eigi að hætta að styðja Vietkong, er hins vegar skellt skoilaeyrum. Ástæðan er, að Vietkong sigr- ar í stríðinu, og ef ti\ vill er þess ekki langt að bíða, að í Saigon verði mynduð stjórn, sem semur frið við Vietkong og valdhafana í Hanoi. ÞESS skuggalegri sem hern aðarhorfurnar verða, þess há- værari verða kröfumar um árásir á hin þéttbýlu svæði í Norður-Vietnam, umhverfis Hanoi og Haiphong. Þar mynd um við drepa konur og börn, en það höfum við reynt að forðast til þessa og tekizt að mestu. Eg held, að við ættum ekki að verða við þessum kröfum. Að láta undan þeim gæti ekki aðeins leitt okkur út í stríð við 16 milljónir Vietnama, held ur 700 milljónir Kínverja. Það væri stríð, sem við gæt um ekki unnið Hanson Bald- win (sem skrifar um hermál í New York Times) og Gale Mc Gee öldungadeildarþingmaður eru haldnir þeirri blekkingu. að við getum gert út um sak- irnar við Kínverja í eitt skipti fyrir öll, ef við legðum nú til atlögu við þá. En þrátt fyrir álit þeirra verður ekki séð, hvernig unnt ætti að vera að heyja fyrirbyggjandi stríð við Kínverja. Þótt við eyddum kínverskum borgum væru eigi að síður eftir hundrað milljóna Kín- verja, sem hlytu að helga sig þeirri hugsjón, að koma fram hefndum á „hinum hvítu djöfl- um.“ Baldwin og McGee öld- ungadeildarþingmaður ættu að minnast þess að fyrri heims styrjöldm, sem lauk með skil yrðislausri uppgjöf þvzka hers ins og sundurlimun þýzka heimsveldisins, leiddi beint til síðari heimsstyrjaldarinnar. EF VIÐ eigum að vera bæði heiðarlegir og raunsæir, verð um við að vera við þeim mögu leika búnir, að borgarastyrjöld inni ljúki með samkomulagi við Vietkong og við verðum beðnir að hverfa á braut með hersveitir okkar. Það væri ó- sigur, sem hlyti að verða til alvarlegs álitshnekkis fyrir okk ur, þar sem við höfum lagt á- lit okkar í hættu af gáleysi. En hagsmunum okkar hlyti að verða bezt borgið með því. að láta í ljós skilyrði okkar fyrir aðgengilegri lausn mála í Indó kína. Hver sem útkoman verður í Suður-Vietnam, hljóta Banda- ríkin að haída áfram að vera stórveldi á sunnanverðu Kyrra hafi og við hljótum að gegna mikilvægu hlutverki við endan legt uppgjör, hvernig svo sem það verður Við hefðum fyrir löngu átt að vera búnir að láta í ljós skilyrði okkar fyrir lausn deilunnar Við hefðum ekki átt að treysta á varnar- málaráðuneytið eitt, heldur einnig á utanríkisráðuneytið, sem getur hugsað sér jákvæða lausn í Suðaustur-Asíu. Ef til vill er þegar orðið um seinan að hafa áhrif á út- komuna út úr borgarastyrjöld inni i Suður-Vietnam. En okk ur ber eigi að síður að minn- ast þess, að á stríðstímum býr ríkisstjórn menntaðrar þjóðar sig undir friðinn- J

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.