Tíminn - 15.04.1965, Page 2
TÍMINN
* MEÐ GÓÐUM AFBORGUNARSKILMÁLUM *
* í BERNÍNABÚÐINNI, AUSTURSTRÆTI *
* SÍMI 12852 OG HJÁ *
* MEÐ GÓÐUM AFBORGUNARSKILMÁLUM *
* í BERNÍNABÚÐINNI, AUSTURSTRÆTI *
* SÍMI 12852 OG HJÁ *
* , *
* ÁSBIRNI ÓLAFSSYNI H. F. *
* GRETTISGÖTU 2 A #
* Síml 24440 *
* #
« ** # 4: « * * * *
Sextugur á laugardag:
Sveinn Guðmundsson
Vestmannaeyjum
Sveinn Guðmundsson, fv. bæjar-
fulltrúi, Vestmannaeyjum. sextug-
Ur 17. apríl 1965.
í meira en þrjátíu ár' hefur
Sveinn Guðmundsson verið í fylk-
ingarbrjósti Framsóknarmanna í
Vestmannaeyjum. Hann hefur allt
af verið ótrauður í baráttunni og
tekið sigrum og ósigrum með
þeirri léttu lund, sem einkennir
hann öðru fremur.
Mestan sinn starfsaldur hefur
hann átt heima í Vestmannaeyj-
um, mestu verstöð landsins, þar
sem allt snýst um útgerð og fisk-
véiðar, enda kann hann á öllu
slíku góð skil. Samt segist hann
fyrst og fremst vera sveitamaður,
og víst er um það, að annasamt
má vera heimafyrir ef hann læt-
ur smalamennsku og réttir í
Grímsnesinu fara fram hjá sér.
Hann hefur yndi af að hlaupa
kringum fé og er það þáttur í
þvi náttúrubarnseðli, sem þessi at-
hafnasami og sístarfandi maður
býr yfir. Hann er í essinu sínu
þegar honum gefst tóm til að
príla upp um hæstu fjöll á Aust-
urlandi til að safna einkennileg-
um steinum, en af þeim á hann
eitt mesta og merkasta safn, sem
til er hér á landi í einstaklings
eign og þess gætir hann af alúð
og natni, enda manna fróðastur
um steinafræði.
Sveinn er einn af þeim, sem
vekur hvers manns traust sem
honum kynnast. Margir ieggja
leið sína á skrifstofu
hans á Strandvegi og ekki allir
í viðskiptaerindum, en þaðan fer
enginn bónleiður til búðar, því
Sveinn er kunnur að því að vilja
hvers manns vanda leysa. Sjáifur
á ég honum og elskulegri konu
hans, frú Unni, mikla þakkar-
skuld að gjalda, og margar
skemmtilegar minningar frá fal
iegu heimili þeirra á Arnarstapa.
Samherjar Sveins þakka honum
ósérhlífið starf um áratugi og vin-
ir þeirra hjóna senda þeim kveðj-
ur og heillaóskir á þessum tíma-
mótum.
Helgi Bergs.
Sveinn Guðmundsson er fæddur
í Grænnesi í Norðfirði og ólst upp
hjá foreldrum sínum á Norðfirði.
Foreldrar hans voru Guðmundur
Stefánsson og Valgerður Árnadótt
ir og standa að honum traustar
austfirzkar ættir.
Hann stundaði nám í Alþýðu-
skólanum á Eiðum og síðan í
Samvinnuskólanum og starfaði
að námi ioknu hjá Áfengisverzlun
ríkisins í Hafnarfirði.
Árið 1929 kvæntist Sveinn
Unni Pálsdóttur, ættaðri úr Skaga
firði og eiga þau þrjú. uppkomin
börn.
Árið 1931 fluttust þau til Vest-
mannaeyja þar sem Sveinn tók
við forstöðu Áfengisverzlunarinn-
ar þar og gegndi því starfi þar
til 1952 er verzlunin var lögð
niður. Síðan hefur Sveinn fengizt
við ýms umboðsstörf m. a. verðí
umboðsmaður seðlabankans í
Vestmannaeyjum og Brunabóta-
félags íslands o. fl.
Sveinn hefur gegnt fjölmörgum
trúnaðarstörfum, sem of langt
yrði upp að telja öll. Hann hefur
verið bæjarfulltrúi í Vestmanna-
eyjum í 16 ár 1938—46 og 1954—
62 og gegnt margvíslegum trún-
aðarstörfum öðrum á vegum bæj-
arfélagsins.
vítamínauóuf' **»éa,semc,!Í‘"
HEILDSÖLUBIRGÐIR
ilýiD) ittsSIHiaM álllMikMiDil
KRAFT
«
FIMMTUDAGUK 15. apríl 1965
í stjórn Sparisjóðs Vestmanna-
eyja hefur hann lengi átt sæti,
nú seinustu árin sem formaður.
Hann hefur lengi verið formað-
ur Framsóknarfélags Vestmanna-
eyja og í mörg ár ritstjóri Fram-
sóknarblaðsins, myndarlegs blaðs,
sem Framsóknarmenn í Eyjum
hafa gefið út reglulega í áratugi.
í miðstjórn Framsóknarflokksins
átti hann lengi sæti.
Sveinn er mikill áhugamaður
um náttúrufræði og náttúruskoð-
un. Hann stundar fjallgöngur þeg-
ar hann kemst höndum undir og
safnar steinum og á stórmerkt
steinasafn og er mjög vel að sér
í jarðfræðilegum efnum.
í öllum sínum margvíslegu störf
um hefur Sveinn unnið sér traust
hvers manns, sem honum hafa
kynnzt.
Ferðir Strætisvagna
Reykjavíkur um páskana
Skfrdagur:
Á öllum leiðum nema Lækjarbotn-
um, leið 12:
kl. 09.00—24.00.
Á þeim leiðum, sem ekið er á á
sunnudagsmorgnum og eftir mið-
nætti á virkum dögum:
kl. 07.00—09.00 og
ki. 24.00—01.00.
Föstudagurinn langi:
Á öllum leiðum nema Lækjarb°tn
um, Ieið 12:
kl. 14.00—24.00. , ,
Á þeim leiðum, sem ekið ef a n
sunudagsmorgnum og eftir mlð'
nætti á virkum dögum:
kl. 11.00—14.00 og
kl. 24.00—01.00.
Laugardagur:
Á' öllum lciðum nema Lækjar-
botnum, leið 12:
kl. 07.00—01.00.
Páskadagur:
Á öllum leiðum nema Lækjarbotn-
um, leið 12;
kl. 14.00—01.00. , -
Á þeim lelðum, sem ekið er a. a
sunnudagsmorgnum og eftir n11
nætti á virkum dögum:
kl. 11.00—14.00.
Annar f páskum:
Á öllum leiðum nema lelð
Lækjarbotnum:
kl. 09.00—24.00 , .
Á þeim leiðum, sem eklð er .g_
sunnudagsmorgnum c“ir
nætti á virkum dögum:
kl. 07.00—09.00 og
kl. 24.00—01.00. ^
Lækjarbotnar, Iel®
og á virkum döguim
Föstudagurinn langi- .
Fyrsta ferð kl. 14.00 og siðan
og á virkum dögum.
og venjulega á sunnudogum.
Annar í pá“: síðan einí
Fyrsta ferð kl- “•li> 08
og á virkum dögum.