Tíminn - 15.04.1965, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 15. apríl 1965
HENNAR
23
Páskarétflr
VerSlaonagripír á sýningunnl.
Ljósmynd Tímlnn-GE
ÍSLENZKUR HEIMILIS-
IÐNAÐUR f ÖRUM VEXTI
Lambakótelettur með tóniötum og
eplum.'
8 st. lambakótelettur
4 st. tómatar
smá laukar,
4 st. epli.
salt og pipar,
smjör,
franskar kartöflur,
söxuð steinselja.
Kóteletturnar barðar mjög lítið,
kryddinu stráð vel á, brúnaðar
lítið eitt á báðum hliðum. Latnar
í eldfast, smurt form. Eplin skorin
í 4 bita og soðin aðeins meyr i
svolitlu vatni, síðan sett í form-
ið, einnig eru tómatarnir afhýdd
ir og skornir sundur og settir með
þá eru laukarnir brúnaðir ljósbrún
ir og settir í formið. Látið nokkrar
mínútur í heitan ofn. Steinseljunni
stráð yfir tómatana, áður en borið
er fram.
Áhuginn á íslenzkum heim-
iiisiðnaði hefur aukizt mik-
ið síðastliðin ár. Á tímabili var
hann í dái, en nú hefur hann
Tisið upp af miklum krafti, og
hefur HeimiliSiðnaðarfélag fs-
lands átt sinn þátt í því.
Amheiður Jónsdóttir, for-
maður félagsins, sagði að félag
efnt til sýningar á heimilisiðn
aði í Bogasal Þjóðminjasafns-
ins.
Einnig hefur íslenzkur heim-
ilisiðnaður efnt til samkeppni
um bezt gerða íslenzka muni,
bæði minjagripi ætlaða ferða-
mönnum og þó sérstaklega aðra
hagnýta og listræna muni til
sölu. pg nptkunar innanlands.
Veitt verða þrenn verðlaun fyr
ir bezt gerðu munina.
Á sýninguna hafa borizt
margir fallegir og haglega gerð
ir munir, eins og smáir og
stórir hlutir úr tré og málmi,
skinnavara, alls konar útsaum
ur, listvefnaður, veggteppi og
hvers konar prjónles. Einnig
2 stólar og borð úr hvalbeini,
fuglar úr fiskhausabeinum o.
fl.
í greinargerð frá Heimilis-
iðnaðarfélaginu segir svo. ‘„Það
er ástæða til að nefna, að æski
Iegt væri að keppendur gætu
byggt hugmyndir sínar um
gerð og form góðra gripa að
einhverju leyti á þjóðlegum
fyrirmyndum, svo sem þeim
er finnast í Þjóðminjasafni og
byggðasöfnum víða um land.
Er hér ekki átt við beina stæl
ingu heldur hitt, að eitthvað af
hinum mörgu sýnishornum
hins aldagamla menningararfs
okkar gæti orðið undirstaða
eða hvatning um gerð og form
nýrra gripa, jafnvel til nýrrar
notkunar."
í lok júní verður haldin
Norræn heimilisiðnaðarsýning
í Stavanger, Noregi, og er ætl
unin að senda bezt gerðu grip
ina þangað.
Sýningin verður opin í Boga
salnum páskavikuna frá kl.
2—10. O.Á.
Lambabringa í karrýsósu.
1. kg. lambabringa
2 bollar vatn,
2 tsk, karrý,
tómatsósa,
1 laukur,
salt,
hveiti,
1 bolli rúsínur,
smjör.
Lambakjötið er sagað í þuhnar
sneiðar, og stráð hveiti og karrý,
brúnað í smjörinu ásamt laukn
um, skornum í sneiðar. Vatn, salt
og tómatsósa er sett yfir. Soðið
þar til kjötið er meyrt, þá eru
rúsínur settar út í.
RITSTJÓRI: OLGA ÁGÚSTSDÓTTIR
f
Ofnsteikt hæna.
1 hæna,
250 gr. lifrarkæfa,
1 msk, cognac,
1 dl sherry,
Salt og pipar.
100 gr. sveppir (champignoer)
smjörlíki,
grænt salat,
franskar kartöflur.
Núið hænuna vel með salati og
jpipar, utan og innan. Hrærið liír
| ar kæfuna og saxaða sveppina
■ —|l || , | |
ásamt cognac, vel saman og fyllið
hænuna. Saumið fyrir og smyrj
ið hænuna smjörlíki. Brúnið
hænuna vel, smyrjið síðan aftur
með smjörlíki og Iátið sherry
Irjúpa á hana. Steikið hænuna
íðan í ofni í 1/4 klst. Látið
herry drjúpa á hænuna öðru
ívoru og ausið hænuna öðru
hvoru. Borið fram með frönskum
kartöflum og salati.
Sveppasúpa.
1/2—1 1. hreinsaðir, nýir
sveppir eða 1 dós sveppir.
1 stk. fínt saxaður laukur,
1% — 2 msk., smjör,
1/2 tsk. sítrónusaft,
salt, hvítpipar eða paprika,
2 1/2 msk. hveiti,
1 1/2 1. soð, (af kjöti, græn
meti eða teningum.)
1 dl. rjómi,
2 msk. sherry eða madeira.
Látið smjörið í pott og setjið
sveppina út í, látið laukinn út í
og stráið sítrónusaftinni yfir, síð
an kryddinu, látið sveppina brún
ast hægt og rólega. Stráið síðan
hveitinu yfir og hrærið stöðugt í
á meðan. Þynnið út með soðinu
(og sveppavökvanum) og sjóðheit
um rjómanum. Látið' síðan súpuna
sjóða þar til sveppirnir eru mjúk
ir. —
Bragðbætið með léttu víninu,
og berið súpuna fram strax.
Fijótlagaður eplaábætir.
1/4 L þeyttur rjómi
3—4 epii,
sykur.
vínber.
Rífið eplin á rifjárni út i þeytt
an rjómann, nlandið vínberjum i.
sem áður hafa verið skorin í sund
ur og kjarnarnir teknir úr, svo-
lítið af sykri blandað í. Þetta má
einnig nota sem miliilegg á lag
kökur.
íslenzk blndi.
ið hefði átt erfitt uppdráttar
með húsnæði í fyrstu, en úr
því hafi rætzt og rekur félagið
bjarta og rúmgóða verzlun að
Laufásvegi 2. Innréttinguna
hafa annazt arkitektarnír Stef-
án Jónsson og Snorri Hauksson
og Ríkharður Ingibergsson
smiður
Félagið hefur fengið styrk
frá ríkinu, sem hefur verið
varið tii útbreiðslu og leiðbein
ingarstarfsemi og leiðbeina
starfsmenn verziunarinnar
fólki um efnisval og gerð
muna Vili félagið stuðla að
þvi, að framleiddir séu vand
aðir og þjóðlegir íslenzkir mun
ir, og hefur í þessu sambandi
Auguu eru spegill sálarínnar
í augunum kemur fegurð sál
arinnar og hjartagæzka bezt i
ljós, og við getum ekki neitað
því heldur, að falleg, ljómandi
augu með föstum, frjálslegum
svip, eru meira virði en dýr
ustu gimsteinar. Flestar ungar
stúlkur líta á það sem sjálf
sagðan hlut að augu þeirra séu
skær og ljómandi og telja það
víst, að þau muni líta þanmg
út það sem eftir er ævinnar.
Þær hugsa alls ekki um að
annast þau eða hlífa þeim og
muna það ekki heldpr að heilt
dagsverk, þar sem augun hafa
beinzt að ákveðnu starfi. og
þar á eftir bíóferð eða iestur
langt fram á kvöld er ekki
beinlínis heilsusamlegi eða
fegrandi fyrir augun. Eða þá
að þær hlífa þeim ekki fyrir
sól og loka þeim aðeins af aeyð
á kvöldin. þegar þau eru að
tokast sjálfkrafa af einskærri
þreytu En alit þetta tii sam
ans getur á fáum árum gert
falleg Ijómandi augu þreytuleg
og daufleg.
Gerið það því að venju að
baða augun á sama tíma og
tennurnar eru burstaðar, sem
sé kvölds ' og morgna. Keypt
er augnabaðglas sem endist
það sem eftir er ævinnar. Það
þarf að skola vandlega eftir
hverja notkun og það er
geymt á hvolfi til að ryk safn
ist ekki i það. Ýmislegt kemur
til greina sem augnabaðvatn,
og er hægt að fá það keypt :
snvrtivöruverzlunum eða apó-
tekum.
Vegna þess hve sjór inniheld
ur mikið magn af joði og málm
söltum hefur hann einnig afar
góð áhrif á augun. og á sumrin
ættu því allar stúlkur sem
stunda sjóböð að synda i kafi
með opin augu eða setja salt
vatn i lófana og baða augun
upp úr þvi.
Sé maður tilneyddur að nota
augun við langvarandi lestur
eða erfiða vinnu, er ráðlegt að
taka sér stutta hvíld öðru
hverju og hylja augun með
lófunum, svo að allt verði svart
og á meðan sé slakað á öllum
vöðvum. En gætið þess að
þrýsta hendinni ekki á sjálf
augnalokin.
Margar ungar stúlkur, sem
ættu í rauninni að nota gler
augu, veigra sér við því, vegna
þess að þær halda að þær.verði
ekki eins aðlaðandi við það.
En það er gömul bábilja frá
þeim tíma, þegar gleraugnaum
gerðir voru ósmekklegar og
ljótar. En nú { dag, þegar hægt
er að fá fallegar umgerðir í
öllum mögulegum litum og
gerðum. er þetta ekkerf vanda
mál. Reyndar hefur í mörg ár
verið hægt að fá litað gler 1
gleraugu, svo að þau líkjast
fullkomlega sólgleraugum Bak
við þau leyna t. d. margar
þekktar Hollywoodstjömur
lélegri sjón, og því þá ekki
að fá sér slík gleraugu — ef
maður getur ekki hugsað sér
að nota venjuleg gleraugu.
Til þess að gleraugun fari
sem bezt við andlitið, verður að
velja þau með kostgæfni. Hér
eru nokkur almenn ráð:
Fyrir kringluleitt andlit á
að velja umgerðir með fer-
hyrndum glerjum. Fyrir langt
andlit á að velja breið og lág
gler. Fyrir breitt andlit há og
mjó gler.
Fyrir lítið andlit (þríhyrnt;
má annaðhvort velja þríhyrnd
gler eða umgerðir með mjúk
um útlínum. Það er undir því
komið hvort maður vill undir
strika þríhyrningslögunina eða
leiða athyglina frá henni. Fyrir
lítið, ferhyrnt andlit ber að
verja umgerðir með mjúkum
útlínum, ef augun eru dálítið
skáhöll má velja umgerðir sem
beinast upp á við.
Litsterkar umgerðir, fara
vel dökkhærðum stúlkum, en
forðast ber bláar umgerðir, ef
augun eru blá, því að bláar
umgerðir láta blá augu sýnast
litlaus. Alveg litlausar umgerð
ir fara yel stúlkum með alveg
ljóst hár, annars er rétt að
velja að minnsta kosti efri i
brúnina með einhverjum lit.