Tíminn - 15.04.1965, Síða 8

Tíminn - 15.04.1965, Síða 8
FIMMTUDAGUR 15. apríl 1965 TÍMINN Bjarni Vilhjálmsson: Fróf og prdsentureikningur í þættinum „Spurt og spjallað j itvarpssal“ mánudagskvöldið 5.! príl s.l. komst Kristján Gunnars-i ■on skólastjóri að orði eitthvað á1 >á leið, að landsprófi miðskóla /æri þannig hagað, að gegnum >rófið kæmist á hverju ári ná-' cvæmilega sú tala, sem mennta-' .kólarnir gætu rúmað hverju sinni.' þessu felst sú miður góðgirnis ega ásökun á hendur landsprófs- íefnd, að frammistaða og geta íemenda í prófinu skipti litlu máli rm það, hvort þeir nái þeim mikil- /asga áfanga, sem landsprófið vissu ega er, heldur sé tala þeirra nemenda, sem í gegnum prófið romast, takmörkuð við það, sem 'orráðamenn menntaskólanna :elja sig geta hýst á haust- n. Kristján fór heldur ekki dult ueð það álit sitt, að þessi ískyggi- æga niðurskurðarpólitík lands- >rófsnefndar væri aðalhemillinn á -ðlilega fjölgun stúdenta hér á andi, en tala stúdenta væri til- ölulega lægri hérlendis en annars itaðar. Mér er það hulið, hvaðan Kristj- ini hafa komið heimildir um fram mgreind vinnubrögð landsprófs íefndar og framkvæmd prófs- ns. Hefði honum þó verið í lófa agið að afla sér traustari fróð- ieiks um þessi efni, en fyrst val- nkimnur skólastjóri ber annað jins á borð fyrir alþjóð, verður ekki hjá því komizt að leiða hann sannleikann. Einnig má búast við því, að margur leikmaðurinn sé haldinn einkennilegum hug- myndum um þessi mál, fyrst skóla- menn eru ekki betur á vegi stadd- ir. Landspróf miðskóla hefur verið lialdið árlega frá og með vor- inu 1946 og hefur í reyndinni orð- ið innlökupróf í menntaskólana (aðra en menntadeild Verzlun- arskólans) og a-5 nokkru leyti Kennaraskólann, sem þó hefur allt af jafnframt tekið við nemendum með annars konar prófum. Nem endur. sem fá meðaleinkunn 6.00 eða þar yfir í landsprófsgrein- um, hljóta réttindi tii inngöngu í menntaskóla og kennaraskóla (verða hér á eftir kallaðir nem- endur með fullgildu landsprófi) Sá fjöldi hefur farið vaxandi ár frá ári, nema árin 19S3—1957 að báðum meðtöldum, er hann var nokkru minni en 1952, enda fækk- aði þá talsvert þeim nemendum, sem þátt tóku í prófinu. Ef litið er á árin 1956—1964, kemur í Ijós, að nemendum með fullgildu landsprófi hefur fjölgað árlega, hvort heldur miðað er við heildar- tölu þeirra eða hundraðshluta fæddra í árganginum. í töflu- formi lítur þetta svona út: " Tala nemenda 1959 393 12.4 1960 439 135 1961 476 13.9 1962 525 15.3 1963 561 15.2 1964 578 15.1 Ár með fullg. % af fæddum landspr. í árganginum 1956 296 11.9 1957 323 12.4 1958 364 11.9 Hlutfallstala þeirra nemenda, sem lokið hafa fullgildu lands- prófi, hefur á þessum sömu árum verið í heild nálægt 70% þeirra^ sem tekið hafa þátt í prófinu. | í trausti þess, að ICristján Gunn j arsson vilji heldur hafa það, er i sannara reynist, vil ég taka það ■ fram hér, að jafnan hefur verið j leitazt við að hafa verkefnin, sem I lögð eru fyrir nemendurna, sem sambærilegust frá ári til árs, en þó ekki svo lík, að nemendur geti lært á prófið án þess að kunna námsefnið. Þetta er ærinn vandi, þar sem gömul verkefni eru jafn- an tiltæk hverjum sem er. Eink- unnir eru síðan gefnar fyrir úr- lausnir eftir fyrirfram ákveðnum reglun, svo að geta nemendanna til að leysa þessi verkefni ræður því ein, hvort þeir standast prófið eða ekki, en húsrými menntaskól- anna er alveg látið liggja milli hluta. Ég hef haft með höndum fram- kvæmd landsprófsins í 17 ár. For- ráðamenn menntaskólanna hafa aldrei gert minnstu tilraun til að ráða neinu um prófið. Þessi ár hafa fjórir menntamálaráðherrar setið að völdum (þeir Eysteinn Jónsson, Björn Ólafsson, Bjarni Benediktsson og Gylfi Þ. Gísla- son),. Enginn þeirra hefur nokk- urn tíma skipt sér af framkvæmd prófsins, að öðru leyti en því, að þeir hafa skipað nefndina, oftast nær á fjögurra ára fresti. Aldrei hefur komið til neins ágreinings milli þeirra manna í nefndinni, sem eru menntaskólakennarar, og hinna, sem kenna við aðra skóla, um fyrirkomulag eða þyngd verk- efna. Hitt skal fúslega viðurkennt. ; að verkefnin hafa jafnan verið í miðuð við það, að nemendur, sem í geta leyst þau til sæmilegrar hlít ar og hlotið tilskilda lágmarkseink unn, hafi einhverjar líkur til að ! geta lokið menntaskólanámi eins og því er nú hagað í landinu, enda væri annað algerlega óraunhæft og nánast ábyrgðarlaus blekkingar- starfsemi. Því miður hefur raunin orðið sú, að ekki er úti öll þraut, þó að yfir landsprófið sé komið, því að allmargir nemendur heltast úr lestinni í menntaskólanámi, eins og bezt sést á því, að stúdenta fjöldinn, sem allir menntaskólarn- ir hafa brautskráð síðustu 11 árin, hefur verið sem hér segir: 1954 1955 1956 1957 1958 1959 Hlutfallstölur hef ég ekki til- tækar, en síðast liðið ár munu stúdentar haaf verið rétt rúm 10% fæddra í árganginum, en mun fram að því vart hafa verið meira en 8—9%. í framangreindum stúdentafjölda eru þó innifaldir stúdentar frá Verzlunarskóla ís- lands, sem aldrei hafa lokið lands- prófi, en þeir munu oftast vera nálægt 20 árlega. Þó er þess að geta, að allmargir nemendur, sem 164 1960 183 184 1961 187 163 1962 237 169 1963 262 178 1964 330 181 Nágrannar háíáiSiÍ og kaldar kveðjur Fólkinu í byggðum Suður-Þing- jyjarsýslu hafa verið sendar kveðj xr í tveimur blöðum höfu'ðborgar- .nnar,. hvern daginn eftir annan, ;em eru þannig að or'ðbragði og nnihaldi, að með fádæmum mun vera. Tilefnið er ályktun, sem sam >ykkt var á fjölmennum bænda- undi í héraðinu 4. apríl s. 1. m uppbyggingu íslenzks atvinnu- ífs og þar sem mótmælt er áform- m um óeðlilega íhlutun erlendis i-á í þeim efnum. Það sem vekur nrædd blaðaskrif er það, að .786 íbúar þessa liéraðs skuli .cra svo djarfir að láta í Ijósi kQðanir og gera ályktanir um .ýðingarmikil málefni, sem varða þjóðina alla og að þeir skuli leyfa sér að vera á annarri skoðun í >eim efnum en höfundar grein- ina og ýmsir aðrir munu vera. áðar eru greinamar nafnlausar .g því á ábyrgð blaðanna. Síðari greinin er leiðari í Mánu- lagsblaðinu, sem dagsett er 12. apríl, en kom út laugard. 10. apríl. 311 ber greinin helzt merki þess a'ð vera skrifuð undir grófum ihrifum sterkra drykkja. Sér á töku stað í gegnum grímu ölvím- tnnar í hrokafulla vanþekkingu — meira að segja veit ekki grein- irhöfimdur betur en Þingeyjar- ;ýsla sé á Austurlandi — og minni náttarkennd höfundarins birtist ódýrum smánaryrðum, eins og títt er um þá menn, sem ekki kunna fótum sínum forráð og hafa kki persónu til að standa undir mistökum sínum. Fyrri greinin er í Morgunblað- nu föstudaginn 9. apríl og nefn- st Staksteinar. í henni er snúið it úr ályktunum bændanna, þær nártogaðar og með lítilmótlegum 'nætti skopast að fólkinu í þessu jarlæga byggðarlagL Gæti hún verið skrifuð af einhverjum þdm illa siðuðu ungmenna, sem hrópa að vegfarendum á gatnamótum, ef gera mætti ráð fyrir að' slíkir piltar væru læsir og skrifandi. Báðar eru þessar greinar hin- aa' ómerkilegustu og engra svara verðar. En þær gefa efni til hug- leiðinga, einkum Morgunblaðs- greinin, þar sem hún birtist í við- lesnu og áhrifamiklu blaði. Suður-Þingeyjarsýsla er harð- býlt hérað, en býr þó yfir mikl- um og merkilegum auðæfum frá náttúrunnar hendi. Þar vorar oft seint og haustar snemma, en bænd umir þar standa ekki öðrum að baki í ræktun, byggingum og öðr- um búskaparháttum. Fólkið í hér- aðinu hefur komið við.sögu i lífi þjóðarinnar með eftirminnilegum hætti. Sýslan hefur lagt til ekki færri áhrifamenn og leiðtoga í þjóðmálum en önnur héruð nema síður sé. Þar er upp runnin sú félagsmálahreyfing, sem mesta þýðingu hefur haft af öllum sam- bærilegum vakningum á íslandi og héraðsbúar hafa oft átt frum- kvæði að málefnum, sem hafa haft varanlegt gildi fyrir þjóðina alla. Þeir byrjuðu fyn- en flestir aðrir að skipta jörðum og stofna nýbýli, svo að ungt fólk þyrfti ekki að hrekjast burtu úr hérað- inu. Hin svonefnda „alþýðumenn- ing“ er viðurkennd að hafa verið meiri þar en víðast annars staðar á þeim tíma, þegar næstum öll þjóðin átti ekki völ neinnar skóla- göngu. Héraðsbúar voru í fremstu víglínu í baráttunni fyrir bættri menntun og stofnuðu unglinga- skóla fyrr en flestir aðrir f sýsl- unni átti upptök sín nýjúng í skóla málum með stoínun Laugaskóla. og i þann skóla hefur meginþorri allra unglinga, sem vaxið hafa upp í héraðinu s. 1. 40 ár. sótt bæði verklega og andlega menningu. Samkvæmt opinberum skýrslum er meira lesið af bókum þar en í öðrum landshlutum. Félagslíf er þar blómlegt og mannfundir marg ir og fjölmennir. Á meðan hafís- inn lokaði norðurlandi undan- farnar vikur, létu héraðsbúar það ekki aftra sér frá að stunda sín hugðarefni, önnur en strit fyrir daglegu brauði. Verið var að æfa þrjá allstóra sjónleiki í sveitum héraðsins, sem mér er kunnugt um, alla samtímis. Jafnframt eru ekki vanrækt önnur mál: nám- skeið, ungmennafélagsfundir, kvenfélaga- og bændafundir, söng- æfingar, o. fl. Viku áður en um- ræddur bændafundur var haldinn komu 300 manns saman í einu af samkomuhúsum héraðsins á veg- um a. m. k. 12 kirkjukóra prófasts dæmisins og nutu fjölbreyttra skemmtiatriða og kynningar. Var samkoman öll merkur menningar- viðburður. Og ásamt öllu þessu býr unga fólkið í héraðinu sig undir það, að senda marga tugi kvenna og karla til þátttöku í íþróttum á landsmóti ungmenna- félaganna á Suðurlandi næsta sum ar. Svipaða sögu má eflaust segja úr mörgum héruðum öðrum, en Staksteinar Morgunblaðsins gefa efni til þess að á þetta er bent. Kjarni málsins er sá, hvort íbúar þeir. er búa i sveitum landsins, eiga að hafa leyfi til að mynda sér skoðanir á þýðingarmiklum málum og hvort þeir eiga að hafa rétt til þess að álykta út frá þeim og gefa öðrum kost á að kynnast sjónarmiðum sínum og viðhorfum, og hvort þeir eiga að hafa leyfi til að greina á um skoðanir við landsföðurlega atvinnuskrifara, sem aldrei hafa drepið hendi sinni í kalt vatn í baráttu fyrir ís- lenzkri menningu í sveitum lands- ins. Það er óneitanlega nokkur mun ur á aðstöðu 2.786 íbúa harðbýls héraðs í nágrenni við hafísinn og þeirra, sem kvöld eftir kvöld sitja yfir krásum vinveitingahúsanna í þéttbýlinu. En saga umgenginna kynslóða og komandi tíðar sker úr um það, hvorir eim líklegri til að hugsa og álykta og þora að kannast við skoðanir sínar og gefa öðrum kost á að kynnast þeim, hvorir vekja upp fleiri ný- mæli til nytsemdar og hvorir eru meira vakandi um verðmæti mannlífsins, önnur en daglegt brauð. Það væri sannarlega ekkert at- hugavert við það, þótt vakandi og áhugasamir iðnaðarmenn í Hafn- arfirði gerðu ályktanir um sauð- fjárbúskap á Homströndum, sem Staksteinahöfundurinn hefur í flimtingum. Það er ekki heldur neitt athugavert við það, þótt bændur í Þingeyjarsýslu geri ályktanir um uppbyggingu ís- lenzks atvinnulífs. Það er mál sem þá varðar, eins og þjóðina alla, og er ekki efni til hártogana af lélegri gerð. Þorsteinn Erlingsson sagði á sín um tíma, er hann ávarpaði ís- lenzka fossinn: „nú þykir þeim sælast að dreyma, að þú værir asni, sem uppí er hnýtt og ís- lenzkar þrælshendur teyma.“ Svip- að mætti segja og á svipaðan hátt: Á meðan fólkið í byggðum lands- ins er ekki asnar sem uppí er hnýtt og útlendar. þrælshendur teyma, hefur það bæði rétt og skyldur til að hugsa og álykxa og tala og skrifa. Þá skyldu og þann rétt hefur það sannað með verk- um sínum og það hefur fyrr verið á það hlustað. Sunnudaginn 11. apríl 1965. Páll H. Jónsson frá Laogum. ljúka fullgildu landsprófi. fara al- drei í menntaskóla. Sumir fara í Kennaraskólann. aðrir fara ekki í neitt framhaldsnám. Enn er þess að geta, að nokkrir nemendur hætta framhaldsnámi af öðrum ástæðum en getuleysi. Hins er þó ekki að dyljast, að allmargir nem- endur gefast upp á menntaskóla- brautinni, og er þeim jafnan eink- um hætt, sem naumlega hafa stað- izt landsprófið. Skal hér látið liggja milli hluta, hvort um er að kenna of harkalegri meðferð menntaskólanna eða of vægu mati landsprófsnefndar á úrlausn- um hinna slakari. Benda má þó á það landsprófsnefnd til máls- bóta. að dável hefur rætzt úr sum- um þeim nemendum, sem staðizt hafa fullgilt landspróf með lægstu einkunn. Sjálfsagt væri mikill feng ur að því, að fram færi fræðileg rannsókn á prófi menntaskólanna, áþekk þeirri, er þeir gerðu Jónas Pálsson sálfræðingur og Hjálmar Ólafsson núverandi bæjarstjóri á landsprófi miðskóla (sbr. greinar gerð þeirra í Skírni 1961). Það er vafalítið eitt hið mest mein ís- lenzkra skólamála, hversu lítið er gert að hlutlægum rannsóknum á því, hvar við erum á vegi staddir í þeim efnum á hverjum tíma og í hverju er fólgið það takmark, sem við keppum að hverju sinni. Litlar líkur tel ég á því, að þeir nemendur, sem ekki standast kröf- ur landsprófsins, eigi að svo stöddu erindi í menntaskólanám, eins og því er háttað hér nú. Ég skal þó taka það fram, að þessi skoðun mín er ekki á neinni rannsókn byggð. Ég leyfi mér samt að vitna til þess, að Kennaraskólinn tók lengi vel árlega við nokkrum þeim nemendum, sem ekki höfðu stað- izt landsprófið, en vantað herzltK muninn (hlotið meðaleinkunn á á bilinu 5.50—6.00). Nú stend ur þessi leið ekki lengur opin þeim nemendum, sem þannig er ástatt um, og bendir það eindregið til, að ekki hafi verið góð reynzla af þeim í kennaranámi, og í fæstum tilfellum mun við betri árangri að búast í menntaskólanámi. Kristján vitnaði til þess í um- ræðunum á dögunum, að tala stúd- enta væri Iægri hér á landi en víð- ast hvar í nágrannalöndunum. í Danmörku er hlutfallstalan svip- uð og hér, að minnsta kosti alls ekki hærri, en í Noregi um 17%, í Svíþjóð sennilega lítið eitt lægri, en líklega nokkru hærri í Finn- landi. Þó er þess að gæta, að finnsk ir háskólar hafa vantreyst mjög stúdentsprófinu þar í landi hin síðari ár, og háværar raddir eru uppi um það meðal norskra há- skólamanna að taka upp sérstakt inngöngupróf í háskólana, enda eru þegar margar háskóladeildir þar í landi svo til lokaðar nema fyrir fáum útvöldum. Líklega dett ur heldur engum í hug, að Danir séu helmingi verr á vegi staddir í verklegum og andlegum efnum en aðrir Norðurlandabúar, þó að stúdentafjöldinn sé þar allt að helmingi minni. Ég sé ekki, að það breyti ýkja miklu, þó að öllum þeim, sem nokkurra ára framhalds nám stunda, verði gefin stúdents- nafnbót. Vitaskuld geta margir fleiri unglingar komizt gegnum lands- prófið en þeir, sem við það reyna t.d. ýmsir þeir, sem Ijúka gagn- fræðaprófi. Til þess liggja margar ástæður, en mestu munu þar at- vinnuhættir okkar valda. Astand- ið í atvinnumálum hefur hér lengi verið slíkt, að tiltölulega auðvelt er fyrir ungt fólk að komast í vel launaða vinnu án þess að leggja á sig langa skólagöngu. Eftitekt- arvert er það t.a.m., að í Vest- mannaeyjum og á Suðurnesjum ljúka hlutfallslega fáii nemendur landsprófi Það er án efa í txst- um tilfellum vegna þess, að vanda menn þeirra hafi ekki efni á ao hafa þá í skóla, heldur er skýring Framhald á bls. 31

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.