Alþýðublaðið - 30.03.1958, Síða 9
Sunnudagur 30. marz 195 S
AlþýSnblaBlB
ÍÞróttir )
Skíðalandsmótið:
Állir beztu skíðamenn og konur landsins keppa
• EINS og áður hefur verið
getið um í fréttum verður Skíða
mót íslands haldið dagana 2.—
7. apríl n.k. í nágrenni Reykja-
víkur. Áformað er, samkvæmt
dagskrá mótsins, sem birt verð
ur hér á eftir, að það verði hald
ið við Skíðaskálann í Hveradöl
um, í Hengli og í Jósefsdal eða
Yífilfelli. Að sjálfsögðu getur
orðið breyting á keppnisstöð-
um vegna snjóalaga og mun þá
miðar verða seldir á kr. 5. -—
Keppendur á mótinu eru skráð
ir 97, þar af 70 utan af landi,
frá tíu héruðum og íþrótta-
bandalögum. í fyrra á Akureyri
voru keppendur alls 103. Á mið
vikudag 2. apríl kemur út leik-
skrá með rásröð keppenda í öll
um greinum ásamt öðrum upp-
lýsingum um mótið. Leikskrá
og mótsmerki verða seld við
bílana í bænum og á mótsstað^
Skarpþéðinn Guðmundsspn Siglufirði keppir í skíðastökki.
reynt að tilkynna það með næg
um fyrirvara. Þegar keppni
er haldin langt frá þjóð-
veginum munu snjóbílar verða
til taks til þess að draga fólk
á skíðum á mótsstað. Þá munu
og verða veitingar á sömu stöð-
um. Aðgangseyrir að mótinu
verður 10 krónur hvern einstak
an dag. Þá geta menn og keypt
sérsíakt aumerki á kr. 25.00, er
gildir fyrir allt mótið. Barna-
Allir beztu skíðamenn landsins
meðal þátttakenda.
Allir beztu skíðamenn lands-i
ins eru meðal keppenda á mót-
inu og er erfitt að spá um úr-
slit í einstökum greinum, en þpi
þykir rétt að geta þeirra, serrt.
sigurstranglegastur eru taldir.?
I göngu má nefna Þingeyingana
Jón Kristjánsson og rbóðir hans
Steingrím. ísfirðingarnir Árnl
Höskuldsson og Gunnar Péturs
son, Páll Guðbjörnsson, Fljót-
um, og Sveinn Sveinsson, Siglu
firði, eru og skeinuhættir. í boð
göngu er keppt um nýjan bik-
ar, sem Skíðafélag Reykjavíkur
hefur gefið.
Jón Þorsteinsson og Jónas Ás-
geirsson eru meðal kcppenda í
stökki.
I stökki eru meðal keppenda
hinir gömlu og góðkunnu SigL
firðingar, þeir Skarphéðinn
Guðmundsson, Guðmundur
Arnason, Jónas Ásgeirsson og
Jón Þorsteinsson, eldri, en hann
hefur ekki keppt á landsmóti
síðan 1950. Einnig ber að nefna
Eystein Þórðarson, Reykjavík.
Finnski þjálfarinn Ale Laine
mun aðstoða starfsmenn í sam-
bandi við göngu og stökk.
í norrænni tvíkeppni má
nefna sem sigurstranglegasta
þá Harald Pálsson, Reykavík og
Svein Sveinsson, Siglufirði.
Keppentlur í Alpagreinum.
í Alpagreinum, bruni, svigi
og stórsvigi, eru flestir kepp-
endur. Af þeim eru þekktastir
bræðurnir Eysteinn og Svan-
berg Þórðarsynir og Stefán
Kristjánsson, Reykjavík, Magn
ús Guðmundsson og Hjálmar
Stefánsson frá Akureyri, Einar
Valur Kristjánsson, Olafsfirði,
Jóhann Vilbergsson, Siglufirði
og ísfirðingarnir Jón Karl Sig-
u.rðsson, Björn Helgason og,
Steinþór Jakobsson.
Jakobína og Marta Bíbí í Alpa-
greinum kvenna,
I kvennagreinum, bruni,
svigi og stórsvigi, keppa m. a.
þær Jakobína Jakobsdóttir,
Reykjavík, Marta B. Guðmunds
dóttir, ísafirði og Kristín Þor-
geirsdóttir, Siglufirði. Kepp-
endur utan af landi eru vænt-
anlegir í bæinn um og eftir helg
ina og. munu flestir þeirra búa í
Skíðaskálanum í Hveradölum
Knaítspyrnan hefst eftir fjórar vikur:'
iSsmenn Fram hafa aidrei æft betur . .
segir Skóli Nielsen
SUMARIÐ nálgast og um
leið styttist tíminn, þar til
knattspyrnumenn okkar hefja
keppni. Samkvæmt upplýsing-
um vallarvarðar, Baldurs Jóns-
sonar, benda allar líkur til þess,
að fyrsti leikur sumarsins verði
afmælisleikur milli Fram og í-
þróttabandalags Akraness. Trú
lega fer leikurinn fram 24. apríl
(sumardaginn fyrsta) eða 27.
apríl,
ALDREI ÆFT BETUR.
I tilefni leiks Akraness og
Fram sneri fréttamaður síðunn
ar sér til eins af efnilegustu
leikmönnum Fram, Skúla Niel-
sen, og spurði hann frétta af
meistaraflokki Fram, hvort vel
væri æft og svo framvegis.
— Ég held, að við höfum
aldrei æft eins vel að vetrarlagi
eins og nú. — Um áramótin var
tekið til við æfingar og æft
þrisvar í viku, leikfimi og knatt
meðferð einu sinni í viku
hverri og tvisvar var hlaupið
úti. Síðustu vikurnar höfum við
töluvert æft með knött úti.
Eru æfingar vel sóttar?
— í fyrra voru yfirleitt 11—
15 á hverri æfingu, en í vetur
er hópurinn helmingi stærri.
Það eru yfirleitt kornungir
menn, að tveim eða þrem und-
anskildum. Trú mín er, að tölu
verð samkeppni verði um það
hjá okkur að komast í meist-
araflokk og er það mjög ánægju
leg þróun. Þjálfari okkar í fyrra
Reynir Karlsson, er við nám í
Þýzkalandi, en við starfi hans
tók- Haukur Bjarnason, sem
(lengi hefur leikið með meist-
araflokki félagsins.
Það stendur mikið til hjá
ykkur í sumar?
— Ekki er því að neita, hing
að höfum við boðið úrvali knatt
spyrnumanna frá Sjálandi og
meistaraflokkur Fram fer síð-
an í boði SBU til Danmerkur
í júlímánuði.
meðan á mótinu stendur. Ekki
er að efa, að keppni verður tví-
sýn og skemmtileg í öllum
greinum og áhorfendur margir,
verði veður gott. Mótsstjórnin
vill hvetja unnendur skíða-
íþróttarinnar til að gera sitt,
svo að mótið verði sem
skemmtilegast fyrir alla.
Að endingu vill mótsstjórnin
hvetja þá alla, sem starfað geta
við mótið, og ekki hefur verið
haft samband við enn, að gefa
sig fram við hana.
Hittumst heil á fjöllum um
páskana.
Allt í
páskamatinn
a
einum
stað
AUSTURSTRÆTI
SÍMAR: 13041 -
EFNILEGUR LEIKMAÖUR.
S’kúli Nielsen er rúmlega tví-
tugur og lék í fyrsta sinn með
íslenzka landsliðinu í leikjun-
um gegn Dönum og Norðmönn-
um í fyrra. Hann tekur íþrótt
sína alvarlega og má búast við
því, að hann komist senn í
fremstu röð íslenzkra knatt-
spyrnumanna. Knattspyrnan er
greinilega vinsælasta íþrótta-
greinin hérlendis eins og víða
annars staðar. Knattspyrnu-
mennirnir verða því að taka í-
þróttina alvarlegar en þeir hafa
gert hingað til, því að áhorfend
ur gera miklar kröfur til
þeirra. Ef þeir bregðast, má bú-
ast við minnkandi aðsókn að
knattspyrnumótum og um leið
afturför í íþróttinni.
Myncl bessi er úr Ieik s. 1. sumar milli Fram og KR. Knöttur-
inn sézt í netinu hjáKR eftir glæsilegan „skalla'* frá Skúla
Níelsen. Var það síðara markið, sem Framarar gerðu í lcikn-
um. — Ljósm. Alþbl.
SEFi
ULLAR-GÓLFTEPPI
fallegir litir,
margar stærðir.
HAMP-GÓLFTEPPI
margar stærðir.
TEPPAMOTTUR
COCOS-GÓLFTEPPI
margar stærðir.
ULLAR-GANGADREGLAR
70 og 90 cm.
HAMP-GANGADREGLAR
90 cm.
GÓBLÍN-GANGADREGLAR
BAÐMOTTUR
GÚMMÍMOTTUR
Geysir h
Teppa- og dreglagerðin,
Vesturgötu 1.
k
I
|
S
I
s
.V
s
V
s
V
s
«
V
s
s
$
*
s
s
s
I
1
<
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s