Alþýðublaðið - 02.04.1958, Qupperneq 3
Miðvikudagur 2. apríi 1958.
AlþýSnblaSll
3
'— ^
Alþýöubloöiö
Utgelandi: Alþýðullokkurinn.
Ritstióri; Helgi Semundsson.
Fréttastjórí: Sigvaldi Hjálmarsson,
Augiýsinga s t j ór i: Emilía S a m ú e 1 s d ó 11 i r.
Ritst j órnar simar: 14901 og 1490 2.
Auglýsingasimi: 1 49 0 6.
Aigreíðslusími: 1 4 9 0 0.
áSsetur: AlþýðuhúsiÖ.
Preatsmiðjs AlþýSublaðains, Hverfisgötu 8—10.
— — «
Ncikvœtt nudd
ÞAÐ er býsna gaman að Morguniblaðinu þessa dagana.
Aldrei hafa þeir ritstjórarnir opiníberað eins ljóslega van-
mátt sinn og mláóeinaákort og síðan Alþýðublaðið skýrði frá
því, að tillögur væru fyrir hendi um nýjar leiðir í efnahags-
málunum. Klippingaxneistari Morgunblaðsins hefur setið
við lon og don og rambzt við eins og rjiilpan við staurinn að
að klippa niður greinar úr Alþýðu'blaðinu, fella brotin sam-
an á sína vísu, toga þau og teygja, sníða úr þeim stakk eft-
ir sínum vexti og t'engja þau svo saman á sinn sérstaka
hátt, og auðvitað í krafti hins margfræga, rökræna stíls. En
ailir þessir aumkunarverðu til'burðir haifa komið fyrir ekki.
Kliþpingameistarinn veit ekki sitt rjúkandi ráð frekar en
fyrri daginn, allt erfiðið vitnar um. rúræðalieysið eitt. hvergi
er bitastætt í öllu hans mikla meistarastykki, útkoman að-
eins neikvætt nudd, einskisvert jamj og japl og fuður.
Maður skyldí ætla, að einhver.ja stefnu mætti lesa út
úr öllu þessu merkilega klippingakúnstverki meistarans.
Menn sitja ógjarnan við það dögum saman að klippa nið-
ur greinár úr öðrum blöðum, föndra við það marga daga
í röð ein og' lasnir krakkar í rúminu, án þess að einhver
meining kcmi í ljós, einhver tilgangur, sem styðji þeirra
eigin málstað og stefnu. En svo er þó ekki í þessu til-
felli. Það er eiður sær. Skærunum er að vísu sæmilega
fimlega heitt, og jafnan gætt þess hæfilega vel, að hlut-
ur blaðsins, sem skorið er úr, sé ekki :sem heztur. Smá-
vegis falsanir og hártoganir fylg.ja með enda er meistar-
inn nráIafyIgjumaður og lögfræðingur að mennt. En þá
er líka öll sagan sögð. Hvergi örlar á stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í þessunr úrklippupistlum Morgunblaðsins né
öðrum skrilfum ritstjóranna, og iþar verður ekki gert upp
á milli þeirra, enda munu limir dansa eftir höfðinu.
Nei, það fer sannarlega ekki mikið fyrir stefnu ,stærsta
stjórnmálaflokks landsins" í etfnahagsmálunum í þessúm
hæpnu og miður heiðarlegu ,,skrifum“ þeirra Morgunblaðs-
manna. Samt eru þsir stöðugt við sam-a heygarðshornið i
einu efni. Þar er þeim. liíkt farið og gúmikarli handa börnum,
sem sífellt tíst'r eins, þegar þrýst er á hann: Það var allt svo
dæmalaust giott, meðan Sjáltfstgeðismenn voru við völdi Þá
voru engin etfnahagsivandkvæði! Allt gekk af sjálfu sér! —
Ekki er gott að segja, hvort þeir Morgunlblaðsmlsnn sjáltfir
eru farnir að trúa þessu gúmkarlstísti. Vel m.iá það vera. En
sönnu nær mun þó hitt, að. hér séu þeir klippingameistari
og félagar aðfreista þess að búa til þjóðsögu, etf vera mætti,
að þannig slyppi Sjálístæðistfl'okkurinn betur undan þung-
um dómi sögunnar. Svo mikið er víst, að þeir skærisfélagar
•eru svo önnum kafnir við gúmkarlatíistið ,,það var allt svo
gott“, að þair gleyma öllum skyldum við líðandi stund. Þeir
eiga sér ekkert riáð í efnahagsmfálum,. engar tillögur, enga
stsfnu né starfsgrundivöll, og því síður lausn eða iokaorð.
Fræg er sagan um pennastrik foringjans, eem aldrei kom úr
pennanum, og a’drei var annað en karlagrobb kapteins, sem
kunni ekki að sigla.
Það er hætt við, ,að þjóðsaga klippingameistara og fé-
laga vcrði seitiit samgróin fólki. Allur almenningui' veit,
að fram.tak Sjálfstæðismanna í efnahagsmálum var það
eitt að láta r 'ka |á reiðanum, ;ski»in stöðvuðust uom hver
áramót, dýrtíð jókst hröðum skrefum og krónan minnk-
aði. Að lokum gafst samstarfsflokkurinn alveg upp á
stjórn pennastriksforingjans og lýsti yfir, að þjóðarskút-
an strandaði alveg, ef þessu :héldi fram. Því var núver-
andi stjórn mynduð. Og þeim Morgunblaðsmönnum ætti
að fara að skiljast það, að jbað er harla bágborinn áróður
að halda því sífellt fram, að allt hafi sigið á ógæfuihlið í
þjóðfélarginu uim leið og þessi stjórn settist að völdiim.
Þeir vita það sjálfir, og það er líka alþjóð kunnugt, að
erfiðleikar og vandkvæði í þjóðarbúskapnum í dag eru
afleiðingar ráðslagsinls í gær. Sökin er Sjiálfstæðisfliokks-
ins, haun stjórnaði illa, svo illa, að þjóðin mun súpa af
því seyðið um langan aldur.
ÞaS situr því sízt á þeim klippingameistara Morgunblaðs
ins og félögum að reyna að gera lítið úr heiðarleg'um til-
raunum Alþýðuflokksins til úrbóta í efnahagsmálum. Og
því síðup ættu þeir að nudda á sinn neikvæða hátt, meðan
þeir vita ekki, hvað þeir eru að nu-dda um. Befðu þeir eitt-
hvað jákvætt til mála að leggja, m/ættu þeir sannariega
klippa og skera, teygja og toga. En meðan svo er ekki,
œttu þeir að minnsta kostj að sjá sóma sinn í að vera ofurlít-
ið heiðarlegr.i í málflutningi.
( Utatn ur Keimi )
MIKLAR breytingar og lík-
legar til að hafa djúplæg áhrif
hafa gerzt í herbúðum beggja
aðila á Mið-Austurlöndum ný-
verið; og eru breytingar þess
ar taldar ávinningur fyrir Nass
er forseta og samarabisk áform
hans.
Það er þá fyrst til að taka,
að Saud Aarabíukonungur hef-
ux opinberlega selt bróður sín-
um, Feisal krónprinsi, en Feis-
al er mjög hneigður til vináttu
við Egypta, Hefur hann og að
undanförnu verið hinn voldug
asti maður að nafnbótum, bor-
ið titil forsætis- og utanríkis-
ráðherra, en Saud konungur
hefur hingað til ekkert tillit
tekið til þess í framkvæmdinni
og ríkt sem einvaldur í landinu.
í Sýrlandi hefur gerzt sá at-
burður að Afif Bizri hershöfð-
ingi hefur látið af embætti sem
æðsti maður sýrlenzka hers-
ins, og voru þá ekki liðnar
nema tvær vikur frá því er
Nasser útnetfndi hann fvrir
’ ýfirhershöfðingja. — Orsök
þess að hann lætur af því veg-
lega embætti er sögð sú að hann
hafi reynzt Sovétveldunum vin
veittur um of, og hafi hann með
al annars neitað að losa sig við
undirforingja, sem Nasser vildi
láta fjarlægja og svipta áhrif-
um; Bizri hafi jafnvel fengið
þeim ábyrgðarmeiri stöður inn
an hersins.
Svo mjög var allri afgreiðslu
þessa máls hraðað, að Bizri
vissi sjálfur ekki hið minnsta
um hvað til stóð fyrr en hann
las það í dagblöðunum að hann
hefðj „sótt um lausn frá em-
bætti“, og að orðið hefði verið
við þeirri beiðni hans.
Feisal krónprins.
FEISAL FENGIN ÖLL VÖLD.
I tilkynningu, sem birt var í
höfuðborg Saud-Arabíu. síðast
liðinn mánudag, segir meðal
annars: „Vér afhendum forsæt-
isráðherra vorum ótakmarkað
vald og heimild til að marka
stefnuna í innan-, utanríkis- og
fjármálum og sjá um alla fram
kvæmd þeirra mála“. Hins veg
ar er ekki tekið fram í tilkynn-
ingunni hver völd 3'aud konung
ur ætli sjálfum sér.
Þetta valdasal í Saud-Arabíu
er álitið skref í áttina að þing-
bundinni konungsstjórn um leið
og það er talið sanna sigur Feiz
als yfir Saud konungi. Feisal
var á sínum tíma talinn líkleg-
astur til að taka við ríki og
völdum af Ibn gamla Saud
fyrrverandi Arabíukonungi, en.
skömmu fyrir andlát hans var
honum stjakað til hliðar og
Saud, eldri bróðirinn, látinn
taka við erfðum.
FEISAL TALINN HA.ND-
GENGINN NASSER.
Feisal er sem kunnugt er
mjög andsnúinn Bandaríkjun-
um frá því er Israelsríki var
stofnað árið 1948. Það er því
bersýnilega ósigur fyrir þau öfl
í Saudi-Arabíu, sem vildu
steypa Nasser og koma í veg
fyrir stofnun Hins sameinaða
ara'biska lýðrveldis, er honum
haifa verið fengin svo víðtæk
völd í ríkinu,
Kairoblaðið „A1 Shaab“ tel-
ur að Feisal hafi neytt Saud
bróður sinn til að vísa allmörg:
um af fyrri ráðgjöfum sínum
frá hirðinni og samþykkja að
réttarrannsókn skuli haldin,
vegna samsærisins gegn Nasser
forseta.
BARÁTTAN GEGN SÝR-
LENZKA HERSHÖFÐINGJ-
ANUM.
Frá Damaskus hafa borizt
fréttir um að margir af undir-
foringjum Bizris • hafi verið
teknir höndum, en enn hefur
ekki tekizt að fá þær. Hafa
fréttamönnum erlendra blaða
verið torvelduð símtöl þaðan.
Er álitið að með brottvikningu
Bizris vilji Nasser gera herinn.
hlýðið afl en ekki sjálfstætt í*
stjórnmálum landsins, eins og
herinn var að verða undir
stjórn Bizris hershöfðingja.
Víkan scm leið ~
AF ERLENDUM tíðindum í
s. 1. viku má telja helzt upp-
raisnina í Indónesíu. Túnisdeil-
una og Algiermálið auk enda-
loka hinnar svokölluðu „sam-
virku forustú' í Rússiandi.
INDÓNESÍA.
í Indónesíu héldu bardagar
áfram, en ekki er annað fyrir-
sjáanlegt en u|>pre:snarmenn
verði gersigraðir, bæði vegna
skorts á baráttuvilja og iélegri
forustu. Hafa uppi'eisnarmenn
alls staðar orðið að láta undan
síga. Þessi barátta stendur fyrst
og fremst um það, hvort So-
karno forseti eigi að fá að
stjórna áfram og leyfa komm-
únistum þau miklu ítök í stjórn
landsins, sem þeir hafa haft eð
undanf örnu. Dj akar tast j órnin
fékk fyrir skemmstu tíu skip
frá Rússum. Telja margir, að í
þeim hafi verið hergögn handa
Indónesiíuher, en svo mikið er
víst, að hinir rússnesku skips-
stjórnarmenn verða fyrst um
sinn á skipunum til að hjálpa
til við skipstjórn og viðhald.
Varð þetta tiletfni til þess, að
Sjaffruddin, forsætisráSherra
uppreisnarstjórnarinnar, sag'ði
í ræðu í vikunni: „Ef Sokarno
má hatfa rússneskar áhafnir,
því megum við þá ekki fá ame-
ríska flug'menn?“ Allt virðist
benda til, að uppreisnarmenn
hljóti að bíða lægri hlut, eins
og mólin standa nú, en spurn-
ingin er, hvort vesturveldin
muni sjlá sér fært að veii:a upp
reisnarmönnum hjálp, eins og
Rússar eru nú þegar farnir að
gera við Djakartast.jórnina. —
Víst er um það, að SEATO-
löndin fagna því ekki að sterk
kommúnistísk stjórn sitji að
völdum í Indónesíu, og lítill
vafi er á, að svo verði, einkum
eftir núverandi aðstoð Rússa,
ef uppreisnarmenn verða kveðn
ir niður. Það er a. m. k. víst, að
ætli vesturveldin að hjálpa upp
reisnarmönnum verða þau að
láta til skarar skríða strax.
TÚN'IS OG ALGIER.
Bourguitoa, forseti Túnis, er
sýnilega fús til mikilla tilslak-
ana í deilu sinni við Frakka
Framhald á 8. síðu
ó
D
Ý
R
T
FYRIR HÁTÍÐINA:
ís í stórum formum.
Ávextir — Suðusúkkulaði
Heimilissúkkulaði
Páskaegg fyrir alla fjölskyldima
REYKJAVIKURVEGI 6
Opið frá kl. 2—11,30 e. li.
Ó
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
S
s
s
s
s
s
s