Forvitin rauð - 01.12.1972, Qupperneq 8
Búi Arland:
Verið ekki áhyggjufull, þér getið feingið
hjá mér alla þá penínga sem þér viljið,
hús, vöggustofu, alt.
(Atómstöðin)
Einkaritarinn á að sjálfsögðu að vera
vel menntaður, og se' þar einhverju
áhótavant, á hann a.m.k, að sýnast
vera það sbr. þú skalt "tileinka
þer fjölbreyttan orðaforða og mál-
fræðilega rátt tal. Slíkt ber
vott um þá góðu menntun, sem gert
er ráð fyrir, að þú hafir".
Umgengnin við hitt fólkið á
3krifstofunni á að sjálfsögðu
að vera lipur og góð. Talið
er eðlilegt, að einkaritarinn
stofni til vináttu við konurnar á
skrifstofunni, en þó er varað við
því, að þau kynni verði of náin.
Náin kynni við karlmennina virðast
aftur á móti vera stórhættuleg og
það er hlutur, sem hver góður
einkaritari forðast .'
M er komið að kaflanum um starfs-
venjurnar. Þar er hinum verðandi
einkaritara sögð þau sannindi, að
"konur virðist einstaklega hæfar
til að fást við störf, sem fela í
sér mörg einstök atriði" , en þannig
séu skrifstofustörf einmitt, ffaman
væri að frétta af störfum, sem ekki fela
í sér mörg einstök atriði. Mð eru
þá líklega störfin, sem konur geta ekki
unnið.
Þér greiðið atkvæði opinberlega gegn því
að ég og mínir líkar heitum menn, en viljið
mig betlara yðar í laumi -.
(Atómstöðin)
Mrna koma fram eiginleikar góðu
eiginkonunnar, sem einkaritarinn
á að hafa. Auk allra þessara góðu
eiginleika,sem helzt ættu að prýða
hvern einasta mann, é góði einka-
ritarinn ekki að gleyma að taka til
á borði framkvæmdastjórans síns ,
fylla pennann hans, ydda blýantana
hans, minna hann á Rotaryfundinn,
setja ferskt vatn á könnuna hans,
sjá um að glösin séu hrein, skipta
um vatn á blómunum hans. o.s.frv,
Pramkvæmdastjórinn heilagi á ekki
að þurfa að gera svo auðvirðilegt
verk, sem að tína saman drasl á
sínu eigin skrifborði, hvað þá að
þurfa að horfa upp á "dagatöl eða
myndir", sem fest eru "með límbandi
á veggi eða rúður". Einkaritarinn
þarf að sjálfsögðu að þekkja við-
skiptavini fyrirtækisins og þá, sem
3tarfa f.yrir það, en hann þarf líka
að þekkja ritara Rotarý-klúbbs
forstjórans og "ritara þeirra manna,
sem hann leikur badminton með á
fimmtudagskvöldum". Auk þess að muna
eftir fundum og viðtölum, sem
framkvæmdastjórinn þarf að mæta til,
á þjónustan hans að hafa hjá sér lista
yfir afmælisdaga og skólaleyfi, sem
skipta máli fyrir hann.
Einkaritarinn á ekki að reykja á
skrifstofunni eða á strætum úti.
Mð er ekki traustvekjandi fyrir viðskipta-
vin að sjá fullan öskubakka, líklega
verður þá blessaður einkaritarinn að
standa með ruslakörfuna undir
stórsígar framkvæmdastjórans síns.
Konurnar streyma nú út á vinnumarkaðinn,
það getur karlmaðurinn ekki heft, en
mun honum takast að beizla konuna þar'?
Utofnar hann til launaðra þjónustustarfa,
sem fela í sér þá þjónustu, sem hann
missir að einhverju leyti á heimilinu,
þegar eiginkonan fer út að vinna?
Konur, gerið ykkur grein fyrir því, að
störf mótast að mörgu leyti af þeim,
sem vinna þau. Verið á verði, gerið
ykkur grein fyrir því í upphafi starfs
hvers af ykkur er vænzt. Látið ekki
traðka á rétti ykkar, setjið ykkur inn
í starfið eins vel og ykkur er unnt og
kynnið ykkur þá samninga, sem þið vinnið
eftir. Ef ykkur mislíkar eitthvað ,
talið um það a réttum stöáum án nöldurs ,
^verið kröfuharðar jafnt við ykkur sjálfar
sem aðra, Minnumst þess að störf okkar
eru jafnverðmæt og störf karlmannanna.
G.S.ð.
— SÖi?d LRuN ? HRNN «EM HEFUR
Miklu stæ:rrí henour J