Forvitin rauð - 01.05.1975, Síða 2

Forvitin rauð - 01.05.1975, Síða 2
2 Jafnrétti, þróun og friður Sérstök kvenréttindanefnd var sett á laggirn- ar við SameinuSu Þjóðirnar 1946. Nefnd þessi hefur látið fara fram ýmsar athuganir er varpa ljósi á stöðu kvenna á sviðum fjölskyldu og hjúskapar, menntunar og atvinnu. 32 lönd eiga sæti £ nefndinni. A grundvelli þessara kannana er reynt að þrýsta á viðkomandi yfir- völd til framkvæmda. Einn mikilvægasti árangur af þessu starfi var samþykkt allherjarþingsins 1967 um afnám kynjamisréttis. Samþykktin er £ ellefu greinum og fjallar um réttindi kvenna á öllum sviðum, sem rædd höfðu verið £ þau rúm tutt- ugu ár, er nefndin hafði starfað. Helstu atriðin eru: Afnema ber löggjöf, venjur og hefðir, sem fela £ sér kyfijamismunun. Tryggja ber konum með lögum kosningarétt og kjörgengi svo og rétt til að gegna opinberum embættum. Vernda ber konur gegn missi r£kisfangs og þvf að þurfa að giftast útlendingum £ þv£ skyni einu að öðlast nýtt rfkisfang. Tryggja ber með lögum jafnræði hvað áhrærir réttindi og skyldur £ hjúskap og við skilnað. Afnema ber lagaákvæði £ refsirétti sem fela £ sér kynjamismunun, til dæmis að þv£ er varðar framhjáhald eða makamorð £ þeim löndum þar sem sl£k ákvæði eru enn £ lögum. Berjast verður gegn hinni svokölluðu "hv£tu þrælaverslun", og öllum tilburðum £ þá átt að hagnast á konum, einnig vændis- konum. Tryggja ber jafnrétti til menntunar og atvinnu, - sömu laun fyrir sömu vinnu og rétt til fæðingarorlofs. Lögð er áhersla á, að ein af forsendum þess að konur geti notið allra borgarlegra réttinda sé að dagvistunarstofnanir séu nægilega margar. Þessar tillögur var búið að ræða £ ein fimm ár áður en þær voru endanlega samþykktar bæði £ nefndinni sjálfri og á allsherjarþing- ingu. Pað atriði, sem einna mestar deilur urðu um, voru ákvæðin um réttindi konunnar innan fjölskyldunnar. Allsherjarþingið breytti þessu ákvæði yfirlýsingarinnar á þá lund, að tryggja skuli réttindi konunnar á þessu sviði "an þess að það skaði samheldni eða einingu fjölskyldunnar". Þessi breyting, sem gerð var £ meðförum allsherjarþingsins, þótti mörgum að sannaði, að enn ætti langt £ land að fullkomið jafnrétti næðist- Mikilvægasti alþjóðlegi atburður kvennaársins verður ráðstefna haldin £ Mexicóborg 23. júnf til 4 júl£. Forseti ráðstefnunnar verður einn af aðstoðarframkvæmdastjórum Sameinuðu Þjóðanna, Helvi L.Sipilá', sem einnig hefur samræmingu aðgerða kvennaársins á sinni könnu. Öllum rfkjum heims hefur verið boðin þátttaka £ ráðstefnunni auk fulltrúa ýmissa frelsis- hreyfinga, sem arabarfki og Einingarsamtök Afrfku viðurkenna. Ætlast er til þess að sendinefndir séu skipaðar bæði körlum og konum og sérstofnanir S.Þ. munu eiga þar áheyrnarfulltrúa. Tilgangur ráðstefnunnar £ Mexicó er að hvetja til nyrra daða er bæta megi stöðu konunnar innan þjóðfélagsheildarinnar og fjölskyld- unnar, og er ætlunin að samþykkja starfsáætlun þar að lútandi.

x

Forvitin rauð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.