Forvitin rauð - 01.05.1975, Side 3

Forvitin rauð - 01.05.1975, Side 3
LEIDARI 3 Samdráttur bitnar fyrst og harðast á verkakonum A vinnumarkaði neysluþjóðfélagsins erum við konur nýliðar og staða okkar enn óviss og erfið. X sveifXukenndu efnahags- og atvinnulífi grípa konur til hendinni þegar þörf er á vinnuafli. þeirra, en draga sig í hlé þegar ekki er þörf fyrir þær lengur. Hvað sem líður lagasetningum er það hefð, að konur hafi ekki rétt til stöð- ugrar atvinnu á borð við karla og þeirri hefð er ma. viðhaldið með hagstjórnarstefnu í félags- málum. Samdrætti í atvinnulífi fylgir niður- skurður á fjárframlögum til barnaheimila og fleiri stofnana, en skortur á vinnuafli kallar hinsvegar á uppbyggingu þjónustustofnana. Atvinnuleysi hjá körlum vekur ólgu og óánægju með efnahagsstjórnina, en margar konur taka tíma- bundnu atvinnuleysi sem sjálfsögðum hlut. Það er engin tilviljun,að fyrstu uppsagnir komandi samdráttartímabils eru í greinum þar sem konur vinna að meirihluta. Hvað veldur sveiflum atvinnulífsins? Okkur er sagt, að samdrátturinn nú stafi af minnkandi útflutningsverðmæti, innflutningi og neyslu um efni fram, vinnudeilum og kröfum verka- fólks, óhóflegum milliliðagróða, óstjórn í efna- hagsmálum og kreppuástandi í viðskiptalöndum okkar. I íslenskri efnahagspólitfk má nú greina tvær meginstefnur. Önnur er sú að beina fjámagni til virkjunarframkvæmda til að reisa hér stóriðju og reka fyrirtæki í samvinnu við erlenda aðila og láta þá jafnvel lönd og leið útgerð og landbúnað. Hin meginstefnan er að byggja sem mest undir okkar innlendu atvinnugreinar með góðri nýtingu, jöfnun aðstöðu og með því að dreifa fjármagni frá milliliða- og verslunarfyrirtækjum. Sveiflurnar í efnahagslífinu spegla að nokkru leyti átök um þessar meginstefnur. Er ógnun atvinnuleysisins raunveruleg? 1. maí 1975, aðeins rúmu ári eftir að kaup- trygging fiskverkunarfólks fékkst viðurkennd x kjarasamningum, stöndum við frammi fyrir því, að henni hefur verið sagt upp í allflestum frystihúsum og mikill hluti verkafólks í sauma- iðnaði er á uppsögn, sem tekur gildi í sumar. Meirihluti þess verkafólks, sem hér um ræðir eru konur. Það er gamla sagan: Um leið og samdráttur verður í atvinnulífinu eru konurnar látnar víkja. Enda strax farið að skera niður framlög til barnaheimila og elliheimila og brátt verður fjallað í mogganum okkar fögrum orðum um það hve göfugt sé uppeldisstarf konunnar á heim- ilinu og hve fórnfúst starf hennar við umönnun aldraðra. En er ógnunin byggð á veruleika? Er atvinnu- leysi yfirvofandi og er það óhjákvæmilegt? Eina vopn okkar og vörn gegn ógnun atvinnu- leysisins er þekking, samstaða og virk baráttu- þátttaka. Þegar okkur er sagt upp kauptryggingu þannig að við erum ekki lengur fastráðnar og megum eiga von á því að vera sendar heim hvaða dag sem er, eða sagt upp vinnu með ákveðnum fyrirvara, eigum við heimtingu á skýringu. "Erfiðir tímar" er engin skýring. Hverjir eru erfiðleikarnir? Koma þeir að utan eða innan? Gæti reksturinn verið hagkvæmari án þess þó að það væri á kostnað kjara verkafólks? Allt þetta þurfum við að vita. Látum okkur aldrei detta í hug, að eigandinn sé að fórna sér og reka fyrirtækið fyrir okkur, hversu mikið sem hann barmar sér. Slíkt mundi hann ekki gera degi lengur en hann græðir á því. Getur ekki starfsfólkið yfirtekið reksturinn eða breytt honum? Getur ekki verkalýður þorps, þar sem vinnan snýst öll í kringum fiskinn, tekið stjórnun þessarar vinnu í sínar hendur með hag verkafólksins fyrir augum en ekki söfnun auðs Atvinnuleysi er ekki náttúruhamfarir Séu ástæðurnar utanaðkomandi þarf að leita þeirra og berjast gegn þeim. Atvinnuleysi er ekki náttúruhamfarir sem við stöndum máttlaus gegn. Það er hagstjórnarstefna sem ræður og það er ekki tilviljun, að í tíð vinstri stjórnar blómstraði og óx atvinnulíf um allt Xand, en eftir eins vetrar hægri stjórn verður þegar vart sam- dráttar: Það er aftur verið að skapa "hæfilegt atvinnuleysi". Til að verja afkomu okkar og berjast gegn árásum á kjör okkar og stöðu, verður verka- fólk að standa saman. Sigur í verklýðsbarátt- unni vinnst aldrei nema með virkri þátttöku kvenna. En til að konur geti orðið virkar verða þær jafnframt að sigrast á bælingu og mismunun, þær verða að hafa frelsi til þátttöku. Og í þeirri baráttu kvenna næst aldrei árangur nema verklýðsöflin taki fullan þátt í henni og geri hana að sinni baráttu. An þáttöku kvenna enginn sigur 1 verklýðs- baráttunni .* An þátttöku verklýðshreyfingarinnar enginn sigur í kvennabaráttunni.'

x

Forvitin rauð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.