Forvitin rauð - 01.05.1975, Page 10

Forvitin rauð - 01.05.1975, Page 10
10 dagvistun.... ......... Rauösokkar ásamt fóstrufélagl fslands stóöu aö ráöstefnu í Lindarbæ þann 23, febrúar. Efni ráö- stefnunnar var dagvistun barna og forskólafræösia. Hér veröur drepiö á nokkuö af því sem fram kom í umræöum. Dagvistunarstofnanir þurfa aö hafa sveigjanlegri opnunartíma. Fyrst á morgnana og sföast á kvöldin gæfist þá nokkur tími til aö sinna sérstaklega þeim börnum, sem lengst dvelja á heimilunum. Vitaö er aö margar einstæöar mæöur geta ekki haft börn sfn í dagvistun vegna hins langa vinnutíma sfns. Einnig er þaö sjálfsögö krafa aö á vinnustaö sé tekiö tillit til þess, ef foreldrar þurfa aö skiXa eöa sækja börn f dagvistun. Æskilegt er aö hafa saman börn á ýmsum aldri og flýtir þaö fyrir þroska þeirra. Slfkt mun algengt á Noröurlöndum og hafa nú nokkur barnaheimili reynt þetta hér og má sérstaklega nefna Steinahlfö. Auka þarf samvinnu milli fðstra og foreXdra. Slíkt er hægt aöfpra á margan hátt, meö formlegum fundum ellegar stuttum samtölum viö starfsliö stofnananna. Slfkt minnkar vinnuálag á fóstrurnar og stuölar aö kynnum innbyröis milli foreldranna, sem um leiö yröu fróöari um uppeldismál og kynntust starfs- aöferöum fóstranna. Viö dagheimilin þurfa aö starfa sérfræöingar í uppeldismálum og sálarfræöi. Þaö mál sem hæst bar á ráöstefnunni var réttur barna láglaunafólks tiX dvaXar á dagvistunarstofn- unum, Framlög hins opinbera til þessara mála fara sifellt minnkandi og er þaö glöggt dæmi um skilnings- leysi ráöamanna. Þaö er sjáXfsagöur réttur hvers einasta barns aö eiga kost á dvöl á góöri dagvistunar- stofnun og má aldrei vera forréttindi, þaö er þvf nauösynlegt aö bæta úr þeim vanda sem hin háu dag- vistunargjöXd skapa. Rætt var aö haga gjöldum eftir greiöslugetu foreldranna en ekki varö samstaöa um þessa Xausn. Þráfaldlega var bent á hiö uppeldis- lega gildi, sem dagvistunarstofnanir hafa fyrir börnin, sem þar hljóta þjálfun og uppörvun fyrir skðXagöngu sfna og þvf varanXegt veganesti fyrir lífsgönguna. Því eru þaö einmitt böm þeirra, sem verst eru staddir fjárhagslega og félagslega, sem síst mega án þessa veganestis vera. I þessu sambandi kom einnig fram aö ekki þola öll börn of langa veru á barnaheimilum og æskilegra væri, aö foreldrarnir gætu stytt vinnudag sinn heldur en aö vistunartfminn á barnaheimilunum væri lengdur, Meö rfkjandi stefnu í uppbyggingu dagvistunarstofnana er stefnt aö aukinni stéttaskiptingu f þjóöféXaginu þar sem börn veljast á heimilin eftir vinnustaö og atvinnustétt foreldranna. Aö lokum var rætt, hvernig hægt væri aö efla sam- starf barnaheimila og forskóla, þannig aö ganga barnsins gegnum hinar ýmsu stofnanir yröi samfelld heild. Hafa yröi þó ávallt f huga aö laga dag- vistunarstofnanir og skóla aö þörfum barnanna, en ætlast ekki tiX þess aö börnin löguöu sig um of aö starfsaöferöum þessara stofnana.

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.