Forvitin rauð - 01.05.1975, Side 11

Forvitin rauð - 01.05.1975, Side 11
11 KONUR FÁ BRÉF VEGNA SÖLUERFIÐLEIKA HEFUR VERIÐ AKVEÐIÐ AÐ STÖÐVA FRAMLEIÐSLU 1 VERKSMIÐJUNNI UM TlMA, EÐA A.M.K. TIL 15. MAl 1975. J>EGAR FRAMLEIÐSLA HEFST AÐ NtJU, MUN VINNA khér í verksmiðjunni að SJALFSÖGÐU STANDA ÍÐUR TIL BODA. HAFNARFIRÐI 24.3.1975, NORÐURSTJARNAN H.F. nfeyrissjöóirnir Eg er forvitin að vissu marki. Pví langar mig að Mðja þetta forvitna blað aö leita fyrir mig svara um llfeyrissjóöi verkalýösfélaganna. Mig langar til að vita hvað líður baráttu fyrir bvl, aö lifeyrissjóðirnir séu óumdeilanlega undir stjórn verkalýðsfélaganna. Að vlsu er barátta orö, sem helst ekki má nota á seinni árum, en eins og búið er að fara meö þessi mál, held ég að allir skilji, aö baö veröur að heyja baráttu, ef málið á aö vinnast. Mér finnst ba° fráleitt og ósamboðið frjálsri verkalýðshreyfingu að una þvi, að atvinnurek- endur eöa ríkisvald sé aö ráöska meö þaö sem samið er um sem hluta af kaupi. Verður kannski samið um það næst, að fyrir vissan hluta af kaupinu okkar skulum viö kaupa eitthvaö, sem aðrir vilja losna við? Ef viö látum af hendi ráðstöfunarrétt á því sem við teljum okkar laun, þá bjóöum viö þeirri hættu heim, aö áfram veröi haldið I ásælnínni. Höfum við ekki sjálf nóg við llfeyrissjóðina að gera? Gætum við ekki notaö þá til að byggja leiguhúsnæði til að hamla gegn húsaleigubraski, sem er hreinn bölvaldur fyrir eignalltið fólk I dag? Gætum við ekki notað þá til að stuðla að fullorðinsfræðslu, verkmenntun fyrir fólk I verkalýðsfélögunum? Margt fólk á miðjum aldri hefur aðeins 'barnaskólamenntun, en elur þó alltaf I brjósti þrá eftir þekkingu. Sumum hefur dottið I hug, að samvinnuhreyfingin og verkalýöshreyfingin gætu I sameiningu sett á stofn lýðháskóla. Gætu lífeyrissjóðirnir ekki komið þar að gagni? Svona mætti lengi telja. Gerum það eitt af bar- áttumálum dagsins I dag, aö verkalýðshreyfingin ráði slnum sjóðum sjálf, Við ættum að vera búin að fá nóg af ráðleysi þeirra, sem ráða þjóðfél- aginu. Stöndum saman um að verja það sem við eigum. Notum llfeyrissjóðina I eigin þágu. Afhendum aldrei þann rétt sem við eigum. Aðalheióur BjamfreÓsdóttir Svona lítur bréfið út, sem milli 60 og 70 konur tíndu upp úr síðasta Launaumslagi sínu frá Norðurstjörnunni h.f. Sem sagt, þurfum ekki að nota ykkur meira I bili, velkomnar þegar við þörfnumst ykkar næst. Konur I Norðurstjörnunni taka laun samkvæmt samningum Verkakvennafélagsins Framtlðarinn- ar I Hafnarfirði. Samkvæmt þeim samningum eiga þær rétt á viku uppsagnarfresti hafi þær unnið skemur en 6 mánuði, en mánaðar uppsagnarfresti hafi þær unniö lengur. Flest- ar kvennanna hafa unnið þarna I ár eða leng- ur. Kauptryggingu hafa þessar konur aldrei fengið greidda. Sé á þaö minnst, er þeim sagt að þær séu ekki I fiski. Snda varð einni konunni að orði: "Ég vissi ekki að við værum alltaf að leggja niður banana1." Nú vaknar sú spurning: Eru samningar verkakvennafélaga einhver ómerk plögg, sem pótentátar atvinnulífsins telja sig geta brotið þegar þeim hentar? VERKAKONA

x

Forvitin rauð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.