Forvitin rauð - 01.05.1975, Page 13

Forvitin rauð - 01.05.1975, Page 13
EIGA ÞESSI BÖRN Fjöldaflutningar á börnum frá Viet-Nam til Bandaríkjanna ollu mikilli mótmælaöldu. Forystumaður "þriOja aflsins" Tran Ngoc Lieng, leiðtogi búddatrúarmanna Hien Phap og einn kunnasti málsvari kvennasamtaka á yfirráðasvæði Saigonstjórnarinnar undirrituðu ávarp til að mótmæla "ómannúðlegri áætlun bandarísku og suður- vietnömsku stjórnanna um að flytja út fjölda foreldralausra barna í áróðursskyni, til þess að skapa æsingar í heiminum og útvega Saigon- stjórninni meiri aðstoð." I Stokkhólmi safnaðist fólk saman fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna og hinn kunni rithöf- undur Sara Lidman flutti ávarp og beindi þessum orðum til Fords bandaríkjaforseta. "Fyrst drepið þér foreldra barnanna. Síðan Xátið þér flytja til yðar börnin. Þetta minnir á hátterni brennuvargs, sem veldur eldsvoða. Og á meðan húsið brennur bregður brjálæðingurinn við og bjargar tíu börnum." EKKI LAND! Samband vinstrisinnaðra sænskra kvenna hefur sent frá sér skorinorð mótmæli gegn barna- flutningunum, þar sem segir: Þetta er ekki annað en svívirðilegt barnarán. Flugvélarnar, sem flytja börnin koma með vopnafarma til Saigon, en það er beint brot á Parísarsamkomulaginu. Reynt er nú á slðustu stundu að ræna Vietnam þeim börnum, sem misst hafa foreldra sína vegna hernaðaraðgerða Bandaríkjanna. Við lýsum yfir djúpri andstyggð okkar á þessum aðgerðum." Það vakna óhjákvæmilega spurningar í hugum okkar við þessar aðgerðir. Hver voru þessi börn og hvaða örlög hefðu beðið þeirra í Banda- ríkjunum og hvaða örlög bíða þeirra heima fyrir? Við biðjum Vilborgu Dagbjartsdóttur að leysa nokkuð úr þessum spurningum. / Mér kemur í hug borg í Tékkóslóvakíu, sem heitir Lidice og nasistar létu afmá af yfirborði jarðar. Þeir skutu alla karlmenn, sem voru komnir yfir fimmtán ára aldur, sendu konurnar í þrælkunar- búðir og börnin tóku þeir og sendu á þýsk heimili til að ala þau upp sem þýska borgara. Bandaríkjamenn eru þarna að taka vietnömsk börn. Það getur verið að foreldrar þeirra séu dánir eða týndir í fangelsum þeirra eða að foreldrarnir séu hinum megin við víglínuna. Þetta vitum við ekkert um og börnunum er smalað saman og síðan eru þau flutt til Bandaríkjanna og deilt þar út meðal bandarísks millistéttar- fólks og þar eiga þau að alast upp sem Banda- rikjamenn. Sum af þessum börnum eru orðin dálítið stálpuð og jafnvel þótt foreldrarnir séu dánir, eiga þessi börn þá ekki systkini, eiga þessi börn ekki ættingja, eiga þessi börn ekki þjóð, eiga þau ekki land, þar sem samfylking þjóðfrelsissinna er að vinna lokasigur? Það eru kannske nokkrar vikur þangað til þarna hefst mikil uppbygging. Með hverjum á að byggja upp þetta land, auðvitað með börnum landsins. Þarna er verið að ræna börnum þessa fólks til að gefa þau amerískum auðvaldskellingum eða kannski eru þau Xátin á munaðarleysingjahæli eða kannski eru þau seld eins og Kóreubörnin. Frá Suður-Kóreru hefur verið rekin umfangsmikil - mér liggur við að segja verslun með börn. I stað þess að leysa vandamálin eins og í Norður-Kóreu, því ekki hefur heyrst um neinn útflutning á börnum þaðan þá eru börn send frá Seoul út um allan heim og fólk kaupir þessi börn óbeint. Það liggur á borðinu, að þetta er gert fyrst og fremst í áróðursskyni, en jafnframt er verið að fara £ kring um friðarsamningana, sem gerðir voru í París á þann hátt, að flugvélarnar, sem notaðar eru til að flytja bæði bandaríska borg- ara frá Vietnam og hershöfðingja og hermenn, sem álitið er, að hljóti dauðadóm og svo börnin, þessar sömu flugvélar eru notaðar til að smygla vopnum inn í landið. En fyrst og fremst voru þó barnaflutningar gerðir í áróðursskyni, en það verkaði hins vegar öfugt. Þetta var svo hróp- legt, að fyrst drepa þei,r, foreldra barnanna og slðan ræna þeir börnunum og flytja þau úr landi.

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.