Morgunblaðið - 08.11.1913, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.11.1913, Blaðsíða 2
 MORGUNBLAÐIÐ Sv. Bj. um að lækka vatnsskatt fyrir vatnssalerni (Kr, O. Þ.: »Hann sel- ur sjálfur vatnssalerni«). »Alftaf hægt að slá slíku fram, en ekki altaf hægt að sanna, að maður geri alt í hagn- aðarskyni fyrir sjálfan sig«. Ennfrem- ur kvað hann ráðlegt, að bærinn tæki að sér hreinsunina, að minsta kosti eitt ír til reynslu. Tr. G. kvað ómögulegt að nota vatnssalerni hér í húsum og fólk hefði eigi ráð á að útvega sér þau. H. Hafl. sagði þetta mál altaf hafa verið vandræðamál. Gjaldið væri of hátt og áleit alveg nóg að hreinsa tvisvar á mánuði. Þessi aukahreins- un, sem menn vildu gera svo mikið úr, væri alveg óþörf nema að eins nokkra mánuði á ári — á vetrum þegar margir væru á hverju heimili, á sumrum væru flestir burtu. Kvað engan óþrifnað þurfa að stafa af hálfsmánaðarhreinsun. Mundi mikið sparast ef það væri innleitt. Kn. Z. sagðist vera viss um að saurinn yrði alveg jafn-mikill, hvort hreinsað væri viku- eða hálfsmánað- arlega. Það hefði engin áhrif á saur- inn sjálfan og gæti enginn sýnt sér fram á annað. Kletnens J. kom fram með breyting- artillögu um að fella burt úr frumv. nefndarinnar »þeim sem for hafa við hús sín«. L. H. B. vildi fresta úr- slitum málsins, en það var felt. Var till. Klemensar samþ, og till. nefnd- arinnar einnig samþ., að viðhöfðu nafnakalli, með 7 atkv. gegn 5. Tveir greiddu ekki atkvæði. Umræður um hreinsunarmálið voru liprar og fjörugar og skemtu áheyr- endur sér hið bezta. Voru öll sæti þétt skipuð, og meira en það. Þótti mönnum gaman að heyra fulltrúana tala um »ílátin«, sem Kn. Z. kallaði »kollur«, Tryggvi »fötur«, Lárus »kagga«, [ón Þorl. »skjólur«, borgar- stjóri »dúnka« og Hannes Hafliða- son »dollur«. Nú geta bæjarbúar valið nafnið, sem þeir helzt vilja nota — og einnig hvort þeir vilja útvega sér »aukaílát« eða láta Helga smíða »stórt ílát« í stað þess litla, sem eftir nýárið auðvitað verður alt of litið. Þvi nú verður að eins hreinsað fjórtanda hvern dag. Sv. Björnsson beiddist þá þess, að tekið yrði inn á dagskrána vatnsskatts- málið. Bar borgarstj. það undir full- trúana, en atkvæðagreiðsla gekk stirt og varð að viðhafa nafnakall. Var beiðnin feld með 6 atkv. gegn 6. Borgarstj. vildi eigi greiða atkvæði. »Þér voruð samt búnir að lofa mér því í gær að taka málið inn á dag- skrá«, sagði Sv. B. »Það er réttlæti í meira lagi«, bætti hann við, og varð úr því hlátur mikill meðal full- trúanna. Næsta mál á dagskrá var fisksölu- málið. Verður frá því skýrt á morgun. Vaqabundus. og tengdasonur hans öðrumegin, en í haust bygði nýr búandi hinu- megin. Þeim kom illa saman og var kurr mikill milli þeirra. í haust hafa oft skeð merkilegir atburðir þar á bænum, sem hjátrúarfult fólk undir eins setur í samband við drauga. Gluggar hafa verið brotnir, barið hefir verið að dyrum seint á kvöld- in, bollar brotnir og borð skemd. Kýrnar í fjósinu hafa verið leystar og kúaböndum stolið. En þegar Tryggvi bóndi sagðist ætla að láta sækja lögregluna, komu sum böndin samstundis aftur til skila. Hefir mikið kveðið að þessu í haust, eink- um sláturtímabilið. 1 dag var Júlíus Havsteen sóttur til þess að reyna að finna kúaböndin, sem ennþá vanta. Er mikið um þetta mál talað hér nyrðra. Afli. Síld mikil úti í firði og vart hefir orðið við smáfisk. Stojnjundur Sjálfstæðisfélagsins er í kvöld. Vatnsveita. Verið er nú að leggja pipur um bæinn. Verkinu lokið næsta ár. Rafljós. Mikill áhugi er í mönn- um að koma hér upp raflýsingu. Hugsa menn til að nota vatnsafl til framleiðslu ljóssins. Run. c=a DAGBÓIJIN. a Afmælí 8. nóv. Nikólína Sigurðardóttir húsfr. Q-uðm. Davíðsson kennari 39 ára Kristinn Signrðsson múrari 32 — Q-uðm. Þórðason bakari 27 — Veðrið var fagurt i gær (7. nóv.) að mestu heiðskirt, hvergi rigning, nema á Seyðisfirði. Logn var um alt land, nema á Akureyri var andvari. Hitastigin voru: i Vestmannaeyjum 0. stig, i Rvik 0,8, á ísafirði 1.3, á Akureyri 3 stiga frost, á Grimsstöðum 6 stiga frost og á Seyðis- firði 1.6 stiga hiti. — Oftast er það Seyðisfjörður, sem skjöldinn her í hita- samkepninni. Háflóð í dag kl. 1.21 e. h. Sólarupp- koma kl. 8.34, sólarlag 3.48. Verzlunin Vfkingur: Hr. Rasmus, for- stjóri Iðunar hér i bæ, hefir keypt álna- vörurnar úr verzluninni Vikingur á Lauga- vegi 5 — og kvað ætla að halda útsölu í næstu viku. Misprentast hafði i gær i klausunni um skuldir Reykjavikur að þær nemi rúmum 1680 000 kr., átti að vera rúm 1469 000. Snorri Goði fór héðan i gær á fiski- veiðar. Wallington, botnvörpungurinn, sem Val- urinn tók fyrir vesturlandi nm daginn, kom hér i gær og tók kol hjá Birni Guð- mundssyni. Heldnr héðan aftur í dag á fiskiveiðar. í Nýja Bfó er sérstök barnasýning á morgun kl. 6—7. Þar verða sýnd: Hafs- ins börn, hvalir, selir og fuglar. Lands- lagsmyndir frá Indlandi, og ýmsar gaman- myndir. Þetta er gert vegna þess að að- almyndin: »Upp og niðnr, æfintýri fá- tæku stúlkunnar< er svo löng og auk þess á ýmsum stöðum þannig úr garði gerð, að börnum hæfir ekki. Símfréttir. Akureyri 7. nóv. kl. 6'/t e. h. Draugasaga mikil gengur hér um bæinn og upp um öU héruð. Að Gilsá er þríbýli. Búa þar bóndi Giftingar: Sjómaður Helgi Hildibrands- son, Laugaveg 41 og ym. Katrín Valdis Brandsdóttir s. st. Gift i gær. Kolabarkur Chouillou »Defensor«, sem rak upp hér við Iðunnarbryggju i ofsa- veðrinu þ. 19. f. m., er nú að mestu temdur. Voru kolin seld á uppboði og Kartöflur ágætar á 6 aura pundið í Matarverzlun Árna Jónssonar Laugaveg 37. keypti Q-uðmundnr bryggjusmiður Gfuð- mundsson þann hluta, sem fyrir vestan bryggjuna rak, fyrir 105 kr. Hitt keypti Hjörtur Fjeldsted fyrir 165 kr., en mun hafa verið miklu meira virði. Ungmennafélag Reykjavikur heldur hluta- veltu i Bárubúð i dag og á morgun, sem óvenjuvel er vandað til, enda mun margur fá þar góðan mun fyrir lítið. Verzlunarmannafélagið ætlar að halda dansleik, hinn fyrsta á þessum vetri, í kvöld i Hotel Reykjavik, ef nógu margir gefa sig fram. Baron Stjærnblad, aukaskip Sameinaða- félagsins, fer i dag frá Fáskrúðsfirði, hlaðið kjöti, áleiðis til Stavanger. Gangverð gulls i Landsbankanum er nú eern hér segir: Sterlingspund kr. 18,28. Mörk (þýzk) kr. 89.50. Frankar kr. 72.75. Florinur (holl.) kr. 151X0 og dollarar (AmerÍBk.) kr. 3.80. í[YIE[MYMDALrBIKHÚjSIN Gamla Bió sýnir næstn kvöld Brottndm miljónaerfingjans. Myndin hefst með þvi, að gamall auð- kýfingur arfleiðir frænku sina að allri sinni eigu, þegar hann deyr. Þó fylgir böggull skammrifi, að hann veit ekkert hvar hún er niðurkominn. Er þvi erfða- skráin orðuð þannig, að hafi hún ekki tekið á móti fénn 10. nóv., þá erfi ráðs- kona hans aleiguna. Ráðskonan sér nú að henni muni það ráð vænst, að reyna að hindra það, að frænka gamla mannsins fái vitneskju um þetta. Efni myndarinnar er nú það, að sýna hverjum brögðum hún beitir, til þess að koma fram þessu áformi sinu. — Leik- urinn er áhrifamikill og mun engan iðra þess að sjá þessa mynd. Leikendur eru franskir og leika vel með afbrigðum. Nýja Bíó sýnir i fyrsta skifti i kvöld langan sjónleik i 4 þáttum, eftir hinn nafnkuuna franska rithöfund Leon Bourg- eois. Leikurinn heitir Upp og niður og er um unga stúlku, sem er fögnr — og fátsk. Fátæktin hefir löngnm verið versti óvinur dygðarinnar. Foreldrar Louise eru sem sagt bláfátæk og hún verður að vinna fyrir Bér sjálf. Svo kynnist hún flagara nokkrum, og verður fylgikona hans. En maðurinn er ekki við eina fjölina feldur og eftir nokk- ra daga er hann orðinn leiðnr á henni og fær sér nýja lagsmey. Louise fer þá heim tii foreldra sinna, en sækir þá svo að, að móðir hennar liggur fyrir dauðanum. Faðir hennar vill ekki við henni lita, en rekur hana á dyr. — Þá lendir hún i klónum á peningafölsurum og lendir nú æ lengra út á braut spillingarinnar. Að lokum er hún svo þreytt á lifinu, að hún afræður að fyrirfara sér, og fleygir sér i Signu. Smiður nokknr frelsar hana frá danða og fer með hana heim til sín. Ug endir- inn á sögunni verður sá að þau giftast. Þá er hörmungum hennar lokið, og sér roða af nýjum og feguria æfidegi. Myndin er leikin af frægum frönskum leikurum frá Comedie frangaise og er leik- ur Mlle Berthe Bovy (Louise) bæði hrif- andi og eðlilegur. Frönsk blöð og tímarit. Nokkur eintök af frönskum viku- blöfium, skemtiblöðum ogmodeblöðum eru til sýnis þessa dagana, og geta menn gerst áskrifendur í Bókaverlun Isafoldar. Morgunblaðið. Kemur út á hverjum morgni, venjulegt blað (4 bls.) á rúmhelgum dögum, tvöfalt blað (8 bls.) á sunnu- dögum. Auglýsingum sé skilað fyrir kl. 2 deginum áður í ísafoldarprentsmiðju. Kostar 65 aura um mánuðinn Tekið við áskriftum í ísafoldar- prentsmiðju. Einstök blöð kosta 3 aura. Talsímar 500 og 48. Hvernig á eiginmaður- inn að vera? 10 kr. gejur Morqunblaihð peitn, er bezt svarar pessari spurninqu. Allir $eta tekið pdtt í pessari sam- kepni. Skoðanir kvenfólksins um hvern- ig elskhuginn og eiginmaðurinn á að vera, hijóta að vera — og eiga að vera — skiftar. Sá, sem einni konu þykir fríður, er oft ófríður í augum vinkonu hennar og annara kvenna. Hverjum þykir sinn fugl fagur — og hjartalagið er ætíð bezt »hjá honum Jóni mínumt. Mörg- um af lesendum vorum mun þykja fróðlegt að heyra álit ýmsra manna um þetta atriði. Vér höfum því ákveðið að láta samkepni fara fram þannig, að sá lesenda vorra, sem fyrir 15. des. þ. á. sendir Morqun- blaðinu hið bezta svar við spurning- unni, — hún — eða hann, fasr að launum fallega jólagjöf eða 10 kr. í peningum, eftir vali. Munum vér velja 3 óvilhalla menn til að vera dómara, einn úr ritstjórn Morqunblaðsins og hina tvo utan rit - stjórnar. Þ. 16. des. munum vér birtar hver unnið hefir í samkepninni og við og við þangað til, munu birtast svörin, eins og þau berast ritstjór- anum. Nafn þarf ekki að standa undir svarinu, en einhver auglýsing úr Morqunblaðinu þarf að fylgja hverju svari, og í lokuðu umslagi fylgi nafn og heimili þess, er svarið sendir. Verða þau umslög eigi opnuð fyr en þ. 15. des. siðd. og þá dæmt um svörin. Vér tökum það fram, að nöfnum hinna, sem ekki vinna í samkepninni, mun verða haldið leynd- um og aldrei komast lengra en til ritstjórnarinnar og eins nafni þess, er vinnur, sé þess óskað þegar þar að kemur. Þess vegna: KaupiO Morg- unblaðið, klippið út ein'nverja aug- lýsingu úr því, skrifið nafn yðar og bústað á miða og látið hann ásamt auglýsingunni í lítið umslag. Þetta umslag fer í annað stærra — og látið síðan okkur — og lesendur vora — sjá hvernig góður eiginmaður á að vera. Sendið bréfið til ritstjórans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.