Morgunblaðið - 30.11.1913, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.11.1913, Blaðsíða 4
132 MORGUNBLAÐIÐ Það er óþarfi að vera hikandi um það, hvert halda eigi til að fá góðar og ödýrar vefnaðarvörur. Beint uppi eða niðri Bankastræti 8 tii Jóns Björnssonar & Co. Piano frá verksmiðjunni Weissbrod, hirðsala á Saxlandi, fást keypt með útsöluverði. Snúið yður til undirritaðs umboðsmanns. Árni Thorsteinsson. Látið ykkur ekki detta í hug að líta á jölabazara, jólatré eða jólatrésskraut fyr en Jón Zoéga er búinn að opna sinn bazarl Frh. af bls. 129. ópreytandi, sleitulausa starfsemi til þess að komast að markinu, enmark- ið á að vera: nr. 1 í hverri starf- semi. I öðru laqi sýna ofangreind um- mæli, að þessir menn skilja eigi hve afarmikilsverðan þátt bækur eiga einn- ig í hinu »praktiska« lííi. Það eru bækurnar, sem á stundum fela i sér margra alda reynslu hinna allra fær- ustu manna í hverri iðngrein, og miðla oss af henni. Éf vér lærum eigi að notfæra oss þessa reynslu, ef vér erum svo skyni skropnir að halda, að vér þurfum hennar eigi — þá fer eigi hjá því, að vér lendum langt aftur úr þeim, sem kunna að hagnýta sér hana, og hafa sparað sér með því langa leið, sem aðrir höfðu kannað og varðað. Bók dr. Swett Mardens segir með fjöldamörgum dæmutr. úr æfi ýmsra stórnýtra manna um heim allan og í allskonar lífsstöðum, frá þvi, hvern- ig þeir brutust áfram og unnu bug á fátækt, lágra stiga uppruna og öðr- um torfærum og tálmunum. Þetta eru dæmi, sem hljóta að vek- ja hvern ungan mann, sem nokkuð er í varið, til umhugsunar um sinn hag, þegar hann stendur á kross- götum lífsins. Hinar ágætu fyrirmyndir hljóta að kveikja hjá ungum mönnum löngun og hug á því að halda ótrauðir út i bardagann, til að ná forustumarkinu í þeirri grein, sem þeir hafa valið sér að lífsstarfi og* sjá sig lagaða fyrir. Ef hendur eru svo látnar standa fram úr ermum og heilinn er vakandi, þá er engin hætta á öðru en að eitthvað verði framkvæmt, sem lifir manninn og kennir niðjun- um. Og enginn slikur maður lifir til einkis. Lesið bók Mardens, unqir menn, og sjáið til, hvort hún eigi á erindi til yðar. A. de Richeliau. Þessi orð gerir Morgunblaðið og að sínum. Fylgist með í köflunum, sem koma hér í blaðinu! Engan mann iðrar þess. Allir hafa gagn af þvi! Comes. ------------------------ ■----■ DAGBÓÍflN^D Silli rl*KAfmæli i dag, 30. nóv. Gaðm.^Graðmnnds80n,íverzlunarni. Jónas Andrésson, verzltinarm. ,5 H&flðð er i dag kl. 6,43 árd. og kl. 7,6 siðd. Sólarnpprás kl. 9,63. Sólarlag kl. 2,36. Náttúrugripasafnið opið kl l’/2—2‘/2 Þjóðmenjasafnið opið kl. 12—2 Veðrið í gær í Reykjavík, hvassviðri, snjór,l,4 stiga frost. ísafjörðnr, vestan knl 2,9 stiga frost. Akureyri, N. N. Y .kaldi, snjór, 2,2 stiga frost. Grímsstaðir norðan- kaldi, snjór, 3,0 stiga frost. Seyðisfjörð- nr, N. N. A. stinningskaldi, snjór 0,5 stiga hiti. Yestmannaeyjar, V. S. Y. hvass- viðri, snjór 1,4 stiga frost, í Þórshöfn á Færeyjnm var snðvestan-stinningskaldi, regn og 9 stiga hiti. I dag 1. sunnudagur í jólaföstu. Krists innreið í Jerúsalem, Matth. 21. Lúk. 4, 16-20 Jóh. 18. 23-37. Messur: I Fríkirkjnnni kl. 12 á hádegi síra Ólafur Óiafsson. í Þjóðkirkjunni kl. 12 á hád. síra Jóh. Þorkelson (altarisganga), kl. 5 siðd. sira Bjarni Jónsson. Gamla Bíó sýnir i kvold mynd sem heit- ir: »Þegar griman fellnr*. Leikinn hefir Urban Gad samið og er hann i alla staði ágætnr. Aðalhlntverkið leikur frn Asta-Nielsen-Gad af sinni al- kunnn snild. Er þeirri stundu ekki illa varið, er menn horfa á leik hennar, enda er hnn svo knnn hér, að fæstir mnnn þeir vera, er ekki vita hve snildárlega hún leysir hlutverk sín af hendi. Nýja Bló sýnir i kvöld mynd, sem heit- ir: »Hefnd vitfirringsins*. Er hún all- ægileg, en lýsir þó vel æstnm skap-breyt- ingnm. Leikfélag Reykjavfkur æfir nú Lénharð fógeta af miklu kappi, og mnn hann verða Pað eina, sem Morgunblaðið og Vísir eru sammála um, er.: að bezt só að verzla í Liverpool. leikinn hér nm jólin. Er ekkert til þess sparað að leikurinn geti farið sem bezt úr hendi. Leiktjöldin málar Einar Jóns- son málari. Fór hann austur nm héruð i sumar og gerði myndir af stöðvnm þeim er leikurinn gerist á, bæði á Selfossi, Hranni og i Klofa. Frá bæjarstjórnarfundi: Af vangá hefir landritari Klemens Jónsson verið talinn með tillögu Tr. G. um að færa niðnr lannin til fastra kennara við barnaskól- ann. Stúdentafélagið hélt fund i fyrrakvöld, og ræddi konungsúrsknrðinn i fánamál- in n og nm rikisráðsákvæðið. Bjarni alþm. frá Vogi hóf umræður og vitti báða úrsknrðina mjög. í umræðum tóku þátt: Guðm. Finnboga- son, Sig. Gnðmundsson magister, Jón Jens- son yfirdómari, Árni Pálsson sagnfræðing- nr, Ólafnr Björnsson ritstj. og Glsli Sveins- son cand. jnr. Vorn skoðanir manna æði skiftar um úrsknrða-ágætið. Sjálfstæðismennl’héldn fjölmennan fnnd Íjgærkveldi-B; Vesta er enn ókomin hingað. Hefir hún nú verið rúma 5 sólarhringa frá Fær- eyjnm til Vestmanneyja. Venjnleg ferð er annars nm 35 stnndir. Hætta þó engin ennþá, þvi oft hefir borið við að skip væru svo lengi & þeirri ferð nm vetrar- tima. Vesta kvað hafa tvo 30 feta vél- báta á þilfari, og er það Blæmur flntning- nr i illviðrum. Af farþegnm með skipinn vitum vér nm ekkjnfrú Zimsen ng nmboðssalaDa Guðm. Eirikss og Obenhaupt. Jón Zoega hefir lifandi navgris í búðar- gluggnm sinnm — til mikillar skemtnnar fyrir fólkíð, sem nm Bankastræti fer. Bjarni Björnsson ætlar að skemta mönn- nm aftnr i kvöld í Bárnbúð. Fleiri hund- ruð manns nrðu frá að hveria fyrra kvöld- ið, en nú geta þeir fengið að heyra til Bjarna, e f þeir kanpa aðgöngnmiða i tlma. Eftirspnrnin er mikil. Rimurnar frá Fram fundinum hafa flog- ið út. Strákarnir hafa hlanpið með þær nm allan bæ og hrópað og kveðið sumar rímnrnar svo hátt um stræti bæjarins, að heyrst hefði getað npp á Kjalarnes. Ann- ars eru rímurnar vel kveðnar og skemti- legar. Bifreiðin er ætið á ferðinni þó vont sé veðrið. Hefir hún þráfaldlega farið 3 og jafnvel 5 ferðir til Hafnarfjarðar þessa dagana og sakar hvergi snjór og isar. Bifreiðar hljóta að hafa framtíð fyrir sér hér á landi. Eggert Ólafsson, botnvörpungur, kom frá Englandi i gær. Hrepti ofviðri og stóra sjóa, svo yfir gekk skipið oft og tiðnm. Sjö daga var hann landa á milli, og þóttnst allir hann úr helju heimt hafa, er hann skreið hér inn á höfnina. Byltingamaðurinn. Saga frá uppreistinni í Póllandi. Það var áliðið dagsins og rigning mikil. Stormurinn lék sér í forug- um og visnum laufunum, sem lágu í hrúgum á þjóðveginum. Umferð um veginn var engin — nema einn vagn, og í ökumannssætinu sat ung- ur maður, vafinn ábreiðum upp undir hendur. Það var byltinga- maðurinn Simon Winrych. í þrjá sólarhringa hafði hann eigi hreyft sig úr ökumannssætinu, og bæði hann og hestarnir voru nær uppgefnir. Við og við sukku vagn- hjólin niður í forina, vagninn stöðv- aðist og Winrych hrökk upp úr þreytumókinu og einblíndi fram fyrir sig eins og í leiðslu . . . Enginn mundi hafa getað þekt hann, jafn saurugur og ræfilslegur eins og hann var þarna í ökumanns- sætinu — engum komið til hugar að þetta væri hinn léttúðugi gleði- maður, sem fyrir nokkrum árum mest var talað um í Warschau. En þegar Pólverjar hófust handa og gerðu uppreisn gegn keisaranum, þá gjörbreyttist Simon Winrych. Hann yfirgaf fylgikonur sínar, spil og næt- ursvall og gekk í lið með uppreist- armönnum. Eftir nokkrar vikur var hann þeirra bezti maður. Enginn gat betur en hann hvatt menn til gjörða og hæðst að þeim, sem dug og huglausir voru. Simon Winrych hafði tekið að sér að koma vopnum í herbúðir uppreistarmanna i Allauoa og var þeirra beðið með óþreyju, því fyr var eigi unt að láta skríða til skara. Undir heyinu á vagninum voru 100 skammbyssur, 200 byssur og mörg sverð. Enginn hafði þorað að tak- ast þetta ferðalag á hendur, nemar hann; kósakkarnir voru alstaðar á ferðinni og það þurfti eigi mikið út af að bregða, áður þeir yrðu hans varir .... Skyndilega verður Winrych var við að einhver er á eftir honum. Hann hrökk upp og sá þá sveit kosakka rétt fyrir aftan sig. »Nú er alt úti« hugsaði hann. Honum kom fyrst til hugar að reyna að flýja, en það var honum ómögulegt. Hann tók skammbyss- una úr vasanum, en sá þó undír eins, að ekkert dugði. . . . Winrych hljóp niður af ökumanns- sætinu og lét sem hann væri að gá að hjólunum, — hann vcnaði, að það mundi leiða athygli kosakk- anna burt frá honum. Kosakkarnir umkringdu vagninn; þeir voru 8 alls. Án þess að mæla eitt einasta orð, stakk einn þeirra sverði sínu i heyið og varð undir- eins var við vopnahljóðið, og um leið hjó annar kosakkanna Winrych í höfuðið og féll hann þegar til jarðar. Winrych stundi þungt. Kosakk- arnir leituðu í vösum hans. Brenni- vínsflaskan, sem í vasanum var, var tóm og urðu þeir óðir yfir því. Þeir brutu síðan flöskuna á höfði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.