Morgunblaðið - 30.11.1913, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.11.1913, Blaðsíða 8
136 MORGUNBLAÐIÐ Ef þér eruö í vandræöum með, hvað þér eigið að gefa vinum yðar í jóiagjöf, þá ætla eg að rifja upp fyrir yður nokkra nytsama hluti, svo sem: Bréfaveski, Blekþurkur, Peningabuddur, Lindarpenna, Hnífa, Mynda-albúm, Reglustikur, Bréfavogir, Póstkorta-albúm, Prentverk, Teikni-»bestik«, Skrifpappír í kössum o. s. trv. sem alt fæst í Pappírs- og riffangaverzltm V. B. K | Nytsamar jólagjafir [ y B K færið þér vinum yðar, er þér gefið þeim vefnaðarvarning frá Verzlunin Bjfirn Kristjánsson Vatidaðar vörur! Ódýr’ar vörurí J ólavörurnar koma eftir nokkra daga. Þá verður margt fallegt að fá hjá okkur. Hvergi betra að verzla í bænum, en í Vefnaðarvöruverzluninni Laugaveg 5. M. Th. Rasmus. CA Hafnarstræti, hefir með s/s a nemmeri, Sterling feng>ð feiknin öllafhvít- ~ um léreftum frá 18 aur. til 42 aura, fyrir allar húsmæður. Hvergi betra. Hvítt mönstrað Bommesie frá 50 aur., tvisttau nýjar gerðir frá 30 aur. Satin í mörgum litum. Tvibreið iakaléreft úr hör og baðmull. Söngkensla. Frú Laura Finsen, útskrifuð frá Sönglistaskólanum í Kaupmanna- höfn og lengi notið framhaldskenslu á Þýzkalandi, kennir söng. Sérstök áherzla lögð á raddmyndun og heilsusamlega öndunaraðferð (hygie'inisk Pustemetode), sem hlífir hálsinum og þroskar röddina. Vanalega heima til viðtals kl. 5—6 e. m., Laugaveg 20 B (uppi). — Það eru eklii rykský, sagði hann, heldur fimm loftför sem koma á móti okkur. Eg skil ekkert í hvað það getur verið! . . . Hafa nokkur skeyti komið ? — Nei, hr. ofursti. — Mér sýnist þau vera af franskri gerð, hélt Trautler áfram. Að minsta kosji eru það ekki Ramblers-loftför. Þau fara geysihratt yfir. — Eru þau svört? spurði stýri- maðurinn. — Mér datt það sama í hug og yður, svaraði ofurstinn. En eg get ekki betur séð, en þau séu ljósgul. Þau fljúga samhliða eins og þeim væri fylkt. En það geta ekki verið gammarnir. — Ættum við þó ekki . . . ? — Hvað eigið þér við? — að vera viðbúnir að skjóta með fallbyssunum. Það er aldrei of var- lega farið. Ofurstinn yfti öxlum. — Það væri ekki til annars en hræða farþegana. En við skulum hækka flugið um nokkur hundruð stikur. Loftförin fimm nálguðust með ægilegum hraða og jafnharðan sem »Hansa III.« hækkaði ffugið þá flugu þau einnig hærra. Þá greip Trautler símaáhaldið og kallaði menn sína til varnar. Þeir voru allir viðbúnir og á fám sek- undum var herskipið búið við bar- daga. Farþegarnir þustu út að gluggun- um til þess að sjá hvað væri á seyði. En þeim skaut heldur en ekki skelk í bringu. Gulu loftförin höfðu skift lit. Þau voru nú kolsvört. — Þetta eru svörtu qammarnir, sagði Trautler og náfölnaði. Hæga ferð, stýrimaður! Við skulum sýna þeim það að við höfum tennur. Hann gaf skipanir sínar hratt og rólega. Tundurbyssurnar voru hlaðn- ar og þeysibyssurnar sendu gömm- unum kveðju. En þeir létu sér ekki bylt við verða. Þeir reudu sér allir í stórum boga svo hátt upp í loftið að þeir voru komnir úr skotfæri innan lítillar stundar. Og nú svifu þeir yfir »Hansa III.« eins og varg- ar yfir bráð. ' Farþegar og skipverjar létu þó enga æðru á sér sjá. Þeir biðu þess sem verða vildi með stillingu' og karl- mensku. »Hansa 111« gat engri vörn komið við lengur, en á hverri stundu bjuggust menn við hinu versta. Og það versta kom — hvæsandi skeyti, sem læsti sig í skipið. Það fór hrollur um alla innanborðs. Svo liðu tvær sekúndur — og eldblossi lék um skipið. Fleyið hækkaði snögg- vast flugið en lagðist svo i hliðina. Svo heyrðist dálítill hvellur — belgur- inn hafði rifnað og eldhafið !lék um skipverja. En þó féll skipið ekki til jarðar. Það seig að vísu hægt og hægt niður, og á meðan læsti eldur- inn sig frá einum klefanum til ann- ars. Vélarnar staðnæmdust og þá stakst skipið á stafninn. Fólkið greip dauða- taki í kaðla og hvað sem hönd á festi, og nú hrapaði skipið eins og steini væri varpað, niður í Eystrasalt. Og þar lá nú »Hansa 111« eins og deyjandi hvalur og alt um kring skaut upp mönnum þeim, er Hfs höfðu komist af. Þá ráku gammarnir upp siguróp, og þutu svo áfram til norðurs. Sænsk seglskúta var skamt þaðan er slysið vildi til, og bjargaði hún mönnum þeim af »Hansa 111«, er lífs voru. En meðan hún var að bjarga, sáu skipverjar gulan fugl þjóta til norðurs á eftir gömmunum. Hann fór svo hratt, að vart mátti auga á festa. Trautler ofursti lá á þilfari skút- unnar brendur og limlestur og beið dauða síns. En þegar hann sá til ferða gula fuglsins brá fyrir kynleg- um glampa i hálfbrostnum augum hans og hann reis upp við olnboga. — Hvað var þetta ? spurði sænski skipstjórinn og benti á eftir fuglinum. — Berið þér Zeppelín greifa kveðju mína, sagði Trautler, og segið hon- um, að skipið hans hafi verið eyði- lagt af stigamönnum stjórnleysingja. En segið honum einnig, að Trautler ofursti hafi séð þann er hefnir ill- verksins, þjóta eftir stigamönnum, eins og brugðinn eldibrand, sem klýfur loftið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.