Morgunblaðið - 20.12.1913, Blaðsíða 2
2}0
MORGUNBLAÐIÐ
Baðhús bæjarins.
Þess var lítillega minst hér um
daginn, að Baðhúsinu og umsjón
þess væri í ýmsu ábótavant.
Var sú grein rituð til þess að
hlutaðeigendur gætu bætt úr mis-
brestum þeim, er á eru, og »vinur
er sá er til vamms segir*.
En nú hefir baðvarðarins önnur hönd
»nuddað< saman grein einni all
mikilli um málið og þó af lítilli skyn-
semi. Mundi það hafa verið réttara
fyrir þann, er »taka vill sönnum og
réttmætum aðfinslum með góðu
geði«, að ausa ekki svo ósleitilega
af keri vizku sinnar eða óvizku.
Dæmi þau, er tekin voru í grein
þeirri er Morgunblaðið birti, er hægt
að sanna, og ótal fleiri lík dæmi eða
* verri. Væri það baðverði til lítils
vegsauka, og þótti ekki rétt að svo
vöxnu máli að getið væri um fleira
af því tægi. En þess má baðvörð-
ur vænta, að svo fremi sem hann,
eða aðrir að hans tilhlutun, egna
menn til þess að koma með frekari
' skýringar, þá mun sá er svara þarf
geta gefið honum upplýsingar um
ýmislegt það, er betur skýri málið.
Skal nú ekki að sinni frekar farið
út í þá sálma, því gera má ráð fyrir
því, að baðvörður láti sér hér eftir
sín fyrri víti að éarnaði verða, er
hann veit það, að borgarbúum þyki
ráðsmenska hans eigi allskostar góð.
En þá er að snúa sér að hinni
hlið málsins, þeirri er bæjarstjórn
varðar. Vill hún stuðla til þess að
við getum fengið bað á sunnudögum?
Það virðist einkennilegur aulahátt-
ur, enda sjálfsagt ekki gert að vilja
bæjarstjórnar, að tala uni það í öðru
orðinu, að slíkt borgi sig ekki, en
jafnframt i hinu orðinu, að viður-
kenna það, að aðsóknin að Baðhús-
inu sé mjög mikil á laugardögum.
Eða veit hann ekki, sem baðvörður,
að þá er aðsóknin mest vegna þess,
að Baðhúsið er þá dagana opið til
kl. ellefu á kvöldin, og þau kvöld
hafa flestir tíma til að baða sig? En
þá er oft svo mikil þröng í Baðhús-
inu, af baðgestum, að margir verða
frá að hverfa, án þess að hafa feng-
ið bað.
Eða heldur hann að bætinn hafi
keypt Baðhúsið til þess að græða á
því ? Það væri að visu í samræmi
við ýmislegt annað, er hann segir,
og bezt sannar »sérþekking« hans á
Baðhúsinul En benda má öðrum á
það, að bæir og þorp erlendis verja
árlega miklu fé til þess að gjalda
kostnað þann, er þær stofnanir hafa
í för með sér.
Það er *als ekki ósennilegt, að
Baðhúsið þurfi að vera lokað sjöuda
hvern dag til þess að vatnsketillinn
sé hreinsaður o. s. frv. Væri þá
ekki nær að loka því einhvern virk-
an dag, þegat ekkert er að gera, og
hafa það svo opið á sunnudögum,
þegar allir hafa tíma til að baðast?
Reynsla fyrri ára getur ekki kom-
ið til greina. Baðhúsið var þá opið
til kl. ii árd. á sunnudögum, en
ekki lengur. Það þarf að vera opið
allan daginn, nema rétt á meðan á
guðsþjónustu stendur. Þá mundum
við bezt sjá hver árangur þess yrði.
A morgun er sunnudagur, og jól-
in eru í nánd. Allir eru önnum
kafnir næstu daga frá morgni til
kvöids, en þó þurfa allir að fá sér
bað fyrir jólin. Væri það því drengi-
lega af sér vikið og mundi þakkað
að verðleikum, ef umsjónarmaður
Baðhússins gæti komið því til leiðar
að það yrði opið á morgun.
Tígrisdýr á Frakklandi.
Félag nokkurt, sem tekur lifandi
myndir, leigði fyrir skömmu stóra
landspildu í grend við Chartres á
Frakklandi, og ætlaði að taka þar
myndir af týgrisdýraveiði. Var þang-
að flutt stórt og grimt tígrisdýr, í
lokuðu búri. Leiksviðið var afgirt
með hárri og rammgerðri girðingu.
Þegar búrið var opnað, þaut dýrið
út, þvert yfir völlinn og varpaði sér
yfir girðinguna eins léttilega og því
væri það leikur einn.
Veiðimennirnir, sem áttu að vera,
og umsjónarmennirnir, urðu fyrst í
stað svo forviða, að þeir vissu ekki
hvaðan á sig stóð veðrið.
En þegar dýrið var komið út á
víðavang, skildist þeim þó það, að
hér mundi nokkuð í húfi. Létu þeir
þá skotin dynja á eftir dýrinu og
særðu það lítið eitt.
Héraðsbúar urðu nær örvita af
hræðslu, er þeir vissu tíðindin. Voru
nú sendir margir menn á veiðar,
bæði hermenn og lögregluþjónar, en
þeim hefir ekki enn tekist það, að
leggja dýrið að velli. Síðast varð
þess vart í skógi nokkrum, norður
af Chartres.
Er þetta í þriðja skifti, nú á skömm-
um tíma, að óargadýr sleppa úr
gæzlu, hér í álfunni og vaða eins og
logi yfir akur, um bygðir bænda.
Kvittun.
Eg viðurkenni hérmeð að hafa veitt
móttöku því fé, er Harpa fékk fyr-
ir skemtun sína í gærkvöldi og á-
kvað að verja skyldi fátækum til
hjálpar.
Það skein ánægjubros á andliti rit-
stjóra Morgunblaðsins er hann af-
henti mér kr. 53,36 og þrjá útlenda
peninga.
»Eg vildi óska að mér væri oft
falið að afhenda slíkar gjafir«, sagði
hann. —
Eg tjái Hörpu og ritstjóranum
beztu þakkir.
Reykjavík 18/12 1913
Bjarni Jónsson
prestur.
1=3 DAGBÓFflN. I
Afmæli f dag.
Ólöf Jónsdóttir, nngfrú
Ársæll Árnason, bókbindari 26 ára
Þórður Sveinsson, læbnir 39 —
Jón Jakobsaon, verzlnnarm. 41 —
Háflóð er i dag kl. 10.13 árd.
og kl. 10.46 siðd.
Sólarupprás kl. 10.24 árd.
Sólarlag kl. 2.24. siðd.
Tungl, Bið. kv. k). 3.16. siðd.
Veðrið í gær Reykjavík snðvestankul,
hiti 0.5. Isafjörðnr vestanstormur, hiti 0.5
Akureyri snnnangola stinn, hiti 1.0. Grims-
stuðir suðvestankul, frost 4.0. Seyðisfjörð-
ur suðvestankaldi, hiti 3.6. Yestmannaeyjar
suðvestangola stinn, hiti 1.8.
í Þórshöfn á Færeyjum snðvestangola
stinn, hiti 4.0 v
Afgreiðsla Morgunblaðsins er Austur-
stræti 3 (hús Hannesar Þorsteinssonar)
Þangað ern menn beðnir að snúa sér með
alt það er afgreiðslu blaðsins viðvikur.
Simi 140.
Prentvilla var i grein Morgunblaðsins i
fyrradag þar sem minst var níræðisafmælis
Thoru Mehteðs. Þar stóð að hún hefði
látið af skólastjórn árið 1908, en átti að
vera 1906.
April seldi afla sinn i Englandi i gær
fyrir 493 sterlingspund.
Hólar, aukaskip Sam. félagsins, fór frá
Þórshöfn i Færeyjum siðdegis á fimtudag-
inn, áleiðis hingað.
Vesta fór frá Patreksfirði á fimtudags-
morgun. Átti að koma við i Stykkis-
hólmi, en var ókomin þangað i gær kl.
3 siðdegis.
Brynjólfur Þorláksson, organisti, ráðger-
ir að halda áleiðis til Yesturheims með
Yestu. Ætlar hann að setjast að i
Winnipeg.
Sira Bjami Jðnsson, dómkirkjuprestur,
ætlar að messa á dönsku i dómkirkjunni
1. jóladag kl. 1 ‘/,. ö-erir hann það fyrir
tilmæli margra danskra og norskra fjöl-
skylda, er búa hér i hænum, er geta eigi
málsins vegna hlýtt messu, þegar hún er
á islenzku.
í fyrrinótt hvarf Þórði geðveikralækni
Sveinssyni, bátnr er hann átti, og geymd-
ur var i lendingnnni hjá Kleppi. Yar
hans viða leitað i gær, bæði til Yiðeyjar
og nm næstu fjörur, og fanst hann hvergi.
Sá, sem veit um bátinn, ætti annaðhvort
að skila honum þegar i stað, eða þá að
öðrum kosti að gefa upplýsingar um hann,
annaðhvort á skrifstofu Morgunblaðsins,
eða i sima 99.
Alþýðufræðsla stúdentafél. Arni Pálsson
sagnfræðingur ætlar að flytja erindi um
• Fornmálin og skólinn* á sunnudaginn kl.
5 í Iðnó.
Flugeldasýningunni á Austurvelli er frest-
að til sunnudagskvölds. Þar verðnr mikið
um dýrðir og ætti enginn að setja sig úr
færi með það, að sjá sýninguna og hlusta
á hljóðfærasláttinn.
Ingólfur liggur enn í Borgarnesi. Kemst
eigi hingað fyrir óveðri, og er nu orðinn
4 dögum á eftir áætlun.
Baldur, botnvörpungur Thorsteinssons
bræðra, fór á fiskveiðar til Vestnrlands í
gær. Með skipinu tókn sér far þeir bræð-
nr Kristján og Ólafur Torfasynir frá
Flateyri.
Morgunbaðið
Það kostar að eins 65 aura
á mánuði, heimílutt, samsvar-
ar 34—35 blöðum á mánuði
(8 síður á sunnudögum), með
skemtilegu, fróðlegu og frétta-
miklu lesmáli — og myndum
betri og fleiri en nokkurt ann-
að /slenkzt blað.
Gjörist áskrifendur þegar í
dag — og lesið Morgunblað
ið um leið og þér drekkið
morgunkaffið!
tað er ómissaudÍ!
Sími 500.
Bruninn í Hafnarfirði.
Hajnarjirði i %œr.
í því máli vnr haldið próf af bæjar-
fógeta Magnúsi fónssyni í dag kl. i z
á hádegi. Voru þar yfirheyrðir Ólaf-
ur verzlunarstjóri Böðvarsson, Gísli
slökkviliðsstjóri o. fl. Þrír Reyk-
víkingar voru viðstaddir réttarhaldið,
þeir ræðismennirnir Ólafur Johnson
og Jes Zimsen, sem umboðsmenn
vátryggingarfélaganna og Fenger verzl-
unarstjóri P. J. Th. & Co., er áttu
húsið sem brann.
Við réttarhaldið varð ekkert upp-
vist um uppkomu eldsins. Búðinni
hafði verið lokað kl. 8 um kvöldið,
eins og venja var til. En kl.
fór verzlunarstj. niður á skrifstofu
sína og sat þar við skriftir eða bók-
færzlu nær hálfa stund. Fór síðan
upp á loft og sat þar til kl. io; þá
bjuggust þau hjón að ganga til
hvíldar. Aður það varð, fór Ólafur
niður aftur og lokaði dyrum, og
kvaðst hann þá ekki hafa orðið elds-
ins var.
Ólafur fór að hátta, en kona hans
gekk fram að stofudyrum til þess að
loka þeim en varð þá vör við reykj-
arsvælu. Fór hún undir eins og
sagði manni sinum, en hann brá viðr
fór í fötin aftur og gekk niður. Opn-
aði hann skrifstofudyrnar og stóð
þá alt í björtu báli. Síðan hljóp
hann út og kallaði á brunaliðið, sem,
eins og vér gátum um í skeyti voru
í gær, slökkti eldinn á i1/^ stundu.
Að öllum líkindum hefir eldurinn
komið upp á skrifstofunni, en með
hverjum hætti vita menn eigi. —
Vörur þær, er í búðinni voru,
brunnu eigi, en eitthvað höfðu þær
skemst af vatni.
Ólafur misti mikinn hluta af hús-
gögnum sínum; en þau voru óvá-
trygð, svo tjón hans er mikið og
mjög tilfinnanlegt.
lnqvar.
Norömenn og^heimssjnmgin.
Það þykir nú sýnt, að Norðmenn
geti ekki tekið þátt í heimssýning-
unni í San Francisco. Brestur þá
fé til þess, að gera sína sýningu svo
úr garði, að hún geti orðið þeim til
sóma, og þykir þeim þvi betra, að
fara hvergi. Hafa þeir menn full-
yrt, er bezt skyn bera á þá hlutir
að slik sýning mundi kosta landið
3—400 þúsund krónur.
í dag byrjar 9. vika vetrar.