Morgunblaðið - 09.10.1914, Side 1

Morgunblaðið - 09.10.1914, Side 1
Föstudag 9. okt. 1914 1. argangr 335. tölublad Ritstjórnarsími nr. 500 | Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen, |Isafoldarprentsmiðja j Afgreiðslusimi nr. 140 Biografteater Reykjavíknr. Tals. 475 Baltiska sýningin í Málmey. Foílaga dutlungar í 2 þáttum. í aðalhlutv. hinir þýzku filmsleikarar frk. H. Weise og hr. Max Mach. _______Hrekkjabragð. Hjörtur Hjartarson yfirdóms lögmaður. Bókhl.stíg io. Sími 28. Venjul. heima 12^/2—2 og 4—J1/^. Nýja verzlunin — Hverfisgötu 34 (áðnr 4 B) — Flestalt (ntast og inst) til kvenfatnaðar og barna og margt fleira. Góðar vörur! — Odýrar vörur! Kjölasaumastofa byrjaði 1. sept. Skrifstofa Eimskipaféiags Ísíands Landsbankanum (uppi). Opin kl. 5—7. Tals. 409. botnfarfi fyrir járn- og tré-skip, ver skipin bezt fyrir ormi og riði. þakpappinn er endingar- beztur og þó ódýrastur. Umboðsmaður fyrir ísland Gr. Eiríkss, Reykjavík. V erðhækkun. Sú hefir orðið reyndin á, að ráð- herra ætlar að feta 'í fótspor erlendra valdhafa og hafa eftirfit með vöru- verði kaupmanna, á þessum striðs- tíma, sem nú stendur yfir. Þetta er virðingarvert, ef það kemur ekki of seint. En það er ein verzlun, sem eg minnist ekki að hafa heyrt getið um, að þyrfti að athuga og er hún vel þess verð, það er peningaverzlun landsins — bankarnir. Þegar illa árar og fjárhagur lands- manna er i veði, reynir á þolrif bankanna. Það hafa ekki um langan aldur verið jafnörðugir tímar og nú. Bankarnir ættu því að hlaupa vel undir bagga og ekki vera frekir í ^■«sr Tlijja Bíó sýnir í kvöíd síöari /jíufann af Tltíantis eftir Gerýart Jfauptmann, skátdiö fræga. Fegursta, fjölskrúðugasta og mikilfenglegasta kvikmyndin, sem sést hefir hér á landi. Nordisk Films Co. kallar þessa mynd meist- araverk sitt, enda er hún tekin með ærnum til- kostnaðí. 2000 manns leika myndina. Mynd þessi hefir hvarvetna hlotið einróma, fádæma lof. Annað sinn f kvöld! Aðgöngumiða má panta í síma leikhússins nr. 344 frá kl. 4—8 síðdegis. Aðgangurinn kostar 50, 40 og 25 aura. Ertendar símfregnir London 7. okt. kl. 6.50 síðd. Frakknesk tilkynning frá vígstöðvunum segir mikinn fjölda þýzks riddaraliðs vera í nánd við Lille og fer riddaraliðið á undan herfylkingunum. Poincaré Frakkaforseti kom í heimsókn til aðalstöðva brezka hersins og símaði þaðan til Bretakonungs heillaóskir um hinn ágæta brezka her. Hans Hátign svaraði og gat um hinn drengilega frakk- neska her, Rennenkampf heldur áfram að veita Þjóðverjum eftirför yfir að landamærum Prússlands. Er búist við því að Þjóðverjar muni nema staðar þar. Frá Amsterdam er tiikynt að þýzkur tundurbátur, sem var á siglingu í Emsmynni, hafi skyndilega sprungið í loft upp. Tundur- báturinn hvarf. Tveir köfunarbátar sáust litlu síðar, en óvíst er um þjóðerni þeirra. Þýzkt beitiskip flýtti sér til hjálpar og bjargaði skipshöfn tundurbátsins. Reuter. kröfum sínum. Hvað gera svo bankarnir? Þeir hækka vextina að miklum mun og gera mönnum þannig erfið- ara fyrir að lifa, en áður. Þetta er þeirra hjálp, við þeim erfiðlelkum, sem menn eiga við að striða nú. Er þetta nauðsynlegt fyrir bank- ana? Það er órannsakað mál og eg er ekki nægilega bankafróður til að geta svarað því. Vextir í Englandsbanka eru nú að eins 5 % og á þó England i stríði. í Landmannsbankanum 6 °/0, en í bönkunum hér 7 °/0. Það er eðlilegt, ef bankar vorir þurfa að fá lán hjá erlendum bönk- um, að þeir þurfi að fá dálítið hærri rentu, en þeir bankar taka, sem þeir lána hjá. En nú efast eg um að þessu sé svo varið. Það var að minsta kosti til skams tíma sagt að Landsbankinn ætti stórfé inni hjá Landmannsbankanum i Kaupmanna- höfn. Svo vaxta hækkun hvað hann snertir þyrfti ekki að eiga sér stað. Um íslandsbanka er máske öðru máli að gegna, því hann er »privat«- Hrsþingið. * I dag, föstudaginn 9. okt. fara hljómleikar fram í samkomusal Hjálpræðishersins. Kl. 8y2. Komið! eign svo landsstjórnin hefir minna yfir honum að segja. Þó hefir hann ýms hlunnindi frá alþingi, svo það sýnist ekki óeðlilegt að hann sýndi þess einhvern vott, þegar landið og lahdsmenn eiga við erfiðleika að striða eins og nú á sér stað. Heyrst hefir að uppástunga um vaxtahækkun hafi komið frá íslands- banka, og Landsbankinn undir eins verið henni fylgjandi. »Collegialitet« ? eða hvað? Eg vona að landsstjórnin athugi nú eitthvað bankana um leið og kaupmennina, því ekki ríður minna á því, að peningaverzlun landsins sé í lagi, en önnur verzlun. Þórður. Svar við þessa grein bíður næsta blaðs vegna þrengsla. Ritst. -------------------- Jafntefli. Sáttaumleituii, Evening Wold i New-York segir frá þvi 17. f. m. að Wilson forseti hafi leitað hófanna við Þýzkalands keisara um það, með hverjum kjör- um hann vildi semja frið. Segist blaðið hafa hlerað hvert svar keisar- inn hafi gefið. Var það á þessa leið: 1. Þýzkaland mundi gjarna taka tillit til sáttamilligöngu, en getur það ekki vegna þess, hvernig Eng- land hegðar sér. 2. Þýzkaland mun ekki hætta að berjast meðan England segir að bar- ist skuli þangað til yfir lýkur. 3. Þýzkaland getur ekki svarað neinum umleitunum um frið fyrr en bandamenn eru orðnir sáttfúsari og tilhliðrunarsamari. 4. Ef á að berjast þar til yfir lýkur, eins og England segir dag- lega, þá halda Þjóðverjar áfram að berjast. Ef bandamenn ætlaaðkoma Þýzkalandi á kné, og hluta það sundur, þá munum vér berjast með- an nokkur stendur uppi. 5. Ef menn vænta þess að þjóð- irnar leggi niður vopnin, þá verður því sízt komið á með því að mola þýzkaland. Vér mundum þá taka til sömu ráða og á dögum Napo- leons og vopna sérhvern mann, barn, kött og hund til hefnda. 6. Þýzkaland er fúst til að telja ófriðinn »jafntefli«. Slík lok yrðu affarasælust fyrir friðinn í Evrópu framvegis. Ef annarhvor fær alger- an sigur, mun ekkert jafnvægi kom- ast á Evrópu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.