Morgunblaðið - 04.02.1915, Side 1

Morgunblaðið - 04.02.1915, Side 1
 4. fe*>r. 1915 HORfiDNBLADIO 2. aipnsrr 92. tfllublað Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. Isafoldarprentsmið j a Afgreiðslusími nr. 499 Biíll Reykjavlknr |RJn -- _| Biograph-Theater |OIU Tals. 475. StriÖ8myndir frá Póllandi og Antwerpen. Harðýðgi lifsins leikrit í 2 þáttum. Emma Wiehe, £. Helsengren, Seemann, Chr. Schwanenfl., Tenedamóðir Robinets. Skrifstofa Eimskipafélags Islands er flutt Hafnarstræti nr. ÍO, uppi \áður skrifstofa Edinborgar). SiF. U.M. A.-D. fundur í kvöld kl. 8r/2. ^jjgfds Sigurðsson Grænlandsfari: ^yrirlestur með skuggamyndum. Allir ungir menn velkomnir. Komið með muni á hlutaveltuna. Hjálpræðisherinn. Stór vetrarhátíð h 4-, 5. og 6. febrdar hvert kvöld kl. 8. Inngangur io aurar. Biðjið um: fflazawattee Og Lipton’s heimsfræga the í pökkum og flósum. Lipton’s sýróp, kjöt- extract, pickles og annað súr- rneti, fisk- og kjötsósur alls- konar, niðursoðið kjöt og tung- Ur, fæst hjá kaupmönnum um alt land. ^boðsm. fyrir ísland < G. Eirikss, Reykjavik. % iandstjon á Irlandi- þ Eandstjóraskifti verða áírlandi 17. Vig ‘ Eord Wimborne heitir sá er ^tebur í stag Aberdeen jarls. %tti°r^ Witnborne er af Churchill Hann ,.mönnnm 'r'ál%nd, fylgdi fyrst aftur- að málum en gekk í a flokkinn 1906. Erl. símfregnir. Opinber tilkynning frá brezkn utanríkisstjórninni í London. (Eftirprentun bönnuð). London 3. febr. ki 2.10 síðd. Öpinber tilkynning, sem flota- mála ráðherra Frakka hefir sent út, segir frá því, að þýzkur kafbátur hafi skotið sprengikúlu á brezka spítalaskipið »Asturias« fyrir norð- vestan Havre, siðdegis á þriðjudag- inn. Kúlan hæfði ekki og skipið komst undan. — — Þetta atferli Þjóðverja er beint brot á alþjóða-samþyktum Haagfund- fundarins. Ur Landsveit Þaðan er oss ritað 24. jan. á þessa leið: Tíð síðan um nýjár mjög góð, veður spök, hagar nógir og lítið gefið útifénaði; stendur svo enn. I dag blíðviðris hláka og nær alauð jörð eftir. En fram að nýjári var veturinn hér harður, sérílagi jóla- fastan. Gengu þá upp mikil hey. Betra aftur á Rangárvöllum, þar sáralíttð gefið til þessa. Heilsufar alment bærilegt hér i sveit . . . Hálft fæöi nóg. Þýzkir prófessorar vinna nú öll- um árum að því, að ráða þá gátu hvernig matbirgðirnar eigi að endast í landinu fram til næstu uppskeru. Eftir því sem þeír hafa komist næst, hafa Þjóðverjar árið sem leið ekki flutt inn nema einn þriðjung af þeim matvörum, sem þeir þurfa að kaupa í útlöndum. Ef Þýzkaland getur ekki flutt inn neitt á þessu ári, verður landið uppiskroppa, eftir þrjá ársfjórðunga. En prófessorarnir hafa komist að mjög dýrmætri niðurstöðu. Þeir segja að Þjóðverjar eyði 59 °/0 meiri fæðu, en þeir nauðsynlega þurfi, og þeir vilja þvi að hverjum manni sé skamtað hæfilega mikið til lífsviður- væris. A þann hátt verða ekki ein- ungis nægileg matvæli til i landinu fram að næstu uppskeru, heldur verður drjúgur afgangur. (Úr ensku blaði). Saltnámur unnar. Rússarnir i Wieliczka. Bær neðanjarðar. Á leið sinni til Krakau hafa Rúss- ar náð á sitt vald einni frægustu borginni í Norðurálfu. Þeir hafa unnið Wieliczka, með hinum alkunnu neðanjarðarsaltnámum. Frá sjónarmiði hernaðarins er þetta þýðingarmikið fyrir Rússa. Wieliczka liggur aðeins fáa kílómetra fyrir sunnan Krakau við járnbrautina og stendur á 242ja metra háum hálsi. Er hægðarleikur að halda þaðan uppi skothríð á Krakau. I bænum Wiel- iczka eru aðeins um 10,000 ibúar, og eru nálega allir Pólverjar; eru það nálega eingöngu saltnámurnar sem gefa bænum þýðingu. Þar eru jafnaðarlega 1000 manns að starfi, og árlega eru þar losaðar 100,000 smálestir af salti. Þau feiknin öll af salti sem hér eru grafin upp, eru notaðar til fæðu, til iðnaðar og til áburðar. Hið einkennilega við þess- ar saltnámur er það, að þær mynda heilan bæ neðanjarðar. Gegnum átta niðurgöngugíga liggur leiðin ofan í 7 sali hvelfda; milli þeirra eru ótal gangar og mynda þannig fullkomið völundarhús. Eru gangarnir til sam- ans 100 kílómetrar á lengd. I þessu völundarhúsi eru hér og hvar smá stöðuvötn, sem farið er yfir á bátum, og hvelfingar 30 metra háar, alt skreytt súlum, myndastytt- um og ljósberum, sem alt er höggið út í saltsteininn. Frægastar eru 2 kapellur, þar sem ölturin, bekkirnir, helgimyndirnar og minningarmörkin, alt er úthöggvið í saltsteininn. Salt- námurnar í Wieliczka hafa um lang- an tíma þótt eitt hið allra einkenni- legasta er fyrir augun ber í Norður- álfu. Nú hafa Rússar náð valdi yfir þeim. Hvort þeir fá að halda þeim, leiða leikslokin í ljós. Ráðuneytisskitti í Portugal. Ráðuneytið í Portugal sagði af sér 23. f. m. Áður höfðu komið fréttir um það, að konungssinnar höfðu hafið uppreisn og stjórnin þá sett f varðhald eitthvað um 70 liðs- foringja. Þessar uppreisnarfréttir munu ekki hafa verið á rökum bygð- ar, því uppreisnin virðist eingöngu hafa verið í þvi fólgin, að liðsfor- ingjar þessir ætluðu að ganga á fund Arriaga forseta til að mótmæla þvi, að nokkurir liðsforingjar yrðu fluttir frá einni herdeild til annarar. En hermálaráðherrann hafði gefið út skipun í þá átt. Þegar fregnin um það, að foringjar þessir hefðu verið hneftir í varðhald, barst út meðal herliðsins, gengu vel flestir liðsfor- ingjar í hernum á fund hermálaráð- herrans og afhentu honum sverð sitt og sögðust telja sig fanga. Þegar svo var komið sá ráðuneyt- ið sér ekki annað fært, en að segja af sér, þvi það treysti sér ekki til að stjórna höfuðlausum her. Arriaga forseti bað Castro hers- höfðingja að mynda nýtt ráðuneyti, og hefir honum tekist það. Fyrsta verk nans, þegar hann kom til valda, var það að leysa þá foringjana úr varðhaldi og afhenda hinum aftur sverð sin. Hann hefir sömuleiðis leyft ýmsum blöðum að koma út á ný, er fyrri stjórn hafði gerð upp- tæk. .Sultan af Egiftalandi/ Þegar Tyrkir höfðu sagt Rússum stríð á hendnr, og þar af leiðandi bandamönnum þeirra, Frökkum og Bretum, var auðvitað mál, að þeir, Tyrkir, fyrst og fremst mundu reyna að spilla yfirráðum Breta á Egifta- landi. Þar búa trúbræður Tyrkja, og hinsvegar eru margir þar í landi, sem gjarnan vildu losna undan yfir- ráðum Breta. En Bretar vora við öllu búnir. Þeirra fyrsta verk var að setja Kedivann af og velja annan mann til þess að stjórna landinu. Kedivinn var Tyrkjahollur og því ekki treystandi á hann. Maður sá, sem Bretar hafa sk pað æðsta mann landsins, heitir Hussein Kemal Pasha. Flytjum vér hér mynd af honum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.