Morgunblaðið - 28.04.1915, Side 1
Miðvikud.
28.
apríl 1915
H0R6DNBLAÐIB
2. árgangr
173.
tðlublað
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
ísafoldarprentsmiðja
I
Afgreiðslusimi nr. 499
Bio
Reykjavlkur |Bio
Biograph-Theater
Tale. 475.
Svörtu 13.
Afbragðs leynilögreglusjónleik-
ur í 3 þáttum um hin leyndar-
dómstullu afrek lögregluspæjar-
ans, Brown, og ekkju miljóna-
mæringsins, Ellen Sandow', leik-
inn af hinum frægu leikurum
»Vitaskop«s i Berlín.
Jafn spennandi og skemtileg
mynd hefir ekki sést lengi.
sTia
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihús
í höfuðstaðnum.
— Bezta dag- og kvöldkaffé. —
Hljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—Ii1/^
Conditori & Café
S k j a I d b r e i ð
fegursta kaffihús bæjarins.
Samkomustaður allra bœjarvianna.
Hljómleikar á virkum dögum kl.
9—11V2, sunnudögum kl. 5—6.
A.V. Mikið úrval aj á%œtis kökum.
Ludvig Bruun.
K. F. U. M,
U-D fundur í kvöld kl. 8x/3.
Allir piltar 14—17 ára velk.
t F. 0.1
Smámeyjadeildiu:
Fundur í kvöld kl. 6.
Allar smámeyjar velkomnar.
Notið eingöngu:
t »Nigrm« og »Fuchs«
V iOnra ágætu skósvertu og
skóáburð í öllum
litum,
Bauer feitisvertu,
Pascha fægiefni,
Kosak ofnsvertu,
Sápuduftið
»Goldperle«, »Schneekönig«
»A« »B« og »BS«.
I heildsölu fyrir kaupmenn, hjá
G. Eiríkss, Reykjavik.
Erl. simfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Khöfn, 26. apríl.
Þjóðverjar gera æðisgengið áhlaup
á stöðvar bandamanna hjá Ypres.
Þýzki flotinn kvað vera kominn
út í Norðursjó.
Grundvallarlögin voru samþykt í
fyrradag.
Erl. simfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezku utanríkisstjórninni
í London.
Frá Hellusundi.
Bandamenn setja lið
á land.
London 26. apríl.
Hermálaráðaneytið og flotamála-
stjórnin tilkynna:
í gær var áhlaup hafið á ný á
Hellusundsvígin af flota og her. Um
nóttina var farið að koma liði á land,
undir vernd flotans, á ýmsum stöð-
um á Gallipoli-skaga. Þrátt fyrir
ramma mótspyrnu af óvinanna hálfu,
sem lágu í skotgröfum með gadda-
vírsgirðingum fyrir framan, hepnað-
ist landgangan ágætlega. Fyrir kvöld
hafði mikið lið komið sér fyrir á
ströndinni. Enn er verið að setja
lið á land og jafnframt er sótt fram.
Stórorustur í Frakklandi.
London 26. apríl.
Svolútandi tilkynning kemur fri
Sir John French:
Áköf orusta geisar enn norðaust-
an við Ypres, en engin markverð
breyting héfir á orðið.
Vinstri herarmur vor varð að koma
línu sinni aftur í fyrra horf til þess
að geta staðist breyttar ástæður, sem
aðallega orsökuðust af því að Frakk-
ar voru neyddir til að láta undan
siga. Urðum vér nú að snúa móti
norðri og teygja herarminn vestur
á bóginn framhjá St. Julier og veikti
þetta herlínu vora um skeið.
Kanadaliðið veitti óvinunum
drengilegt viðnám þótt við mikinn
liðsmun væri að etja, en óvinirnir
náðu þó St. Julier.
Grimmileg áhlaup hafa verið gerð
á hersveitir vorar við Ypres, en þær
hafa veitt örðugt viðnám i allri or-
ustunni. Hafa þær þó staðið þann-
ig að vigi, að til þess þurfti hreysti
og óbiiandi hugrekki.
Þjóðverjar gerðu einnig áhlaup í
gær austan Ypres. Notuðn þeir þar
eitraðar gastegundir, en þrátt fyrir
það var áhlaupum þeirra hrundið og
þýzkir foringjar og hermenn teknir
höndum. Síðustu þrjá dagana hafa
óvinirnir beðið feikna manntjón en
vér höfum einnig mist margt manna.
Það er ósatt, sem loftskeytafregn-
ir Þjóðverja hafa hermt, að þeir hafi
náð 4 stórum fallbyssum af Bretum.
Einn af flugmönnum vorum kast-
aði sprengikúlum á járnbrautarstöð-
ina Courtrait i dag, þar sem tein-
arnir mætast. Hann varð sár en
flutti þó flugvélina óskemda aftur
til stöðva vorra.
London 27. apríl.
Eftirfarandi skýrsla hefir komið
frá yfirhershöfðingjanum yfir liði
Breta í Frakklandi:
I gær var öllum áhlaupum Þjóð-
verja norðaustan við Ypres hrundið.
Síðari hluta dagsins hóf lið vort sókn
og sótti frarn skamt frá St. Juline
og þar fyrir vestan.
Lið Frakka barðist við hlið vora
í vinstra herarmi og þar fyrir norð-
an tóku þeir aftur Het Sas. í or-
ustunni í gær neytti stórskotalið
vort hvers tækifæris til þess að vinna
óvinunum mikið manntjón.
Auk þess að krossbrautin hjá Cour-
trai var ónýtt, vörpuðu flugmenn
vorir i gær sprengikúlum á kross-
brautir hjá þessum stöðum: Tur-
coing, Roubaix Ingelmunster, Staden,
Langemarcto, Shielt og Roulers, og
.varð vel ágengt.
Enn um brunann
mikla.
í vestra Edinborgar-húsinu í Hafn-
arstræti var vefnaðarvöruverzlun niðri
og brann þar alt sem í búðinni var.
Á efri hæð bússins hafði Eimskipa-
félag íslands, brezki ræðismaðurinn
og Kirk verkfræðingur skrifstofur.
Hjá Eimskipaféiaginu varð, svo sem
getið var um í gær, engu bjargað.
Svo mikill hafði eldurinn verið, að
alt sem var í peningaskápnum, er
átti að vera með öllu eldtraustur,
var bruninn til ösku.
Á skrifstofu hafnargerðarinnar
brann og töluvert af því sem þar
var inni.
Viðtal við Uórarinn Krist-
jánsson, verkfræðing.
Hann er ráðinn verkfræðingur hjá
Kirk yfirverkfræðing hafnargerðar-
innar. Vér hittum hann að máli í
gær.
Eg var vakinn skömmu eftir að
eldsins varð vart. Hljóp* eg þegar
N Y J A BI O
Spæjarinn.
Sjónleikur í 3 þáttum, leikinn
af þýzkum leikurum. Aðalhlut-
verkið leikur hin stórfræga og
fagra leikkona
Susanne Grandais.
Þetta er ein af allra beztu
njósnarmyndum sem sést hafa.
t
Jarðarför Eyólfs Ófeigssonar trésm.
fer fram fimtudaginn 29. þ. m. frá
Hverfisgotu 60 a. Huskveðjan byrjar
kl. II1/. f. h.
Þeir sem kynnu að hafa í hyggju að
leggja blómsveiga á kistu hins látna,
eru beðnir að gefa heldur sem því
svarar til heilsuhælisins.
Aðstandendur hins látna.
u m. r. n.
Fundur í kvöld kl. 9 í Bárunni.
Björn Jakobsson flytur erindi, fjórð-
ungsþingsu'ndirbúningur, stórmál frá
stjórninni, Skinfaxi og margt fleira
markvert til meðferðar.
Munið að koma á réttum tíma!
niður á skrifstofu vora í Hafnar-
stræti til þess að reyna að bjarga.
Náði eg þar töluverðu af bankaseðl-
um og fór með þá heim. Síðan
hljóp eg til heimilis Kirks verkfræð-
ings og þaðan fórum við báðir til
skrifstofunnar aftur. Til allrar ham-
ingju náðum við töluverðu af plögg-
.um hafnargerðarinnar: Sjóðbókinni,
miklu af teikningum og töluverðu
af peningum. Eftir því sem við
höfum komist næst brann mjög lítið
af peningum hjá okkur. En mikið
var af bókum á skrifstofunni, sem
Kirk átti sjálfur, og engu varð bjarg-
að af þeirn. Hann biður þvi til-
finnanlegt tjón, en hafnargerðin mun
að likindum ekki tefjast mikið við
brunann.
Þá er brezka ræðismannsskrifstof-
an. Þaðan varð engu bjargað. Verð-
mæt skjöl voru þar á skrifstofunni,
t. d. alt skjalasafn ræðismannsins.
Hann átti þar sjálfur töluvert af bók-
um, þ. á. m. ágæta útgáfu af Guð-
brandarbibliu — frábærilega sjald-
gæfa bók.
Viðtal við G. Gunnarsson.
Vér hittum Gunnar Gunnarsson
standandi á rústum verzlunarhúss
sins í Hafnarstræti. Það brann alt.
Ymsu úr búðinni varð bjargað.
Eg hafði ibúð á efri hæðum húss-
ins og þaðan var einnig miklu bjarg-