Morgunblaðið - 02.06.1915, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
%
Verkfall
ir menn, sem þegar hafa hætt vinnu —
hvort sem þeir nú verða fleiri síðar
eða ekki.
við hafnargerð Reykjavíkur.
Það hefir stöku sinnum brytt á
töluverðri óánægju meðal verka-
manna, sem að hafnargerðinni vinna.
Hafa þeir ýmist verið óánægðir með
kaupið eða vinnutímann, en jafnan
komið einhverjum af sinum kröfum
fram, er þeir hafa farið þess á leit.
— Þegar kaupverðið var síðast
ákveðið voru gerðir skriflegir samn-
ingar milli Kirk yfirverkfræðings og
forstjóra verkamannanna. Þeir samn-
ingar voru undirskrifaðir á skrifstofu
borgarstjóra og það tekið fram í
þeim, að ákvæðum samningsins yrði
ekki breytt fyr en i. október 1916 —
að samningurinn væri bindandi til
þess tima.
— Nii í gær lögðu ýmsir verka-
menn niður vinnuna í hafnargerð-
inni og kröfðust hærra kaups.
Viðtal við Kirk yfirverkfræðing.
Til þess að fá nákvæmar upplýs-
ingar um það, sem komið hefir fyr-
ir, snerum vér oss til Kirk yfir-
verkfræðíngs og báðum hann segja
frá. Hann sagði söguna á þessa leið:
í gær (mánudag) kl. 2 kom eg
inn á skrifstofu mína. Bréf lá á borð-
inu — ófrímerkt. — Var, það all-
stórt skjal, undirritað af 40 verka-
mönnum. Fara þeir fram á 5 aura
kauphækkun á klukkustund, þareð
þeir eigi geti lifað á því kaupi, sem
þeir nii hafi. Þá biðja þeir um fulln-
aðarsvar frá mér, um hvort eg gangi
að kröfunni eða eigi fyrir priðjudaq.
Eg gat vitanlega ekki talað við alla
verkamennina þá um kvöldið, en
eg átti viðtal við alla flokksstjórana
og tjáði þeim, að eg að svostöddu
gæti ekki orðið við kröfum verka-
mannanna. Eg bjóst til þess að
skrifa Monberg ítarlega um málefnið
og fá aftur svar frá honum sím-
leiðis. Eg vildi ekki sjálfur fyrirvara-
laust taka á mig ábyrgðina fyrir dt-
gjaldahækkuninni, sem nemur um
50 þiisund kr. Eg bað flokksstjórana
að tala við verkamennina og biðja
þá að halda áfram vinnu, unz eg
hefði fengið símsvar frá Monberg —
flestir mannanna hafa og unnið í
dag, sem endranær. |
Hafnargerðin hefir verið eina fyrir-
tækið, sem hefir getað veitt mönn-
um atvinnu á vetrum. Vér höfum
tapað fé á því að vinna á hverjum
degi í vetur. Mér finst það ósann-
gjarnt að heimta hærra kaup nú, þó
mikið sé um vinnu í bænum, þó eg
hinsvegar viti að allar nauðsynjar
hafi hækkað mjög í verði. Eg vildi
gjarna geta gefið verkamönnunum
hærra kaup og að þeim gæti liðið
vel. En að svostöddu er mér það
eigi unt. Eg réði mönnunum til að
vinna einni stundu lengur á kvöldin;
þá mundu þeir fá meiri peninga.
Kaup þeirra er nú 35 aurar á
klukkustund á daginn, 40 aurar í
eftirvinnu og 50 aurar fyrir sunnu-
dagavinnu. >
— Það eru annars ekki nema nokkr-
D A 0 B Ö R IN.
Afmæli í dag:
Sofía Jónatansdóttir húsfrú.
T. Frederiksen kaupmaöur.
Bergljót Lárusdóttir jungfrú,
Sólarupprás kl. 2.28 f. h.
Sólarlag — 10.24 síðd.
Háflóð í kvöld kl. 8.25
og í fyrramálið — 8.47
Póstar í dag:
Eftir áætlun á Pollux að fara héðan
austur um land ril Noregs í dag. Skip-
ið er tafið vegna íss norðanlands.
Veðrið í gær:
Vm. logn, hiti 6.7.
Rv. s. andvari, hiti 3.3.
íf. logn, frost 2.0.
Ak. s.s.a. andvari, frost 1.5.
Sf. logn, frost 1.1.
Þh. F. n. kaldi, hiti 4.5.
Köld ec tíðin víða um land núna.
Frost víðast hvar í fyrrinótt og hélaði
t. d. alla glugga í Hraungerði. Snjóað
hefir á fjöll hér sunnanlands, en nyrðra
er alhvítt ofan í sjó.
Prestastefnan hefst hér 24. þessa
mánaðar og verður hún haldin í fyrir-
lestrasal heimspekisdeildar háskólans.
Eggert Pálsson prestur á Breiða-
bólsstað í Fljótshlíð á að prédika við
setning alþingis í sumar.
í gær voru gefin saman Ólafur Jóns-
son stúd. med. og ungfrú Lára J. Lár-
usdóttir (prests Jóhannessonar).
EgiII Jacobsen hefir opnað vefnað-
arvöruverzlun sína aftur á gamla staðn-
um, Ingólfshvoli.
Nýtrúlofuð eru Hjalti Gunnarsson
verzlm. og ungfrú Ásta Ásgeirsdóttir.
Gnllfoss fer héðan í dag snemma.
Vélbátnr fór héðan í gær til ísa-
fjarðar. Er hann nýkominn hingað til
lands frá Bergcn og á að stunda fisk-
veiðar frá ísafirði.
Breytingar miklar er verið að gera
í gömlu pósthúsbyggingunni. Við þá
rýmkun sem verður í húsinu, er póst-
húsið hefir að rniklu leyti flutt í nýju
bygginguna, fær landsíminn töluvert
meira rúm. Er ráðgert að afhending
símskeyta verði niðri í húsinu norðan-
megin við dyrnar, og lyftivél verði
þar í herberginu, sem skeytin flytji
upp á sendisalinn á fyrsta lofti. Ýms-
ar aðrar breytingar verða og gerðar
m. a. flytur landsímastjórinn skrif-
stofu sína í sérstakt herbergi á efri
hæð. Trósmiðir eru önnum kafnir við
breytingar þessar nú sem stendur.
Karjsnihe.
New York Times hermir það
þann 17. maí, eftir fréttum, sem
komið hafa frá Norfolk, að Karlsrnhe
sé þar skamt undan landi, þrotið að
vistum og kolum og ætli nú að gera
alvöru úr því að láta kyrsetja sig.
Enn fremur segir það hafa komið
fregnir af því að Karlsruhe hefði
komið til Azoreyja eigi alls fyrir
löngu og ef til vill farið eitthvað
norðar. Þetta eru þó sennilega
flugufregnir einar, því það má telja
það víst að skipið hafi farist í vetur.
Jafnframt flytur Times fréttir af
því frá Vesturindíum að Karlsruhe
hafi strandað þar í vetur og skips-
höfnin sprengt það í loft upp.
-------mSXrOm-----
Samsæri í Miklagarði.
Litlu fyrir miðjan maímánuð komst
upp öflugt samsæri i Miklagarði.
Var það ætlun samsærismanna að
myrða tyrknesku ráðherrana og þýzku
liðsforingjana, sökkva Goeben, sem
nú heitir Yawuz Sultan Selim, og
greiða Frökkum og Bretum leið
gegnum Hellusund.
Margir Grikkir voru í samsæri
þessu og pað er álitið að öll ráðin
hafi verið lögð á suður í Aþenuborg.
Höfðu samsærismenn ærnu fé yfir
að ráða og átti að greiða 800 pund
sterling að verðlaunum fyrir hvern
myrtan ráherra.
Þetta komst þannig upp, að einn
af samsærismönnum sagði frá því á
síðustu stundu.
Katwyk.
Þjóðverjar viðurkenna að þeir hafi sðkt
skipinu og lofa að borga skaðabætur.
»Handelsblaad« í Amsterdam skýr-
ir frá því að þýzka stjórnin hafi
gert hollenzku stjórninni boð um
það, að eftir að hafa borið saman
frásagnir skipverja á »K--twyk« og
frásagnir eins kafbátsforingja síns,
hafi hún komist að þeirri niðurstöðu
að það hafi verið þýzkur kafbátur,
sem sökti skipinu. Kafbáturinn hélt
að skipi væri brezkt, því það hafði
engin ljós hjá hlutleysismerkjum
sinum, þótt dimt værí af nótt.
Þýzka stjórnin harmar það að svona
slysalega skyldi takast til og lofar
að greiða fullar skaðabætur.
300,000 sjálfboðaliðar.
Lord Kitchener hélt ræðu i efri
málstofunni 19. þ. m. Kvaðst hann
hafa lofað þinginu að segja lands-
mönnum til þegar stjórnin þyrfti á
fleiri sjálfboðaliðum að halda. Nú
væri að því komið. Sagðist hann
þurfa 300,000 manna til að mynda
nýja heri. Þeir sem stunduðu her-
gagna- og skotfæra-gerð ættu þó
ekki að fara frá vinnu sinni. Áskor-
un þessari væri aðallega beint til
þeirra manna, sem ekki hefðu gert
skyldu sína i þessum ófriði.
Hann fór mjög hörðum orðum
um Þjóðverja fyrir að hafa notað
kæfandi gastegundir og kvað Frakka
og Breta mundu neyðast til að taka
npp sama sið, því að öðrum kosti
ættu herirnir harla ójafnan leik.
--------»>«-3»--------
Siglingar um Atlanzhaf.
Gufuskipið Transylvania, eign
Cunard-félagsins, sem átti Lusitaniu,
lagði af stað frá New York daginn
eftir að Lusitaniu var sökt. 879
manns tóku sér fari með skipinu
en tólf hættu við ferðina. Skipið
kom heilu og höldnu til Liverpool
á áætlunardegi. Skipverjar urðu varir
við kafbát fyrir sunnan írlaud og var
þá skyndilega breytt um stefnu;
þóttust sumir hafa séð gára eftir
tundurskeyti aftan við skipið. Ann-
að gerðist ekki sögulegt á leiðinni.
Mauritiana átti að leggja }fir hafið
skömmu á eítir að Lusitaniu var
sökt, en hætti við ferðina sakir þess
að of fáir farþegar höfðu gefið sig
fram.
Fyrirheit Búlgara.
Halil Bey, þingforseti Tyrkja, fór
til Sofíu, höfuðborgar Búlgaríu eigi
alls fyrir löngu, til þess að reyna að
fá Búlgaríu til liðs við Tyrki. Hét
hann þeim því að þeir skyldu fá
Adrianopel og alla Þrakíu, alt að
línu sem dregin yrði milli Enos og
Midia (milli Ægea-hafs og Svarta-
hafs).
Búlgarar gáfu þau svör, að banda-
menn hefðu heitið sér öllu þessu
landi ef þeir sætu hlutlausir hjá í
ófriðnum og kváðust þeir heldur
mundu velja þann kostinn.
Skip strandar.
í gærmorgun snemma strandaði
seglskipið »Dagny«, frá Svendborg
I Danmörku, í Grindavlk. Skipið
sigldi á klett skamt frá landi. Veð-
ur var bjart, en töluverður stormur.
Það var hlaðið cementi til Johnson
& Kaaber og kvað mest af þvi vera
skemt, þar eð gat kom á skipið
svo sjór féll inn. Allir skipverjar'
komust af.
Björgunarskipið »Geir« var kvatt
til hjálpar og fór það suður til-
Grindavíkur í gærmorgun kl. 10.