Morgunblaðið - 24.10.1915, Blaðsíða 3
24. okt. 351. tbl.
• MORGUNBLAÐIÐ
Saxar og íslendingar.
I.
Saxar voru þeir af Þjóðverjum
^em til forna höfðu einna mest
hreystiorð á sér. Konungur þeirra
var, segir Snorri, Vitrgils, eða Gils
hinn vitri, sonarsonur Óðins. Son
Vitrgils var Vitta, og er það nóguskrít-
ið að konungsættin sem nii er í Sax-
landi skuli heita Vittnar eða Vittungar
(die Wittener). Saxar voru mjög komn-
ir frá Óðni, enda héldu þeir í lengsta
lagi trygð við hin fornu goð, og tóku
ekki hina svonefndu kristni fyr en
þeir voru mjög til neyddir.
Söxum virðist hafa farið mikið
aftur síðan Karl mikli braut þá til
kristni með svo miklum erfiðismun-
um. Meðalhæð Saxa' kvað vera
minni en annara þjóðflokka í þýzka
■hernum. Minnir þetta á íslendinga,
sem líka hefir hrakað mjög, síðan
meðalhæð á íslandi var meiri en
annarstaðar á Norðurlöndum, eins og
mjög likJegt er að verið hafi á 10.
öld. Það mátti heita einvalalið sem
hingað fór og til Grænlands. Græn-
land fór alveg með hið hraustasta kyn
á jörðinni, en á íslandi tórðum vér
af, jafuvel 17. og 18. öld, og erum
svolítið að lýsast og lengjast aftur,
þó að roikið skorti á að íslendingar
séunúhæstu menn á Norðurlöndum.
(Það þarf að skrifa íslendinga sögu
þannig, að það skiljist hvernig á því
stendur).
II.
Saxar hafa mjög haft það til sins
ágætis, sumir, sem drýgra hefir reynst
til þjóðheilla heldur en hreysti í bar-
dögum. Saxi var spekingurinn Leib-
niz, einhver mesti vitmaðurinn sem
sögur fara af með Þjóðverjum. Og
saxneskur er Albrecht Penck, einn af
mestu náttúrufræðingum sem nú eru
uppi. Penck er eirinig framúrskar-
andi málsnillingur, einn af þeim
mönnum sem bezt hafa ritað þýzka
tungu. Einhvern tíma sá eg i danska
blaðinu »Politiken« að Penck væri
Austurríkismaður, en það er misskiln-
ingur sem mun vera sprottinn af því
að hann var prófessor í Vínarborg
um tíma.
III.
Leibniz hafði stórmikla trú á því
hvað vísindin gætu orðið þjóðunum
notadrjúg, og gekk manna bezt fram
í að stofna visindafélög. Timinn
hefir sýnt að hann hafði rétt fyrir
sér. Engin auðsuppspretta hefir orð-
ið eins drjúg einsog aukning hins
vísindalega hugsunarháttar. Fólkið
er fleira svo tugum miljóna skiftir,
og auður þjóðanna hefir vaxið um
hundrað þúsund miljónir kr. og meira,
fyrir það að menn lærðu að athuga
betur en áður, og rekja betur saman
orsakir og afleiðingar. Og engin
þjóð hefir lifað eins á vtsindunum
eins og Þjóðverjar. En þó eru jafn-
vel þar ekki vísindi metin sem skyldi,
hvað þá í öðrum stöðum. Styrjöld-
in mikla sýnir það. Hefðu menn
varið til að efla þekking og rétta
^ugsun þúsund miljónum króna, og
svolitlu broti af þeim mannafla, sem
er beitt til meiðinga og manndrápa,
þá hefði óefað á friðsamlegan hátt
mátt ávinna það til þjóðareflingar
eða réttara sagt mannkjmseflingar,
sem menn hyggjast nú mest geta
áunnið með ófriði, og miklu meir.
IV.
Trúin á visindi er of takmörkuð
enn þá, menn hafa ekki skil ð nógu
vel ennþá, að það er hin rétta hugs-
un eða viðleítni til réttari hugsunar,
sem er aðalatriðið. Menn eru svo
mikið að fást um, að þetta og þetta
í rannsóknum og ritum, miði ekki
til verklegra framkvæmda, og hættir
mjög við að halda, einkum þar sem
sumir vísindnmenn eiga i hlut, að
verkamennirnir séu ekki launanna
verðir. Menn virðast merkilega
glej^mnir á það, að nú þegar mætti
nefna mörg dæmi þess, að rann-
sóknir sem flestir töldu helzt nokk-
urs konar vísindalegan hégóma, eða
ekki einuslnni það, hafa orðið stór-
kostlega að notum. Og fátt hafa
menn lært hingað til, sem verða
mun notasælla en sá skilningur sem
nú hefir áunnizt í heldur lítilsmetnu
höfði, að samstilling lífskraftanna er
það takmark, sem neyta verður allr-
ar orku til að stefna að en ekki frá.
Það væru margir á lífi nú, sem
látið hafa Hf sitt, og með hinum
mestu harmkvælum sumir, margir
ómeiddir, sem nú eru örkumlaðir
og þjáðir, og margir glaðir, sem nú
eru sorgbitnir, ef þeim, sem mestu
ráða á jörðu hér hefði verið það
nógu Ijóst, hvert takmarkið er.
Og miklar munu verða breytingar
til batnaðar á högum mannanna, ef
það auðnast að skýra og skilja, að
það er fundin leið til að stefna betur
en áður hefir gert verið hér á út-
jaðri vitheims, að hinu mikla tak-
marki allrar verundar.
21. okt.
Helqi Tjeturss.
---------»»1»----------
Gert að.
Lesendum hættir um of
við að gleyma að mis-
prentanir geta átt sér stað.
í grein minni um brauð síðestl.
sunnudag stóðu orðin »hér i bæ« á
röngum stað. Gerfróður stóð þar
líka fyrir gerðfróður. Danska orðið
»gære« mun vera sama sem islenzka
orðið gera (gjöra), og rétt mál
mundi vera að segja að það geri i
brauði, sbr. ígerð. Þýzka orðið
gjihren hygg eg sýni að orðið gjöra
(gera) hefir verið til i þýzku forn-
máli, og sjálfsagt notað einsog í nor-
rænu, til margs, þó að nú sé það
horfið nema i merkingunni sömu
sem »gære« hefir i dönsku. Þó að
það kunni að vera rétt, að setja
»giihren« í samband við orðin ger
og görn og Guhr, virðist það ekki
þurfa að ósanna mitt mál.
H. P.
Hvað er Danolit-málning?
Það er nýjasta, bezta en samt ódýrasta málningin til allrar útimálningar.
Jafngóð á stein, tré og járn.
Danolit er búinn til af
Sadolin & Holmblad & Co’s Eftf., Kaupmannahöfn.
Aðalumooðsmenn: Nathan & Olsen.
Beauvais
nlðursuðuvörur eru viðurkendar að vera langbeztar í heimi.
Otal heiðurspeninga á sýningum víðsvegar um heiminn.
Biðjið ætíð um Beauvais-niðursuðu. Þá fáið þér verulega góða vöru.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
O. Johnson & Kaaber.
hefir alla hina ágætustu eisrinlegleika. Betra að þvo ú.t
henm en nokkurri annari sápu, skemmir ekki fötin þvi hún
er búin til úr hinum hreinustu efnum, og alíur tilbúningur
hennar hánn vandaðasíi. I lýtir o~ léttir þvottinn.
ÞE55A sáríí ættu a.’Iir að biðja uni.
Farið eftir fyrírsogninni sem er á tllum SunHght sapu umhúí'usn
Bezta ölið
Heimtið það!
— o —
Aðalumboð fyrir ísland:
Nathan & Olsen.
Neðanmúlssögur Morgunblaðsins eru beztar.