Morgunblaðið - 05.11.1915, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Mikið úrval af
Skinn-
hönskum,
af ýmsum litum, bæði svört-
um og hvítum,
komu með síðasta skipi.
Kr. 2.00 parið.
Cgill *3aco6sQn.
Bá, sem fengið hefir hjá mér að
láni íslenzk-enska orðabók Geirs
Zoéga, er vinsamlega beðinn að skila
henni sem fyrst.
Herbert M. Sigmundsson.
nefnd þessa bæjar starf sitt, og það
er vandasamt starf sem bíður hennar,
ef til vill vandasamara en nokkru sinni
áður. Vér ætlum ekki að gera fyr-
irkomulag nefndarinnar að umtalsefni
að þessu sinni. Þar mætti segja
bæði margt og mikið misjafnt. Það
er enginn efi á því, að menn þeir,
sem nefndina skipa, vilja af fremsta
megni leysa verkið samviskusamlega
af hendi. Vér trúum þeim öllum
til þess. En jafnframt viljum vér
benda á, að varkárni í því verki
verður um fram alt að gæta að
þessu sinni. Og gera það mest sög-
urnar, sem fjöllunum hærri ganga
um bæinn um hinn mikla aukagróða
útgerðarmanna þetta ár.
Fyrir nokkru lásum vér grein í
norsku blaði. Hún var um mann,
sem fyrir nokkrum árum hafði keypt
hlutabréf í hvalveiðafélagi og notaði
til þess nokkur þúsund krónur, sem
hann hafði safnað sér með stakri
sparsemi. Hlutabréfin gáfu góðan
arð, manninum safnaðist fé allmikið,
fólk fór að tala um »hvað hann væri
orðinn auðugur* og niðurjöfnunar-
nefnd bæjarins settist á rökstóla og
lagði á hann feikilegt útsvar, miklu
c7Cié viðf rœga
Kaupið ekki
í Skoðið
öbleikjaða
Léreftið
kjá
Egill Jacobsen.
I
25 aura Léreff IBrMff-
er komið aftur
Egiíí JacoÞsenM ISlgð
hærra en maðurinn i raun og veru
átti að gjalda. Maðurinn varð að
gjaldá útsvarið, en litlu siðar fluttist
hann burtu úr bænum inn fyrir
landamæri næsta heraðs. Arinu á
eftir gat niðurjöfnunarnefndin ekki
lagt á þennan mann, en þeir sem
mest höfðu skrafað um auð manns-
ins og stungið saman nefjum um
það, að »það ætti að leggja duglega
á þann fugl«, urðu sjálfir að gjalda
hærra útsvar.
Hér i þessum bæ eru farnar að
heyrast raddir um það, að »það
ætti að leggja duglega á útgerðar-
mennina«. Vér teljum vist að þeir,
sem sæti eiga í niðuijöfnunarnefnd,
fari lítið eftir slíkum sögusögnum og
leggi ekki um of á nokkurn mann.
Það verður vitanlega ekki komist
hjá því að hækka útsvör á einhverj-
um og þá líklega helzt á útgerðar-
mönnum. En það verður að voru
áliti að fara ákaflega varlega í þeim
efnum. Reykjavikurbær getur ekki
verið án útgerðarmannanna. A þeim
hvílir öll framtíð þessa bæjar. Þeir
eru aðalvinnuveitendur bæjarins, þeir
eru máttarstytta hafnarinnar nýju,
þeir greiða mestu óbeinu skattana, og
til þess ber að taka tillit, er jafnað
verður niður. Það mundi verða til-
finnanlegt tjón fyrir bæjarfélagið ef
einhver þeirra yrði að flýja höfuð-
staðinn og setjast að á Seltjarnarnesi
eða einhversstaðar hér í grend, vegna
þess að lagt hefir verið á hann
um of.
Erl. simfregnir,
Opinber tilkynning frá brezku utan-
ríkisstjórninni í London.
London, 4. nóv.
Veikindi Bretakonungs.
Konungur var dálítið veikari í
nótt, en í moigun var Hans Hátign
betri aftur og kendi minni sársauka,
þótt hann hreyfði sig.
Læknablaðið »Lancet« segir, að
það sé auðséð af skýrslum læknanna,
að fallið hefir verið mikið, konung-
ur flumbrast mikið og marist, en
eigi orðið fyrir neinum alvarlegri
meiðslum. Konungur hefir ekki
meiðst neitt innvortis og ekki bein-
brotnað. Þó verður hann að liggja
í rúminu og er það aðallega að kenna
stirðleika, sem orsakast i vöðvunum
vegna marsins.
Erl. símfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Kaupmannahöfn, 4. nóv.
Enskum tundurbáti heíir
verið sökt hjá Gibraltar.
Rússar hafa unnið sigur hjá
Styr.
Rússar halda áfram að setja
lið í land hjá Varna. ,
Síra Haraldur Níelsson
ætlar að flytja fyrirlestur í Bárubúð
á sunnudaginn kl. 5 e. h. um sálar-
rannsóknir 0% trúarhugmyndir. Gerir
hann þar grein fyrir, hvernig sálar-
rannsóknir síðustu tíma séu þegar
farnar að hafa áhrif á skilning manna
á ýmsum helztu trúarhugmyndunum,
og að þær muni gera það enn meir
1 náinni framtíð.
DAGBÓFflN. CS3
Afmæli í gær:
Hólmfríður Valdemarsdóttir, verzl.mær.
Afmæli f dag:
Guðrún Egilsdótttir, húsfrú.
Guðríður M. Bergmann, húsfrú.
Ingibjörg Ólafsdóttir, húsfrú.
Sigríður Sighvatsdóttir, húsfrú.
Arreboe Clausen, kaupm.
Hafliði Hjartarson, trósmiður.
Hans Petersen. kaupm.
Magnús Bl. Jóneson, prestur, Vallanesi.
f. Jón rektor Þorkelsson, 1822.
Eriðfinnur Guðjónsson L a u g a-
v e g 4 3 B, selur fjölbreytt og smekk-
leg a f m æ 1 i s k o r t.
Sólarupprás kl. 8.24 f. h.
S ó 1 a r I a g — 3.58 e. h.
Háflóð í dag kl. 3.52 e. h.
og kl. 4.13
fyr en þér hafið skoðað þær
hjá
Cgiíí *3aco6scn.
Veðrið í gær:
Fimtudaginn 4. nóv.
Vm. n. andvari, hiti 5.2.
Rv. logn. hiti 6.2.
ísafj. s.v. stingingskaldi, hiti 7.4.
Ak. s. kul, hiti 5.0.
Gr. s. kul, frost 1.5.
Sf. logn, hiti 4.6.
Þórsh., F. v. gola, hiti 5.2.
E y r n a-, nef- og hálslækning ókeyp-
is kl. 2—3 i Kirkjustræti 12.
Póstar.
Ingóifur fer til Borgarness á morgun.
með norðan- og vestan póst.
Gestir í bænum. Guðbrandur
Magnússon bóndi í Holti undir Eyja-
fjöllum.
Eggert Ólafsson kom frá Fleet-
wood í gær. Hafði fengið gott veður'
á leiðinni.
Nýja Bió sýnir í síðasta skifti i
kveld fyrri hluta myndar þeirrar er
heitir >Hrakmenni«. Er það ágætis-
mynd, skáldleg og blátt áfram. Hún
er litskreytt og litirnir svo eðlilegir
og skýrir að vór höfum eigi séð •
betra. — Það hefir kostað of fjár að
taka þessa mynd, og svo er að vísu
um fleiri, en engin af hinum dýrari
myndum, er hér hafa sézt, hafa verið
sýndar eins sjaldan áður og er hún
því óvenjulega skýr og blæfögur og
mun ekkert vanta í hana. Þeir, sem
hafa gaman af kvikmyndum ættu að
að fara að sjá hana.
Lækning ókeypis kl. 12—1, Kirkju-
stræti 12.