Morgunblaðið - 05.12.1915, Side 6

Morgunblaðið - 05.12.1915, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Strandgötu. Beiðnum frá nokkrum mönnum um lóðarútmœlingar var vía- að til fasteignarnefndar. Frá bæjarstjórnarfundi þriðju- daginn 30. nóv. — Eftir beiðni Sigur- bjargar Magnúsdóttur, ekkju Magnús- ar Kristjánssonar, var samþykt að fella burtu 10 kr. af útsvari þ. á. — Einnig var felt burtu aukaútsvar Þor- valdar Ni'elssonar, fyrir yfirstandandi ár, samkvæmt beiðni hans. »Víðir« fór í fyrradag á fiski- veiðar. — 1 gærkvöldi efndi kvenfólagið »Kringurinn« til skemtunar. Pró. Har. Níelsson hólt fyrirlestur og þotti vel takast að vanda; ágóðanum er varið til styrktar sjúklingum á Heilsuhæl- inu — 1 samkepni ÉoV Hentugasta nýtízku ritvélin nefnist „Meteor“. Verð: einar 185 kr. Upplýsingar og verðlisti með mynd- urn i Lækjargötu 6 B. Jóh. Ólatsson. Sími 520. Niðursoðið kjöt trá Beauvais þykir bezt á terdalagi. g Leverpostei [□] — i ‘/« og V> pd- dósum er ■■■ tf\V bezt. — Heimtið þaðl Jpfj e§][a=],I=si|gs Capf. C. Troile Skólastræti 4. Taisími 235. Brunavátryggingar— Sjóvátryggingar Stríðsvátryggingar. Vátryggið í »General« fyrir eldsvoða Umboðstn. SIG. TH0R0DDSEN Frlkirkjuv. 8. Talsimi 227. Heima 8—5 Srœnar Gaunir irá Beauvais eru ljúttengastar. Geysir Export-kafíi er bezt. Aðalumboðsmenn: 0, Johnson & Kaaber, Alt sem að greftrun lýtur: Líkkistur og Líkklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyní. Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna, fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. Sími 497. Frímerki, erlend og íslenzk kaupir ætíð J. Aall-Hansen. Njja Iöunn selur fataefni í smásölu og heilsölu, kaupir vorull, haustull og gærur, og rekur allskonar tóvinnu. Saumur. Eins og undanfarið tek eg að mér allskonar saum svo sem peysuföt, morgunkjóla barnaföt o. fl. Ragnhildur Magnúsdóttir, Bergstaðastræti 52. Sjúkrasaml. Reykjavíkur veitir meðlimum sínum ókeypis lyf, læknishjálp, spítalavist og dagpeninga um langan tíma. Allir, sem geta, ættu að ganga í það sem allra fyrst. Tennur eru tilbúnar og settar inn, bæði heilir tanngarðar og einstakar tennur á Laugavegi 31, uppi. Tennur dregnar út af lækni dag- lega kl. ii—12 með eða án deyf- ingar. Viðtalstimi io—j. Sophy Bjarnason. Beauvais Leverpostej er bezt. Húsbændur! Fyrsta verk yðar sé, eftir að hafa tekið hjú, að láta það ganga í Sjúkrasamlag Reykjavíkur. Það margborgar sig fyrir yður, þó þér ættuð að borga kostnaðinn. Meðalaskortur í Sviþjóð. Mikið af þeim meðulum, sem not- uð eru á Norðurlöndum, eru búin til í Þýzkalandi. En Þjóðverjar þurfa á öllu sínu að halda vegna þeirra hundraða þúsunda af særðum og veikum hermönnum, sem stjórnin verður að sjá fyrir, og því hefir verið hannaður útflutningur á flestum með- ulum. í Svíþjóð kveður svo ramt að meðalaskorti, út af þessu, að þar hefir verið skipuð sérstök nefnd lækna og vísindamanna, til þess að reyna að ráða bót á þessu. Einnig hafa Svíar farið þess á leit við þýzku stjórnina, að hún leyfði útflutning á þeim meðulum, sem mestur skort- ur er á í Svíþjóð og þeir þurfa mest á að halda. Þjóðverjar um ófriðinn. í »Berliner Tageblatt* 14. nóv. er ritstjórnargrein um ófriðinn og horfurnar. Af því að blað þetta er eitt hið stærsta og víðlesnasta á Þýzka- landi er rétt að geta þess hér hvernig það lítur á ástandið. í greininni segir m. a.: — Það er nú komið fram yfir þann tíma, sem búist var við að vér hefðum gersigrað óvini vora. Siðan hefir margt skeð á vígvellinum, vér höfum unnið marga og mikla sigra, en vér erum ekki hóti nær því tak- marki, sem vér höfum sett oss. Vér • erum lítið nær takmarkinu, en vér vorum í fyira. Franska ráðaneytið hefir sett sér það takmark að mola Þýzkaland í sundur. Asquith gat þess í læðu nýlega að Bretar mundu ekki slíðra sverð sitt fyr en þeir hefðu brotið á bak aftur þýzka her- valdið. Þannig er ástandið nú þeg- ar veturinn fer í hönd og skamt er til jóla. Það væri fásinna að taka ekki tillit til þessa. — Þannig farast blaðinu orð. Það eru ekki allar greinafnar, sem i þýzku blöðunum birtast, jafn blátt áfram. fjóðverjar ætla að taka Svartfjallaland líka. Fregnir eru nú komnar fram um það, að Þjóðverjar ætla ekki að láta sér nægja að taka land Serba her- skildi, heldur ætla þeir einnig að ná undir sig öllu Svartfjallalandi. Er ráðgert, að elta nú Serbaherinn, sem flúið hefir til fjalla á landamærum Svartfjallalands, og taka þá landið þar fyrir vestan um leið. í sambandi við þetta má geta þess, að þegar hafa verið gerðar ráð- stafanir til þess, að flytja stjórn Svart- fjallalands frá Cettinje til Skutari. Þjóðskáldið í erlendum blöðum. Attugasta afmælis þjóðskáldsins Matthias Jochumssonar hefir verið rækilega minst í erlendum blöðum. Nafn hans er þekt — og kvæðin hans líka — af öllum mentamönn- um í Skandinaviu, og öll stærri og merkari blöð þeirra þjóða fara hlýj- um orðum um hann á 80. ársaf- mælinu. Myndir af skáldinu fylgja mörgum af greinunum. Flest blað- anna segja að einkum sé mikið varið i hinar ágætu þýðingar Matthíasar á, Shakspeare, Byron, Björnson, Ibsen og Drachmann. Siglingar ítala. Kafbátar Þjóðverja hafa við og við sökt ítölskum kaupförum í Miðjarð- arhafinu og siglingar til og frá Ítalíu hafa ekki verið tryggar. Nú hefir italska stjórnin ákveðið að láta her- skip fylgja öllum itölskum skipum, sem um Miðjarðarhafið sigla. Er álitið að siglingarnar verði algerlega öruggar með þessu. Þektur ítalskur rithöfundur stakk nýlega upp á því í blaði einu i Róma- borg, að stjórnin skyldi taka hátt- standandi herfanga austurríkska og láta þá í lestina á skipunum. Ef óvinakafbátur sökti skipinu, mundu þeir auðvitað farast. Þessari uppástungu svaraði ítalska stjórnin á þá leið, að hún ætlaði sér ekki að berjast með öðrum vopnum en þeim, sem leyfileg væru sam- kvæmt þjóðarréttinum. Bng“in vegabróf. Yfirvöldunum í Danmörku hefir verið tilkynt að frá byrjun þessa mánaðar gefi Þjóðvetjar engum þýzk- um þegn vegabréf til ferðalags til Danmerkur. Dönsku blöðin vita ekki ástæðuna til þessa, eða hvort það eigi að skiljast svo að öllum Þjóðverjum hér eftir sé bannað að ferðast til Danmerkur meðan á ófriðn- um stendur. Pýzk forðabúr á Krítey. Nýlega hefir ltomist upp að Þjóð- verjar höfðu búið sér út forðabúr allmikil á grisku eynni Kritey í Mið- jarðarhafinu. — Fundust þar vistir miklar, sem ætlaðar voru þýzkum og austurríkskum kafbátum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.