Morgunblaðið - 12.04.1916, Qupperneq 1
3. árgangr
Miðv.dag
12.
apríl 1916
HOBfiDNBLADIB
160.
tðlubiað
Ritstjórnarsimi nr. 500 | Rnstión : Vilhiálmnr Finsen.
Sporín I snjónum
Dæma’aust spennandi sjónleikur
í 4 þáttum.
Sérstaklega vel saminn ag snild-
arlega leikinn af þektum dönsk-
um leikurum.
Tölusett sæti kosta jo, alm.
j j aura. Börn fá ekki aðgang.
Erl simfregnir.
(frá fréttaritara ísaf. og Morgunbl.).
Kaupmannahöfn ii. apríl.
Starcke hefir fengiðpró-
fessorsembættið í heim-
spekivið Kaupmannahafn-
arháskóiann.
Þjóðverjar hafa gert
grimmilegt áhlaup á Ver-
dun, en ekkert unnið á.
Hér með tilkynnist vinum og vanda-
mönnum að jarðarför okkar elskulegu
móður, Halldóru sál. Gestsdóttur, fer
fram fimtudag 13. þ. m. og hefst með
húskveðju kl. II1/,, frá heimili hennar,
Baldursgötu I. Það var ósk hinnar
látnu, að þeir sem hefðu í hyggju að
gefa kranz, létu andvirðið heldur
renna i blómsveigasjóð Þorbjargar
Sveinsdóttur.
Börn hinnar látnu.
Jiranzar
•fallegt Kranzalyng, Pálmagreinar og
Blóm er nýkomið i Bankastræti 14.
V. Þórðardóttir,
2 drengir
greindir og efnilegir, ij ára, geta
■fengið að læra handverk. Upplýs-
íngar í sk.ifstofu Isafoldar.
Lesið Morgunblaðið.
Notið eingöngn:
»Nigrin< og »Fuch8*
v alinr<l ágætu skósvertu og
skóáburð í öllum
litum,
Bauer feitisvertu,
Pascha fægiefni,
Kosak ofnsvertu,
Sápuduftið
»Goldperle<, »Schneekönig<
»A« »B« og »BS«.
•í heildsölu fyrir kaupmenn, hjá
G. Eiríkss, Reykjavik.
í»að virðist svo sem Þjóð-
verjar hafi nú þegar húið
sig undir að hefja allsherj-
arsókn.
Frá Hollandi.
Það eru allar likur til þess —
segir Daily Mail 3. þ. m. — að
áhyggjur Hollendinga og ófriðavið-
búnaður sé runnin undan rifjum
Baron von Kuhlmann, sem ' áður
átti sæti í þýzku sendiherrasveitinni
í London, en er nú sendiherra í
Haag.
Orðrómur sá, sem nú flýgur um
Holland er sprottinn upp i Berlin
og það virðist svo sem Þjóðverjar
vilji telja Hollendingum trú um, að
þeir eigi að vænta fjandskapar af
Bretum. Þetta er sennilega gert í
þeim tilgangi að spilla vináttu Breta
og Hollendinga, eða það er undirbún-
ingur einhverja ráðstafana af Þjóð-
verja hálfu »til þess að vernda
Hollandc.
Hollendingum hefir blöskrað það
hve mörgum skipum hefir verið
sökt fyrir þeim, en kafbátahernaður
Þjóðverja harðnar altaf. í gær söktu
þeir fjórum brezkum skipum, fimm
norskum og einu sænsku, sem menn
vita um.
Laugardaginn 1. apríl símar frétta-
ritari blaðsins, Tames Dunn frá
Rotterdam:
Hér var alt í uppnámi i gær-
kvöldi vegna orðróms, sem gekk i
sambandi við það, að bannað hefir
verið að gefa mönnum i her og
flota heimfaraleyfi. Allir flutningar
frá Hollandi hafa verið stöðvaðir og
i gærkveldi voru hermenn látnir af-
ferma járnbrautarlest, sem flytja átti
grænmeti til Þýzkalands. Herstjórn-
in hefir lagt hald á allar flutninga-
lestir landsins.
Eftir því sem »Nieuwe Rotter-
damsche Courantc segir frá, hafði
hollenska skipið Breda, sem hingað
kom i gærkvöldi, lent i svo alvar-
legu æfintýri að það er ekki ráðlegt
að segja nú þegar frá þvi.
lsafoldarnrentsmiðja | Afgreiðslusími nr. 500
Það er mælt að ráðherrarnir og
yfiiforingjarnir hers og flota hafi
setið á ráðstefnu með drotningunni.
Skoðanir manna eru hér um bil jafn
skiftar um það á hverja sveifina
Holland muni hallast. Sumir segja
að orsökin til þessa ófriðarbúnaðar
sé sú, að Þjóðverjar söktu hollenzka
skipinu Tubantia, en aðrir segja að
það sé vegna þess, að Bretar hafa
gert upptækan hollenzkan póst.
Frá Kaupmannahöfn er Daily Mail
simað að blöðin þar áliti að Bretar
og Frakkar muni hafa skorað á
Hollendinga að upphefja Rinarsamn-
inginn (sem heimilar Þjóðverjum
frjálsar siglingar upp Rinarósa) og
stöðva allan innflutning til Þýzka-
lands.
Friðarleitanir Tyrkja.
Bandamenn dregnir á tálar.
Þ'egar Erzerum var fallin, voru
það hroðalegar sögur, sem fóru af
ástandinu í Tyrklandi. Herinn átti
að vera á óreglulegum flótta suður
og vestur í Litlu-Asíu, en bjargar-
laust heima i Tyrklandi sjálfu, og
fólkið að hrynja niður úr hungri.
Og þegar þar við bættist að fregn
kom um það, að Tyrkir vildu leita
friðar við bandamenn, þóttust allir
vissir um það, að nú mundi í öll
skjól fokið hjá þeim.
Siðan var gerð sendinefnd til
Sviss, til þess að reyna að komast
að friðarsamningum við bandamenn.
Var foringi sendimanna Naby Bey,
fyrverandi sendiherra Tyrkja í Róma-
borg. Þótti nú blása byrlega fyrir
bandamönnum, en skifzt hefir nú 1
veður i lofti.
Eftir að sendimenn höfðu um
nokkurn tíma leitað hófanna hjá
bandamönnum um friðarkosti, hurfu
þeir skyndilega heim til Miklagarðs
aftur, en sátu áður á langri ráð-
stefnu með Bulow, sendiherra Þjóð-
verja. Þykir það nú sýnt, að þessi
för þeirra hafi að eins verið ein
greinin af njósnum Þjóðverja, og
að Tyrkjum hafi aldrei verið nein
alvara með það að semja frið. Sést
það og á því, sem mælt er að Na-
by Bey hafi sagt við einn kunningja
sinn áður en hann fór frá Bern:
»Við Tyrkir erum einráðnir í því
að berjast þangað til við höfum
trygt okkur þann frið, er eigi skerði
virðingu okkar. En jafnframt má
geta þess, að nú sem stendur er
þess ekki að vænta, að friður muni
komast svo brátt á sem margur hefir
ætlaðc.
NÝ J A BÍ Ó
Spanskt blóð.
Mjög fallegnr Bjónleikur í 3 þáttum
80 atriðum
leikinn af ágsetis leiknrum, þar á
meðal hinni alþeklu leikkonn
Fröken L. Nassart,
sem menn mnnu kannast við úr
»Hrakmenninu«, »Júlíettn« 0. fl. fall-
egnm myndum.
Mynd þessi er eðlilegnm litnm skreytt
og ljómandi landslag.
I Leikfélag Reykjavíknr
I
■ Systurnar
■ frá Kinnarhvoli.
Æfintýraleikur
I eftir O. Haucli.
miðv.daginn 12. apríl kl. 8.
í Iðnaðarmannahúsinu.
Tekið d móti pöntunum i BóTcv&rzl. Ita-
foldar nema þd daga tem leikið er, Þd
eru aðg.miðar teldir i Iðnó. — Pantana »6
vitjað fyrir kl. 8 þann dag tem leikið er.
Samsæri í New-York.
»Daily Mail« frá 3. þ. m. flytur
þá fregn, að komist hafi upp um
mjög víðtækt samsæri meðal Þjóð-
verja í Ameriku. Aðal maðurinn
heitir Hans Taucher og er liðs-
foringi í þýzka hernum. Hefir hann
verið tekinn fastur og er ákærður
fyrir að hafa fengið menn í lið við
sig til þess að sprengja i loft upp
ýms mannvirki í Kanada. Hefir
hann játað á sig sökina og skýrt
frá því, að hann hafi keypt vélbát og
hlaðið hann með tundri, sem hann
hafi fengið frá þýzku skipi í New-
York-höfn. Bátur þessi átti að halda
upp Hudsonsfljótið á tiltekinn stað,
en strandaði á miðri leið og komst
þá upp um leiðangurinn.
Hans Taucker hefir undanfarið
verið umboðsmaður fyrir Kruppverk-
smiðjurnar i New-York. í geymslu-
húsi sem hann hafði á Ieigu þar í
borginni fundust ógrynni skotfæra
af öllum tegundum. Hefir stjórnin
lagt ’nald á það alt. Aftur á móti
hefir Taucker sjálfum verið slept úr
gæzluvarðhaldi gegn jooo sterlings-
punda tryggingu.
Hans Taucker er alþektur maður,
einna þektastur fyrir það, að hann
á heimsfræga konu — operasöng-
konuna Jóhanna Gadski.