Morgunblaðið - 18.08.1916, Page 1
Föstudag
18
ágúst Í Ö16
3. hrr'&ngr
284
Ritstjómar&lmi nr, 500| Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen. |ísafoldarprentsmiðja j AígretðsÍHSimt nr. 500
I 0. 0. F. 988189.
Igamla r
Her Breta
Verður sýnd í síðasta sinn i
kvöld.
Aíg.m.* kosta fffjTölusett sæti
6o, alm. sæti 50, barna 10 au.
Bifreið
fer til Þingvalla í kvöld. 2 menn
geta fengið far.
Upplýsingar í Litlu búðinni Þing-
holtsstræti 1.
K, F. U. II.
Valur (yngri deild). Æf-
ing í kvöld kl. S1/^ á Melunum.
Arásir á akra.
Yfirherstjórn 7. þýzku höfuð-
deildarinnar hefir gefið út svolát-
andi tilkynningu:
— Eftir áreiðanlegum heimildum
höfum vér komist að því, að nú er
verið að koma á fót fransk-enskri
flugmanna-sveit, sem á að senda inD
yfir Þýzkaland þegar akrarnir eru
fullsprottnir og varpa niður á þá
ikveikjukúlum. Eftir því sem sagt
er, hafa franskir og brezkir flug-
menn fyrir nokkru kastað ikveikju-
kúlum niður á akrana að baki vig-
stöðvanna hjá Saloniki, til þess að
reyna að ónýta uppskeruna þar. —
Um mánaðamótin siðustu komu
nokkur Zeppelin-loftför til Englands
og flugu þau miklu hærra, en þau
höfðu gert áður, eða svo hátt, að
fiugmönnunum hefði verið óhægt að
ákveða með vissu hvar sprengikúlur
þeirra mundu lenda. Sum brezku
blöðin töldu þetta ljósan vott þess,
hvað brezka landvarnarliðinu hefði
farið fram i því að skjóta á loftförin,
en önnur blöð geta þess til að
Þjóðverjar muni hafa ætlað sér að
kveikja i ökrum og ónýta upp-
skeru.
Þetta er alveg ný hernaðar-
aðferð, en getur orðið all-hættleg.
Þegar þurkar hafa gengið og akrar
„Tlvance moforinn"
tilbúinn af A/B. B. A. Hjorth & Co. Stockholm, stærstu mótorverksmiðju
á Norðurlöndum sem veitir 500 manns árlega vinnu, hefir neðantalda kosti:
Einföld gerð. Auðvelt að setja á stað. Auðvelt að passa. Auðvelt
að setja niður. Engir ventilar í sprengiholinu. Þarf ekki að nota lampa
eftir að vélin er sett á stað. Engin eldhætta. Urvals efni og vönduð
vinna. Léttur. Tekur litið pláss. Abyggilegur og hefir vissan og j.fnan
gang. Varahlutir fyrirliggjandi hjá umboðsmanni. Er allra mótorvéia
oliusparastur. Eins árs ábyrgð. Af mótorverksmiBjum er verksmiðjan
8Ú einasta sem nú getur afgreitt með mánaðar fyrirvara. Umboðsmenn
um alt iand — Allar frekari upplýsingar gefur umboðsmaðurinn hér:
Herra skipasmiður Eyólfur Gísiason, Vesturgöiu 34, og eru menn beðnir
að snúa sér til hans með pantanir sinar.
Aðalumboðsm. fyrir Island: 8. Jóhannesson, Laugavegi 11.
Bátakeðjur
5/s”-3/4”
Blakkir með járnspöngum eru eudingarbeztar.
Ljósker, Carbide, Bamburstangir
ódýrast hjá
Sigurjóni.
fíér með
tilkynnist heiðruðum viðskiftavinum, að eg hefi opnað
rafiarasfofu mína á JStaugavagi 22 c3.
ÓsAar t>orsíeinssoti.
eru nær eða alveg fullsprottnir, eru
þeir eldfimir mjög og geta brunnið
á svipstundu ef í þeim kviknar.
í vetur sem leið kom brezkur
maður, sem verið hafði herfangi i
Þýzkalandi, heim til Englands aftur
og skýrði þá frá því, að Þjóðverjar
hefðu verið dauðhræddir um það i
fyrrasumsr að óvinaflugmenn mundu
reyna að kveikja í ökrum sínum.
En það var eins og bandamönnum
hefði ekki komið það fyr til hugar
að þetta væri hægt. Nú virðist þó
svo, sem þeir ætli að taka upp þessa
hernaðaraðferð.
Hvað skyldi koma næst?
Okur skipaeigenda
Svo sem kunnugt er hefir brezka
stjórnin ákveðið hámarks-farmtaxta
á kolum frá Bretlandi til Frakklands.
Bar til þessa brýn nauðsyn, vegna
þess að skipaeigendur höfðu notað
sér ástandið, sem nú er, til þess að
hafa fé af Frökkum á mjög ósæmi-
legan hátt.
Að jafnaði flytja Frakkar inn um 20
miljónir smálesta af kolum á ári og
í fyrra var innflutningurinn eítthvað
svipaður, þrátt fyrir það þótt þeir
hafi mist beztu kolanámur sínar.
En það er aðallega okri skipaeig-
enda að kenna, að þá urðu þeir að
greiða hverja smálest 85 frönkum
dýrari en venjulega. Með öðrum
orðum: af frönsku þjóðinni hefir
verið haft stóríé, eða eigi minna en
1710 miljónir franka.
Að vísu taka kolanámueigendur
nokkru hærra verð fyrir kolin held-
ur en áður, en mönnum telst þó
svo til, að 1240 miljónir franka
hafi lent í vösum skipaeiganda og
þeirra manna.
Brezka stjórnin hefir nú ákveðið
hámarks-farmtaxta 20—30 shillings
á smálest. Með því má gera ráð
fyrir að Frakkar verði að greiða
700 miljónir franka á ári i kola-
farmgjöld. Séu nú hin venjulegu
farmgjöld dregin frá, þá fá skipa-
eigendur þó hér um bil 550 miljón-
um franka meira í farmgjöld en
venjulega, en franska þjóðin græðir
óbeinlinis 1000 miljónir franka á
þessu.
Það er þó alveg óvíst enn hvern-
ig fer. Skipaeigendur hafa við orð
að þeim sé engin þægð því, að flytja
kolin. Þeir geti látið skip sín hafa
NÝJA BÍÓ
Heiðursins vegna Sjónleikur í þrem þáttum leik- inn af Nordisk Films Co. Aðalhlutverkin leika: Cajus Bruun, Robert Dinesen, Ebba Thomsen.
nóg ánnað að starfa, þvi að enn
geti þau fengið nógan farm án þess
að takmarkað sé flutningsgjaldið.
Árás á Suezskurð.
í febrúarmánuði árið 1915 gerðu
Tyrkir árás á Suezskurðinn, en fóru
hrakfarir miklar, enda höfðu þeir
lítið lið, að eins 12—15 þúsundir
manna og stórskotalið sama sem
ekkert, því að það er eigi hlaupið að
þvi, að komast með fallbyssur yfir
eyðimörkina þar fyrir austan.
Nú hafa þeir hafið aðra árás á
Suezskurðinn og veizt að herliði
Breta skamt frá Port Said. Hafa þeir
nú 40 þúsundir manna og nokkuð
af fallbyssum, sem þeir hafa haft
mikið fyrir að koma þangað. En svo
virðist sem þeim ætli ekki að verða
meira ágengt nú en áður. Bretar
hafa gert sér ramgerðar vigstöðvar
austan við skurðinn og hafa öll
áhlaup Tyrkja strandað á þeim.
Auk þess hefir verið batist svo nærri
ströndinni, að brezkir fallbyssubátar
hafa getað veitt landhernum lið.
Hafa Tyrkir þegar beðið allmikið
manntjón og Bretar hafa handtekið
rúmlega 3000 ósærða hermenn, þar
á meðal nokkra Þjóðverja.
Sir Archibald Murray hefir yfir-
stjórn Bretahers i Egyptalandi. Hafði
hann búist við þvi, að Tyrkir mundu
reyna að ná Suezskurðinum og gert
allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess
að veita þeim varmar viðtökur, enda
virðist svo sem honum hafi tekist
það.
Serbar komnir á kreik.
Serbaher hefir nú fengið þá ósk
sina uppfylta að eiga aftur vopna-
skifti við erkifjendur sína .Búlgara.
Hinn 24. júli lenti þeim saman i