Morgunblaðið - 06.05.1917, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.05.1917, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Sundæfingar í Atlanzhafinu. Lífsgleðin fer ekki í felur hjá skipsböfnunum á herskipum Ame- ríkumanna, á friðartímunum. Myndin sem hér birtist er ijós vottur um það. Eftir flotaæfingar leika piltarnir sér í hressandi öldum hafsins en þeir sem ekki þora að hætta sér ofan í öldurnar, láta nægja að horfa á. 1916 eru þeir Ben. S. Þórarinsson og Gunnar Þorbjörnsson taldir að hafa ?íaverzlun í Reykjavik. Upp- iýsingar um siglingar og hafnir taka eina opnu í bókinni, og þó er hún kölluð »Havnelods«. Þá skal gefið ofurlítið sýnishorn af auglýsingunum. Mun þekking þess, sem fenginn hefir verið til að koma auglýsingunum á íslenzkt mál hafa verið ærið takmörkuð. Eg verð að játa að sumt sem auglýst er hefi eg aldrei heyrt nefnt t. d. »Balata rekólín«, »steinaríkis- smjörölia«, »glýsivörur«, »hafri«, » staupjárnsbollar«, » vatnhægðaskrín- ur«, »viðurkvoði«, »krúnukerti«, »lóð með ákvæðisverði«, »krydd- bakstra-súkkulaði*. H. P. Duus hefir • verzlunarbú í Keplavík«. Annar hefir á boðstólum »undirbúið blóð- bók, fjandafælur, kransalauf, lifandi og undirbúið — þar með falleg til- búinn blórn*. Símnefni er kallað ritsími og þar fram eftir götunum. Eg vil ráðleggja þeim, sem til- mæli fá um að auglýsa í bók þess- ari framvegis, að athuga bókina sjálfa áður en þeir gera skifti við útgefandann. Mun sjaldgæft vera, að jafnmikill forði af vitleysum hafi nokkurntíma verið saman kominn á ekki fleiri blaðsiðum. Og aðfinsluvert er það í meira lagi, að útlendur maður, sem ekki hefir snefil af þekkingu á Islandi né hag þess, skuli leyfa sér að gefa út upplýsingar um ísland, án þess að leita sér hjálpar hjá einhverjum, sem hefir dálitla þekkingu á land- inu og getur þýtt smáauglýsingu á nokkurn vegin skammlausa íslenzku. Bókin er áþreifanlegt dæmi upp á þekking Dana^á oss. Hún er tal- andi tákn vanþekkingar og hroð- virkni, og þeim sem að henni hafa unnið til háborinnar skammar. Kaupmaður. Skrælingjaháttur. Það hefir verið kært verkefni sum- um vísindamönnum vorum, sem mikið hafa grúskað í gömlum bók- um útlendum um ísland, að prédika þjóðinni af heilagri vandlæting, hversu grátt hún hefir verið leikinn af flestum útlendingum, sem hingað hafa komið fyr á öldum. Þar kenni dæmalausrar vanþekkingar á land- inu og hjátrúnni gömlu um dyrnar til helvítis og kvalir óguðlegra í Heklugíg haldið mjög á lofti. Níðið um þjóðina keyri úr hófi og óþrifn- aðarsögurnzr, sem sagðar séu af fólki alveg syndsamleðar. Fólk tekur þessum mótmælarit- gerðum ákaflega vel. Málsvarar vor- ir eru f heiðri hafðir — sem ekki er að lasta —, en útlendingunum bölvað niður fyrir allar hellur fyrir að fara með lýgi. En glögt er gests augað. Og eng- inn óbrjálaður maður mun láta sér til hugar koma, að allar gömlu sög- urnar um sóðaskapinn sé tilbúning- ingur einn. Svo mikið er eftir enn þá i landinu af þessari ættar- fylgju íslendinga, að það ætti að vera sönnun fyrir því að einhvern- tíma hefði potturinn verið brotinn, nema að menn vilji ætla að óþrifn- aður og subbuskapur hafi farið vax- andi með aukinni alþýðumentun og siðspilling. Það þarf ekki langt að leita,' tit að fá áþreifanlegar sannanir fyrir því, að almenningsálitið er orðið sljófgað fyrir því sem fagurt er og velsæmandi, og lætur óátalið og af- skiftalaust hneyxlisatferli og svívirðu, sem varða ætti tugthúsvist og al- menna fyrirlitning á þeim, se.m það drýgja. Snmt af þvi, sem viðgengst hér í bænum er orðið svo tamt og rót- gróið, bæði fremjendum og áhorf- endum að fólki finst það gott og blessað. í stað standmynda eða gróð- urreita, sem prýða stræti og gatna- mót erlendra borga höfum vér mykju- hauga á almannafæri, sem dreyfa frá sér þef í allar áttir og rnunu eiga að vera vegfarendum augnagaman. Austurvöllur, eini bletturinn setn ætti að geta vetið bænum til prýði, er í stökustu vanhirðu, gangstigarnir fullir af illgresi, girðingin að ryðga sundur og í kringum líkneski Thor- valdsens eru á beit útigangsbykkjur sunnan af Nesi, sem eru í haga- göngu afskiftalausar á götum höfuð- staðarins. Göturnar svo forugar að ilt er að komast um þær, netna að verða forugur upp á ök!a. Sölustaðir á manneldi svo óhreinlegir sumir hverjir að ætla mætti, að íslendingar »ætu skit« i orðsins fy’stu merkingu. í samkomuhúsum Reykvíkinga kenti- ir hins sama. Þilin eru að neðati- verðu rifin og klóruð eins og heilar hersveitir hefðu gengið eftir þeim á járnuðum stigvélum. Gólfin hulin í forinni sem fólk ber inn á fótum sér og hréfarusli og öðrum óþverra sem það fleygir — að óglej'mdum öllum hrákaslettunum. A veitinga- stöðunum virðist það vera yndi sumra gesta að rispa rúðurnar og teikna á borðin eða skrifa á þau. Hér er að eins drepið á fátt af mörgu. Og þtátt fyrir alt þetta finst höfuðstað.rbúum að hér sé einstak- lega vel rpp alið fólk. Það hlýtur svo að vera, sem ekkert þyki við þetta háttalag að athuga. Bæjarbragurinn er vondur. Al- menningsálitið ákaflega nærsýnt og sljóvgað orðið af vananum. Og bæjarbragurinn er orðinn svo, að hér hafa skeð viðburðir, sem máske verða til þess, að almenningur fari að sjá að ekki má við svo búið standa. Það hefir sem sé borið við nú nýverið að pósthólfaklefinn á póst- húsinu, sem látinn er vera opinn fram yfir lokunartíma pósthússins hefir af einhverjum verið notaður jyrir parfahús. Að ógleymdu því, sem tíðkast hefir lengi, og póst- stjórnin ekki hefir getað rönd við reist, að veggirnir þar inni væri rispaðir út og fyltir með klámi og annari svívirðing. Slíkt hefir fyr ver- ið venja á öðrum stöðum, sem al- menniugur hefir haft umgang um. En er þetta ekki hámarkf Og vill nokkur ceita því, að hér sé að ó- sekju um vandað. Þetta skeður á tuttugustu öldinni í höfuðstað ís- lands. Hér eru s.ín í mannsmynd, sem ekki væru fullboðin til félags- skapar við dýrslegustu frumþjóðirnar á hnettinum. — Fiestum mun of- bjóða þetta. En það er afleiðing al- menningsálitsins á þrifnaði og hrein- læti bæði til orða og verka. Hér al- ast upp börn í bænum, eítirlitslaust af foreldra hállu. Þau sjá margt Ijótt fyrir sér þvi sumir eru athuga- latisir um uppeldi og sumt fólk hér er skrill. Næsti ættliðurinn verður: verri skríll. Vildu höfuðstaðarbúar hugsa til er- endra borga sumra hverra og gera sér grein fyrir mismuninum. Vill Reykvíkingur hugsa sér að það væri venja að þvo hús stn að utan. Að bannað væri að hrækja á göturnar eða fleygja svo miklu setn pappírs- miða á þær. Það er óneitanlega dá- lítið annað en venj m sem ríkir hér nú. Þessi bær verður aldrei annað en gróðrarstía sóðaskaparins ef ekki eru opnuð augu fólks fyrir því hvað sæmilegt er og frambæ ilegt. Höfuð- staður Islands og aðsetur fyrsta land- námsmannsins verður daunilt, skítugt fiskiver og fólkið ef ir því. Eu þetta mun ekki vera tilætlunin. Enginn mun vilja bænum svo ilt að hann óski, að sorpið og sóðaskapurinn yfirskyggi smekkvhi, hreinlæti og snyrtimensku. Aðalgallinn okkar er sá, nð vér venjumst svo fljótt, ýmsn því sem maður ætti aldrei að geta feit sig við. Og erum svo sjóndaprir á. margt sem viðgengst hér ár eftir árr látum hlutlaust það, sem ekki er sambcðið virðingu bæjarins. Við erum altaf svo ánægðir með bæinn, svo samdauna bænum. En það skyldu menn vrlrast, að láta sér fara eins og grúta^ bræðslukarl num, sem altaf kunni illa við sig nema þar sem gfútaiiykt var. S wartz. Þegar sænska þingið fékk páska- leyfi og hætti fundum í vetur hafði enn þá ekki tek st að mynda nýtt ráðuneyti í Sviþjóð. Háskólakansl- arinn Carl Swartz, sem myndin er af, haíði tekist á hendur að myuda ráðuneytið, er gamall þingmaður, sem aldrei hefir látið póiitísk deilumál til síti taka, en látið íjármál sig miklu skifta og er álitinn eiukar fær í þeim efnum. Hann á vini rr.eðal allra flokka í þinginu, endt er nýja ráðu- neytið ekki valið úr sama flokknutn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.