Morgunblaðið - 27.05.1917, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Auelýsins
um mitakji.
Bæjarstjórn Reykjavíkur gengst fyrir því, að iáta taka upp mó í sum-
ar, burka hann, geyma og flytja heim til notenda smám saman á næsta
vetri, lyrir bá heimilisfeður i bænum, sem þess óska.
Mórinn verður tekinn upp í Kringlumýri, og svo mikið af honum,
sem ástæður leyfa, verður gert að eltimó, sem er talsvert þéttari og
fyrirferðarminni en venjulegur stungumór.
Það er áætlað, að ef þurkun mósins hepnast þolanlega, þá samsvari
\
2^/a tonn af mónum eiuu tonni af kolum að hitag ldi. Og þar sem
ekki er útlit fyrir, að kol muni kosta hér minna næsta vetur en 200 til
250 krónur tonnið, sama sem 32 til 40 krónur skippundið, þá skorar
bæjarstjórnin h alla bæjarbúa að tryggja sér mó til
eldsneytis, annaðhvort með því að taka mó upp sjálfir, eða með því
að ganga í samlög um mótekjuna í Kringlumýri uudir forgöngu og með
þátttöku bæjarstjórnarinnar.
Þeir sem vilja að bæjarstjórnin samkvæmt þessu útvegi þeim mó
geta borgað hann annaðhvort með peningum eða með vinnu. Ber þeim
að snúa sér til eldsneytisskritstofu bæjarstjórnarinnar í
Iðnskólanum, Vonarstræti í, uppi. Þeir sem vilja borga mó-
inn með peningum greiði þar til bráðabirgða 23 krónur fyrir hvert
tonn af mó, sem þeir panta, en þeir sem vilja borga móinn með vinnu
við mótekjuna gefi skrifstofunni skýrslu um hverjir muni inna vinnuna
af hendi, og hvenær megi kveðja þá til hennar, en það skal vera fyrir
31. júlí i sumar.
Jafnóðum og vinnan er int af hendi fá svo hlutaðeigendur skírteini
sem gefa þeim sama rétt til svo mikils af mó í haust eða vetur, sem
vinnulaununum nemur, eins og þeir hefðu borgað upphæð vinnulaun-
anna í peningum.
Verðið á mónum ákveður bæjarstjórnin til fullnaðar þegar upptöku
og þurkun mósins er lokið og reikningur yfir kostnaðinn gerður upp og
er vonast eftir að það fari ekki fram úr 25 kr. á tonnið, en engin ábyrgð
á þvi tekin. Ef verðið verður hærra en 25 kr. á tonnið verða kaup-
endur að borga það er til vantar, en ef verðið verður lægra, skilar bæj-
arstjórnin afganginum án vaxta.
Ekki er heldur unt að taka ábyrgð á því, að svo mikið fáist tekið
UPP °g þurkað af mó, sem menn kunna að panta, en reynt verður til
þess af ítrasta megni. Ef ekki fæst nóg af þurkuðum mó, til að fullnægja
öllum pöntunum. verða allar innkomnar pantanir, sem greiddar hafa verið
með peningum eða vinnu samkvæmt framansögðu, færðar niður hlutfalls-
lega, og mönnum endurgreitt það, er þeir kunna að hafa' borgað umfram
andvirði þess mós, sem þeir geta fengið.
Verkfræðing Jóni Þorlákssyni hafa verið faldar allar framkvæmdir
þessa máls.
Borgarstjórinn i Reykjavík, 25. maí 1917.
K. Zimsen.
Vélaverkstæði Reykjavíkur hefir enn nokkuð af maskinutvisti til sölu.
Útgerðarmenn, flýtið yður að festa kaup á honum áður en hann þrýtur.
Bezta tegimd seni komiö hefir hingað.
VEST'RI.
Vikublað, gefið út á ísafirði. Flytur greinar um flest þau mál, sem
á dagskrá eru hjá þjóðinni, ítariegri fréttir af Vestfjörðum en hin blöðin,
og glögg tiðindi frá ófriðnum í hverju blaði.
Besta auglýsingablað fyrir kaupmenn og aðra, er vilja fá við-
skifti vestanlaids. — Par.tið blaðið i tíma.
Utanáskrift: Vestri, ísafjörður.
Smurningsoiía ávalí fyrirliggjandi.
Hiö islcnzka Steinolinhlutafólag.
De forenede BrygBerier.
Beauvais
niðursuðtjvörnr eru viðurkendar að vera iangbeztar i heimi
Otal heiðurspemnga á sýningum viðsvegar um hétminn.
Biðjið ædð um Beauvais-ni<5ursuðu. Þá fáið þér vemlega góða vðru.
Aðalumboðsmenn á Islandi:
O. Johnson & Xaafecr.
Eitt herbergi með húsgögnum
óskast nú þegar til leigu um hálfsmánaðartíma.
Upplýsingar hjá Morgunblaðinu.