Morgunblaðið - 24.02.1918, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
þaer eru framkvæmdar, og er árang-
urinn eftir því, eins og sjá má af
handteknum mönnum og vélbyssum,
sem bandamenn koma með til skot-
grafa sinna. Fimtán árásir voru gerð-
ar á skotgrafir Þjóðveria og af þeim
gerðu Bretar tíu. Þjóðverjar gerðu
árásir, en margar þeirra voru
árangurslausar. Stærsti sigurinn, sem
unninn var þessa viku, unnu Frakk-
ar norðan við Dures í Lorraine.
Þar handtóku þeir 52 5 Þjóðverja i
einni útrás.
I loftinu koma yfirburðir banda-
manna greinilega í ljós. Bretar
ónýttu 57 flugvélar og skutu 21
flugvél niður svo að eigi varð stjórn
á þeim höfð. Frakkar réðu niður-
lögum 26 flugvéla bæði ónýttra og
hrakinna til jarðar. Þjóðverjar segj-
ast að eins hafa skotið niður 23
flugvélar fyrir bandamönnum dag-
ana 16.—19. febrúar og er það
miklu lægri tala heldur en banda-
menn geta hrósað sér af á sama
tíma. Harðar orustur voru háðar í
loftinu, því að Þjóðverjar gerðu alt
sem þeir gátu til þess að hrekja aft-
ur árásar flugsveitir, er réðust aftur
fyrir herlinu þeirra og vörpuðu
sprengjum hvað eftir annað á þýð-
ingarmikla staðí. T. d. var sprengj-
um varpað á flugskála hjá Lille hinn
17. febrúar og 36 stundum siðar
var sprengjum varpað á Tournai,
skotfæraskála í nánd við Courtrai
og aðra staði þar í nágrenninu.
Af fimm árásum, sem Þjóðverjar
hafa gert á London síðan 1. febrúar,
reyndust tvær árangurslausar. Á sama
tíma skutu brezkir flugmenn 13 sinn-
um á stöðvar Þjóðverja.
Frakkar réðust á framsóknarfleyg
Þjóðverja milli Buttede Tahure og
Massiges og sóttu fram um mílu á
1300 metra svæði og settust þar í
skotgrafir Þjóðverja og bjuggu ram-
lega um sig. Gátu Þjóðverjar eigi
hrakið þá þaðan, þótt þeir gerðu hin
grimmilegustu gagnáhlaup. Unnu
Frakkar þá algeran sigur og hand-
tóku 177 hermenn. Ameríkst stór-
skotalið varði framsókn Frakka með
duglegri skothrið og varði þá eins á
meðan þeir voru að koma sér fyrir.
Segja Frakkar að ameríska stórskota-
liðið hafi reynst ágætlega i fyrsta
sinni, sem það var látið vinna i fé-
lagi við fótgönguliðið og gefi það
góða von um árangur síðar.
Seinasta >agitation« Þjóðverja er
sú, að reyna að fá bandamenn til
þess að hætta að nota eitrað gas,
fyrir milligöngu >Rauða krossins« i
Genf. Afstaða bandamánna i þessu
máli er augljós. Eru þeir fúsir til
þsss að hætta við slik vopn, en
vegna þeirrar íramkomu, sem Þjóð--
verjar hafa sýnt, eru bandamenn
vissir um það að þeir muni aftur
brjóta loforð sín og reyna að koma
bandamönnum á óvart eins og hjá
Ypres í aprilmánuði 1915. Eng^n
stjórn né hershöfðingi, sem hefir á-
byrgð á lífi manna, getur buudið
þjóðina böndum sem eru tilgangs-
laus. Astæða Þjóðverja til þessara
skúmaskots-samninga er sú að þeir
hafa nú mist yfirhöndina sem þeir
höfðu í fyrstu, því að nú eru banda-
menn þeim fremri, bæði í því að
nota gas og verjast þvi. Það væri
þvi Þjóðverjum til hagnaðar, eins og
nú er ástatt, ef hætt væri að nota
það vopn, er þeir fundu upp sjálfir
og urðu fyrsiir til að hagnýta. Og
til þess að hafa áhrif á hlutlausar
þjóðir, hafa þeir gefið i skyn, að
þeir hafi eitthvert nýtt gas, sem
þeir hika við að nota vegna þess,
hve hroðalegar afleiðingar þess séu.
En heimurinn þekkir nú Þjóðverja
svo vel, að hann veit það með vissu,
að engin grimdarverk ofbjóða þeim,
nema ef likur eru til þess, að þau
kómi yfir þeirra eigin höfuð.
I Gyðingalandi hafa hersveitir
Breta tekið fericho. Sóknin hófst
14. febrúar og var þá sótt fram fyr-
ir Michrasb, sem er ellefu mílur
norðaustur af ferúsalem en 10 mil-
ur norðvestur af fericho. Var sótt
fram um tvær mílur á sex milna
vigvelli. Var þetta ein af hinum
mörgu hernaðar-fyrirætlunum, er
Bretar höfðu sett sér, en eigi enn
komið i framkvæmd. Hinn 19 fe-
brúar sóttu Bretar enn fram á fimt-
án mílna svæði fyrir austan ferúsa-
lem og náðu þá aðalhæðinni þar
sem sér yfir fordan-dalian og voru
þá Bretar komnir átta milur fram
yfir hina fjóra vegi sem liggur til
fericoh. 20. febrdar voru Tyrkir
brotnir á bak aftur með öflugu á-
hlaupi enda þótt þeir veittu fræki-
lega vörn. fericho féll 21. febrúar
og brezku hersveitirnar eru nú komn-
ar að Jórdan. Járnbraut er nú komin
alla leið milli Egyptalands og Jerú-
salem og hefir hún mikla þýðingu
fyrir hernaðinn.
Viðureignin i Austurafríku Portu-
gala er nú orðin auðveldari, því að
von Letton hefir snúið aftur frá
Mtaria í áttina til efri Msala, en
annan meginhluta hers Þjóðverja
hafa bandamenn hrakið frá Amelia-
höfn og stefnir nann í áttina til
sama staðar. Báðar hersveitir óvin-
anna eru því innan þríhyrnings, sem
myndast af Lujenda og hafinu og
línu milli Amelia hafnar og Utaríka
hjá Lujenda.
Erl. simfregnir
frð fréttaritara tsaf. og Morgunbl.).
Rússar semja frið.
Khöfn 21. febr.
Rússar mótmæla innrás Þjóoverja,
en eru neyddir til þess, vegna þess
hvernig ástatt er í landinu, að sam-
þykkja það, að undirskrifa friðarskil-
mála [þá, er Miðrikin komu fram
m«ð Í^Brest Litovsk.
Kúhlmann er$ heldur vantrúaður
á það, að verulegur árangur verði
að þessu.
Framsókn Þjóðvarja.
Khöfn 21. febr.
í Dwinsk og Luzk handtóku
Þjóðveijar 2500 manna og náðu
mörg hundruð fallbyssum. Sækja
þeir nú hratt fram frá Riga i áttina
til Petrograd.
Finnum hjálpað.
Khöfn 21. febr.
Þjóðverjar hafa sent skotfæii og
hergögn til finsku stjórnarinnar.
Svíar hafa með vopnum skakkað
leikinn á Álandseyjum.
Hernaðurinn að austan.
Khöfn, 22. febr.
Þjóðverjar hafa tekið borgirnar
Wolmar og Rowno herskildi. Hand-
tóku þeir þar 9000 menn og náðu
I3S3 fallbyssum og ógrynnum af
hergögnum.
Austurrikismenn ætla að hjálpa
Þjóðverjum að austan ef þess gerist
þörf.
Maximalistar hafa skorað á rúss-
neska herinn að veita viðnám, en
það hefir eigi borið neinn árangur.
Þjóðverjar afsegja að taka upp
samningaumleitanir aftur, nema því
að eins að trygging sé fengin fyrir
þvi, að Rússar semji þá frið.
Frakkar sækja fram.
Khöfn 22. febr.
Fregnir frá Paris herma það, að
Frakkar hafi sótt ofurlítið fram hjá
Zorrasne.
Þráðlaust fírðtal
Khöfn 22. febr.
Tilraunir hafa verið gerðar hér í
landi með þráðlaust firðtal. Vega-
lengdin var 200 kilometrar og hepn-
uðust tilraunirnar ágætlega.
4 PAGBOK j
Gangverð erlendrar myntar
Bankar Doll. U.S.A.&Canada 3,50 Pósthúa 3,60
Franki franskur 59,00 60,00
Sænsk króna ... 112,00 110,00
Norsk króna .„ 107,00 106,50
Sterlingspund ... 15,70 16,00
Mark ... ... ... 6700
Holl. Florin ... ••• ... 1.37
Auséurr. króna... • •• .«•
Hjálparstarfsemi Bandalags
kvenna. ViðUIatími miðvikud. og
föstud. kl. 2—4 á Iesstofu kvennar
Aðalstræti 8.
Veðrið / gær: 7 stiga frost kl 6 að
morgni. 1 á hádegi.
Harða veturinn sama dag: 1 stiga
hiti um nóttina, 5 stiga hiti á hád.
Sunnanátt. Logn.
Húsaleiga bæjargjaldkeraskrif-
stofunnar. A fundi bæjarstjóruar
síðastl. var samþykt að greiða bæjar-
gjaldkera kr. 975.16 fyrir húsaleigu,
Ijós, hita og ræstlngu fyrir árið 1917.
Sjávarborg. Hana hefir fiskiveiða-
fólagið Ægir tekið á leigu af bænum.
Bæjarstjðrnin samþykti að færa leig-
una niður urn 2000 kr. á ári fyrir
árin 1918 og 1919.
r
Vöruseðlum verður útbýtt á morg-
un í þessar götur:
Sellandsstígur, Skálholtsstígur, Skóla-
stræti, Skothúsvegur, Skólavörðustígur,
Smiðjustígur, Spítalastígur, Styri-
mannast/gur, Suðurgata, Templara-
sund, Thorvaldsenstræti, Tjarnargata,
Traðarkotsss/gu r, Tdngata, Unnar-
st/gur, Vallarstræti, Vatnsst/gur, Vega.
mótast/gur, Veghúsast/gur, Veltusund,
Vesturgata, Vitast/gur, Vonarstræti*
Þingholtsstræti.
Þorsteínn Jðnsson kaupm, frá
Beyðisfirði heflr fengið leyfi bæjarstjórn-
ar til þess að láta reisa tv/lyft geymslu-
hús á hafnaruppfyllíngunni, bygt úr
timbri og járni.
Laust prestakall. Suðurdalaþing í
Dalaprófastsdæmi (Sauðafells-og Snóks-
dals- og Stóra Vatnshorns- sóknir og
líka Hjarðarholtssókn, er sameining
verður komið á) er auglýst laust og
veitist frá fardögum 1918. Umsóknar-
frestur til 15. apr/1.
10 ára afmæli átti firmað Jón
Halldórsson & Co. hór í bæ / gærdag.
I tilefni af þvf hélt það öllum starfs-
mönnum s/num og konum þeirra sam-
sxeti í Jgærkvöldi niðri / Ingólfshvoll.
Sátu veizluna 30—40 manns. Og vlð
það tækifæri afhenti firmað 500 kr.
gjöf / styrktarsjóð iðnaðarmanna.
Stofnendur og núverandi eigendur
firmans eru þeir Jón Halldórsson,
Bjarni Jónsson frá Galtafelli, Jón Ólafa-
son og Kolbeinn Þorsteinsson. Máttl
svo heita að þelr byrjuðu með tvær
hendur tómar, en með ötulleik og
dugnaði og alkunnri vinnuvöndun hefir
fyrirtækið blómgast mjög vel, einkum
hin síðustu árin. Hefir hr. Pótur Þ.
J. Gunnarsson þá verið eftirlitsmaður
með ölium rekstri firmans og farist
það prýðisvel.
Nú sem stendur eru 15 verkameu»
hjá firmanu. Hefir þeim fjölgað aá
að s/ðustu, þv/ að þrátt fyrir str/SíS
og alia þá örðugleika sem þv/ fyigj*?
hefir firmað aldrei haft jafn mikið
starfa sem nú.
cffiorgunBlaéió 6^zí