Morgunblaðið - 24.03.1918, Side 3

Morgunblaðið - 24.03.1918, Side 3
24. marz 160. tbl. MORGUNBLAÐIÐ Odýr páskamatur. Ágætar Rjúpur verða^seldar fyrir páskana. Tekið á móti pöntunum hjá Jóni Hjartarsyni & Go. Tal8Ími£40. Hafnarstræti 4. Þegnskyldaí Noregi Allir menn 15—65 ara þegnskyldir. fess heíir iður verið getið í skeyt- um hér í blaðinu, að Norðmenn hefðu í hyggju að kema á þegn- skylduvinnu hjá sér í sumar. Frá þessu er nokkuð nánar skýrt i >Tidens Tegn«. Það var norska landbúnaðairáðu- neytið, sem bar frumvarpið fram. í fyrra hafði það skorað á bændur ■og búalið að rækta eins mikið og unt væri, og bar sú áskorun nokk urn árangur. En ekki þorir ráðuneytið 'eigi að treysta þvl, að frjá’s fram- lög i þá' átt verði nægileg. Þess vegna hefir það æskt þess, að hafa lagaheimild til þess að kveðja menn íil landbúnaðarvinnu ef þörf gerist. Með frumvarpi ráðuneytisins er •gert ráð fyrir þvi, að hver maður 15—65 ára sé skyldur til þess að vinna að jarðyrkju, eða i stað þeirra, sem jarðræktarvinnu stunda, ef stjórn- in krefst þess. Ef þeir þurfa að ferðast, greiðir stjórnin allan ferða- lostnað og sömuleiðis eiga þeir að fá kaup, samsvarandi þvi, er þeir niundu hafa að öðrum kosti. Hús- hændur eru skyldir til þess að láta hjú sin af hendi og taka við þeim aftur, að vinnu Iokinni. Þá eru og allir hestaeigendur skyld- ir til að láta hesta sína af hendi til íarðyrkjuvinnu. Er búist við því að það muni þurfa 2—3 miljónir hesta- ^agsverk og 4 miljónir dagsverka fyrir menn. Þvi að það er i ráði auka ræktað land um eina miljón ^ekara. Það er og i ráði, að börn á aldr- lt)ntn 10—15 ára vinni að jarðyrkju * sumar. A að skifta þeim i flokka haga skipulagi þeirra likt og hðkast meðal Skáta, en fullorðinn hiaður verður látinn fylgja hverjum hokki. ^erskylduvinnu á að haga þannig hún komi sem minst i bág við '^ðræktarvinnuna. Ennfremur er J'ast til þess að takmarka megi g og loka iðnaðarstofnunum um 1113 leyti, og svo öðrum fyrir- lum. Stjórnin getur tekið eignarnámi þa 1 lönd, ssm eru látin óræktuð, en hægt er að rækta, og á heimtingu á jarðræktartækjum ábúanda til þess að koma löndunum í rækt. Þeir, sem vanrækja að rækta það sem þeim ber, eða liggja á liði sinu, eiga að sæta sektum, 20—200 krónum fyrir hvern dekara. Fráfærur. Á næstliðnu vori vakti »Morg- unblaðið« máls á því að fráfærur væru nauðsynlegar til að bæt’ úr feitmetiseklunni, og varð það til þess, að stjórnin hvatti bændur til að færa frá, en gaf enga skipun út um að það yrði gert. Árangurinn af þvi virðist hafa orðið mjög litillr og fáir bændur sint þessari málaleitun. Síðan hefir mikið þrengt að með feitmetisleysið, og nú er svo kom- ið, að það er orðið alment, og eng- ar líkur til að úr því greiðist í bráð, þar sem aðflutningur á feiti virðist alveg stöðvaður. En hér um má ségja, að ekki sé annað en rétta út hendina eftir þessari vöru, þar sem hún er til i landinu sjálfu, ef hún aðeins er notfærð, og má merkilegt heita, að því hefir ekki verið meiri gaumur gefinn en raun er á, á þess- um tímum, þegar alt er fult af vel- ferðarnefndum, til að leitast við að létta undir ok ófriðarins og greiða fram úr örðugleikunum með að afla helztu lifsnauðsynja. Búnaðarskýrslurnar fyrir árið 1915 telja 329000 ær með lömbum á landinu, og má líklega ganga út frá likri tölu, eða heldur fleiri ám nú, og þó dreginn sé frá einn þriðji hlutinn af öllum ánum fyrir vanhöld- um, þá verða eftir 220000, sem færa mætti frá. Ef svofer gert ráð fyrir 5 pundum af smjöri úr hverri á yfir sumarið, verða þetta samtals 1100000 pund — (ein 'miljón og eitt hundrað þúsund) — eða rúmlega 12 pund á hvert mannsbam á land- inu, auk smjörsins, sem framleitt er úr kúnum. Þetta eru tölur, sem ekki verða vefengdar svo nokkru muni, nema þá í áttina til að'áætla smjörframleiðsluna enn þá’meiri. Hér er um geysimik! 1 vorufnm- e.iðslu að taflt, sem þjððitr gerur undir engum kringumsræðum án verið, að eins að bændur taki hönd- um saman og hagnýti á þennan hátt afurðir sauðfénaðarins; en eftir þeirri reynslu sem er fengin, þarf ekki að búast við að bændur al- ment hefjist handa i þessu máli, heldur verði stjórnin að ýyrirskipa fráfarur á ræsta sumri um land alt, os; °an%a stranat eýtir að peirri fyrir- skipum sé hlýtt. Ekki ættu fráfærurnar að verða til taps fyrir bændur. Það er ekki lítið búsllag öll mjólkin úr ánum, og mundi vafalaust hagkvæmara fyrir þá að nota hana meira en gert er, heldur en kaupa hinar dýru kornvörur. Lömbin verða að visu talsvert rýrari lil frálags, en ný- mjólkin borgar þann halla og miklu meira. Helzta mótbára bænda gegn frá- færunum er fólkseklan. Þetta hefir haft við rök að styðjast undanfarið. En nú borfir öðruvisi við, þar sem atvinnuleysið kreppir að kaupstaðar- búunum. Þá ætti engum að vera vorkunn að fá fólk til sveitavinn- unnar, og sennilega býðst bændum nægur mannafli í sumar, svo að sú mótbára fellur þá um sjálfa sig. Þetta er eitt af velferðarmálunum á þessum alvarlegu tímum, sem verð- ur að undirbúa l tceka tíð. Og þótt einhverjum kunni að þykja óhægt aðstöðu með fráfærurnar, dugir ekki að láta stranda á þvi. Menn ættu að hugleiða, að >hollur er heima- feginn baggi«. T). T. Yíkingaskipið „Woif(. 15 mánaOa hernaður. í skeytum hér i blaðinu hefir ver- ið getið um þýzka víkingaskipið >Wolf«. En vegna orðamismunar varð fregnin þannig, að >Wolf« hefði strandað á Jótlandsskaga. Þetta er ekki rétt. »Wolf« komst heim til Þýzkalands heilu og höldnu, en skipið sem strandaði, var spanskt kaupfar er hét >Igotz Mendi«, og hafði >Wolf« hertekið það og vopn- að. Var það líka á leið til Þýzka- lands undir þýzkri stjórn. Þýzka flotaráðuneytið hefir gefið út svolátandi skýrslu um hernað »Wolfs«. — Til viðbótar við hina ©pin- beru tilkynningu um það að hjálpar- beitiskipið >Wo!f« sé komið heim eftir 15 mánaða hernað, skal þess getið, að á þessum tima sökti >Wolf« eftirtöldum skipum f Ind- landshafi og Kyrrahafi og tók skips- hafnirnar höndum: »Turritellia« 5528 smál., »Jumna«* 4152 smál., >Words\vorth« 3309 smál., segl- skipið »Dee« 1169 smál., »Wairuna« 3947 smál., amer. seglskipið »Wins- low« 651 srrá!., »Matunga« 1608 smá!., »Hitachi Maru«, japanskt, 6357 smál. og svo spanska skipið »Igotz Mendi* 4648 smál. »Turritellia« var óvopnað kaup- far, en eigi hjálparbeitiskip. Náði »Wolf« því í febrúarmánuði 1917 og sendi hermenn um borð i það og útbjó skipið til sprengiduflalagn- inga. En nokkrum dögum síðar hitti það enskt herskip. Þýzku sjóliðs- mennirnir söktu þá »Turritellia«, en Bretar tóku þá höndum. — — Spanska skipinu »Igotz Mendi« náði »Wolf« fyrir 9 mánuðum skamt fyrir austan Góðrarvonar- höfða. Það var á leið til Astralíu með kolafarm. »Wolf« gerði þegar úr því vikingaskip og sökti það mörg- um skipum fyrir bandamönnum. Skipin urðu samferða heim á leið og sigldu uppundir Island. Þar skildu þau. »Wolf« komst heim, eics og áður er sagt, en »Igotz Mendi« strandaði á Jótlandsskaga í svarta þoku. Þegar sázt til skipsins ætlaði Switzer þegar að bregða við og bjarga því, en þegar það kom í Ijós, að þýzkir vikingar voru um borð, varð ekkert úr björgunartilraunum. Þjóðverjum var ekki um það að gefa upp skipið og voru um borð i því meðan nokkur von var til þess að það gæti losnað. En veður tók að hvessa og skipið rak svo langt npp á rifið að engin von var um það að það gæti losnað þaðan, en hætta á að það mundi farast þá og þegar. Þá gáfu Þjóðverjar merki til þeirra sem voru í landi og beidd- ust hjálpar. Voru þeir þá fluttir i land og eins skipstjóri og stýrimenn sem altaf höfðu verið um borð. En þegar þeir skildu við skipið drógu þeir niður þýzka fánann og spanska fánann upp i hans stað, þvi að nú var skipið eigi lengur herfang Þjóð- verja. Félagið, sem skipið átti, gerði þá samninga við Switzer um það að bjarga skipinu og tókst að koma því á flot eftir nokkra daga. Danir kyrsettu hina þýzku sjó- liðsmenn, sem á skipinu voru. Reis út af því deila milli Þjóðverja og Dana, þvi að Þjóðverjar mótmæltu. Sárnaði þeim og að missa skipið, því að það var fullfermt af allskonar dýrmætum varningi, 3 miljón marka virði að sögn. Framtið Rúmeniu. Dönsk blöð frá miðjum febrúar. flytja þá fregn, að Rúmenar hafi rekið Ferdinand konung frá völdum og látið handtaka hann. Fregn þessi kemur þeim eigi á óvart, sem fylgst hafa með því sem hefir verið að gerast i Rúmeníu síð- an Rússar sömdu fyrsta sérfriðinn. Þar hefir verið hver höndin upp á móti annari siðan, og sá flokkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.