Morgunblaðið - 17.11.1918, Page 1
Sunnudag
17
aov. 1918
H0R6DNBLADID
6. argangr
7.
tölublaö
ísafoldaiprentsmiðja
Ritstjórnarsimi nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen
Hérmeð tilkynnist að maðurinn minn, Sigfds Bergmann kaupmaður
andaðist að heimili sínu í morgun.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Hafnarfirði 9. nóv. 1918.
Þorbjörg Bergmann.
Sóttin mikla.
Árið, sem nú er að líða, mun
iengi í minnum haft, sem ár friðar-
ins. Oskin, sem allar þjóðir heims-
tns hafa borið fyrir brjósti, hefir
gengið eftir. Sverðin eru slíðruð á
vígvelli Evrópu.
Hver hefði spáð því, að svo mikil
tiðindi gerðist hér á meðal vor, að
menn mintus: naumast á vopna-
hléið, byltinguna þýzku og land-
flótta þess þjóðhöfðingja, setn mest
hefir verið um raett síðustu árin,
þeirra vegna? Hver hefði spáð því,
að svo viðburðaríkir dagar biðu vor,
að vér gleymdum Kötlu, spúandi
eldi og eimyrjn yfir nálægar sveitir ?
Nú nefnir enginn Reykvikingur
Kötlu, fremur en hún hefði aldrei
verið til. Og engir fánar svifu að
hún á þriðjudaginn var, til þess að
fagna ftiðnum. í stað þess drúptu
íánar á miðri stöng, sem sýnilegt
tákn diepsóttarinnar, sem dauðinn
hefir fengið að vopni, í okkar af-
skekta landi
Utan úr heimi hafa borist öðru
hvoru siðan í sumar fregnir af in-
flúenzunni, sem geisað hefir víðs-
vegar um Evrópu, og nú upp á síð-
kastið einnig vestan hafs. En það
virðist svo, sem að menn hafi eigi
álitið veikina jafnskæða og raun er
á orðin. Inflúenzan, sem menn hafa
átt að venjast siðustu árin, hefir
verið mjög meinlaus, og fólk hefir
talið hana lítið verri en slæmt kvef.
Og það vjrðist megaætla, að læknar
vorir sumir hafi eigi álitið, að veru-
leg hætta gæti stafað af henni, því
að annars mætti það heita ófyrir-
gefanlegt skeytingarleysi að hafa eigi
°etri viðhúnað undir komu hennar
^tQgað, en gert var, eða gera eigi
ráðstafanir til að tefja svo fyrir
veikinni, að mikill meiri hluti bæjar-
húa sýktist ekki samtímis, og vand-
tæðin þar af leiðandi yrði óviðráðan-
leg.
Á miðvikudaginn annan en var
®á telja að þriðjungur bæjarbúa hafi
verið orðinn veikur. En næstu dag
ana breiddist veikin svo mjög út,
að um siðustu helgi mun ýkjulaust
mega telja, að tæpur þriðjungur
bæjrrbúa hafi verið á uppréttum
fótum. Þá dagana var þvi likast
sem alt líf væri að fjara út í bæn-
um. Göturnar voru að kalla mátti
auðar af fólki, og ætið voru það
sömu andlitin sem sáust, flest eldra
fólk. í byrjun þessarar viku fóru
fóru að sjást ný andlit, sjúklingar,
sem gengnir voru úr greipum sótt-
arinnar. En um sama leyti fór hinn
hiyggilegi förunautur Inflúenzunnar,
lungnabólgan, að færast í aukana,
og með henni fjölgaði mannslátun-
um.
„Liokað".
Um það leyti sem Morgunblaðið
hætti að koma út, var mjög tekið
að brydda á því, að söiubúðir væru
lokaðar allan daginn, og margar lok-
aðar öðruhvoru vegna þess, að eigi
var nema einn maður uppistandandi
í hverri búð. Og smám saman
urðu lokuðu búðirnar fleiri og fleiri.
Stór verzlunarhús, eins og t. d.
Vöruhúsið, hafa verið lokuð í meira
en viku. Bakaríin urðu að loka
flestöll, því að bakararnir lágu veikir
og ekkert var til að selja. Þó hafa
bakarí Vald. Petersens á Laugavegi
42, frú Kristinar Símonarson og Al-
þýðubrauðgerðin getað selt brauð
daglega, eftir því sem vér vitum
bezt. Og mjólkursölustaðirnir hafa
ætið getað afgreitt mjólk í bæinn,
enda hefðu þeir sizt af öllu mátt
missa sig.
Síðastliðinn laugardag var, að því
er komist verðar næst, ekki fimta
hver sölubúð í bænum opin. Og
þar sem opið var, var alls eigi mik-
ið að gera, jafnvel í matarverzl-
unum.
Afgreiðslutími bankanna var stytt-
ur að miklum mun. Þar hefir síð-
astliðna viku að «eins verið opið 1
til 3, og býsna fáliðað. í íslands-
banka hafa t. d. suma dagana aðeins
3 menn verið við afgreiðslu, þar á
meðal sá bankastjórinn, sem nú er
heima; en í Landsbankanum hafa
altaf verið nokkru fleiri. Stjórnar-
ráðið hefir verið lokað suma dag-
ana, og flestar eða allar opinberar
skrífstofur. Afgreiðslutimi póststof-
unnar var styttur að miklum mun,
og sú stofnun, sem mest var um
vert að opin héldist, landssíminn,
varð einnig að leggja árar í bát.
Um miðja fyrri viku varð að hætta
afgreiðslu símasamtala út um land,
og skömmu siðar var einnig hætt
að afgreiða símskeyti. Verst var
ástandið á laugardaginn var, því að
þá mun eigi nema einn maður af
öllu starfsfólki landssimastöðvarinn-
ar hafa verið uppi standandi, en
daginn eftir voru einn eða tveir
komnir i viðbót. Miðstöðinni mun
altaf hafa verið haldið opinni nema
part úr einum degi, en þjónustu-
timinn var styttur, vegna þess að
sömu stúlkurnar, eða sama stúlkan,
urðu að vera á stöðinni allan dag-
inn. Sendisveinaleysi hefir mjög
bagað laadssimastöðina, og eigi ver-
ið hægt að senda út um bæinn
skeyti þau, er tekið hefir verið á
móti. Loftskeytastöðin hefir starfað
að mestu, og hefir þó forstjórinn
verið veikur, en þó daglega að kalla
má náð merkustu blaðaskeytum.
Venjuleg störf bæjarbúa hrfa legið
í kaldakoli. Flestir rúmfastir, en
þeir sem uppi stóðu, mátu meir —
sem betur fer — að sleppa niður
atvinnu sinni, til þess að vinna það
sem mest lá á, að hjúkra og hlynna
að heimili'num — bæði ríkum og
fátækum — sem ekki áttu neina
heilbrigða hönd.
Hjálparvana.
Það reyndust fleiri dyr lokaðar en
dyr sölubúðanna. Þeir sem á fót-
um voru fóru, er á leið vikuna, að
taka eftir því undarlega fyrirbrigði,
að dyr íbúðarhúsa hér og hvar um
bæinn voru harðlæstar um hábjartan
daginn. Og það kom þá í ljós, að
í einstaka húsum var engin mann-
eskja uppistandandi, allir veikir, og
enginn sem gat hjálpað. Sömu-
leiðis gaf að líca sjúka foreidra og
óvita börn svöng í rúminu, en enga
manneskju til að hjúkra eða færa
björg. Svo mögnuð 'var sóttin orð-
in og útbreidd. Og engir kunn-
ingjar komu að vitja, því þeir vora
lika veikir.
Hjúkrunarnefadin.
Fyrir forgöngu Lárusar H. Bjarna-
son komst hún á laggirnar 8. þ.
mán., og tók þegar að starfa undir
stjórn hans. Verkefnið var mikið, en
mannaflinn, sem hún fekk til um-
ráða, að sama skapi ónógur. Þó
náðist strax til nokkuð margra manna,
er þegar voru gerðir út til þess að
ganga á milli húsa og veita hjálp,
þar sem þörfin var brýnust.. Það
er eigi of mælt að þessi tilstofnun
hafi bjargað mörgum mannslifum,
margir hafa fengið hjúkrun og bata,
sem ella hefðu orðið herfang dauð-
ans vegna ónógrar eða engrar að-
hlynningar. Og nú var fengin
stofnun, er fólk, sem einhvern hafði
að senda, gat snúið sér til og fengið
Afgreiðslusimi nr. 500
hjálp. Margir hefðu áreiðanlega far-
ið á mis við læknishjálp og meðul,
mat og hjúkrun, ef eigi hefði verið
komið skipulagi á, að veita fyrst
hjálpina þar sem hennar var brýn-
ust þörf, án tillits til alls annars.
Á hjúkrunarskrifstofunni var lækni
að hitta nætur og daga, peninga-
hjálp veitt fátækum til meðalakaupa
og annara brýnustu cauðsynja. —
Skrifstofan sá einnig um flutning
sjúkra á spítilana, og hefir látið út-
býta sjúkrafæðu ókeypis á tveim
stöðum í bænum. Eins og geta má
nærri hafa býsna miklir örðugleikar
verið á því, að veita alla þá hjálp,
sem um hefir verið beðið. Kvenfólk
vantar tilfinnanlega, eins og ræður
að likindum, þegar hjúkrunarstarf-
semin á í hlut.
Veslings læknarnir.
Flestir munu víst þykjast hafa átt
örðuga daga undanfarið, hvort sem
sjúkir hafa verið eða heilbrigðir. En
þó munu tæplega fáir hafa verið
jafn hart leiknir og læknarnir, sem
sóttin beit ekki á.
Þeir Matthías Einarsson og Þórð-
ur Thoroddsen munu altaf hafa haft
ferlivist meðan sóttin var sem skæð-
ust. SÖmuleiðis landlæknirinn og
Guðmundur Hannesson prófessor.
Hinir hafa allir legið fremur stutt
— sumir ekki nema 1—3 daga —
að undanteknum þeim Halldóri
Hansen, Stefáni Jónssyni og Jóni
Kristjánssyni, sem allir voru þungt
haldnir og Jóni héraðslækni og
Konráð Konráðssyni.
Það ræður að likindum hve gífur-
legt erfiði læknanna hefir verið þessa
daga. Þó að eigi sé gert ráð fyrir
að meira en tuttugasti hver sjúk-
lingur hafi notið læknishjálpar dag-
lega að meðaltali — en það mun
vafalaust oflágt reiknað — þá verða
læknisvitjanir samt 500 á dag, ef
rétt er sem fullyrt er, að tveir þriðju-
hlutar bæjarbúa hafi legið samtímis.
Það gæfi ranga hugmynd um störf
læknanna að segja að þeir hafi unn-
ið frá morgni til kvelds. Nei, þeir
hafa hamast frá morgni fram á miðj-
ar nætur. Vér höfum t. d. góðar
heimildir fyrir þvi að Matthias Einars-
son hefir venjulega verið á þönum
frá kl. 7 á morgana til kl. 2 á nótt-
unni og stundum lengur, og má það
heita þrekvirki. Maggi Magnús hefir
verið næturlæknir Hjúkrunarskrif-
stofunnar en jafnan verið og í
sjúkravitjunum mesta hluta dagsins.
Hjúkrunarnefndin hefir oftast get-
að lagt læknunum til bifreiðar, og
og hefir sú ráðstöfun mjög flýtt
fyrir þeim. Yfirleitt hafa bifreiðarnar
verið hinar þörfustu og er t. d.
sennilegt að margt fólk hefði alls
ekki komist á sjúkrahús ef þeirra.
hefði ekki notið við.