Morgunblaðið - 17.11.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.11.1918, Blaðsíða 1
Sunnudag 17 aov. 1918 H0R6DNBLADID 6. argangr 7. tölublaö ísafoldaiprentsmiðja Ritstjórnarsimi nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen Hérmeð tilkynnist að maðurinn minn, Sigfds Bergmann kaupmaður andaðist að heimili sínu í morgun. Jarðarförin ákveðin síðar. Hafnarfirði 9. nóv. 1918. Þorbjörg Bergmann. Sóttin mikla. Árið, sem nú er að líða, mun iengi í minnum haft, sem ár friðar- ins. Oskin, sem allar þjóðir heims- tns hafa borið fyrir brjósti, hefir gengið eftir. Sverðin eru slíðruð á vígvelli Evrópu. Hver hefði spáð því, að svo mikil tiðindi gerðist hér á meðal vor, að menn mintus: naumast á vopna- hléið, byltinguna þýzku og land- flótta þess þjóðhöfðingja, setn mest hefir verið um raett síðustu árin, þeirra vegna? Hver hefði spáð því, að svo viðburðaríkir dagar biðu vor, að vér gleymdum Kötlu, spúandi eldi og eimyrjn yfir nálægar sveitir ? Nú nefnir enginn Reykvikingur Kötlu, fremur en hún hefði aldrei verið til. Og engir fánar svifu að hún á þriðjudaginn var, til þess að fagna ftiðnum. í stað þess drúptu íánar á miðri stöng, sem sýnilegt tákn diepsóttarinnar, sem dauðinn hefir fengið að vopni, í okkar af- skekta landi Utan úr heimi hafa borist öðru hvoru siðan í sumar fregnir af in- flúenzunni, sem geisað hefir víðs- vegar um Evrópu, og nú upp á síð- kastið einnig vestan hafs. En það virðist svo, sem að menn hafi eigi álitið veikina jafnskæða og raun er á orðin. Inflúenzan, sem menn hafa átt að venjast siðustu árin, hefir verið mjög meinlaus, og fólk hefir talið hana lítið verri en slæmt kvef. Og það vjrðist megaætla, að læknar vorir sumir hafi eigi álitið, að veru- leg hætta gæti stafað af henni, því að annars mætti það heita ófyrir- gefanlegt skeytingarleysi að hafa eigi °etri viðhúnað undir komu hennar ^tQgað, en gert var, eða gera eigi ráðstafanir til að tefja svo fyrir veikinni, að mikill meiri hluti bæjar- húa sýktist ekki samtímis, og vand- tæðin þar af leiðandi yrði óviðráðan- leg. Á miðvikudaginn annan en var ®á telja að þriðjungur bæjarbúa hafi verið orðinn veikur. En næstu dag ana breiddist veikin svo mjög út, að um siðustu helgi mun ýkjulaust mega telja, að tæpur þriðjungur bæjrrbúa hafi verið á uppréttum fótum. Þá dagana var þvi likast sem alt líf væri að fjara út í bæn- um. Göturnar voru að kalla mátti auðar af fólki, og ætið voru það sömu andlitin sem sáust, flest eldra fólk. í byrjun þessarar viku fóru fóru að sjást ný andlit, sjúklingar, sem gengnir voru úr greipum sótt- arinnar. En um sama leyti fór hinn hiyggilegi förunautur Inflúenzunnar, lungnabólgan, að færast í aukana, og með henni fjölgaði mannslátun- um. „Liokað". Um það leyti sem Morgunblaðið hætti að koma út, var mjög tekið að brydda á því, að söiubúðir væru lokaðar allan daginn, og margar lok- aðar öðruhvoru vegna þess, að eigi var nema einn maður uppistandandi í hverri búð. Og smám saman urðu lokuðu búðirnar fleiri og fleiri. Stór verzlunarhús, eins og t. d. Vöruhúsið, hafa verið lokuð í meira en viku. Bakaríin urðu að loka flestöll, því að bakararnir lágu veikir og ekkert var til að selja. Þó hafa bakarí Vald. Petersens á Laugavegi 42, frú Kristinar Símonarson og Al- þýðubrauðgerðin getað selt brauð daglega, eftir því sem vér vitum bezt. Og mjólkursölustaðirnir hafa ætið getað afgreitt mjólk í bæinn, enda hefðu þeir sizt af öllu mátt missa sig. Síðastliðinn laugardag var, að því er komist verðar næst, ekki fimta hver sölubúð í bænum opin. Og þar sem opið var, var alls eigi mik- ið að gera, jafnvel í matarverzl- unum. Afgreiðslutími bankanna var stytt- ur að miklum mun. Þar hefir síð- astliðna viku að «eins verið opið 1 til 3, og býsna fáliðað. í íslands- banka hafa t. d. suma dagana aðeins 3 menn verið við afgreiðslu, þar á meðal sá bankastjórinn, sem nú er heima; en í Landsbankanum hafa altaf verið nokkru fleiri. Stjórnar- ráðið hefir verið lokað suma dag- ana, og flestar eða allar opinberar skrífstofur. Afgreiðslutimi póststof- unnar var styttur að miklum mun, og sú stofnun, sem mest var um vert að opin héldist, landssíminn, varð einnig að leggja árar í bát. Um miðja fyrri viku varð að hætta afgreiðslu símasamtala út um land, og skömmu siðar var einnig hætt að afgreiða símskeyti. Verst var ástandið á laugardaginn var, því að þá mun eigi nema einn maður af öllu starfsfólki landssimastöðvarinn- ar hafa verið uppi standandi, en daginn eftir voru einn eða tveir komnir i viðbót. Miðstöðinni mun altaf hafa verið haldið opinni nema part úr einum degi, en þjónustu- timinn var styttur, vegna þess að sömu stúlkurnar, eða sama stúlkan, urðu að vera á stöðinni allan dag- inn. Sendisveinaleysi hefir mjög bagað laadssimastöðina, og eigi ver- ið hægt að senda út um bæinn skeyti þau, er tekið hefir verið á móti. Loftskeytastöðin hefir starfað að mestu, og hefir þó forstjórinn verið veikur, en þó daglega að kalla má náð merkustu blaðaskeytum. Venjuleg störf bæjarbúa hrfa legið í kaldakoli. Flestir rúmfastir, en þeir sem uppi stóðu, mátu meir — sem betur fer — að sleppa niður atvinnu sinni, til þess að vinna það sem mest lá á, að hjúkra og hlynna að heimili'num — bæði ríkum og fátækum — sem ekki áttu neina heilbrigða hönd. Hjálparvana. Það reyndust fleiri dyr lokaðar en dyr sölubúðanna. Þeir sem á fót- um voru fóru, er á leið vikuna, að taka eftir því undarlega fyrirbrigði, að dyr íbúðarhúsa hér og hvar um bæinn voru harðlæstar um hábjartan daginn. Og það kom þá í ljós, að í einstaka húsum var engin mann- eskja uppistandandi, allir veikir, og enginn sem gat hjálpað. Sömu- leiðis gaf að líca sjúka foreidra og óvita börn svöng í rúminu, en enga manneskju til að hjúkra eða færa björg. Svo mögnuð 'var sóttin orð- in og útbreidd. Og engir kunn- ingjar komu að vitja, því þeir vora lika veikir. Hjúkrunarnefadin. Fyrir forgöngu Lárusar H. Bjarna- son komst hún á laggirnar 8. þ. mán., og tók þegar að starfa undir stjórn hans. Verkefnið var mikið, en mannaflinn, sem hún fekk til um- ráða, að sama skapi ónógur. Þó náðist strax til nokkuð margra manna, er þegar voru gerðir út til þess að ganga á milli húsa og veita hjálp, þar sem þörfin var brýnust.. Það er eigi of mælt að þessi tilstofnun hafi bjargað mörgum mannslifum, margir hafa fengið hjúkrun og bata, sem ella hefðu orðið herfang dauð- ans vegna ónógrar eða engrar að- hlynningar. Og nú var fengin stofnun, er fólk, sem einhvern hafði að senda, gat snúið sér til og fengið Afgreiðslusimi nr. 500 hjálp. Margir hefðu áreiðanlega far- ið á mis við læknishjálp og meðul, mat og hjúkrun, ef eigi hefði verið komið skipulagi á, að veita fyrst hjálpina þar sem hennar var brýn- ust þörf, án tillits til alls annars. Á hjúkrunarskrifstofunni var lækni að hitta nætur og daga, peninga- hjálp veitt fátækum til meðalakaupa og annara brýnustu cauðsynja. — Skrifstofan sá einnig um flutning sjúkra á spítilana, og hefir látið út- býta sjúkrafæðu ókeypis á tveim stöðum í bænum. Eins og geta má nærri hafa býsna miklir örðugleikar verið á því, að veita alla þá hjálp, sem um hefir verið beðið. Kvenfólk vantar tilfinnanlega, eins og ræður að likindum, þegar hjúkrunarstarf- semin á í hlut. Veslings læknarnir. Flestir munu víst þykjast hafa átt örðuga daga undanfarið, hvort sem sjúkir hafa verið eða heilbrigðir. En þó munu tæplega fáir hafa verið jafn hart leiknir og læknarnir, sem sóttin beit ekki á. Þeir Matthías Einarsson og Þórð- ur Thoroddsen munu altaf hafa haft ferlivist meðan sóttin var sem skæð- ust. SÖmuleiðis landlæknirinn og Guðmundur Hannesson prófessor. Hinir hafa allir legið fremur stutt — sumir ekki nema 1—3 daga — að undanteknum þeim Halldóri Hansen, Stefáni Jónssyni og Jóni Kristjánssyni, sem allir voru þungt haldnir og Jóni héraðslækni og Konráð Konráðssyni. Það ræður að likindum hve gífur- legt erfiði læknanna hefir verið þessa daga. Þó að eigi sé gert ráð fyrir að meira en tuttugasti hver sjúk- lingur hafi notið læknishjálpar dag- lega að meðaltali — en það mun vafalaust oflágt reiknað — þá verða læknisvitjanir samt 500 á dag, ef rétt er sem fullyrt er, að tveir þriðju- hlutar bæjarbúa hafi legið samtímis. Það gæfi ranga hugmynd um störf læknanna að segja að þeir hafi unn- ið frá morgni til kvelds. Nei, þeir hafa hamast frá morgni fram á miðj- ar nætur. Vér höfum t. d. góðar heimildir fyrir þvi að Matthias Einars- son hefir venjulega verið á þönum frá kl. 7 á morgana til kl. 2 á nótt- unni og stundum lengur, og má það heita þrekvirki. Maggi Magnús hefir verið næturlæknir Hjúkrunarskrif- stofunnar en jafnan verið og í sjúkravitjunum mesta hluta dagsins. Hjúkrunarnefndin hefir oftast get- að lagt læknunum til bifreiðar, og og hefir sú ráðstöfun mjög flýtt fyrir þeim. Yfirleitt hafa bifreiðarnar verið hinar þörfustu og er t. d. sennilegt að margt fólk hefði alls ekki komist á sjúkrahús ef þeirra. hefði ekki notið við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.