Morgunblaðið - 18.11.1918, Síða 2
WORGUNBLAÐIO
Það tilkynnist bér rreð vinum og vandamönnum, að konan mín
elskulep, Jónína Bárðardóttir, andaðist að heimili sinu, Laufásvegi 39,
fimtudaginn 14. þ. m. Jarðarförin ákveðin stðar.
Einar Jónsson.
----------tm^—niiwi w r i iirmiiiiMi 111 llll■lllllll■lll iiim
Okkar elskaða litla dóttir, Guðrúu Vigfúsdóttir, andaðist 15. þ. m.
á heimili sinu, Bergstaðastig 31.
Vilbo-g Magnú dóttir. Vigfús A>nason.
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum að konan mín e!skulegr
Helga Sveinsdóttir, andaðist að heimilt s'nu, Hæðarenda, þann 16. þ. m.
Jarðarförin ákvgðin síðar.
Sveinn Jónsson.
Hérmeð tilkynnist vinum og vanda-
standa málþtota, og enginn til að
sinna um þær.
Læknarnir austanfjalls eru þegar
yfirkomnir af þreytu og geta fæstum
líknað af þeim mörgu er hjúkrunar
og læknisbjálpar þurfa.
Þeir komast hvergi nándarnærri
yfir það að heimsækja alla sjúklinga
enda viða langt á milli bæja og langt
að vitja læknis. Og auk þess eru
þær ástæðir víða, þar sem pestin
geisar, að enqinn á heimrilinum er
fær til þess að leyta læknis eða ná
i hann, þó að ltf manna liggi við.
Astandið er þvi að verða mjög
alvarlegt i sveitunum og blátt áfram
voðaleqt.
Öllum hér er kunnugt um ástand
ið i bænum, undanfarnar tvær vik-
ur. Og þó hefir verið óneitanlega
gert mjög* mikið til þess að
létta hörmungum og hjálpa einstak-
lingum.
Margir — eg vil segja langflestir
þeir, er á fótum hafa verið — hafa
boðið fram hjálp síua öðrum til
líknar, og gengið á milli fólks til
þess að hjúkra því eftir mætti.
Bærinn eða stjórnin hefir gert
ráðstafanir til hjúkrunar þeim veiku
og leigt fjölda fólks til aðstoðar í
því efni. Það hefir verið sett á
, fót hjúkrunarstofa, og veiku fólki
safnað þangað til hægðarauka og
betri aðhlynningar.
Læknar bæjarins*, þeit sem á fót-
um eru hafa verið að »á ferð og
flugi< í bifreiðum um allan bæinn,
aftur á bak og áfram milli sjúkling-
anna og gefið út hvert »reseptið< á
fætur öðru. Og óðara er farið með
þau í lyf jabúðina og meðölin afgreidd
meðan þau entust.
En þrátt fyrir alla þessu miklu
aðstoð og hjálp, þá hefir veikin far-
ið herskyldi um bæinn og margur
maðurinn liðið mjög. Og afleið-
ingar veikiunar eru þegar orðnar
stórfeldar og enn ekki séð fyr-
ir endan á þeim.
En hvernig halda menn svo að
ástandið sé eða verði í sveitunum,
þar sem engar skorður hafa verið
reistar við útbreyðslu veikinnar, þeg-
ar hún magnast þar og leggur fólkið
umvöipum í rúmið?
Hefir þegar verið bent á það, og
síst ofsögum sagt af því.
Sumir halda nú, að veikii muni
verða vægari í sveitunum en hún er
í kaupstöðunum. En það er mesti
barnaskapur að láta sér detta slíkt í
hug.
Fólk til sveita, þar sem veikin fer
um, verður óhjákvæmilega að leggja
hart á sig rpeð skepnuhirðingu o, fl.
Það reynir til að vera á fótum miklu
lengur en þvi er fært, og það fer
að klaeðast fyr en það íná eða getur.
Og afleiðiugin af því er þá tíðust
sú, að þvi »slær niður aftur<.
Lungnabólguhættan er því margt
falt tneiri í sveitunnm en í bæum
og kaupstöðum.
Og hvernig gengur það hér, þrátt
fyrir alla varúð og margfalt betri að-
hlynning hjá mörgum, en hægt er
að veita eða koma við á sveitaheim-
ilum, að ógleymdu lækniseftirlitinn
sem er hér í Reykjavík — miklu
betra og fullkomnara en nokkurs-
staðar annarsstaðar á iandinu?
Heflr iandstjómin athugað þetta?
Eg hefi ekki orðið þess var. Henni
ber þó skylda til að gera eitthvað i
þessu máh.
Eg hefi ekki einu sinni orðið þess
var að leitað hafi verið upplýsinga
um úthreiðslu veikinnar. Og það
hefði þó stjórnin þegar átt að vera
búin að gera *.)
En nú dugar ekki að láta leng-
ur reka á reiðanum. Hér verður að
bregða skjótt við og hefjast handa.
En hvað er hægt að gera ?
Stjórnin verður nú undir eins —
það þolir enga bið — að leyta upp-
lýsinga símleiðis um útbreiðslu veik-
innar i sveitunum.
Jafnframt verður á kosnað lands-
ins að senda nienn héðan bæði aust-
ur og vestur í Borgarfjöið til þess
að líkna fólki og fénaði. Það verð-
ur að senda þá, sem búnir eru að
fá veikina, og þá sem útlit er fyrir
að fái hana ekki, og geta mist síg
að heiman.
Gott væri, að einhveijtr af lækn-
um þeirn, sem hér eru, væru sendir
því ekki mun af því veita. Ættu
þeir að vera vel út búnir að með-
öium, eftir þvi sem hægt er.
Þessu fólkí, sem hægt yrði að
útvega hér, verður svo að láðstafa
þangað sem þörfin er mest.
Eg geri ráð fyrir, að stjórnin
setji sig í samband við héraðs og
sveitarstjórnir í viðkomandi héruð
um, og hafi auk þess mann eða
menn í ráðum með sér um allar
nauðsynlegar ráðstafanir i þessu efni.
Og þetta verður alt að gerast
samstundis 0% fljótt.
Það er ekki eftir betra að bíða.
Sýni nú stjórnin rögg af sér, og
bregði skjótt við.
Það er voði á ferðum ef ekkert
er aðhafst.
Sifurður Siqurðsson.
Úr loftinu.
London, 15. nóv.
Símfregn frá vesturvígstöðvunum
hermir það, að brezki herinn sé
nú að búa sig undir það, að halda
austur að Rín. Mun sú framsókn
hefjast einhvern næstu daga.
Frönsk sendinefnd er nú stödd í
aðalherbúðum Þjóðverja í Spa, til
þess að gera ýmsar ráðstafanir við-
víkjandi burtför Þjóðverja úr Frakk-
landi og Belgiu. Þýzkum fulltiúum
hefir verið skipað að koma til Brugge
Mons og Naccy, til þess að af aenda
bandamönnum talsíma og ritsíma
kerfið.
Nýja þýzka stjórnin hefir sent
loftskeyti, þar sem hún Iýsir ósann-
t) Eg hefi gert nokkrar fyririr-
spurnir, simleiðis um útbrciðslu veik-
innar og vonast bráðlega eftir svör-
um.
t
Það tilkynnist vmum og vanda-
mönnum að konan mín elskuleg,
Gestheiður Arnadóttir, andaðist að
heimili okkar, Bsrgstaðastræti 31,
þann 13. þessa mánaðar.
farðarförin verður ákveðin síðar.
Þórður A. Þorsteinsson,
skipstjóii.
Kvenmaðui
um þrítugt, sem vildi laka að sér
lítið heimili með tveim börnum,
óskast sem fyrst. Uppl. Laufásvegi
43, kjallaranum.
ar fregnir, sem borist höfðu út um
að hún hefði í hyggju að geta ógild
öll hérlán Þjóðverji. Stjórn verka-
manna og hermanna hefir verið
mynduð i P/ússlandi.
Ltoyd George og aðrir meðlimir
brezku stjórnarinnar sátu ráðstefnu
með fulltiúum vinnuveitenda og
verkimanna ýmsra til þess að ræða
utn ýmislegt viðvikjandi kjörum
verkamanna, kaupi þeirra o. þ. h.
þegar ríkið skilar aftur verksmiðj-
unum sem hiagað til hafa gert
hergögn, í hendur einstakia manna.
Loyd George lýsti því yfir, að ætl-
un stjórnarinnar væii að verkakaup
ið héldist óbreytt að minsta kosti
6 mánuðina eftir að friður er sam-
in.
Félag Ameiíkumanna í Bretlanli
hefir í hyggju að beiðast leyfis Wil-
sons forseta til þess að mega reisa
standmynd af honum í London til
minningar um starí hans í þarfir
menningar og mannúðar.
Það er búist við því að Albert
Belgakonungur muni halda innreið
sína í Bryssel á laugardag (í gær).
mönnum að min elskulega dóttir,.
Alfheiður At;ústa Egilsson, andaðist
á heimili sínu, Lindaigötu 40, 13.
þessa mánaðar, 27 ára gömul.
Jarðarförin vðrður ákveðm siðar.
Nikulína Kristin Snorradóttir.
Hérmeð tilkynnist vinum og
vaudamönnum, að okkar hjartkæri
sonur og btóðir, Guðmundur Gisla-
son, andiðist á heimili sinu, Klapp-
arstig 5, kl. 9 í morgur, 25 ár»
gamall.
Rvík 17. nóv. 1918.
Gísli Sveinsson, Guðr. Guðmundsd.
Erlendur Gíslason.
Jarðarförin verður ákveðin síðar.
Það virði t nú vera komnar nokk-
uiavegir.n áreiðanlegar heimildir
fyiir því, að þýzki ríkiserfingiun sé
enn á lífi. Hann muni vera í Hol-
landi og er sagt að hann sé kom-
inn til Ameroogen, þar sem keis-
arinn faðir hans heldur til.
A1 ar eignia prússnesku krúnunnar
hafa verið gerðar upptækar a' nýju
stjóminni i Piússlandi. En það er
staðfest að keisarinn og öll fjölskylda
hans fái að halda öllum sínum eign-
um.
Vilhjálmur fyrverandi Þýzkalands-
keisari býr í sloti nokkru í Amer-
ODgen í Hollandi. Er hans vand-
lega gætt þar af lögreglu og her-
mönnum.
í dag taka nefudirnar, sem sjá
eiga um vopnahlésframkvæmdiruar^
til starfa í Spa litlum bæ í austur-
hluta Belgiu, þar sem áður höfðu
Þjóðverjar aðalherbúðir sínar. Eitt
af þeim málum, sem fyrst verða
tekin fyrir, er heimsending brezkra
fanga, sem í Þýzkalandi eru. En