Morgunblaðið - 24.11.1918, Blaðsíða 2
t
MORGUNBLAÐIÐ
hermir þær fregnir frá Berlín, að
me.stu ofstækisflokkarnir í mörg-
nm bæjum á norðurströnd Þýzka-
lands hafi hrifsað undir sig vald-
stjórnina úr höndum hlutaðeigandi
stjórnarvalda og hafi með því
valdið meiri óróa í kauphöllinni
1 Berlín en þar hefir orðið í síðustu
þrjú ár.
lieuter segir frá, að hergagna-
lestir hafi sprungið í loft upp í
nokkrum þorpum í Hainault. Þorp-
ið Jamious hefir gjöreyðilagst og
manntjón sagt mikið.
Síðusíu loftskeyti
London í gærkvöld.
Albert konungur og drotning
lians og börn lcomu til Bryssel í
gær. Var þeim tekið með efskap-
legum fagnaðarlátum. Franskt,
brezkt, amerískt og belgiskt lið var
með í innreiðinni.
Frakkar hafa haldið innreið sína
í Colmar undir forystu Castelnau
hershöfðingja. Hefir þeim hvar-
vetna verið tekið með fögnuði,
Þeir halda áfram í sífellu austur
eftir.
J. R. Clyner matvælaumsjónar-
maður og Robert Cecil lávarður
eru farnir úr stjórninni.
Að austan
Hún breiðist út óðfluga og
magnast. Til dæmis var veikin fyr-
ir 3 dögum að eins á 4 bæjum í
Grímsnesi, en nú er hún á 12.
Læknirinn í Skálholti liggur veik-
ur og fólk farið að deyja í stórum
stíl.
Veikin hagar sér nú mjög líkt
og hér í bænum. Lungnabólgu-
tilfellin alt af að fjölga, til dæmis
liggja á einum bæ í Flóanum 10
manns og þar af eru 5 með lungna-
bólgu. Það er því gjörsamlega úti
um þá kenningu, að veikin sé væg-
ari eystra en hér.
Eina lánið í öllum þessum vand-
ræðum er það, að tíðin er frámuna
góð.
Meðal látinna manna eystra er
sagður Gestur bóndi Einarsson á
Hæli.
Frá Dýrafirði
Þaðan komu ljótar fréttir í gær.
Inflúenzan komin þar í hvert hús
og hefir lagst þungt á menu. Ilér-
aðslæknirinn liggur mjög þungí
haldinn og fólkið því læknislaust.
Fékk Carl Proppé kaupmaður sím-
skeyti um þetta í gær og var jafn-
framt beðið um læknishjálp vestur.
Meðal þeirra, sem sérstaklega
eru þungt haldnir á Þingevri, er
.Johs. Proppé kaupm.
í dag fer botnvörpungurinn Snorri
Goði með læknanema til Þingeyrar
og fólk til þess að hjúkra sjúk-
um.
Síðan í gær hafa blaðitiu borist
þessar dánarfregnir:
Carl Fondangtr,
prestssonur frá Jótlandi, andaðist á
Hverfisgötu 32,
Salótne Halldórsdóttir,
vinnukona, andaðist í Barnaskólan-
UDl,
Katrín Guðlau^sdóttir,
Tjarnargötu 8.
Þór. Björnsson,
Bergstaðastræti 48.
Edward Jensen
danskur sjómaður.
Ingvar Guðmundsson
trésmiður.
Trausti Guðmundsson.
Sigurbjarni Guðnason
vélstjóri. Hann lézt í Bretlandi.
Einarína Sveinsdóttir
gift kona, Framnesveg 30.
BiGBOK
Hjúkrnnarnefndin tilkynnir 1000
króna gjöf í hjálparsjóðinn frú Hinu
ísl. Steinolíuhlutafélagi og 1000 kr
Trolle & Rothe A.S. Auk þesaa
hefír Steinolíufólagið gefíð alla olíuna
sem afhent hefír verið fátækum úr
geymsluhúsi félagsins við Amtmanns-
stig, en það eru um 1000 pottar þegar.
Eitt þúsund króna gjöf færði Gísli
J. Johnsen konsúll í Vestmannaeyj-
um hjúkrunarnefndinni i gær til úc-
býtingar meðal bógstaddra.
Emil Strand skipamiðlari var með-
al farþega á Botniu síðast.
500 krónur afhenti Jón. Sveinsson
trésmíðameistari Morgunblaðinu í gær
í Hjálparsjóðinn. Það var fallega gert.
Jarðarför Jóns prófessors Krist-
jánssonar og konu hans fór fram frá
Háskólanum í gær. Fjöldi manns var
viðstaddur og viðhöfn hin mesta.
Biskupinn talaði í dómkirkjunni.
Farþegar verða margir með Botníu
til útlanda. Meðal þeirra vitum vér um
T. Klingenberg konsúl og fólk hans,
Odd Gíslason yfirdómslögmann og
Debell forstjóra. .
Fiskurinn, sem Kveldúlfsfélagið gaf
fátækum um daginn, var í 500 körfur,
eða um 40 þús. pund.
Botnía fer að líkindum á þriðju-
daginn héðan.
Ágætt piano
brúkað, en eins og nýtt, til sölu
áður en Botnia fer, fyrir 1600 kr.
Til sýnis í
Hijófífærahúsmu,
mmmaiagmij
H. P. DiiusA-deild.
Hafnarstræti
Kjólatsu, Káputau,
Tvisttau, Flóne!,
Léreft ein- og tvibreitt,
Rifstau, Prjónavörur,
Drengjaföt, Matioshúfur,
Silkislæður, Pifur,
Broderinger Dacnekrager
Aiskonar smávörur o. fl. o. fl.
JXI1 f ITXTTSf I ITlTTLll fHLÍ
Bann
Hér með er öllum stranglega
bannað að skjóta í Jófríðarstaða- og
Aslandi. Þeir sem ekki hlýða þessu
banni, verða tafarlaust kærðir.
Oddgeir Þorkelsson,
Þorv. ÞorvarOarson Henrik A. Hansen
Um 600 máltíðum var úthlutað fá-
tækum úr eldhúsi Thor Jensens í
Sláturhúsinu í gær.
Tveir læknanemar voru sendir aust-
ur í sveitir í gær til þess að lijálpa
sjúkum.
Sig. Sigurðsson ráðanautur mun
fara austur í dag eða á morgun til
þess að kynna sér ástandið fyrir hönd
landstjórnarinnar.
Sjúklingarnir. f fyrrakvöld höfðu
alls 96 sjúklingar verið lagöir inn á
Barnaskólaspítalann. Af þeim hafa 27
dáið.
33 börn eru nú á Barnahæjinu. Líð-
ur þeim öllum ágætlega. Þau sem veik
voru eru öll á batavegi.
-----------------------fffff—
t
Jarðaiför stjúpmóður minnar.Rrist-
bjargar Helgadóttur, fer fram mið-
vikudaginn 27. nóv. og hefst með
húskveðju klukkan 9^/2 fyrir hádegi
frá heimiii hinnar látnu, Þingholts-
stiæti 9.
Guðrún Daníélsdóttir.
Jarðarförekkjunnar, Margrétar Jóns-
dóttur, fer fram máuudag 25. þ. m.
kl. 1 frá Fiíkirkjunni.
Benedikta Banediktsdóttir,
Guðfinnur Kr. Guðmundsson.-
Hérmeð íiikyunist vinum og vanda-
mönnum að konan mín, Þóra Sigriður
Jónsdóttir, andaðist 13. þ. m.
Jarðarförin fer fram Mánudag 25.
þ. m. og byrjar með húskveðju kl.
2 frá heimili hinnar látnn, Mjóstr. 2.
fón Pálssou.
Hérrneð tilkynnist að maðurinn
minn elskulegur, Rcgnvaldur Jóns-
son, andaðist að heimili okkar,
Nýlendugötu 13 B. 20. nóvemver.
Sigríður Oddný Níelsdóttir.
Jarðarför, Bolettu Finnbogadóttur,
fer fiam frá dómkirkjunni, mánu-
daginn 23. þ. m. kl. 1 Va e. h.
Eldhús Thor Jensens. í fyrradag var
117 manns gefin þar kjötsúpa og 211
fengu mjólkurvelling. .
750 krónur var fiskur seldur úr
Kveldúlfsbotnvörpungnum í fyrradag,
auk þess fisks, sem gefinn var fátæk-
um og sjúkum. Upphæð þessi rennur
í Hjálparsjóðinn.
1
MessaS í dag í dómkirkjunni í
Reykjavík kl. 11; séra Friðrik Frið-
riksson. Engin síðdegismessa.
Víðir hefir selt afla sinn í Englandi
fyrir rúm 4700 sterlingspund.
Allir sjúklingarnir í Barnaskólanum
eru níi á góðum batavegi.
Ma grethe Havsteen.
Hérmeð tilkynnist að jarðarför,
Helgu Markúsdóttur, fer fram þriðju-
daginn 26. [>. m. og hefst með hús-
kveðju kl. D/a frá heimili hinnar
látDu, Túngötu 48.
Aðstandendur hinnar látnu.
^ Ji&iga
Herbergi með húsgögnum óskast
nú þegar. Upplýsingar hjá Ander-
sen & Lauth.