Morgunblaðið - 20.01.1919, Qupperneq 1
Bitstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Yilhjálmur Finsen
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusírai nr. 500
verður naldinn í
Kaupmannaíélagi Reykjavikur
i kvöld kl. 8 í Iðnó uppi.
Aliir kaupmenn
eru beðnir að mæta, því að mikilvægt mál er á dagskrá.
Sfjórnin.
landi þar sem bómull er ódýr og
Eiginlegt þingræði er ekki til í
Erl simfregnir.
Frá fréttaritara Morgunblaðsins
Friðarfundurinn
hefst’í dag' í París. Sclieidemann
og Brockdorff-Rantzau verða full-
tróar Þjóðverja.
Gengi erlendrar myntar.
100 kr. sænskar....... kr. 108.65
100 kr. nórskar .........— 105.20
Pund Sterling............— 17.89
Dollar ................. — 3.76
Wilson.
Til þess að geta skilið 'Wilson
forseta, verður maður fyrst og
fremst að vísa á bug' ýmsnm göml-
um hleypidómum og leiðrétta þann
inngróna misskilning, að það sé
dalurinn almáttugi, sem r>ki í Ame-
ríku. Dalurinn ríkir i;n allan
lieim, og rikismennirnir rússnesku,
frönsku eða brezku eru eugu ó-
ágjarnari en þeir amerísku. Ef pen-
ingarnir einir gætu reist himinhall-
ir og sett á stofn risaverksmiðjur,
mundu þær pá ekki líka vera til í
Evrópu? Leyndardómurinu er sá,
að það eru hugsjónir, scm knýja
þetta áfram, mikilfenglegar sam-
eignar-hngsjónir, sem hrlfa meðal-
manninn og verða í hendi hinna
útvöldu að ljósri fyrirmynd. Sú er
hugsun Ameríkumannsins, að hann
hafi skyldu til að koma flatt upp á
heiminn, og ef hún iuer fullkomn-
un, þá verður úr henni ósk um það,
að standa í broddi framfaranna.
Þegar maður vcit, hversu erfitt er
að feta sig' fram í þyrnik jarri mót-
þró'ans, er óskin mjög' ósérdræg og
í víðasta skijningi ákjósanleg. Hug-
sæismaðurinn er gjafari, maður
með aflöguorku. Margir halda, að
réttur hugsjónamaður sé sá, sem
gefur af sér brækurnar. En sá mis-
skilningur! Ef það endilega er ein-
hver, sem þarf að ganga nakinn,
f® eg eklti séð ávinninginn að því,
að það sé eg fremur en ókunni máð-
urinn. Þrautin verður í rauninni
sú, að útvega buxur í afgang, sem
eg get gefið, áu þess að standa
ejálfur buxnalaus eftir. En hug-
sjónin er aftur á móti sú, að sýna
manninum, hvernig hann á að
vinna sér fyrir buxum sjálfur. I
götusópurum’er vel borgað,er þetta
ekki svo erfitt. í öðrum löndum,
þar sem íbúaruir búa fölir í kös
við þrautræktað land verður
þyngra um framkvæmdirnar.
Þá er annað þröskuldur í vegi
milli vor og forsetans. Hann kemur
til af því, að sá ágadi maður, sem
síðasta mannsaldurinn hefir veitt
bókmentalindum Evrópu yfir ak-
ur Danmerkur, hefir aldrei kvatt
hljóðs handa Emerson og Carlyle.
Emerson d<3 í Massachusetts 1882,
bg er eig’i koniinn til vor enn þá,
en Ameríkumennirnir miklu, svo
sem Lincoln og nú Wilson, voru og
eru gagnsýrðir af anda hans, af því
að hann er amerískur, einkennileg-
ur, hreinn, skír og laus við króka-
leiðir; hann fyrirlítur lagarefjar,
sem ennþá eru í hávegum í Evrópu.
Að vera kunnugur Emerson er
sama sem að skilja Wilson.
En verst er þó að skilja ame-
ríksk stjórnmál. Wilson er sér-
veldismaður, en þeir eru ekki
jafnaðarmÖnnum viðkomandi að
neinu leyti (jafnaðarmenn eru
einskis ráðandi í Ameríku). Flokk-
arnir eru tveir, sérveldismenn og
samveldismenn. Þannig- hefir það
verið síðan á dögum Washingtons;
þa börðust sérveldismenn aðallega
á móti fyrirkomulaginu á utanrík-
isstjórninni; þeir vildu t. d. ekki
hafa sendiherra lijá erlendum ríkj-
um og vildu takmarka vald for-
setans.
55 ashington, fyrsti forsetiun, var
samveldismaður, en um aldamótin
1800 komust sérveldismenn til
valda og héldu þeim fram að horg-
arastyrjöldinni miklu. Lincoln var
samveldismaður og Roosevelt sömu-
leiðis. Ágreiuingsmál flokkanua
eru breýtileg, og þau eru aldrei svo
mikilsverð, að þeir sameinist ekki
þegar velferð ríkisins krefst þess.
Bandaríkjunum. ~Forsetinn velur
sér ráðuneyti, alveg eins og Vil-
lijálmur keisari gerði áður, en af
því að þjóðin kýs forsetann, verð-
ur þetta þingræði, þó óbeinlínis sé.
Þingmaður, sem verður ráðherra,
verður að leggja niður þingmensku.
Ráðherrarnir eru ekki teknir úr
öðrutn flokknum eingöngu; þeir
tala ekki á löggjafarþinginu og
skifta sér ekki af löggjöfinni.
Það er oft talað um stjórnmála-
spillingu í Bandaríkjunum. Þeir,
sem hafa haft tækifæri til að sjá
kosningabaráttuna þar með eig'in
augum munu liafa orðið 'þess var-
ir, að atkvæðasmalarnir eru óvenju-
lega djarfir og að atkvæði ganga
kaupuni og sölum. En þó kveður
eigi svo mikið að þessu, að það hafi
sýkt þjóðina. Raun ber vitni um að
Bandaríkin hafa aldrei haft for-
seta, sem sagan hefir dæmt illan
mann og óverðugan, og er það vott-
ur þess, að þjóðin sé heilbrigð.
Blöðin hafa þrásinnis sagt frá
æfiatriðum Wilsops. Vér vitum að
hann var háskólakennari, komst
síðar inn í stjómmálin og' varð for-
seti, þegar svo var ástatt, að mót-
stöðumennirnir voru dreifðir. Eig-
inlegur stjórnmálamaður er hann
ekki í þeirn skilningi sem Banda-
ríkjamenn leggja í það orð; hann
er of opinskár til þess. Hann er
afkastamaður með afbrigðum og’
hreinlyndur og óhikandi þegar
hann er sannfærður um réttmæti
málstaðar síns. Það þarf ekki ann-
að en að minna á, livernig öll blöð-
in í heiminum smáðu hann fyrir
stríðið, af ])ví að liann sendi út til-
kynningar í sífellu og hikaði við að
leggja í ófriðinn.
Menn vita það um lifnaðai'háttu
hans, að hann er reiðmaður mikill
og golf-spilari. Anuaðhvert kveld
er hann í leikhúsi eða á liljómleik-
um. Hann er maður, sem kann að
stytta sér stundir; þegar hann fer
út úr stjórnarskrifstofunni í „Hvíta
húsiriu*4 leggur hann af sér stjórn-
arbyrðina og hann kann því illa,
að menn tali við hann um stjórn-
mál í frístundum hans. Það er bæði
skozkt og' írskt blóð í honum og
hann hefir til að bera djúphygni
Skotans og léttlyndi íráris. Hann
lítur ekki hátíðlega á sjálfan sig né
aðra. Hann er prestssonur og af
góðu bergi brotinn langt fram í
ættir; liann er dæmi upp á göfug-
an nútíma Ameríkumann, sem les
fremur Plato, en gengiskrána frá
kauphöllinni.
Það er naumast of mælt, að Wil-
son sé í augnahlikinu mesti maður
heimsins, ekki að eins sakir vits-
muna sinna og afls ríkisins til þess
að koma fram kröfum sínum með
vopnavaldi: liann er líka Þjóðverja
eina von. Ef þessi maður bregst
hugsjón sinni, verður það heimiu-
um ómetanlegur skaði.
Wilson hregst ekki. Hann er hug-
sjónamaður, en hann er líka engu
óslungnari en leiknasti viðskifta-
refur og' liann veit nákvæmlega,
hvenær tími er til að taka í taum-
ana. Hann mun ekki hætta fyr en
réttlætið getur hrósað sigri, en vill
ekki láta það verða neina skrípa-
mynd af sjálfu sér. Hann hefir frið-
inn í hendi sér og lætur hann frá
sér fara þegar heimurinn kann með
hann að fara.
(Verden og Vi.)
jT' ' BAGBOK
Þrír eða fjórir vélbátar frá Akur-
eyri leggja á stað hingað suður nú í
vikunni og ætla að stunda fiskveiðar
frá Sandgerði í vetur.
Fundur verður haldinn í kvöld í
Kaupmapnafélagi Reykjavíkur* Þang-
að eru allir kaupmenn boðaðir, hvort
sem þeir -eru í félaginu eður eki.
Hláka hefir verið um alt land und-
anfarna daga.
„Champagne“, franski botnvörp-
ungurinn, sem hér hefir verið, fór í
gær á fiskveiðar og heldur síðan heim
til Frakklands með aflann. En hingað
kemur hann aftur að því loknu.'
„Alice brezka flutningaskipið,
kom hingað í gær að vestan.
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst haxm.
Sigurjón Pétursson.