Morgunblaðið - 21.05.1919, Síða 1

Morgunblaðið - 21.05.1919, Síða 1
Miðvikudag 21 maí 1919 6. árganguí 187, tölublað í saf oldarpr entsmið j a Afgreiðslusími nr. 500 Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilkjálmur Finsen Æfiotýri á gönguför verður leikið miðvibudag 21. maí kl. 8 slðd. i Iðuó. Aðgöngum. seldir í dag frá kl. io—12 og eftir 2. Friðarskilmálarsir. „Tskmarkalaust ofbeldi“ í>ýzka stjórnin ætlar að reyna að fá skilmálunum breytt. Daginn eftir að friðarskilmálar bandamanna voru kuhngerðir, gaf þýzka stjórnin út svolátandi ávarp til þjóðarinnar: Hinn einlægi friðarvilji þjóðar yorrar, sem nú er í sárum vanda stödd, félik fyrsta svarið með hin- um ógurlega hörðu friðarkostum bandamanna. Þvzka þjóðin hefir lagt niður vopnin og drengilega uppfylt alla vopnahlésskilmálana, enda þótt þeir væri harðir aðgöngu. Samt sem áður hafa óvinir vorir baldið ófriðnum áfram í sex mán- uði með því að liafa Þýzkaland í sultarkví. Þýzka Jijóðin hefir borið allar Jiessar byrðar'og treyst ]iví loforði er bandamenn gáfu 5. nóvember, að friðurinn skyldi verða réttlátur og bygður á hinum 14 grundvallarat- riðum Wilsons. En þau skilyrði, sem oss eru nú sett í staðinn fyrir þetta, eru þvert ofan í gefin loforð og óþolandi fyrir hina þýzku þjóð, og eigi hægt að fullnægja þeim, Þótt þjóðin tæki á öllu ]iví, sem húu íi til. Það á að beita þýzku þjóðina takmarkalausu ofbeldi. Aí slíkum nauðungarfriði hlýtur að spretta nýtt þjóðahatur og manndráp þegar fram í sækir. Von- in um alþjóðabandalag, sem átti að gera þjóðirnar frjálsar og Hyggja friðinn, er með Jjessu dauðadæmd. Þýzku ])jóðina á að sundurlima. Þýzku verkamannastéttina á að of- urselja érlendu auðvaldi, hið unga þýzka lýðveldi á að vera þrælbmid- ið af „imperialisma“ bandamanna. Þetta er markmiðið með þessum nauðungarfriði. Þýzka stjórnin mun svara þessu ofbeldi með samningsuppkasti, er byggist á réttlátum friði og' tryggi ævarandi þjóðafrið. Hin ‘sárbitra gremja, sem gripið hefir alla Þjóð- verja, sýnir það bezt, að stjórnin lætur með þessu í ljós vilja al- þjóðar. Þýzka stjórnin mun beita öllum kröftum sínum til þess að tryggja þýzku þjóðinni þá þjóðarsamein- ingu og frelsi, hið sama frjálsræði til efnalegra og' andlegra framfara, sem bandamenn vilja veita öllum þjóðum álfunnar nema vorri þjóð. Þjóð vor verður að bjarga sér sjálf. Gagnvart þessari tortímingar- þættu verður þjóðin og su stjórn, sem hiin hefir valið sér, að snúa tökum saman. Án tillits til flokka- skiftingar verður þjóðin að slá ^kjaldborg um óbifanlegan vilja til lJess að vernda þýzka þjóðernið og frelsið, sem hún hefir fengið. Leibfélag Reykjavikur. Stjórnin skorar á alla borgara rík- isins, að standa sameinaða með henni á braut skyldunnar, á þessum raunatímum, og treysta á sigur réttlætisins og skynseminnar. Ummæli þýzku blaðanna. Stjórnarblaðið „Vorwárts" hefir „Tortímingarfriður* ‘ að yfirskrift á friðarskilmálunum. Segir blaðið, að ljóst komi það fram í skilmál- unum, að bandamenn vilji misk- unnarlausjt ganga milli bols og höfuðs á Þýzkalandi. Þeir liafi nú kastað grímunni, og þó sérstaklega Bandaríkin. „Vér vitum enn eigi, hvort þjóð vor beygir sig undir þetta dæmalausa ofbeldi. Hallærið í landinu leggur oss sérstakar skyldur á herðar, en ef vér skrif- um undir þessa friðarskilmála, þá er það eingöngu vegna þess, að vér erum neyddir til þess. Þetta getúr ekki orðið annað en falskur friður. Það er tilraun til þess að útrýma lieilli þjóð, eigi með vopnum, held- ur með viðskiftaánauð. Það verður aldrei annað en ,pappírssnifsi‘, sem dregur það á langinn, að liinn rétti friður komist á. Réttlætishug- sjónin er svívirt.11 „Berliner Tageblatt“. segir,"að Þjóðverjar geti alls eigi gengið að friðarskilmálunum. Þeir sé niiklu verri heldur en Þjóðverjar hefði nökkuru sinni getað gert sér í hug- arlund. Þetta sé að eins kúgunar- pólitík, og ef skilmálunum fáist ckki breytt, þá sé ekkert annað svar við þeim en : Nei! Hægri blöðin taka enn dýpra í árinni og alþýzku blöðin telja það óðs manns æði, að ganga að skil- málunum. „Tágliche Rundseháu“ segir, að skilmálarnir sé miklu verri heldur en hinir svartsýnustu Þjóðverjar höfðu búist við. Öllum, sem hefði vonast eftir réttlátum friði, eða al- þjóðasambandi, liefði skjöplast hrapallega. Hungurdauði hef- ir of væga merkingu til þess að lýsa skilmálunum. Það er þræla- f r i ð u r. Ófriðnum er lialdið áfram á annan miklu hræðilegri liátt held- ur en áður og öðrum vopnum beitt, til þess að ko'ma í veg fyrir það, að þýzka þjóðin geti noltkru sinni náð sér. Ummæli þýzkra stjórnmálamanna. Þegar er Þjóðverjum hafði verið birtir friðarskilmálarnir, leituðu þýzkir blaðamenn umsagnar full- trúa þeirra. Leizt þeim mjög á einn \ eg — að samningarnir væri óhaf- andi. Landsberg dómsmálaráðherra sagði, að þeir fengi ekki að ræða samningana munnlega við fulltrúa bandamanna, heldur yrði þeir að senda álit sitt í bréfum og banda- rnenn svöruðu á sama hátt, þangað til eig'i væri um annað að gera fyr- ir Þjóðverja en segja annaðhvort já eða nei. Prófessor Walter Schlúcking sag'ði, að jafnvel í smávægilegustu atriðum kæmi fram sá ásétningur Frákka, að niðurlægja Þýzkaland. Skilmálarnir væri blátt áfram hræðilegir. Giesbert mælti: Slíkur friður og sá, sem nú er oss boðinn, þýðir það, að hinir þýzku verkamenn skulu um aldur og æfi vera þrælar „im- perialisma‘ ‘ bandamanna.Vér verð- um nú þegar, að snúa inn á þá einu braut, sem oss er opin, en hún er sú, að semja frið við Rússa og fá Bolzhewikkahersveitir til Þýzka- lands. Vér getum ekki gengið að j'riðarskilmálunum. Þess vegna verðum vér að taka afleiðingunum af því óttalaust. Keil, forsætisráðherra í Wúrten- berg' mælti í ræðu, sem hann hélt í þinginu hinn 8. maí: „í gær var dómsdagur hinnar þýzku þjóðar. Friðarskilýrðin eru kylfuhögg á oss. Stórveldið þýzka á að hneppa ií fjötra. — Aldrei njummi vér iganga að þessum skilyrðum. En vér viljum eigi heldur sleppa allri von um það, að þeim fáist breytt til batnaðar. Hirch, forsætisráðherra Prússa, mælti á líka leið í þingi þóirra. Mót- mælti hann þar kröftuglega í nafni prússnesku þjóðarinnar, tilraunum bandamanna til þess að hneppa þýzku þjóðina í ánauð. Hann skor- aði á alla, að sýna stillingu á þess- ,um alvarlegu tímum og láta engar msingar hlaupa með sig í gönur. Það væri að eins ein bjargarvon, og hún sú, að leggja niður allar innan- lands deilur, að fylkja sér hlið við hlið og' skjóta á skjaldborg um stjórnina. Brezkir verkamenn mótmæla friðarskilmálunum. Það er ekki ofmælt, þótt sagt sé að allan heiminn furði á hinum hörðu friðarkostum bandamamia. -Eftir alt, sem á undan var gengið, allar hinar innf jálgu ræður og' yfir- lýsingar stjórnmálamanna banda- manna um það, að bandamenn berð- ust eigi fyrir neinu öðru en réttlæti og jafnrétti meðal allra þjóða, hafði engum komið það til hugar, að þeir mundu vilja níðast svo á Þjóðverj- um, sem nú ber raun vitni. Hvað er nú orðið af hinum fögru hug- sjónum, sem áttu að umskapa lieim- inn og færa mannkyninu blessun hins ævarandi friðar? Svo spyrja nú margir, því jafn harða friðar- kosti og bandamenn setja Þjóðverj- mn nú, hefir enginn þekt fyr. Fyrst eru Þjóðverjar néyddir til þess að láta af höndum hergögn sín, eim- reiðar, járnbrautarvágna, skipa- stól, landbúnaðarvélar o. s. frv, og svo, þegar þeim hefir verið komið þannig á kné, áð þejr eru varnar- lausir, þá er vegið að þeim. Og treystist þeir ekki til þess að geta fullnægt friðarskilmálunum, þá á að beita þá vopninu sem ægilegast hefir reynst: að svelta þá inni. „Mun sú þeim eigi sárust nauð, að sjá oss feita og káta, er ekkert fæst á borðið brauð og börnin þeirra gráta?“ lætur Þorsteinn árlingsson Farise- ann segja. Er hér ekki líkt á komið ? Það kveður jafnvel svo ramt að því, hvílíkum vonbrigðum heimur- inn hefir orðið fyrir, er friðarskil- málarnir voru birtir, að brezkir verkamenn hafa mótmælt þeim liarðlega. Segja þeir, sem er, að grundvallaratriði friðarins, sem áttu .að vera hinár 14 greinar Wil- sons, sé bersýnilega fótumtroðnar og bandámenn hafi gengið á bak allra sinna orða og' loforða. Þeir vilja, að Þýzkaland geti orðið efna- lega sjálfstætt og frjálst ríki, að það risi aftur úr rústum. Þeir vilja taka það inn í alþjóðasambandið og þ^ir vilja ekki svifta það nýlendun- um. Þeir mótmæla því kröftuglega, að sneitt sé af Þýzkalandi á alla vegu éftir geðþótta bandamanna, án þess að íbúar þeirra héraða sé að spúrðir. Þess vegna heimta þeir það, að þjóðaratkvæði fari fram, eigi einungis í þeim héruðum, sem Póllandi eru ætluð (Slésíu, Posen og Vestur-Prússlaúdi) og Moresnet, sem Belgum er ætlað, heldur einnig í Elsass Lothringen. Og þeir mót- mæla því harðlega, hvernig á að fara með Saarhéraðið. Enn fremur mótmæla þeir því, að þýzka Austur- ríki skuli ekki fá að sameinast Þýzkalandi. Verkamenn í Bandaríkjunum hafa enn eigi látið uppi álit sitt, en búist er við því, að þeim muni þykja Wilson ekki fastheldinn á hugsjónir sínar, enda mun nú mega segja það, að heiminum hafa ekki brugðist svo vonir um neinn mann sem hann. Sjómenn á skipum grænlenzku verzl- unaríélagsins í Kaupmannahöfn heimte. liærra kaup, styttri vinnutíma og fleiri atyinnubætur. Félagið hefir ekki séð sér fært að ganga að kröfum þeirra og komst fvrsta Grænlandsfarið í ár því ekki á stað á réttum tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.