Morgunblaðið - 13.08.1919, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.08.1919, Blaðsíða 2
2 MORGiní BL AÐÍÐ 5. 0£ verður á morgun (fimtudag) ki. 8 siðdegis. Aðalliðið við A. B. Aðgangur kostar: Sœti kr. 3.00, Pallstæði 2.50, 0nnur stæði 200, Barnastæði 0,50, Sjáum nú hvað okkar menn duga Tlííir sem veflinqi va(da verda að koma og sfd Tf. B. keppa í síðasfa sinn. Aldrei betra tækitæri að sjá göða knattspyrnu. Heimboðsnefndin. MORGUNBLAÐIÐ Ritatjóri: Vilh. Finsen. Ritstjórn og afgreiðsla í Lækjargötu 2. Sími 500. — Prentsmiðjusími 48. Kemur út alla daga vikunnar, afi mánudögum undanteknum. Ritstjórnarskrifstofan opin: Virka daga kl. 10—12. Helgidaga kl. 1—3. Afgreiðslan opin: Virka daga kl. 8—5. Helgidaga kl. 8—12. Auglýsingum sé skilað annaðhvort á afgreiðsluna eða í ísafoldarprent- smiðju fyrir kl. 5 daginn fyrir útkomu þess blaðs, sem þær eiga að birtast Auglýsingar, sem koma fyrir kl. 12, fá að ölluin jafnaði betri stað .í blaðinu (á lesmálssíðum) en þær sem síðar koma. Auglýsingaverð: Á fremstu síðu kr. 1.60 hver em. dálksbreiddar; á öðrum síðum kr. 0.80cm. Verð blaðsins er 1 kr. á mánuði. Það þykir alt af tíðindum sæta; er stjórnarskifti verða og heilt ráðuneyti leggur úr höndum sér stjórnartaumana og knýr nýtt til að myndast og skipa sæti sitt. Sá atburður hefir nú gerst met) þjóð vorri síðustu dagana. Fyrsta íslenzka ráðuneytið leggur niður völd. Ýmsum glöggum mönnum á veð urfar þingsins, hafði ekki komið það á óvart, að eitthvað mundi aðsigi í þinginu. Óvanalega hljótt var þar, svo sem oft er undanfari stórviðburða og stórviðra. Þó hafði engan órað fyrir, að öll mundi stjórnin fjúka. Menn höfðu talið víst, að minsta kosti sæti forsætis- ráðherra eftir. En nú er svo komið, að það er autt skarð fyrir skildi. Nú kemur til kasta þngsms að velja rnenn, að mynda nýtt ráðu- neyti. Hverjum verður nú skotið Upp í ráðherraembættin? Hverja telur þingið sig hafa samvizkusam- legan rétt til að velja fyrir stjórn- endur þjóðarinnar á þessum mik- ilvægu tímamótum henuar ? Og hverjir telja sig vaxna því að taka á herðar sér þá byrði, sem ráð- herrastaða leggur þeim á herðar? Nú má þingið ekki fara gömlu ieiðiaa að tefla einhverjum ósjálf- bjarga flokkspeðum fram og upp í ráðherrastól, án þess að snefill af mætti sé til þess að skipa það rúin. Nu v e r ð a þingmenn vorir að sameina sig um þá menn, ef nokkr- ir eru til innan þingsins, sem lík- legastir eru til að bjarga þjóð vorri úr þeim kröggum og þeirri kyr- stöðu, sem nú er. Og séu þeir ekki til innan þings ins, þá er að fara út fyrir það. Ef þingið getur ekki lagt fram úr sín um flokki þá menn, sem nú þarf á að halda til forráða, þá verður það að leita út fyrir sig sjálft. Það er öllum kunnugt, að innan þingsins eru fáir menn, sem tekið gætu við stjórn landsins svo í lagi færi. En þjóðin á marga slíka menn. En ábyrgðin hvílir á þinginu. Undir því er það komið, hverjum þjóðin á að lúta næst, hvort það vejrður úrræðalaust, seinlátt og óframsýnt ráðuneyti eða framsýnt, víðsýnt og glögt á hvað þjóðinni horíir til heilla. Það er á valdi þess, hvort okkur verður nú vafinn einhver óheilla Héðinn að höfði. En hitt dylst engum, að það er ekkert glæsilegt að taka við út- nefningu ráðherra nú og „dumpa“ svo ef til vill við kosningar í haust. Öumir halda því líka frám, að ei sé mögulegt að mynda stjórn, fyr en kosningar séu afstaðnar. Þá fá- ist hreipar línur og skýr takmörk þeirra flokka og flokksbrota, er nú hjara innan þingsins. Og þá komist skipulag á þann graut hálf- myndaðra, hálfhugsaðra, hálf- dauðra og hálfafturgenginna flokka, sem nú þvælast hver fyrir öðrum. Sannleikur er það, að alt af hreinsa nýjar kosningar til. En hvað sem er um það, þá verður úngið að muna eftir þeirri skyldu, sem hvílir á því, muna eftir þjóð- inni, sem áreiðanlega mun bera jess menjar um marga áratugi, hvernig það ráðuneyti starfar, er nú sezt 4 laggirnar. Víða erlendis hefir sá siður kom- ist á, að gefa þjónum á gistihúsum veitingahúsum svo kallaða drykkjupeninga“ eða „þjórfé“, e. stinga að þeim nokkrum aur- um framyfir um leið og borgað er fyrir veitingarnar. — Fyrst í stað, jegar þessi siður var að komast á, urðu þessir drykkjupeningar að lireimii og beinni viðbót við þau fullu laun, sem þjónarnir fengu hjá húsbændum sínum. En smátt og smátt, einkum á fjölsóttari stöðum, urðu þesar g.jafir meiri en sjálf launin, svo að þjónarnir voru og eru enn víða alls ekki ráðnir upp á nein laun heldur verða jafn- vel sumstaðar að borga með sér til að fá stöðurnar. Víðast hvar eru þessar þjórfjár gjafir afarilla liðnar og það af þessum ástæðum: Menn sjá ekki ástæðu til að yfir borga veitingar fremur en aðrar vörur, er menn kaupa. En þessar gjafir eru auðvitað ekki annað en yfirborgun í sínu upprunalega formi. Menn sjá ekki ástæðu til að þjón ar í veitingahúsum eigi að fá auka þóknun fremur en t. d. þjónar við afliendingu 1 búðum, og þegar svo er komið að þessar peningagjafir eru orðnar einu launin, sem þjón- arnir fá, þá virðist sú launaaðferð hafa fleiri ókosti en kosti fram yf ir fasta launaformið. Fólk kann alment ekki við það að vita ekki upp á hár hvað þjón arnir gera sig ánægða með, en kær ir sig ekki um það á hinn bóginn. að láta af hendi meira en það sem er sanngjarnt. Fyrir utan það, að þessar gjafir hafa fremur siðspillandi áhrif á þá sem þiggja, og lækka þjóna í áliti, þá hafa tekjur þjónanna núna á stríðsárunum víða verið svo óviss ar, að sumstaðar hafa þeir heimtað að komast á fost laun, að sjálf sogðu einkum í stríðslöndunum. Feíkna mikið hefir verið skrifað móti þessu þj'órfjárfargani o jnörg ráð fundin til að fá það af- rmmið. En það gengur illa. Mörg veitingahús hafa reynt að afnema rað, en illa tekist, nema öllu fyrir komulaginu væri þá gjörbreytt. Einna bezt hefir gefist sú aðferð, að láta gestina sjálfa þjóna sér, e. sækja sjálfa veitingarnar að Komið með AUGLÝSINGAR tímanlega framreiðsluborðinu og fara með rær til sætis síns ,Er þá keypt og borgað án þjórfjár, eins og við hvert annað búðarborð. En þetta fyrirkomulag þykir ekki hæft á fínni veitingastöðum. Um leið og hér á landi eru að vaxa upp veitingastaðir eins og tíðkast í öðrum löndum, þykir hlíta að gera þetta að umtalsefni, til þess að menn fái þá ástæðu til að leggja orð í belg, ef mönn- um þykir málið þess vert. Það er sem sé hægast að kæfa hvern ósið í fæðingunni, og má nú ekki seinna vera, því’að hann hefir þegar náð hér allmiklum tökum. Þótt hvorki þyki það enn þá sjálfsagt eða bein skylda að gefa þjórfé, þá mun þess ekki langt að bíða, að farið verður að taka tillit til slíkra gjafa við ráðningu þjóna, svo að það er þá um leið orðið sama sem skylda. Sumstaðar erlendis eru beinlínis dómar fyrir því, að það sé laga- skylda að gefa að minsta kosti tí- unda part af greiðsluupphæð þjórfé. Hér á landi mun varla kom- ið svo langt, að það sé einu sinni talin siðferðisskylda, hvað þá laga- leg skylda. En svo langt er komið að það þykir að minsta kosti ekk ert „flott“ af þeim, sem annars vilja sýnast nokkuð, að skorast undan að gefa þjórfé. Og það sem gerir þessa byrjun, sem þegar er innleidd, illræmda, er það, að þeim sem ekki vilja ala það*sem að þeirra dómi er afturför og ósiður, þykir á hinn bóginn leitt að vera álitnir annaðhvort nirflar, eða þá að þeir kunni ekki „útlenda mannasiði* ‘! En sem sagt var, þá er siðurinn ekki rótgrónari en svo, að ef menn vilja uppræta hann, þá er það vel hægt með aðstoð blaðanna. Hér er enn engin þjónastétt, sem mundi finna skert réttindi sín, heldur mestmegnis notaðar stúlkur til að ganga um beina og hinar sömu að eins um stundarsakir. Má oft sjá þess dæmi, að stúlkurnar þekkja alls ekki siðinu, þær vita sumar ekki einu sinni hvort þær ciga að >akka fyrir þjórféð, og fleygja því máske með hinum peningunum í fjárhirzlu ‘ veitingahússins. Og al- veg er brent fyrir það, að þær sýni þeim gestum neina frekari al- úð, sem vanir eru að gefa þjórfé. Er það í rauninni líka sjálfsagt, að gera öllum vel til, og fara ekki í neitt manngreiuarálit, þótt reynt sé að múta til þess. — Það, sem hér er um að ræða, er rví, á þessu stigi málsins, hvort menn kæra sig um að koma í veg fyrir að þessi peningagjafasiður verði að fastri reglu og skyldu. í lýjum tímaritum erlendum má sjá langar greinir með áskorunum um afnám hans, og mætti vænta að menn væru á líkri skoðun hér. En ió þurfa fyrst og fremst að heyr- ast einhverjar alvarlegar raddir um lað, og þá kemur næst að gera lær ráðstafanir, sem nauðsynleg- r eru, helzt í samráði við veitinga húsin sjálf. Afl og efni Islands. Eftir Fr. B. Arngrímsson. „Bíum, bíum, barnið góða sofðu viurt og sofðu lengi.“ J. II. Það eru vögguvísur og líksöngv- ar öllu hcldur en hersöngvar og sigurljóð, sem mér koma fyrst hug, þegar eg' lít á úrslit heims- ófriðarins og áhrif hans á Norður lönd og fsland. Fimtíu ára starf og strit liins germanska kynbálks í Miðevrópu fyrir velmegun sinui, verzlunar- frelsi, eða fullveldi, á sjónum, og jafnrétti til að stofnsetja og eign ast nýlendur í Afríku, Asíu og ann- ars staðar í heiminum, cr gersam- lega eyðilagt. Tvö stórveldi stykkj uð í sundur, Germanir, íbúar Jieirra ræntir löndum, vopnum, herflota og' verzlunarflota, og klyfjaðir ó- bærilegum skuldum. Öll Miðevrópa liggur, að heita má, í blóði sínu; hér á Norðurlöndum hafa frændur vorir beðið talsverðan hnekki og ísland sjálft ekki íarið varhluta af ófriðnum, þó alt minna en flestar aðrar þjóðir. — Hér á íslandi hef- ir fimtíu ára strit helztu leiðtoga alþýðu, sem telur nú um 90 þús- und manns, endað með því að fs- land er skírt fullvalda eða frjálst ríki; en þjóðin hefir á þessum síð- ustu árum sökt sér í skuldir, sem nú nema, að sögn, minst 14 miljón- um króna, þ. e. um 150 kr. á mann, en sjálf á liún ekkert vígi, né neitt verulegt hergagn, né varnarlið til að verja kauptún sín, ekki einasta höfuðstaðinn, og' ekki svo mikið sem einn strandvarnabát til að verja strendur landsins og fiski- flota þess, ef á þyrfti að halda. Þess konar fullveldi er meira í orði en á borði, ekkert sem alþýðan get- ur verið sérlega liróðug af. Um 40 ár eða meir, nfl. síðan Jón Siugrðsson leið, hafa stjórnmála- arpar íslands verið að þrefa við Dani um sérréttindi íslenzku þjóð- armnar, og hafa heimtað sérstaka stjórn og fullkomið framkvæmdas- vald, jafnt og fult löggjafarvald, og nú upp á síðkastið dómsvald. Ekkert bindur nú ísland lengur við Danmörku, nema sameiginlegur konungur og verndun Dana um næstu 25 ár; og hagfræðingar ís- lands og verkfræðingar hafa starf- að að því og hjálpað til þess að leggja hafsíma til Hjaltlands, sem er brezk eign, ekki beint til Dan- merkur, og þar næst lagt síma yfir ísland, sem er uú metiun mjög mikils. Auk þess hafa þeir og þjóð- félagið brúað ýmsar ár og fljót, bygt þjóðvegi og' komið upp verk- smiðjum, klæðaverksmiðjum, þó cnn sé í smáum stíl, komið upp öfl- ugum skipastól, en bændur hafa keypt ýmis konar jarðyrkjuáhöld, og fræðimenn hafa ferðast um landið og athugað og' rannsakað orkulindir þess, steinaríki þess og jarðveg. En þrátt fyrir þetta starf og strit, veit almenningur ekki mikið betur nú en fyrir 45 árum síðan, hve mikla orku eða vinnu- afl ísland geymir, né hvaða nýtileg efni felast í skauti þess; og engar verksmiðjur eru enn til að nota leirtegundir þess sem byggingar- efni né til að höggva hraungrýti þoss og nota það eða aðrar stein- tegundir. Og þótt allur þorri al- þýðu hafi, síðan fyrir 25 árum, liaít einhverja hugmynd um og jafnvel sönnun fyrir því, að mögulegt sé með nútíðaráhöldum að láta ár landsins og fossa ala rafmagn til ljósa, eldunar og liúshituuar og til ýmis konar iðju, og' hafi vitað að ekki þurfti annað en að kaupa verkvélarnar frá Ameríku eða frá grannalöndunum, einkum Noregi og Svíþjóð, sem nú eru langt kom- in í þeirri iðnaðargrein, þá eru að eins örfáir kaupstaðir enn hér á landi, sem nota rafmagn til ljósa og lítillega til eldunar enginn hinna stærri kaupstaða nema Seyðisfjörð- ur einn, en alls enginn til húshit- unar né til stóriðnaðar. Akureyri, ísafjörður og Reykjavík nota enn steinolíu til ljósmatar, þegar hún fæst, og kol eða mó sem eldsneyti (Iieykjavík er það lengst komin í kolanotkuu að hún hefir koks og býr til gas, sem þeir kaupa, er efni hafa til þess), annars yrðu þessir prír stærstu bæir landsins að sitja í kuldanum og myrkrinu á vetrum. Þeir einir, sem hér á landi nota rafmagn til húshitunar, eru eða hafa verið bændurnir á Karlsskála við Reyðarfjörð og bóndi nokkur í Þykkvabæ í Suður-Múlasýslu, að iví er mér er sagt. Svoua seint og örðugt hefir hinni nýju fræðigrein eða iðnaði, rafmagnsfræðinni og rafiðjunni, gengið að ryðja sér til rúms hér á Islandi, og svona örð- ugt hefir rafljósið og' rafhituuiu átt meö það hér, að eyða rnyrkri vetrarins og kulda. Hverjum eða hverju er um að kenna? Er það alþýðunni eða stjórninni eða fátæktiíini, eða hverju? Ekki alþýðunni, því að hún var einna fyrst til að sjá þörfina á að fara að nota orkulindir landsins. Það var óskúlagenginn maður, Seiö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.