Morgunblaðið - 22.08.1919, Blaðsíða 4
4
MORG0NBLAÐIÐ
Svo finst mér ritdómur sá, er
birtist í 33. tbl. „Lögréttu" þ. á.,
vera.
Hinn lærði Guðm. Hannesson,
læknir og kennari við háskólann
hér í Reykjavík, hefir allramildi-
legast skrifað ritfregn, sem hann
svo kallar, um 4. licfti „Fylkis“
(átk. slðastliðinn vetur) og íyrir
það ætti eg líklega að kunna hon-
um þakkir; en sú ritfregn er þann-
ig stíluð, að mér er ekki ljóst, hvort
eg á að skoða hana sem lof eða last
í heild sinni, og get ekki fallist á
dóm hans í sumum atriðum;
Það er sök sér, að höf. líkir r
inu við fornmannahaug, þar sem
alt er hrært saman, mold, silfur o
gull. Auðvitað mun flestum finn
ast efasamt, að það sé ómaksins
vert, að leita gull- eða silfurmenj
■it-
í stórum moldarbing, enda þrátta
eg ekki um það.
Ritgerðin um heimsófriðinn virð
ist honum einna skárst að efni oé
orðfæri, og telur henni það einkum
til gildis, að hún brjóti ísinn í því
að bera sökina af Þjóðverjum, sem
allur fjöldinn segi hafa verið
helztu frömuði heimsófriðarins, og
Vilhjálm II. þeirra fremstan. Rit-
gerðin segir nefnilega, að heims
ófriðurinn eigi langtum dýpri ræt
ur. En ritdómarinn gengur fram
hjá helztu rökunum, sem færð eru
fyrir því ; nefnilega margra alda
þjóðametnaði og trúardeilum milli
Germana og Frakka, og á seinni
öldum miskunnarlaust peningaok-
ur, óréttvís rentulög og þungar á
lögur á eina hönd, en atvinnuskort
í stórborgunum, óhóf fjöldans og
æsingar byltingamanna á hina.
Höf. gengur fram hjá ritgerðinni
„ísland í stríði“, enda er hún að
eins byrjuð í ritinu; en í þess stað
tekur hann upp þýðing á enskri
stöku, og þykir honum hún svo
góð, að það sé næsta kynlegt, að eg
skuli heldur vilja hýrast í myrkri
og kulda norður á Akureyri, en að
leita mér viðurværis hér í Rvík,
sem tungu'málakennari. — Höf.
gætir þess víst ekki, að hér í Rvík
er engin þurð á tungumálakennur-
um, og að þeir munu þykjast ein-
færir um að kenna öllum sem til
þeirra koma, og ekki vera of hátt
launaðir. En á Akureyri eru færri
kennarar og því eins líklegt, að
ekki hálærðari maður.eða víðfræg-
ari en eg er, geti lfað þar, eins vel
og hér. Hitt er markvert, að höf.
þykir svo mikið til þess koma, að
eg get snarað enskri stöku sæmi-
lega vel á íslenzku, eftir svo langa
dvöl erlendis, en þykir næsta lítið
til fyrstu og frumlegustu ritgerðar-
innar í nefndu hefti koma.
Fyrirsögn fyrstu ritgerðarinnar
er „Sindur og síur“. Getur höf.
þess, *að hún sé um steinaríki Is-
lands og um rannsóknir míuar á
steinategundum, samkvæmt því, er
Alþingi hafi ætlast til með styrk,
er það veitti mér; en bætir svo við:
„Eg légg ekki mikið upp úr henni.“
Þetfa finst mér nokkuð þungur
dómur um ritgerð, sein eg sjálfur
tel frumlegasta í ritinu og talsvert
þýðingarmeiri eu allar athugasemd-
ir mínar í ritsjá heftisins. Sé hún
léttvæg þá er alt ritið ekki mikils
virði. En þrátt fyrir dómgreind
hof. og lærdóm og nokkra and-
marka á greininni, sein eg verð að
biðja afsökunar á, þá held eg hana
þó ekki alla andlega mold eða
sorphaug. Grein þessi geymir að
vísu nokkrar slæmar ritvillur og
prentvillur, sem eg nota tækifærið
til að leiðrétta hér:
Á bls. 4. stendur, að Alþingi hafi
veitt mér 600 kr. á ári til að safna
Bteinategundum til iðnaðarnáms,
0, s. frv. — Þetta er ranghermt.
Þar á að standa: „til iðnaðaraf-
nota.“ Sbr. 2. hefti Alþ.tíð. 1917.
Eins er aths. mín, sem fylgir á
nefudri bls., röng.
Á bls. 6. í efstu línu stendur orð-
ið „oxyd“ f. „earbonat“, og í
neðstu málsgrein á sömu bls. ber að
lesa „silicium earbid (SiC)“
„calcium earbid (CaC)“, og
neðstu línu, „tinnu“ (silica)
„kalki' ‘. Alt þetta eru ritvillur.
Á bls. 10. stendur „hvamar“ f.
„kvarnar“.
Þetta eru verstu villurnar í
nefndri grein, þó auðvitað ætti
málsgreinin neðst á 6. síðu að vera
í III. þætti, bls. 8.—9-*
En þrátt fyrir allar þessar rit-
villur og prentvillur, held eg ofan
geindri skoðun minni, að greinin
sé ekki andleg mold og ekki óverð-
ug þess að prentast. Hún er að vísu
ekki ætluð til þess að kenna há-
■skólakennurum steinafræði né múr-
steinagerð eða sementsbrensluyheld-
ur er hún rituð til þess að vekja
athygli almennings á algengustu
steinategundum og leirtegundum
landsins og til að benda, ef mögu-
legt er, á vegi til að nota þær miklu
betur og miklu meir til bygginga
og til iðnaðar, en enn hefir verið
gert.
Reynist það rétt, - sem eg trúi
sjálfur og reyni að færa rök fyrir
þar, að Island geymi gnægtir af á
gætu byggingarefni, og að mögu
legt sé, án afarkostnaðar, með nú-
tíma tækjum, að vinna úr þeim gott
byggingarefni og um leið að byggja
hlýrri, varanlegri og miklu ódýr-
ari hús úr al-innlendum efnum,
heldur en nú er mögulegt úr timbri
eða öðrum aðfluttum byggingar-
efnum, þá er ritgerðin ekki samin
til einskis. Og reynist um leið
mögulegt fyrir alþýðu, að endur-
byggja hvern sveitabæ og hvert í
búðarhús, sem nú er til úr timbri
eða lélegu byggingarefni, úr inn-
lendum steini eða steypu, án þess
að eyða til þess einum 36 miljón
um króna, eins og ritdómari minn
heldur að þurfi til að byggja upp
alla sveitabæi landsins, — en gæti
sparað sér segjum þriðjung þeirr
ar upphæðar eða meir, með því að
vinna úr steintegundum landvsins
eins og mögulegt er, þá þarf hvorki
eg né aðrir að sjá eftir peningun-
um, sem fóru til að prenta hana.
En að orð mín í nefudri grein, og
þau sem hér eru rituð, sannist áð-
ur en mörg ár eða áratugir líða,
vona eg og treysti eins sannarlega,
eins og eg treysti því fyrir 25 ár-
um, að orka vatnsfallanna hér á
landi gæti, ef rétt væri notuð, hitað
hús þess og heimili betur og ódýr-
ar en kol, steinolía, gas eða annað
eldsneyti. Og eg veit, að hiu upp-
vaxandi kynslóð mun .sjá, að það
voru engar hillingar eða vitstola
manns loftsjónir.
Með þessum orðmn þakka eg rit-
dómara míuum fyrir sinn misjafna
ritdóm.
Reykjavík, 20. ág. 1919.
Fr. B. ArBgrímsson.
Bílhanzkar
margar t©gundir, nýkomnar í
Banzkabúðina Austnrstr. ö
ÁSBY
4!
DAGBOK
2
I. O. O. F. 4012289 —
Veðrið í gær.
Reykjavík: NNV. st. kaldi, hiti 6,7 st.
ísafjörður: N. hvassviðri, hiti 5,6 st.
Akureyri: NNV. kul, hiti 4,0 st.
Seyðisfjörður: NV.sii.vindur, hiti4,7 st.
Grímsstaðir: N. kul, hiti 0,6 st.
*) Eg get þess hér einnig, að í rit-
gerðinni um Heimsófriðinn, bls. 37.,
er setning slitin í sundur, svo að ó-
skiljanleg er. Fyrir „1789. Þegar þegn-
ar Frakklands" ber að lesa: „1789,
?egar flestir þegnar Frakklands". Enn
fremur á bls. 41 f. „drotning' ‘ les:
„drottnar",
verslunin á Grettisgötu 38
heilr nu á boðstólum:
ýms búsáhöld, svo sem: vatnstðtur húðsterkar, mjólkurfðtur
smærri og stærri, flautukatla, vatnsausur, pottahlemma
úr jirni með tinhúð, olíubrúsa, Þvottaskálar gleraðar, nátt-
potta gleraða, prímushausa, rykskóflur, strákústana
góða, gólískrúbbur o. fl. At mjög ódýrt. Ennfremur mikið af
barnaleikfðngum af ýmsri gerð. Fægikvoðu o. m. fl.
Sími 161.
U ppboð.
Laugardaginn 23. þ. m. kl. 2 e. hád. verðnr að
Hliði í Bessastiðahreppi, selt við opinbort uppboð
talsvert af þurri og gójri töðu.
í fjarv. minni
gegnir herra prófessor Óiafar Lirusson borgarstjórastöðunni.
Borgarstjórinn í Reykjavík 18. ágúst 19x9.
K, Zimsen,
Hetbergi
t gott herbergi i eða nálægt M.ð-
bænum óskast frá 1. október.
Jón Sigurðsson,
Landsverslunmni.
Vestm.eyjar: N. sn. vindur, hiti6,l st.
Þórshöfn: Logn, hiti 8,0 st.
Silfurbrúðkaup eiga í dag verkstjóri
Magnús Vigfússon og Sólveig Jóns-
dóttir, Kirkjubóli.
Eldur kom upp í kjallara á húsi
Ól. konsúls Johnsons við Þingholts-
stræti, í gærmorgun. Kviknaði út frá
rorum í kolageymslunni og brann dá-
lítið af kolum. Skemdir urðu sama sem
engar, enda varð eldsins vart áður en
hann hafði maguast.
Brezkur botnvörpungur kom hingað
í gærinorgun. Hafði sá verið við veiðar
í nokkra daga hér í Flóanum.
1 kvöld kl. 81/*: Gleðisamkoma
Söngur og hljóðfærasláttur.
0
Allir velkomnir!
Jlei).
Get útvegað 50—60 hesta af góðri
eyjatöðu. Allar upplýsingar hjá
C. Proppé.
Bifrtið
Jón Jónsson. Maður nokkur kom á
rakarastofu hér í bænum fyrir ekki
löngu síðan og vildi fá rakstur, Voru
þar 6 menn fyrir. En svo skringilega
vildi til, að allir hétu þeir Jón, og enn
skringilegra var hitt, að þeir voru allir
Jónssynir. Og þó eru menn að segja,
að ættarnöfnin séu óþorf.
Jarðarför Lárusar Pálssonar prakt.
læknis fer fram í dag kl. 11,
Símaskipið frá „Stóra Norvænu“ er
komið til Færeyja, en viðgerð á sím-
anum eí eigi lokið enn.
Bæjarstjórnarf'undur var haidinn í
gær. Frcttir af honum koma í blaðinu
á morgun,
fer austur að Garðsauka mánudaginn
23. ágúst kl. 8 ef 3 farþegar gefa
sig fram. Upplýsingar hjá R. P.
Levf. Sími 186.
Tækifæriskaup
á tvennum nýjum aktýgjum og
tveimur þýzkum nýtisku reykbrenn-
urum (ofnum),
Upplýsingar í Iugólfsstr. 8, niðii.
1-2 herbergi
og eldhús óskast til leigu strax eða
1. okt. Upplýsingar i ísafoldar-
prentsœiðju. Simi -38,
Úívega erlend-r
vörur með
verksmiðjuverði.
0. Friðgsirss.
&
Skúlason
Selja islenzkar
afurðir
hæsta markað8verBi
Bankastræti n Linnésgade 26
Reykjavík. Kðbenhavn.
Hafa bein viðskifti við veiksmiðjur í ýmsum löndnm, sem meðal
annars framleiða eftirtaldar vörnr:
Allskonar þrjónaðar vórur úr ull og bómull. ánelinliú c$ta. Alls-
konar niðursuðuvörur, svo sem: Grœnmeti, Kjótmeti, Marmelade,
Geléer, Avaxtasafa allskonar með sykri, margskonar dvaxtavín óifeng.—
Þnikið qrœnmeti og ber. Smjðrlíki, Osta, Sdpur og annað þvottaefni. —■
AUskonar svertu og [óburð, hdrmeðul. Vindla smia og stóra. Nejtóbak,
Munntóbak. Arar allskoaar úr eik og furn. Síldartunnur, Kjðttunnur,
Tunnuvélar. AUskouar stdlvírstrosur úr sænsku stáli. Pappírsvörur mjög
fjölbieyttar, þar á meðal verslunar og bankabcekur og hverskonar eyðublöð
prentun og bókband er annast um eftir hvers manns ósk. AUskonar
ritjöng. Farfavörur hverju nafni s;m nefnast, á tré og málma, þar á
meðal olíur og lökk. Karamellur, Sukkulaði, Cacao, ódjengt öl. Svuntur
hvítar og misl.tar af ýmsum stærðum, afar fjölbreytil. AUsk. skójatnað.
Húsgöt>n fiá dönskum verksmiðjum. Þakpappi ýmiskonar, Veggpappi og
Veggjapapplr. Al'skonar Gólfdúlcar (íinoleum). AUskonar Lampar og
önnur ljósáhöld. Cement 0. fl.
Frá stærstu heildsöluhúsum: Nýlenduvórur hverskonar. Jarðepli,
Avexti, Salt, Veiðarjœri. Vejnaðarvörur allskonar. tilbúinn Fatnaður. —
Smíðajdrn og Þakjdrn. Skotjœri. Gler og Leirvörur.
Silki einlit og mislit, Silkibónd, Silkisokkar og Silkihanzkar. Allskonar
smdvörur. Fjölbreyttan skrautvarning o. fl.
Einka umboð á Islandi og Færeyjum fyrir John
Willnmsen í Kaupmannahöfn. — Stærsta og ód rasta
heildsala Norðurlanda á allskonar jdrnvörum, smáum og stórum, verk-
fcerum, blihk-aluminium og steindum (emaileruðum) vörum. Ennfremur á
allskonar burstum og kústum, leikjöngum, allskonar saum og mörgu fleira.
Export-kaffið
fiá F. Hjort & Co. Kaupmannahöfn, er alment eftirspart sökum
þess hve drjúgt og bragðgott það hefir reynst.
Er það i orðsins sönnu merkingn virkilegur kaffibætir.
Verðið þó eigi hærra en á öðru export-kaffi.
FJjót afgreiðsla Lág ómakslaun
Greið skil.
UPPB0Ð
á munum úr dánaibúi frú Thoru Melsted, verður haldið laugardagiuu
23. þ. m. kl. 2 s ðd. í portinu við húsið nr. 6 við Thorvaldsensstræti
(hr. Hallgr. Benediktssonar). Munirnir eru meðal annars: Stólar, Garð-
stóll (útistóli), gluggatjöld (rennitjöld), glugg-tjaldastengur, bókahylla, ljósa-
stjakar, lampar, diskir, bollapör, matskeiðar, hnífar, gaflar, ávaxtahnifar,
steinoliuofn, primus, ullaiband, sjilfstæður stigi, eldhúsgögn, tágakörfur
og bækur.
Reykjavík, 20. ágúst 1919.
Skiftaforsfjörar dánarbúsins.
H.f. Arnljótsson & Jonsson
heildsölu og* umboðsverslun
Tryggvagötu 1B. Sími 384*
hafa fengið
Karlmannaföt og einstakar buxur, Fataefnh
Manchettskyrtur, Drengja ,Khaki' skyttur
Stumpasirz Jdeal' Nestles mjóík
Leitvörur o. Ji% o, fl.
Ennfremur fyrirliggjandi sýnisliorn af:
allskonar veiðarfœrum, Hessians,
Málningarvörum.
Segldúk og
Nokkur ný Orgei-Harmonium
seljast með tækifærisverði að eins i þessari viku,
Hljóðfærahús Reykjavíkur, Aðalstræti 5.