Morgunblaðið - 30.08.1919, Blaðsíða 4
4
morgunb;laðið
Laukur
i fiailósölu.
Pórður Sveinsson & Co.
Hófet ístand. Simi 70í.
Andersons
helmsfrægi
„Rok“-þakpappi
. 3 þ y k tir
í heildsölu.
Þórður Sveinsson & Co.
Hótel Island. Sími 701.
Mr. Wood reynir til þess að finna
úrlausn á þessu vandamáli. Hann
segir:
„Til þess að reyna að bæta úr
þessu, þá settum við menn í þá
parta borgarinnar, sem oss virtist
mest með þurfa. Verkefni þeirra
var að eins að leita uppi drengi sem
væru á glapstigum og rcyua að
hjálpa þeim.“
Meinabót eða hegning.
Mr. Wood bendir á tilraunir, eina
eftir aðra, sem gjörðar hafa verið
í sambandi við hin átakanlegustu
tilfelli, sem sanna það, að þessi að-
ferð hafi reynst fyllilega eins vel
og vonlegt var.
Ástæður hans fyrir algjörðri ein-
angrun á fólki, sem fallið hefir fyr-
ir eitri hinna deyfandi lyf ja, þeirra
sem eru andlega óheilbrigðir eða
vitskertir, þar ti'l þeir eru orðnir
heilir, eru ekki einast sannfærandi
heldur auðsjáanlega hagnýtar. Því
sú einangrun kæmi ekki að eins í
veg fyrir að þessir menn sýktu út
frá sér, heldur líka kæmi hún á veg
jfyrir f jölgun þeirra að því er hjóna
band og getnað erfingja snertir, því
slíkt yrði bannað á meðan þeir
væru í slíku sjúkdómsástandi. Mr.
Wood heldur áfram og segir:
„Það er ekki vilji mannfélagslaga
vorra að hegna til þess að ná sér
niðri á þeim, sem sekur hefir orðið
Aðaltakmark þeirra með því að
setja þá sem þau lög brjóta í fang-
elsi er (hvort sem menn hafa skilið
það svo eða ekki) að einangra þá.
Setja.þá á stað, þar sem þjóðfélag-
inu stafar ekki hætta af eini. Með
þeirri óljósu en þó afvegleiðandivon
að þeir muni sjá að sér og verða
betri menn þegar þeir koma út aft-
ur. Og í svæfandi tilfinningarleysl
fyrir þeim sannleika að flestir
þeirra forherðast við fangelsisvist-
ina, eru verri menn þegar^ þeir
koma út heldur en þegar þeir fóru
inn
Erfiðasta spursmálið fyrir þjóð-
félagið að því er snertir glæpamenn
er því að vernda sjáift sig.“
Það er því auðsætt, að hin virki-
lega meining fangelsisvistar þeirra
manna sem lögin hafa brotið er að
vernda þjóðfélagið fyrir þeim með
því að einangra þá, fremur heldur
en að sé að hegna þeim.“
Mr. Wood endar þessar athugan-
ir sínar með þcssum orðum:
„Það er skylda lögreglunnar að
varna þvi að menn verði glæpsam-
legum hvötum að bráð, eins og
heilbrigðisnefndir halda í burtu
drepsóttum og plágum frá héruð*
um sínum.
Og lögreglan verður að skilja
þessa köllun sína og framfyigja
henni af ýtrasta megni, því fólkið
krefst þess og launar óeigingjarna
þjónustu í þarfir þess. Og tilfinn-
ing sú að þéssir bjargvættir mann-
anna, lögregluliðsmennirnir séu að
leg^ja fruw kruftu síuá í óeigin-
gjarnri fórnfýsi till verndar hinum
veiku meðbræðrum sínum, fyllir þá
hinni há'leitu köllun sinni.
LögUerg
Fréftir af fluginu.
1 [I <."U
Flugvélasmiðirnir og eapt. Fa-
ber eru nú önnum kafhir allan dag-
inn að setja saman flugvélina úti í
flugskála. Að vísu er skrokkurinn í
heilu lagi, en vængirnir teknir af
og stýritaumar allir leystir, svo að
mörg þúsund handtök þarf til að
koma þessu völundarsmíði í það
lag, sem það á að vera.
Flugmótorinn.
Mótorinn út af fyrir sig er mjög
merkilegt og margbrotið, verkfæri
að þeim mundi finnast sem bera
skyn á slíka hluti. Enginn mótor,
sem hingað hefir komið til lands,
hefir neitt svipaða gerð. Þeir eru
allir þannig að vélin stendur sjálf
föst, en ásinn snýst. Og þannig er
hann einnig í mörgum flugvélum,—
En mótorinn í þessari flugvél er
þannig gerður að hann snýst sjálf-
ur, en ásinn stendur kyr. Hann er
sjálfur sitt eigið drifhjól og verð-
ur því léttari fyrir bragðið. Bullu-
hausarnir eru úr elmi (Aluminium),
er gerir viðnám þeirra miklu minna
og allan motorinn léttari Hann mun
allur vera um 250 pund-að þyngd,
en hefir um 110 hestöfl, sem gerir
ekki nema nokkuð á þriðja pund
fyrir hvert hestafl. Léttari mótor-
ar hafa verið gerðir en þykja ekki
eins tyggir.
Fyrsta flugsýningin.
Ekki er búist við að alt verði
komið í lag svo að fyrsta flugsýn-
ing geti orðið fyr en á þriðjudag
eða miðvikudag. Er líklegt, að
reynt verði að sæta því að veðrið
verði sem bezt við fyrstu sýning-
una.
Aðgöngueyrir.
En hvernig vurður farið að láta
menn greiða aðgöngueyri? spyrja
margir. Allir geta séð vélina á flugi
innan úr bæ.
En reynslan er sú ahnars staðar,
að mönnum f'inst ekki að þeir haía
hálfa skemtun, nema að þeir séu
sem næst því þar sem vélin stígur
upp og lendir.
Og þaunig er það einnig í raun
og veru. Menn verða að vera nærri
til þess að geta séð vel. Líklega
verður aðgaugurinn heldur ekki
nema svo sem ein króna, svo að
það mundi þykja smásálarlegt af
sama fólkinu sem borgar 2—3 kr.
til að komast inn á íþróttavöll, ef
það færi að þyrpast saman einhvers
staðar álengdar rétt til þess að
narra Flugfélagið um þessa krónu,
sem skemtunin kostaði.
Flugvöllurinn.
Inngangurinn á Flugvöllinn er af
vegi þeim miðjum sem liggur yfir
Vatnsmýrina þvera frá Briems-
fjósinu við Laufásveg og yfir að
Loftskeytastöðinni.
Menn geta þess vegna komið að
hvoru megin sem menn vilja, af
Melunum, beint niður af Loft-
skeytastöðinni, eða frá Laufásveg-
inum.
Ætlast er til að fólkið fái að
standa í kring um sjálfan Flugvöll-
inn eða á skurðbörmunum sem
greina hann frá túnunum í kring.
Þar er þurt og þægilegt að stauda.
Aftur á mói verður ekki hægt að
leyfa mönnum inn á sjálft lending-
arsvæðið, enda gæti hlotist slys af
því.
Farþegaflug.
Eins og fyr hefir verið sagt mun
verða flogið stuttar leiðir með far-
þega. Sú skemtun tíðkast nú mjög
á öllum skemtistöðum og baðstöð-
um svo að segja um allan heim.
Geta menn farið stutta hringferð
fyrir 25—50 kr,
Ódýrar verður ekki liægt að selja
það að svo stöddu, enda venjulegt
verð erlendis, en tilkostnaður hér
tiltölulega meiri.
Jafnvel þótt þetta verði áður en
laugt um líður daglegt brauð, þá
mun það þó einlægt þykja minn-
ingarvert að hafa flogið í fyrstu
vélinni sem kom til landsins. Fær
•hver farþegi undirskrifað skírteini
um að hafa flogið þennan og þenn-
an dag.
Flestir munu gera sig ánægða
með „vénjulegt flug“, en menn
géta líka fengið að taka þátt í
„listaflugi“, en þá verða menn að
eiga um það við sjálfa sig að verða
ekki sjóveikir eða láta ekki „hvolfa
sér úr“ I
Þessi flugvél er allsterkbygð og
þolir jafnvel að snúast við í loftinu.
En það er talsverð áreynsla á væng-
ina, og hefir mörgum orðið hált á
því að leika slikar listir á vélunum
sem ekki voru til þess gerðar.
Nú fáum vér að sjá hvað þorað
verður að bjóða þessari vél. Capt.
Faber er fimur að leika listir í loft-
inu ef hann hefir góða vél, sem
treysta má, en hann er jafnframt
varlcár og leggur aldrei mikið á
hættu að þarflausu.
Með „lislandt um daginn kom
hingað danskur lyfsali, Carlo Ped-
ersen að nafni sem áður hefir verið
í lyfjabúðinui hér í Reykjavík.
Pedersen hefir fengið leyíi til þess
að setja á stofn lyfjabúð á Eyrar-
bakka og mun búðin verða opnuð
um miðjan næsta mánuð.
Þægindi eru það mikil fyrir iólk
austan fjalls að lyf jabúð kemur á
Eyrarbakka. Því vitanlega verða
þar fáanlag ýms þau meðöl, sem
héraðslæknar eiga bágt með að hafa
hjá sér ætíð.
Gjafaiisti.
Margunblaðið stofnaði il sam-
skota um daginn handa fátækum
hjónum. Hér birtum vér gjafalist-
^!an og þökkum gefendum kærlega
'fyrir gjafirnar.
N. N. 10 kr., Anna 10 kr. G. D.
10 kr., S. 5 kr„ S. 15 kr„ N. N. 10
| kr., B. 10 kr„ G. P. 10 kr„ S. B.
20 kr., N. N. 5 kr„ O. 10 kr. Alls
115 kr.
DAGBOI '|
Veðrið í gær:
Reykjavík : Logn, hiti 1,2.
Isafjörður: Logti, hiti 1,7.
Akureyri: Logn, hiti 2,5.
Seyðisfjörður: NV. st. kaldi, liiti 4,6.
Grímsstaðir: NV. andvari, hiti 0,0.
Vestmannaeyjar: N. st. kaldi, hiti 3,1.
Þórshöfn: NNA. st. kaldi, hiti 10,0.
Messað í dómkirkjunni á morgun kl.
11 árd. síra Bjarni Jónsson, (altaris-
ganga).
Messað í þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
á morgun kl. 1.
„Martin“, danskt seglskip kom í
fyrrakveld til Hafnarfjarðar, með
timburfarm til h.f. „Dvergur.“
M.b. „Víkingur“ kom að vestan í
gær.
Frá Vestmannaeyjum kom inb. Njáll
í gær, hlaðinn fiski.
,,Suðurland“, hefir hið nýja skip
Eimskipafélags Suðurlands verið skírt,
og er það nú í þann veginn að leggja
á stað frá Kaupmannahöfn. Það er
fullhlaðið vörumt til Vestmannaeyja
og Borgarness.
Mb. „Úlfur“ fór vestur til Breiða-
f jarðar í gær með ýmsar vörur.
S.s. „Island“ er væntanlegt frá Isa-
firði um hádegi í dag.
„C. Castenskjöld1 ‘ frá Svendborg
kom liingað í gær með sementsfarm til
Jóns Þorlákssonar.
„Belgaum" kom í gær af fiskiveið-
um og hafði veitt fullfermi á 8 dögum.
Fer til Englands.
Þingfundir stóðu til kl. nál. 2y2 í
nótt. Þá lobs var annari umræðu um
stjórnarskrárfrumvarpið lokið.
Búsetuskilyrðið. Breytingartillaga
meiri hluta stjórnanskrárnefndar um
fimm ára búsetu í landinu til þess að
geta neytt kosningarréttar og kjörgeng-
is, var samþykt í nótt með 17 atkvæð-
um gegn 9. Tillaga minni hlutans var
feld með 10 :10.
KousHin konungur
Ha.iin hefir dvalið í Sviss síðan
ihaim lenti í útlegð og hefir til
.dægrastyttingar unnið að þvi að
safna skjölum og búa til yfirlit yf-
ir stjórnfærslu sína í Grikklandi á
meðan hann var við völd- Sjálfsagt
vonar hann að þeir tímar komi er
hann verður kallaður úr útlegðinni
og þá vill hann, og reyndar hvort
sem er leggja orð í belg svo að dóm-
ur sögunnar hallist ekki um of á
liann. —- Fyrst bjó hann íí 25iiricli,
síðan í Luzern og nú er hann á
Hotel Carton sem liggur upp í f jöll-
um í St. Moritz. Drotningin þolir
ekki háfjallaloftið og býr í Vulpera
sem liggur lægra. Börn þeirra eru
hér og þar og allmikið á ferli. —•
Konungur semur sig að borgara-
siðum og borðar með hinurn öðrum
gestum á hótelinu.
k Svenn Poulsen ritstjóri, sem var
hér í fyrra var í þessum mánuði í
Sviss og náði tali af konungi. Tal-
aði hann dönsku, sem hann hafði
lært af Georg konungi föður sín-
um sem var bróðir Friðriks 8. sem
kunnugt er. En ekki var hann þó
liðugur í henni.
„Eg hef engin bein sambönd við
land mitt“, sagði konUngur, „og
get því ekki öðrum fremur sagt um
hvernig þar er ástatt. Stefna mín
var sú að halda Grikklandi fyrir
utan stríðið svo lengi sem fært var.
Eg og ráðherrar mínir þóttumst vel
vita að stríðið mundi fara eins og
það fór. Það dugði því lítið þótt
við veittum Miðveldunum lið, það
befði orðið okkur hin mesta ógæfa.
Til Grindavíkur
og Keflavíkur
fara bifreiðarnar HF. 4 og HF. 17 fastar ferðir fyist um sinn i minud.
fii Rvík kl. 10 f. h. og fimtud. kl. 10 f. b. Farseðlar sddir hji kauptn.
Ásg. Gunnlaugssyni, Austurstr. 1, sími 102, og hjá kaopm. Einari Ein-
arssyni, Grindavik, og hr. Axd Möller í Keflavik.
Viiðingarfyllst
Egill Viihjálmsson. Sigurður Sigurðsson.
Skrifstofustarf.
%
Stúlka vön vélritun og sem hefir taisverða þekkingu í enskii tungn
getur, fengið gott skrifitofupláss nú þegar hji heildsöluverslun hér
bænnm.
A. v. á.
Herbergi
með húsgögnum óskast til leigu frá
miðjum septembernæstkomandihanda
dönskum manni er kemur með s.s.
Botniu næst og ætlar að dvelja hér
i bænum um $ja mánaða tíma. —
Uppl. á skrifstofu ísafoldarprent-
smiðju.
1-2 herbergi
og eldhús óskast til leigu strax eða
1. okt. Upplýsingar i ísafolda*--
prentsmiðju. Simi 48.
Oliuofnar
1
lakkeraðir og gerðir sem nýir
á Laugavegi 27
QLIT07MAK ÁBKKIÐUX
•ff
SÖÐULILÆÐI
ktypt káv verði.
X. Ti ft.
Og á hinu bógími var ábyrgðax-hluti
að fara með Bandamömium á móti
Tyrkjum, ekki síst vegna hinna íl
miljóna Grikkja sem búa í Tyrkja-
löndum og voru algerlega ofurseld-
'r g”imd þtirra sem er alkunn af
aðlerð þeir ’ i gegn Armeningjm.
,,Menu hafa sagt nð eg drag: ein-
lægt taum þjóðverja, en einasta á-
itæðan sera menn byggja það á er
það að kona mín er þýzk. Annars
hef eg að eius haldið fast við stefnu
föður mín,, cg Bretar þekkja hana
vel að hú.i er þeim vinveitt og eg
hef einlægt átt og á enn góða vini
í Engdandi. —• Nú eftir að friður er
saminn hljóta áhugamál Grikklauds
og Englands að falla mjög saman,
því að hvorttveggja eru siglinga-
þjóðir.“
Margir fleiri Grikkir eru einnig
laudflótta í tíviss og á konungs
bandi. Ef til vill fara þeir nú að
bei'ta áhrifum sínum heima fyrir til
að koma honum aftur að ríkjum. —
Eu horfurnar eru víst daufar, því
að sú öld, sem nú fer í hönd, virðist
ekki ætla að verða nein konungaöld.
Til Hafnailjaiðar
fara bilar fastar ferðir á hveijum
degi fri Austurstræii 17 kl. 2 og
frá Hafnaifirði kl. 5.
S í m a r:
í Reykjavík 231.
í Hafnarfirði 48.
Halldór Einarsson.
. Eyjólfur Eyjóllssou.
Ianilegar þakkir til allra þeirra,
sem á einn eða annan hátt auðsýndu
okkar kæra föður, Bjarna Péturssyni
frá Sjóbúð á Akranesi hjálp og um-
önnun i banalegu hans. Sérstaklega
viljum við tilnefna hr. hreppstjóra
Jóhann Björnsson og konu hans, sem
ávalt voru reiðubúin til hjllpar þeg*
ar þöifin var mest.
Loks þökkum við hjartanlega öll-
um þeim, er auðsýndu okkur hlut-
tekningu við fráfall og jaiðarför föð-
ur okkar.
Akranesi 23. ágúst 1919.
Börn hins Jdtna.
Sýnishorn af þsim eru í húsgagna-
verslun
Kristjáns Siggeirssonar,
Simi 79 B. Laugavegi 13.
Ritið »Fylkir«. 4. heftið fæs
i bókverslun Sigf. Eymundssonar.
F.innig hjá öðrum bóksölum hér i
bæ. Sömule'ðis nokkur eintök af
2. og 3. hefti. Fyrsta heftið er upp-
selt.
Nýtt peysupils til sölo; til sýnis
á afgr. Morgunbiaðsins.
Piano-kensla
byrjar 1. september.
Príða Magnússon
heima kl. 2—3.
KarfAfiur.
jo tunnur af nýjum /gætum kar-
töflum og 1 a u k u r verður selt hjá
Matthiasi Matthíassyni i Holti.
A. V. Carlqaiet
Stúlka
eða kona, sem getur pressaðj hálf3*1
eða heilan dagian, óskast. Gott kaoP'
Rydelsborg, Laugaveg