Morgunblaðið - 24.12.1921, Page 4

Morgunblaðið - 24.12.1921, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ brugðið upp klœðafaldi sínum og sveipað um það. Ilún viröist hafa gripið það upp úr íúminu í flýti og þotiö af stað með það. — Nú skil eg: þetta eru flóttamenn. — En heimsk eru þau engu að síöur, hélt pálminn áfram. Og fylgi þeim ekki verndarengill, þá liefði þeim verið betra að gefa sig óvin um sínum á vald, en að leita hingað út á eyðimörkina. — Eg get hugsað mér Jivernig þetta hefir atvikast: Maðurinn er við vinnu sína, barnið sefur í vögg- unni og konan er farin út að sœkja vatn. Þegar hún er komin nokkur skref frá dyrunum, sér hún óvin- ina koma æðandi. Hún þýtur inn, grípur barnið, kallar til mannsins að koma með sér, og hleypur af stað. Síðan hafa þau verið á flótta marga daga, og er er viss um, að þau hafa ekki notið augnabliks- hvíldar. Já, þann veg er þessu háttað; en eg segi nú samt, að ef ekki fylgi þeim verndarengill, þá .. — Þau eru svo óttaslegin, að þau finna enn hvorki til sársauka né þreytu ; en þorstann sé eg speglað- ann í augum þeirra. Eg held eg ætti að vera farinn að þekkja þorsta- merkin á ásjónum ferðamannanna. Og þegar pálmanmn kom þorst- inn í hug, fóru krampadrættir um stofninn og blöðin engdust saman, eins og þeim væri haldið yfir eldi. — Yæri eg maður, mælti hann, þá mundi eg aldrei hætta mér út á eyðimörkina. Enda er það ofdirfska öðrum en þeim, er rœtur eiga niðri í hinum ótœmandi vatnslindiun. Hér getur jafnvel pálmanum verið hætta búin — já, jafnvel pálma, eins og mér. — Gæti eg gefið þeim ráð, mundi eg ráða þeim að hverfa héðan hið fyrsta heim aftur. Því að óvinir þeirra geta aldrei orðið þeim jafn- skæðir og eyðimörldn. Ef til vill álíta þau, að gott sé að hafast hér, við. En sá veit gjör sem reynir, og oft hefi eg átt fult í fangi með að halda í mér lífinu. Er mér einkum minnisstætt eitt sinn er eg var ung- ur, þegar hvirfilvindurinn feykti yfir mig háu sandfjalli. Mér lá við köfnun. Og gceti eg dáið, þá mundi þetta hafa orðið minn bani. Pálminn hélt áfram að hugsa upphátt, eins og gömlum einstæð- ingurri er títt. — Eg heyri kynlegan hljómþyt fara um krónuna mína, mælti hann; hvert einasta blað titrar. Eg veit efcki hvað veldur þeim kynjum, er um mig fara við að sjá þessa vesa- lings flóttamenn. En konan hrygga er svo undur fögur. Hún minnir mig á hina dásamlegustu minningu lið- ins tíma. Og meðan þyturinn hvein í blöð- tmum, rifjaði pálminn upp fyrir sér viðburð löngu liðinna alda. Tvö stórmenni fóru þar um eyðimörk- ina. Það var drotningin frá Saba og Salómon kommgur hinn vitri. Hann var að fylgja henni heim á leið, og hér ætluðu þau að sldlja. Til minja um þessa stund, mœlti drotningin, sái eg döðlukjarná hér í jörðina, og eg mæli svo um, að upp af honum spretti pálmi, sem vaxi og þróist, uns Gyðingar eign- ast þann konung, er meiri sé en Salómon. Og sem hún hafði þetta mælt, sáði hún kjarnanum og vökv- aði með tárum sínum. En hvernig víkur því við, að mér kemur þetta í hug einmitt í dag? — spurði pálminn sjálfan sig. Get- ur það hugsast, að þessi flóttakona sé svo fríð, að hún minni mig á hana, sem fríðust var allra drotn- inga—- þá konu, sem með ummæl- um símnn réði tilveru minui, lífi og þroska til þessa dags ? — Þyturinn fer vaxandi í blöðum mínum, ög hann er angurblíður eins og Iíksöngur. Engu líkara, en að þau séu að spá feigð einhvers. En gott er til þess að vita, að ekki get- ur slík spá átt við mig, sem er ó- dauðlegur. Það hlutu að vera flóttamennirn- ir, sem þyturinn spáði feigð, hugs- aði pálminn. Enda hugðu þau sjálf maðurinn og konan, að ekki gæti hjá því farið,að þeirra síðasta stund væri í nánd. Það var auðséð á yfir- bragði þeirra, er þau fóru framhjá úlfalda-beinagrindum, sem lágu þar við veginn; og á augnaráðinu, sem þau gutu til hræfugla tveggja, er flugu fram hjá. Við öðru var ekki að búast. Þau hlutu að farast. Þá komu þau auga á pálmann og grastóna í kring og flýttu sér þang- að, í von um að finna þar vatn. En þegar loks þangað kom, hnigu þau niður af þreytu og örvæntingu — því að lindin var þomuð. Konan lagði barnið frá sér og settist grát- andi við lindar-farveginn; en mað- urinn fleygði sér niður við hlið hennar og lamdi með kreftum hnef- um skrælnaða jörðina. Og pálminn heyrði þau vera að tala sín á milli um að þarna hlytu þau að bera bein sín. Hann skyldi það einnig af sam- tali þeirra, að Heródes konungur hefði látið myrða öll börn tveggja og þriggja ára, af ótta við það, að hinn mikli vœntanlegi konungur Gyðinga vœri fæddur. — Þyturinn fer vaxandi, mælti pálminn. Þeir eiga víst ekki langt eftir, vesalings flóttamennirnir.1 Hann heyrði það líka á þeim, að þeim stóð ótti af eyðimörkinni. — Maðurinn sagði, að betra hefði þeim verið að vera kyrr og veita hermönn- unum viðnám, en að flýja hingað — það hefði orðið þeim léttbærari dauðdagi. — Ouð hjálpar okkur, svaraði konan. -— Hvernig má það verða, mælti maðurinn, þar sem við erum hér vamarlaus innan um óargadýr og höggorma. — Og hann reif klæði sín í örvæntingu og grúfði andlit- inu niður í jörðina. Hann var með öllu vonlaus, eins og sá, er fengið hefir banasár. En konan sat flöturn beiiium, spenti greipar um Imé sér og horfði út yfir eyðimörkina. Og svipur hennar lýsti talnnarkalausri sorg. Pálminn tók eftir því, að enn óx þyturinn í laufinu. Kónan hafði auðsjáanlega orðið þess vör; því að liún leit upp í laufkrónuna. Og um leið hóf hún ósjálfrátt upp hend- urnar. — Döðlur, döðlur! hrópaði hún. Svo innileg bæn fólst í röddinni, að pálminn óskaði að hann væri ekki hœrri en svo, að jafn-auðvelt væri að ná í döðlur hans, eins og að tína rauðu berin af þyrnirunn- anum. Hann vissi sem sé að krón- an var alsett döðluskúfum, — en hvernig áttu flóttamennirnir að ná til þeirra, slíka ógnar-hœð. Maðurinn hafði þegar veitt því eftirtekt, að döðlurnar héngu svo hátt, að engin leið var að ná þeim. Honum varð það því ekki einusinni að líta víð, en hafði hinsvegar orð á því við konuna, að lítið gagnaði: að óska þess, sem ómögulegt væri. Jólaöagur. Ljómnna hátið Ijómar l dag yfir löndin — borg og sveit. Berst upp í hvelin lofsöngsla-g lengra en nokkur veit. Brosunum fjölgar, barniff fagnar. böliff þokast fjarri. Gleðin fœr vœngi, gráturinn þagnar, guff er öUum nœrri. Eitt lítiff barn var borið á jörff — og bjart varð í sama mund. Himneskar disir héldu þar vörff. -— paff var hamingju og sigur stund, þvi enn verffur bjart, ef um það er talað, og óskirnar hreinni og betri. Boffskapur þess hefir sálunum svalað og sumar skapað úr vetri. — — paff er háiið í dag á himni og jörð og heimurinn bjartur og nýr. Lofsöngvar hljóma yfir hrimgaffan svörð. Öll hrelling á burtu snýr. Ástin á Ijósinu leysist úr dróma. Nú likna menn sjúkum og mœddum. í kirkjum og hreisum Ijósin Ijóma lifsins konungi fœddum. Jóladagur! Flyt Ijós yfir láff og lif og trúardýrð. Kom þú með himinsins lieilög ráff, sem hér verða aldrei. skýrð, svo brosunum fjölgi, börnin fagni, böliff þokist fjarri, gleffin kvikni, gráturinn þagni og guð verffi öllum noerri. J. B. En barnið, sem var að hlaupa þar í kring og leika sér að stráum, það heyrði andvörp móður sinnar. Og litli drengurinn gat ekki unað því, að mamma hans fengi ekki það, sem hún bað um. Þegar hann heýrði nefndar döðlur, varð honum litið upp í tréð, og hann braut heilann um það, hvernig hann ætti að fara að því, að ná í döðlurnar. Og lá við, að hrukkur kæmu á ennið undir ljósu lokkunum. Loks brá fyrir brosi á andliti sveinsins. Hann hljóp að pálmanum, klappaði honum með litlu hendinni og sagði með blíðri barnsrödd: Beygffu þig, pálmt! Beygðu þig, pálmi! — En hvað er nú þetta — hvað er um að vera? Það hvein í pálmablöðunum, eins og um þau færi fellibylur, og bol- urinn kyptist við hvað eftir annað. Pálminn fann, að hér var við ofur- efli að etja. Hann varff að hlýða drengnum litla. Og hann lét bolinn sinn háa lúta baminu, eins og menn lúta höfð- ingjum. Hann laut svo lágt, að krónan milda með blaktandi blöð- unum nam við sand eyðimerkurinn- ar, og bolurinn varð eins og afar- mikill bégi. Drengnum virtist alls ekkert bregða við þetta, en hann hljóp að krónunni með fagnaðarópi og tíndi hvern döðluskúfinn á fætur öðrum af gamla pálmanum. Þegar hann þóttist vera búinn að fá nóg, og pálminn lá enn hreyfingarlaus, gekk hann til hans aftnr og sagði með innileikans blíð- ustu rödd : Uistu upp'þpálmi! — ristu upp. Og stóra tréð rétti úr sér liægt og með lotningu, og í blöðunum heyrðist þytur — eins og hörpu- hljómur. — Nú veit eg yfir hverjum þið syngið líksönginn, mælti gamli pálm- inn, þegar hann var búinn að rétta úr sér. Það er ekki yfir neinum þessara flóttamanna. En maðurinn og konan krupu á kné og lofuðu guð: — Þú hefir séð örvœnting okkar og freLsað okkur. Þú ert hinn voldugi, sem beygir stofn pálmans eins og reyrstrá. — Hver er sá óvinur, er við þurfum að óttast, þegar þú verndar okkur. Næsta sinn, er kaupmannalest fór um eyðimörkina, sáu þeir að lauf- króna pálmans mikla var visnnð. —- Hvernig víkur þessu við ? sagði einn ferðamannanna. Þessi pálmi átti ekki að visna fyr en hann liti þann konung, er meiri vceri en Salómon. — Má vera að hann hafi séð hann, svaraði annar. Árni Jóhannsson. Kirkjutónlist eftir Jórr Leifs, (Leipzig). íslenskir lesendur hafa frétt, hversu mjög kirkjutónlist er iðkuð í Miðevrópu. Listfengan organleik má þar heyra í flestum kirkjum. Organin eru ákaflega fullkomin, enda margra tugi ,þúsund króna virði. Við guðsþjónustur þar syngja listæfð kór, ýmist með eða án undir- leik orkesturs. Ýmiskonar hljóðfæra- leikur er iðkaður, bæði í einleik og samleik. Víða er það siður, að fast- * ar tónmessur eru haldnar, með margskonar skipulagi. Þá syngur blandað kór, orkestur leikur, organ er leikið, ritningarkaflar eru upp- lesnir, blessanir og bœnir eru haldn- j ar o. s. frv. Þannig hefir tónlist um langt' skeið verið iðkuð í kirkjum allra J trúarflokka Miðevrópu. Samt heyr-! ast nú sífelt raddir um, hvílík nauð- j syn það sé, að nota listir meir í þágn trúarbragðanna. í blöð og tímarit hefir verið um þetta ritað. Sýning- ar, fundir og mót hafa verið haldin í sama tilgangi. En eitt stœrsta sporið í þessa átt mun þó hafa ver- ið stigið með sérstofnún nokkurri við tónlistarháskólann í Leipzig. Sér- stofnun þessi heitir „Institut fúr Kirehenmusik ‘ (stofnun fyrir kirkjutónlist), og var hátíðlega opn- uð sunnudaginn þ. 23. otkóber þ. á. í viðurvist boðsgesta. Var þar sam- ankominn fjöldi fulltrúa opinberra stofnana ríkisstjórnarinnar, borgar- ráðsins, sambanda kennimanna og leikmanna, blaðanna o. fl. í byrjun hátíðahaldsins lék kenn- ari stofnunarinnar, Thomas organ- isti Gúnther Ramin preludimn og fuga (g-moll) eftir J. S. Bach. Því næst voru ræður haldnar. Mesta, eftirtekt vakti ræða próf. Straube, Thomaskantors og forstjóra sér- stofnunarinnar. Mál hans skal hér stuttlega rakið: „Nú skal lýst markmiðum stofn- unar þessarar. Fjárhags-ástandið veldur mörgum áhyggjum. Fullyrt er, að kirkjutónlistina skorti fjár- hagslegan grundvöll. Áhugi og fórn- fýsi geta unnið bug á slíku. Þýska kirkjd fer nú í gegum sama eldinn og franska kirkjan áður. Eftir skiln- að ríkis og kirkju, sögðu bestu org- anleikarar þar ekki upp stöðum sín- um. Þó lækkuðu launin svo, að slík- ur listamaður sem Widor hafði að- eins eitt þúsund franka, en áður fékk hann 12 þúsund franka. Listamenn þýsku kirkjunnar standa nú nokkuð betur að vígi, þar sem mótmælenda- kirkjan hefir eindreginn vilja á því að halda aðalstöðunum og tryggja þœr. Mörg eru rotnunaímerki þessa tíma. Vér höfum kvikmyndaleikhús, kaffihús, fjölleikhús og lélega skemtistaði allra tegimda. Fullyrt er, að kraftur trúarinnar sé að hverfa. En menn varist að dæma eft- ir stórborgunum. Trúarandinn er til og hann ber að þroska. Þar nœr á- hugi allra þjóna kirkjunnar að mæt- ast. Trúin, í orðsins víðtækustu merkingu, er sá óbifanlegi grund- vÖllur, sem veldur öllum þroska og allri framfarale.it. Tónlistamenn kirkjunnar verða að hafa samvinnu við hina þjóna kirkjunnar og gera sitt ítrasta til þess að hrífa söfnuð- inn, skapa og þroska trúargrund- völlinn. Þess sannfæring sýnir oss æðsta takmark starfs vors. Þetta er tilgangur stofnunarinnar. Ekki er nóg að menn læri hér að leika vel á organ og stjórna kórir heldur læri menn að fœra sér í nyt allan tónlistarauð mótmælendakirkj- unnar, afli sér ennfremur þekking- ar á skipulagi guðsþjónustanna og öllu þar að lútandi, og lœri að hafa samvinnu við prestana þannig, aff guffsþjónustan, sem hedd, verði að sönnu listaverki. Kaþólsku kirkjunni er sagt það til lofs, að hún hafi listfengar og* áhrifamiklar guðsþjónustur. Mót- mælendakirkjan hefir engu minna efni, ef vel er á haldð. Við guðs- þjónustur ber að leggja meiri á- herslu á kantötuna (söngverk með undirleik). Kirkjusiðunum (litur- gie) verður að sýna meiri rækt. Nemendur vorir geta aldrei lagt næga alvöru í nám sitt og starf. peirn verður best óskað trúaranda Bruckners og J. S. Baehs, þ. e. að vinna/ í smáu að miklum tilgangi soli deo gloria“. Ræðu þessari var tekið með al- menhri hrifningu.’ Leikmenn og kennimenn studdu málið fast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.